Morgunblaðið - 20.03.1938, Síða 8

Morgunblaðið - 20.03.1938, Síða 8
Fjarskygmssíminn. Læknir einn í Holbæk hringdi að morgni dags til eins sjúklinga sinna. En síma- þræðir höfðu slegist saman, svo læknirinn heyrði á samtal sjúk- lingsins, er var ein af hefðarfrúm staðarins, og vinkonu hennar. Jeg mátti til að segja þjer frá þessu strax, sagði frúin við vin- konu sína, og þess vegna rauk jeg í símann upp úr rúminu á nátt- kjólnum undir eins og jeg vakn- aði. Síðan slitu þær talinu, en lækn- irinn hringdi óðara og segir: Góðan daginn, frú. Hvernig er gigtin í dag? Eða er sem mjer sýnist? Eruð þjer ekki þarna við símann á náttkjólnum? Eruð þjer alveg frá yður? Ef þjer hegðið yður svona er ekki von að gigtin batni. Þjer getið auk þess fengið lungnabólgu. — Hvað segið þjer, læknir? Sjáið þjer mig? — Auðvitað sje jeg yður. Þjer hafið heyrt getið um hinn nýja fjarskygnissíma. Jeg fekk einn slíkan í fyrradag. Frúin hvarf skyndilega úr sím- anum, án þess að kveðja. * Forsetafrú Bandaríkjanna er nýfarin að nota varasmyrsl. Er tíðindakona blaðs eins spurði hverju þetta sætti, sagði frúin að hún hefði lært þetta af dóttur sinni. * Stúlka kom inn í búð til að kaupa varasmyrsl, og bað um teg- und sem væri „kissproof“. — Þjer meinið hvort smyrslið sje „kosshelt“, sagði afgreiðslu- stúlkan. * „Gamal ostur“ er mesta sælgæti, ekki síður en hákarl. En lyktin er ekki sjerlega góð. Járnbrautarfarþegi, er fór með lest frá Helsingjaeyri til Hafnar, sagði frá því á dögunum hvernig maður ferðast með slíkt hnoss- gæti, án þess að hafa óþægindi af ólyktinni. Hann segir svo frá: Jeg kom inn í vagnklefa, sem var full- skipaður. Fann jeg strax að ólykt var þar mikil. Ferðafjelagar mínir voru auðsjáanlega á sama máli. Þeir Iitu hvor annan hornauga, og hugleiddu frá hverjum fýlan stafaði. Er lestin nálgaðist stöð eina kom maður úr öðrum klefa inn til okkar og bað um. að rjetta sjer böggul sem hann ætti þar í tösku- netinu uppi yfir höfðum okkar. Yið sáum þá hvers kyns var. Þetta var gamal ostur. Frá honum staf- að ólvktin. Er maðurinn lagði af stað með ostinn fór jeg í humáttina á eftir honum og spurði hann því hann hefði geymt ostinn þarna. Mjer þykir ákaflega góður gam- alostur, sagði maðurinn. I hverri viku kem jeg til kunningja míns í Helsingjaeyri. Þar fæ jeg altaf allra besta ost. En til þess að þurfa ekki að sitja í ólyktinni í lestinni, set jeg ostinn altaf inn í annan klefa, áður en nokkrir far- þegar koma þangað. * Ríkismaður var nýbúinn að byggja sjer íbúðarhús mikið. I útidyragangi voru 4 myndastytt- ur. Er hann var nýfluttur í húsið hauð hann til sín margmenni. Einn af gestunum spurði ann- an. Veistu hvað myndastyttur þessar tákna? Hinn kvað nei við. — Það eiga að vera skilningar- vitin 5. — Já, en myndirnar eru ekki nema 4. — Nei, veit jeg vel. Smekkinn vantar. MÖRGUNBLAÐIÐ Jficuifis&afuw Athugið: Hattar, Húfur, Sokkar, Nærföt, Manchetskyrt- ur, Bindi, Slifsi, Dömusokkar, Peysur, Sportsokkar, Ullarsokk- ar fyrir telpur og drengi o. fl. Karlmannahattabúðin. Hand- unnar hattaviðgerðir sama stað. Hafnarstræti 18. Geng í hús og þvæ þvotta. Vönduð vinna. Sími 1307. Halló, húsmæður! Nú erum við byrjaðir að gera hreint. — Pantið í tíma. Jón og Guðni. Sími 4967. Hreingerningar, loftþvottur. Sími 2131. Vanir menn. Fallegt fermingarkjólaefni nýkomið. Ennfremur hvítir sokkar. Verslun Karolínu Benedikts, Laugaveg 15. Otto B. Amar, löggiltur út varpsvirki, Hafnarstræti 19. — Sími 2Y99. Upps«ítning og við- gerðir á útvarpstækjum og loft- netum. Lítið steinhús til sölu eða í skiftum fyrir bústofn og land- búnaðartæki. Árni Jónasson, Hörpugötu 10, Reykjavík. Sokkaviðgerðin, Hafnarstræti 19. gerir við kvensokka, stopp ar í dúka, rúmföt o. fl. Fljót af- greiðsla. Sími 2799. Sækjum, sendum. fslenskt böglasmjör, afbragðs gott. Lúðuriklingur. Þorsteins- búð, Grundarstíg 12. Sími 3247. Hveiti í ljereftspokum frá kr. 1.75 pr. poka og flest til bök- unar. Haframjöl, fínt, í 7 punda ljereftspokum. Þorsteinsbúð. Sími 3247. Geri við saumavjelar, skrár og allskonar heimilisvjelar. H. Sandholt, Klapparstíg 11. Sími 2635. Sveskjur, Gráfíkjur. Sítrón- ur. Þorsteinsbúð. Sími 3247. (HCItynnittípw K. F. U. K. Yd. Fundur í dag kl. 4. Munið: Ud. fundur í dag kl. 5. Þar syngur ung- meyjakór K. F. U. K. Einnig samspil, orgel og piano. Bjarni Egilsson talar o. fl. Ungar stúlkur 14—17 ára, fjölmennið. Til sölu notaðar bifreiðar. Heima kl. 5—7. Sími 3805. — Zophonias Baldvinsson. Vjelareimar fást bestar hjá Poulsen, Klapparstíg 29. Hey til sölu. Sími 3700. Kaupi gamlan kopar. Vald. Poulsen, Klapparstíg 29. Heimatrúboð Ieikmanna, — Bergstaðastræti 12 B. Sam- koma í kvöld kl. 8. Hafnarfirði Linnetsstíg 2. Samkoma í dag kl. 4 e. d. Allir velkomnir. Kaupum flöskur og glös og bóndósir. Bergstaðastræti 10 (búðin) frá kl. 2—5. Sækjum. Kaupum flöskur, bóndósir, meðala- og dropaglös. Sækjum. Verslunin Grettisgötu 45 — (Grettir). Friggbónið fína, er bæjarin? besta bón. Slysavamafjelagið, skrifstofa Hafnarhúsinu við Geirsgötu Seld minningarkort, tekið móti gjöfum, áheitum, árstillögum Sænski smábátamótorinn Göta fæst í Verslun Jóns Þórðarson- ar. Snimúdagur 201 mars 19381 Sumarbústaður óskast leigð- ur. Sími 2965. Hraðritunarskólinn. Get bætt- við byrjendum. Sími 3703. 5afuið-fwndÁÍ Peningabudda með 40 krón- um týndist í Miðbænum í gær. Skilist á afgreiðsluna. 3 herbergi og eldhús með' nútíma þægindum óskast 14. maí í suðaustur hluta bæjar- ins eða Sólvöllum. — Tjlboð merkt VSFÍ sendist í pósthólf 425. (T&fotC'l' íbúffir stórar og smáar, og her- bergi, Leigjendur einhleypa og heimilisfeður, Stúlkur í vist, Kaupendur að hverju því, sem þjer hafið að selja. Muni sem þjer viljið kaupa. Nemendur í hvaða námsgrein sem er. Smá- auglýsingar Morgunblaðsins eru lesnar í hverju húsi. KOL OG SALT sími 1120 E FAITH BALDWIN: EINKARITARINN. 6. „Það segir mamma líka“, sagði Anna, en þagnaði skyndilega og beit á vör. Roðinn færðist í kinnarnar og Betty brosti og fussaði. „Frú Murdock er aug- sýnilega hliðholl Ted“. En hún mundi sína eigin æfi og sagði í viðvörunar- róm: „Vertu ekki of fljótráð, Anna“. „Það er ekki hætt við því!“, svaraði Anna. „Jeg elska starf mitt, og jeg er svo kappsöm — alt of kapp- söm, hugsa jeg“, bætti hún við með þessu skemtilega bragði að grípa fram í fyrir sjálfri sjer og hló að alvöru sinni. „Jeg verð að fara“, sagði hún og greip hönd Bettys. „Forstjórinn er hjá Mr. Sanders. Hann bað mig um að skrifa brjef fyrir sig á eftir. Andrews er farin heim“. „Hvað er nú að?“, spurði Betty. „Jeg sá hana áðan frammi á ganginum, sýndist hún útgrátin og mikið fát á henni. Hún hristi glóbjartan kollinn.' „Jeg veit það ekki. Jeg sje hana við og við. Hún býður mjer stundum að borða. Hún býr ein í West Tenth Street. Hún er einkennileg. Og hún lifir og andar fyrir skrifstofuna“. Þær hugsuðu báðar sitf, síðan sagði Anna: „Jæja, vertu nú sæl. Jeg síma í kvöld til þess að fá frjettir af Bili litla“. Þegar hún var farin, sneri frú Howard aftur að skrifborði sínu og fylgdi Önnu með augunum, er hún skundaði Ijettfætt niður ganginn. Henni hafði þótt vænt um þenna yngri vinnufjelaga frá því að þær höfðu fyrst hittst. Anna var ljómandi lagleg stúlka, full af lífsfjöri og innilega alúðleg í viðmóti. Hún- hafði líka ágætan heila. Hún hafði unnið sig upp ör- ugt, en ekki of lfjótt, og var nú í ágætri stöðu. Betty áætlaði, að hún hefði 40 dollara á viku, og það voru ágæt laun fyrir stúlku, sem hafði aðeins sjálfa sig að sjá um. Mrs. Howard leit á úr sitt. Engar frjettir voru góð- ar frjettir. Ted O’Hara gekk framhjá henni og fór frain á ganginn, líklega á leið til skrifstofu Sanders, í þeim tilgangi að fá að sjá Önnu bregða fyrir. Hann hafði orðið bráðástfanginn af henni við fyrstu sýn. „Og það er ekki hægt að lá honum það“, hugsaði Mrs. Howard. „En ung stúlka í góðri stöðu, sem giftir sig, er kjáni“. En hefði húu ekki gifst, liefði hún ekki átt BiIIy — Billy og Frank, pabba hans, þessar hjartfólgnu sálir, sem stóðu í vegi fvrir því að þeir glæsilegu draumar, sem hún einu sinni hafði átt um framtíðina, gætu ræst. Hún andvarpaði óþolinmóðlega og sneri sjer að vinnunni. Ef Andrews væri látin fara, hugsaði hún. M.vndi Anna þá vera sjálfkjörin í stöðu hennar? Anna var nú inni á einkaskrifstofu Fellowes. Hún beið, meðan hann tók á móti skilaboðum, sem honum voru færð, og Ieit í kringum sig í herberginu meðí þessari sömu hrifningu og hugaræsing, sem ltún komst altaf í, þegar hviu kom þangað inn. Síðasta hálfa árið hafði hún komið daglega inn til Miss Andrews með uppkast frá Sanders til Fellowes og hafði þá jafnart, horft löngunarfullum augum á liurðiua inn til for- stjórans. Nú hafði hún tækifæri til þess að virða stof- una fyrir sjer. Henni fanst alt svo fallegt þar inni og viðkunnanlegt, að henni fanst hún myndi geta verið þar heilt ár í einu, án þess að verða leið á því. Ósjálf- rátt þráði hún að hafa fegurð í kringum sig. Hún var að hugsa um, hve miklum peningum liefði verið eytt í þessa fallegu og friðsömu skrifstofu, þegar Fellowes ávarpaði hana með hinni djúpu og hættulega heillandi röddu. Hann rjetti henni liraðritunarhefti Miss And -rews. „Haldið þjer, að þjer getið lesið það, sem Miss,. Andrews er búin að skrifa, eða á jeg að lesa frá byrjun, Miss Murdock?“ Anna athugaði skriftina með æfðum augum. „Þetta er Greggkerfið. Jú, jeg lield, að jeg komist fram úr því. Við skulum halda áfram, þar sem þjer liættuð“. Fellowes horfði á hana með viðurkennandi svip. Það var sjaldgæft að finna stúlku, sem gat lesið hraðritun eftir aðra. Og — það var enn sjaldgæfara að vinna með stúlku, sem var svona ung og lagleg. Hann sá, að Anna átti hægt með að fylgja hinum reiprennandi lestri hans. Janet Andrews hafði líka verið dugleg, en hana vantaði allan yndisþokka. Honum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.