Morgunblaðið - 17.05.1938, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 17. maí 1938.
FALLEGT HÖRUND
fæst því aðeins, að þjer gæt-
ið þess á hverju kvöldi, að
hreinsa burt púður og óhrein-
indi eftir daginn.
PIEOL A-hreinsrunarcrem
hjálpar yður. Nuddið því vel
inh í hörundið, þurkið það
síðan af og um leið þurkið
þjer burtu óhrednindin og
púðrið.
f hreinsunarcreminu eru
einnig næringarefni, sem eru
hörundinu nauðsynleg.
Fáið yður í dag eina krús.
Munið: P I R O L A
fyrst og síðast.
Höfum flutt
vinnustofu okkar og skrif-
stofu í Þingholtsstræti 23.
Magni h.f.
Bjargarstíg 2. Sími 2088.
„Dettlfoss18
fer á fimtudagskvöld (19.
maí) um Vestmannaeyjar til
Grimsby og Hamborgar.
Farseðlar óskast sóttir
fyrir hádegi á fimtudag'.
„SeUoss1*
fer væntanlega 20. maí um
Vestmannaeyjar til Ant-
werpen oe- London.
Veggfóður
mikið úrval
nýkomið.
GUÐM. ÁSBJÖRNSSON
Lauffaveg- 1. Sími 4700.
EGGERT CLAES8EN
hæstar j ettarmálnflu'tnin gsm aður.
Skrifstofa: Oddfellowhúsið,
Vouaratræti 10.
(Inngangur urn austnrdyr/.
Pappfrspokarnir
og staöreynd-
irnar
Lltill Mttur atvinnu-
sögu Islendinga
Matvörukaupmenn hjer í
bæ hafa kvartað yfir því,
að iðnfyrirtæki eitt, sem þeir
verða að v,ersla við, seldi vöru
sína óhæfilega dýru verði. Það
er hin svonefnda Pappírspoka-
gerð. Hún hefir hjer einokunar-
aðstöðu. Enginn innflutningur
fæst á pappírspokum vegna
þessarar innlendu framleiðslu.
Kaupmenn kvarta yfir, að
með því sjeu þeir skattlagðir
óþarflega, er þeir sýna fram á,
að þeir geti fengið ódýrari um-
búðir en þeir fá hjá fyrirtæki
þessu. Tímadagblaðið hefir
reynt að bera í bætifláka fyrir
Pappírspokagerðinni. En þar er
beitt hinni venjulegu aðferð,
að tala um alt annað en máli
skiftir. Að öðru leyti ,en því að
blaðið birti verðlagið, sem nú
er á pappírspokunum.
Það er prentað eftir blaðinu
í fyrra dálki eftirfarandi töflu.
En 1 hinum síðari er prentað
verðið, sem er á pappírspokun-
um annarsstaðar að.
VerS á ÍOOO pokum.
Frá pappírs- Erlendir
pokagerð- pappírs-
Kg. inni: pokar:
(4. 4.80 2.95
% 5.50 3.60
i 8.30 5.30
2 13.40 8.40
3 24.10 11.00
5 30.90 18.00
10 45.90 31.50
Hjer geta menn sjeð mis-
muninn eins og hann er nú. Er
eðlilegt að kaupmenn kvarti yf-
ir því að vera þannig skattlagð-
ir til ágóða fyrir einstakt fyrir-
tæki.
Tímadagblaðið segir, að þessi
verðmismunur sje áfsakanleg-
ur vegna þess, að hjer sje verið
að flytja vinnuna inn í landið.
Matvörukaupmenn eru á því,
að best sje að umbúðapokarnir
sjeu gerðir hjerlendis. Þess
vegna hafa þeir leitað fyrir
sjer m.eð það, hvað hægt sje
að fá pokana ódýra, sem hjer
eru gerðir.
Með því að fiytja inn vjelar
fyrir 6—8 þús. kr. er hægt að
gera pokana hjer fyrir sama
iága verðið og þeir eru keyptir
erlendis.
En þessu vill innflutnings-
nefnd ekki sínna. Og heldur
ekki Tímadagblaðið. Hverra
hagsmunir eru hjer í veði? Því
mega ekki matvörukaupmenn
fá ódýra umbúðapoka fyrir vör
ur sínar
Tímadagblaðið hefir reynt að
svara þessu. En það hefir mis-
tekist. Er nokkur annar, sem
vill freista þess að gefa full-
nægjandi skýringu á þessum
þætti í atvinnusögu okkar nú
á tímum?
ísinn tálmar ekki
skipaferðum
fyrir Horn
TTvö farþegaskip fóru fyrir
* Horn í gær hindrunar-
lítið. Voru það Dettifoss og
Nova.
Svohljóðandi skeyti barst Yeð-
urstofunni frá Dettifossi í gær-
morgun; Þykk ísspöng sjö mílur
austur af Horni — úr því íshrafl
að Kögri.
Samkvæmt frjettum, sem borist
hafa að norðan um helgina, er ís-
inn, sem borist hafði upp að land-
inu, og inn á firði á Ströndum,
að mestu að hverfa aftur. Sjávar-
hiti er svipaður og venja er td um
þenna tíma árs og gott veður var
um helgina nyrðra. Austur með
landinu hefír enginn ís sjest und-
anfarna 4—5 daga.
MÆÐIVEIKIN OG
SIGURÐUR HLÍÐAR.
FRAMH. AF FIMTU SÍÐU.
að jeg hefði aldrei sjeð sjúkdóm-
inn áður. En jeg leyfi mjer ekki
að fullyrða annað en það, sem jeg
get staðið við og því hefi jeg ald-
rei fullyrt að þessi sjúkdómur
hafi aldrei þekst hjer áður, þótt
jeg geri fastlega ráð fyrir, eftir
þeirri reynslu, sem nú er fengin,
að sj'úkdómnrinn sje innfluttur.
Það sem S. Hl. segir um með-
göngutíma er svo ó>skýrt sett
fram, að ekki er annað sýnna en
að hann viti eklti hvað meðgöngu-
tími er. Lítið myndi sá lærisveinn
fá á læknaprófi, sem segði, eins
og S. Hl., að meðgöngutíminn sje
„sá tími sem sjúkdómurinn þarf
til að hreiðra sig eða búa um sig
í líkaxna sjúklingsins“. Þetta er
endileysa, því að meðgöngutíminn
er sá tími, sem líður frá því að
sóttkveikjan kemst inn í líkam-
ann og þangað fíl að sjúhdómsins
verður vart. Þannig er þessi grein
full af grautarlegri hugsun, stað-
leysum og ranghermnm og eru
vandræði ef hr. S. Hl. getur ekki
aðhafst neitt þarfara en að semja
slíkar ritsmíðar, sem liljóta að
verða honum tíl álitshnekkis og
yrðu til stórskaða, ef menn legðu
trúnað á þær og vanræktn því að
verjast, veikimfi. En sem betur fer
mim ekki til þess koma.
Ef hr. S. Hl. vill ræða frekar um
mæðiveikina, á hann að skrifu í
fagtímarifín, sem dómbærir menn
lesa. Þar gétur hahn lagt fram
rök þau og rannsóknir, sem hann
hefit fram að fshra, e'n fullyrðing
ar, sem engin tilráun er gerð til
að sániiá, erú ekki teknar í slík
rit. Vísjndaleg deiJnmál á ekki að
ræða í dagblöðtup, heklur í „vís-
indatímaritum og þar verður
mæðiveikismálið rætt með rann-
sóknum og rökum, en ekki r^ng-
færslum, og þar verður það á sín-
’iim tíma afgert. Þau rit hafa; vit
á að sía frá sjer innantómar á-
deilugreinar, þar sem variþekking
er ]>eytt npp í froðit, sem ófróðnm
almenningi er ætlað að gleypa.
Niels Dungal.
Edda kom í gær og lagðist á
ytri höfnina. Skipið er rtteð farm
til Keflavíkur.
Eldur í fýsisstöðinni
Klettur: Kviknaði út
írá rafmagni
Eldur kom upp í lýsisvinslu-
stöðinni Klettur í Klepps-
holti s.l. sunnudag.
Slökkviliðinu tókst að kæfa eld-
inn eftir nokkurn tíma, en þá var
húsið og vjelar í því allmikið
brunnið. Baftnagnssjerfræðingar
frá Rafmagnseftirliti ríkisins telja
að um íkviknun frá rafmagni sje
að ræða.
Það varð til happs að fjelagið
sem á lýsisstöðina hafði látið gera
vatnshól við stöðina og náði
slökkvibðið vatni úr því til að
kæfa eldinn. Má fullyrða að erfitt
eða jafnvel ómögulegt hefði verið
að kæfa eldinn ef ekki hefði þetta
vatnsþól verið, þar sem ómögulegt
er að dæla sjó þarna.
Hús þetta er tvílyft, skúrþygt
og viðþótarþygging úr steini.
Mestnr var éldurinn í vesturenda
hússins á efri hæðinni, en eldur-
inn fór þó. nm alla efri hæðina og
brendi mikið af innviðum og eyði-
lagði vjelar. Húsið stendur uppi.
Tjón hefir orðið þarna mikið. Hús-
ið, vjelar og lýsisþyrgðir voru vá-
trygt.
Ferðir Ferðafjelagsins
um helgina
TTlerðafjelag íslands fór hinar
fyrirhuguðu skemtiferðir
á seinustu helgi bæði á Skarðs-
heiði og á Reykjanes. Gengu
ferðirnar vel, því veður var gott
og voru nær 100 manns í ferð-
unum.
Á Reykjanes var ekið í bíl-
um um Grindavík og alt að
Bæjarfelli. Ferðin þangað tók
2 klst. 45 mínútur. Var vegur-
inn betri nú en hann hefir
nokkru sinni verið um þetta
leyti árs. Var hið merkasta
skoðað á nesinu. Lágsjávað var,
svo að hægt var að fara um
alla sjávarhellana. Á heimleið
var gengið á Háleyjarbungu,
dvalið um stund í Grindavík og
loks gengið á Vogarstapa.
Skarðsheiðarförin gekk að
óskum, þótt skygni væri ekki
vel gott. Farið var með m.s.
,,Fagranes“ til Akraness og
með bifreiðum um Miðfell að
Laxá og ferjað á hestum yfir
ána. Frá ánni var gengið á
Skarðsheiði og alt upp á Heið-
arhorn, sem er 1055 metra hátt.
Snjólínan var í 550 metra hæð,
en þar fyrir ofan voru ágætar
skíðabrekkur og hafði skíða-
fólkið hina beztu skemtun. —-
Var farið sömu leið til baka.
Dagheimili verkakvenna í Hafn-
arfirði tók til starfa í vikunni sem
leið, og s.l. sunnudag gekst stjórn
þess fyrir barnadegi í Hafnarfirði.
Var geng'ið í skrúðgöngu um göt-
ur bæjarins. Lúðrasveitin Svanur
Ijek.'Var staðnæmst við Dagheim-
ilið og flutti þar ræðu Asgeir As-
greisson fræðslumálastjóri. Kl. 17
var fjölbreytt skemtun og kl. 21
hófst dansleikur. Forstöðukona
Dagheimilisins er nú Stefanía
Stefánsdóttir kenshdcona. (FU.).
Frá um-
íerðar-
ráði
Umferðaráð, sem vann að þvít
ásamt lögreglu bæjarins, að
merktar yrðu gangbrautir á nokkr
um fjölförnum gatnamótum í bæn-
um, hefir beðið blaðið að birta eft-
irfarandi:
Gætið sjerstakrara varúðar 4
gatnamótum og í námunda viS
þau.
Reynslan hefir sýnt það að nær-
felt helmingur ökuslysa og óhappa
í akstri hafa gerst á slíkum stöð-
og langoftast fyrir skort á var-
fæmi eða brot á umferðareglum.
Það má ekki eiga sjer stað að
fótgangendur leggi leið sína yfir
krossgötnr eða gatnamót heldur
til hliðar við þá staði, samkvæmt
gangbrautarmerkjum.
Bifreiðastjórar og hjólreiðamenní
Sjeu gangandi vegfarendur á gang
brautunum, er þjer komið að þeim,
þá nemið samstundis staðar og
leyfið þeim að komast leiðar sinn-
ar.
Gangandi vegfarendur! Veitið
nmferðinni athygli áðnr en þjer
leggið út á gangbrautina.
Tefjið aldrei fyrir bifreiðum eða
öðrnm ökntækjum að ástæðulausu.
Nemið aldrei staðar á gang-
brautunum.
GÓÐ NOT AÐ
REFA-HLERA.
Irefabúi hjer við Reykjavík átti
silfurrefalæða að gjóta síðast-
liðinn laugardag.
Eigandinn hefir lagt hinn nýja
refa-hlera í búið. Refahirðirinn sat
nú og hlustaði eftir hvernig fæð-
ingin gengi og heyrði fyrsta hvolp
inn fæðast og gefa frá sjer eðli-
leg hljóð í fyrstu, en þau hættu
snögglega og danðaþögn varð í
hreiðrinu og vissi nú hirðir-
inn að eitthvað var að. Hann fór
því strax og rannsakaði hreiðrjð
og kom þá í ljós að tófan hafði
drepið hvolpinn. Hún var því tek-
in inn og nákvæmlega pössuð með-
an htin fæddi 4 hvolpa í viðbót,
sem hún þó sótti eftir að drepa,
og áreiðanlega hefði drepið ef
ekki hefði verið hægt, að fylgjast
með fæðingunni frá upphafi.
Ríkisskip. Súðin var á Aðalvík
í gær.
Póstferðir á morguin. Frá Rvík:
Mosfellssveitar, Kjalarness, Kjós-
ar, Reykjaness, Ölfuss og Flóa-
póstar. Hafnarfjörður. Seltjarnar-
nes. Fagranes til Akraness. Garðs-
.aulca og Víkurpóstar. Til Rvíltur t:
Mosfellssveitar, Kjalarness, Kjós-:
ar, ReykjanesS, Ölfuss og Flóa- 1
póstar. Hafnarfjöronr. Seltjárnar-;
nes. Fagranes frá Akranesi.
..........1 ".......... '
Sumarbústaður
í landi Lögbergs til sölu. llpplýs-'
ingar gefur
Lárus Jóhannesson
hæstar jettarm ál a f 1 uti nngsmaður,
.Suðurgötu 4. Sími 4314.