Morgunblaðið - 08.04.1938, Blaðsíða 7
Föstudagur 8. apríl 1938.
IIORGUK JfíLA.^IÐ
7
Odýrar og skemtt-
legor sögnbækur:
Leyndardómar kastalans 2.75.
Rut kr. 3.75.
Cardby frá Scotland Yard 4.80.
Aðalsdramb 5 kr.
Svarta slangan 3.75.
Þvert um geð 4.50.
Maðurinn með stálhnefana 4.50 bd.
Sonur eyðimerkurinnar 3.75.
Pjölskyldan í Mervinhöllinni 3.75.
BÓKABÚÐIN á Skólavörðustíg 3
eulrúfur, kartöflur,
bögglasmjör, rjómabússmjör,
hveiti í smápokum og lausri
vigt. Alt til bökunar eins og
vant er. Bæjarins besta ger-
duft 1.25 % kg.
amnflnnseuí)
Týsgötu 1 — Sími 3586.
Höfum
ffðlbreyit úrval
af Silki- og Pergament-
skermum.
SKERMABUÐIN
LAUGAVEG 15.
Bálfarafjelag íslands.
Skrifstofa: Hafnarstræti 5.
Fjelagsskírteirii (æfig'jald) kosta 10 kr.
Skírteini, sem tryggja bálför, kosta 100
krónur, og má greiða þau í fernu lagi,
á einu ári. Allar nánari upplýsingar á
skrifstofu fjelagsins. Sími 4658.
Qagbók.
I.O. O.F. 1 = 119488>/2 =
Veðurútlit í Beykjavík í dag:
SA-gola. Úrkomulaust.
Veðrið í gær (fimtud. kl. 17):
Hægviðri um alt land og þurt veð-
ur. Hiti 3—5 st. suðvestanlands,
en sumstaðar dálítið frost norðan
lands. Suður af Hrænlandi er
grunt en víðáttumikið lægðar-
svæði, sein mun valda SA-átt hjer
á landi og mildari veðráttu inn-
an skamms.
Næturlæknir er í nótt Halldór
Stefánsson, Ránargötu 12. Sími
2234.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinn Iðunni.
Föstuguðsþjónusta í fríkirkj-
unni í Hafnarfirði í kvöld kl. 8.30.
Sr. Jón Auðuns.
í stjórh sparisjóðs Reykjavíkur
voru tveir menn kosnir í gær í
bæjarstjórn, Helgi H. Eiríksson
skólastjóri, og Kjartan Olafsson
múrari. Endurskoðendur voru þeir
kosnir Björn Steffensen og Oddur
Olafsson. A aðalfundi ábyrgðar-
manna sjóðsins voru þeir kosnir
Q»uðm. Asbjörnsson, Jón Halldórs-
son' húsgagnasmiður og Jón As-
björnsson.
Sigurður Bjarnason, stud. jur.
var kosinn einn af meðstjói'nend-
um Heimdallar í fyrrakvöld, Föð-
urnafn bans misprentaðist í blað-
inu í gær.
Skrautdansleikur. Skemtiklúbb-
urinn Carioca heldur skrautdans-.
leik í Iðnó annað kvöld kl. 10.
Hljómsveit Blue Boys mun leika
undir dansinum nýjustu slagar-
ana, ásamt hinum vinsælu dans-
lögum úr revýunni „Fornar dygð-
ir“. Þá verður hægt að fá alls-
konar skrauthúfur, smellur,
skraut-sólhlífar o. fl.
Hinrik Jónsson lögfræðingur
var á síðasta bæjarstjórnarfundi
í Vestmannaeyjum kosinn bæjar-
stjóri í Eyjum.
Sjálfstæðisfjelag Vestmannaeyja
hjelt aðalfund sinn í fvrrakvöld.
Var fundurinn mjög fjölsóttur.
Formaður gaf langá skýrslu um
starfsemi fjelagsins á liðnu starfs
ári. Stefán Arnason var endur-
kosinn formaður; einnig voru þeir
endurkosnir Gísli Wíum (gjald-
keri) og Georg Gíslason (ritari).
Meðstjórnendur voru kosnir Guð-
laugur Gíslason og Hinrik Jóns-
son og í varastjórn Tómas Guð-
jónsson og Ársæll Sveinsson. End-
urskoðendur voru kosnir Leifur
Sigfússon tannlæknir og Sigurð-
ur Bogason.
Póstferðir á morgun. Frá Rvík:
Mosfellssveitar, Kjalarness, Kjós-
ar, Reykjaness, Olfuss og Flóa-
póstar. Hafnarfjörður. Seltjarnar-
nes. Grímsness og Biskupstungna
póstar. Fagranes til Akraness. —
Til Rvíkur; Mosfellssveitar, Kjal-
arness, Kjósar, Reykjaness, Ölfus
og Flóapóstar. Hafnarf jörður.
Seltjarnarnes. Austanpóstur.
Fagranes frá Akranesi.
í fasteignamatsnefnd voru þeir
kosnir á bæjarstjórnarfundi í gær,
Sigurður Thoroddsen og Sigurjón
Sigurðsson, af lista Sjálfstæðis-
manna, er fjekk 9 atkvæði. Listi
Alþýðuflokksmanna fjekk 4 at-
kvæði. Varamenn voru kosnir,
með sömu atkvæðatölu Guðmund-
ur Eiríksson og Jón Ásbjörns-
son. En til þess að framkvæma
fasteignamat, samkv. 12. gr. fast-
eignamatslaganna, voru þeir kosn
ir Guðmundur Eiríksson og Sig-
urjón Sigurðsson.
Ólafur Ólafsson kristniboði hef-
ir föstuguðsþjónustu í Betaníu í
kvöld kl. 8%. Samsöngur með
strengjahljóðfærum. Allir vel-
komnir. Frjáls samskot.
Skíðaskáli K. R. Þeir sem hafa
fengið loforð fyrir plássi í skál-
anum yfir páskana, verða að vitja
miða á skrifstofu K. R. milli kl.
8 og 10 í kvöld.
Af veiðum komu í gær Hannes
ráðherra með 100 föt lifrar, Max
Pemberton með 111, Gyllir með
80 og Hafsteinn með 65 föt lifrar.
E.s. Gullfoss fór í gær til Akra-
ness til að lesta fisk.
Ekkjan Steinunn Jónasdóttir,
Veghúsastíg 1, er 81 árs í dag.
Barnaheimilið „Vorboði". Nefnd
sú, er kosin var til þess að vinna
að fjársöfnun fyrir heimilið, hefir
nú þegar hafið starfsemi sína, og
er þess fastlega vænst, að konun-
um verði vel tekið. Allir munu
skilja það, hvað þetta er nauð-
synleg starfsemi, að hjálpa bless-
uðum börnunum að komast nokkr-
ar vikur burt úr göturykinui. Eitt
af því, sem konurnar vinna nú að
af kappi miklu, er að útbúa baz-
ar. Er því sjerstaklega óskað eft-
ir að sem flestar konur gefi ein-
hverja smámuni á hann. Undir-
ritaðar konur veita munum mót-
töku: Gíslína Magnúsdóttir,
Feyjugötu, 27 A. Guðrún Halldórs-
dóttir, Njálsgötu 4. Helga Ólafs-
dóttir, Grettisgötu 79. Unnur
Skúladóttir, Ránargötu 12. Marta
Þórarinsdóttir, Ásvallagötu 33.
Eimskip. Gullfoss fer til út-
landá í kvöld. Goðafoss er á leið
til Hamborgar frá Grimsby. Hrú-
arfoss kom til Leith í gær. Detti-
foss kom að vestan og norðan um
miðnætti í nótt. Lagarfoss er í
Kaupmannahöfn. Selfoss er á leið
til Hull frá Hamborg.
Tískusýningar. Á morgun hefir
Hattabúðin í Austurstræti 14
tískusýningar á vor- og sumar-
höttum fyrir kvenfólkið. Sýning-
arnar verða kl. 2, 4 og 6.
Reykjavíkurstúkan heldur fund
í kvöld kl. 9. Sören Sörensen flyt-
ur erindi i Gull og silfur.
Revýan „Fornar dygðir“ verður
leikin á sunnudagseftirmiðdag í
síðasta sinn fyrir páska. Er það
í 21. skifti, sem revýan verður
sýnd.
Útvarpið:
Föstudagur 8. apríl.
8,30 Enskukensla.
10.00 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
18.45 Islenskukensla.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Þingfrjettir.
19.50 Frjettir.
20.15 Erindi: Frá Grænlandi, III.
(Sigurður Sigurðsson, f. búnað-
armálastj.).
20.40 Hljómplötur:
a) Fiðlusónata í B-dúr, eftir
Mozart;
b) Píanósónata í cis-moll, eftir
Beethoven.
21.20 Útvarpssagan.
21.50 Hljómplötur; Harmónílcu-
lög.
22.15 Dagskrár'lok.
MHuiiiiiiiiiiNiuiHtiiiHiitimimiiiiiimmiiKiiiHiiiiiiiuiiNtitHiiiiiiiiiiiiiiiiitriiiiitiiiiiiiiiiiitmiriiiiiiiiiiiiiiiiiininHiiiiiiuitiiii!.
| Skrúðgarðar.
Nú fer sá tími að nálgast, að menn fari |
að laga kringum hús sín og undirbúa vor- |
ið. Munið þá að hafa við hendina bókina 1
SKRÚÐGARÐAR eftir Jón Rögnvalds- §
son garðyrkjufræðing á Akureyri. I bók- 1
inni eru ótal leiðbeiningar og uppástung- |
ur um tilhögun á görðum kringum hús. |
Einnig eru þar leiðbeiningar um hentugt |
val á plöntum. |
Notið þessa bók. Hún fæst í öllum bóka- l
verslunum.
liiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiitiiiiiuimiiNiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiu
AÐV0RUN
Að gefnu tilefni, eru innflytjendur hjer með
alvarlega varaðir við því, að gera ráðstafanir til
innkaupa á erlendum vörum, nema þeir hafi áður
trygt sjer gjaldeyris- og innflutningsleyfi.
Yegna erfiðs gjaldeyrisástands geta menn ekki
búist við að leyfisveitingum á þessu ári verði hagað
á sama hátt og t. d. síðastliðið ár, og geta þess vegna
ekki gert áætlanir um innkaup frá útlöndum eftir
fyrri reynslu.
Þeir, sem ekki taka ofangreinda aðvörun til
greina, mega búast við að þeir verði látnir sæta
ábyrgð, samkv. gjaldeyrislögunum.
Reykjavík, 6. apríl 1938.
Gjaldeyris- og innflutningsnefnd.
MorgunbtaðiO með morgunkaffinu
Það tilkynnist ættingjum og vinum, að móðir okkar og
tengdamóðir
Ragnhildar Jónsdóttur
frá Minni-Bæ, andaðist að Hömrum í Grímsnesi 31. mars.
Jarðarförin fer fram að Mosfelli 11. þ. m.
Böm og tengdaböra.
Jarðarför
Guðmundar Arnórssonar
fer fram frá Elliheimilinu laugardaginn 9. apríl kl. 3 e. hád.
Margrjet Guðmundsdóttir. Þorsteinn Guðmundsson.
Guðrún Þorsteinsdóttir.
Þökkum hjartanlega öllum, fjær og nær, auðsýnda samúð
og vinarhug við fráfall og jarðarför
Stefáns Einarssonar frá Krókvelli í Garði.
Sigríður Sveinsdóttir, böra og tengdaböra.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og ‘jarðarför föður
okkar
Vigfúsar Benediktssonar.
Böra hins látna.