Morgunblaðið - 12.06.1938, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 12. júní 1938,
Fánadagurinn að
Álafnssi i dag
Ágóðinn rennur til
hins merkilega
íþróttaskóla
Sigurjón Pjetursson á Álafossi
er sjaldgæfur athafnamaður.
í 8 ár hefir hann haldið íþrótta-
skóla á hverju sumri, sem er al-
reg einstakur í sinni röð — hjer
á landi, og þó víðar væri leitað.
Hann er íþróttamaður með lífi og
sál. Hann vinnur að því að gefa
íþróttunum sál hugsjóna sinna.
Börn og unglingar, sem skóla
hans sækja, eiga ekki einungis að
iðka íþróttii- og ná ákveðinni
leikni. íþróttirnar eiga að auka
manngildi þeirra, áhuga þeirra,
sjálfstraust þeirra, virðingu þeirra
fj-rir fegrun og heilbrigði líkam-
ans.
Auk þess læra hinir ungu nem-
endur skólans að lifa reglubundnu
Jífi, og hafa nóg fyrir stafni all-
an daginii, frá morgni til kvölds.
Þeir læra að meta einfalda, holla,
kjarngóða íslenska fæðu og drekka
lýsi.
En með öllu þessu missir leið-
togi og stofnandi skólans aldrei
sjónar á því marki, að hafa áhrif
á unglingana í þá átt að gera þá
að þjóðræknum Islendingum.
Margir foreldrar hjer í Reykja-
yík, sem sent hafa börn sín til
'Sigurjóns ;og margýr u.nglingar
•.eiga íþróttaskólanuin á~ Alafossi
að þakka bætta heilsu, aukinn
kjark, meira mótstöðuafl gegn
ýmsum hættum og erfiðleikum
Jífsins.
Á hverju ári heldur Sigurjón
, vorhátíð, er hann nefnir „Pána-
dag“ í tilefni af þeim atburði fyr-
■ir 25 árum, er sterk ])jóðernisalda
reis hjer í Reykjavík út af fána-
< töku foringja er var hjer þá á
"dönsku yarðsldpi. En tilefni há-
tíðarinnar að Áláfossi er ekki
fyrst og fremst að minnast þessa
atburðar, heldur hitt, að safna
, sem flestum 'utan um hugðarefni
Sigurjóns, íþróttirnar og íþrótta-
. skólann.
í dag héldur hann skemtun að
Álafossi. Þar flytur hinn góðkunni
yestur-íslendingur, Ásmundur P.
•Jóhannsson, ræðu. Þar mælir/
Benedikt Sveinsson bókavörður
fyrir minni Yestur-íslendinga. Þar
verður fimleikasýning drengja-
: flokks frá Ármanni, undir stjó'rn
1 Vignis Andrjessonar, sundknatt-
í
' leikur sýndur og Ieikið gainan-
leikritið Eilífðarbylgjurnar.
Ennfremur verður þar heiðrað-
fe,ur maður einn, sem sýndi í fvrra
frábæra karlmensku við björgun
manna úr sjávarháska.
Hefir Sigurjón áður tekið að
sjer að Arekja sjerstaka athygli
jnanna á slíkum afreksmönnum.
Hann segir sem svo:
Ur því jeg vinn að því, að auka
Iíkamlega hreysti, djörfung og
drengskap unga fólksins, þá verð
jeg líka að vinna að því, að þeir
menn sem skai’a fram úr í þessu
vefni í lífinu, þeir fái verðskuld-
að|i viðurkenningu.
Bókasafn Vest-
mannaeyja75ára
Amorguu verðim bókasafn-
ið í Vestmannaeyjum 75 ára.
Það * var stofnað 1863. Aðal for-
gpngumaður að stofnun þess var
Bjarni sýslumaður Magnússon, sá
hinn sami er stofnaði Bátaábyrgð-
arfjelag Vestmannaeyja. I fyrstu
stjórn safnsins voru auk U?ýslu-
mannsins, síra Brynjólfur Jónsson
að Ofanleiti og I. P. F. Bryde
kaupmaður.
Ymsir fleiri studdu þó að stofn-
un bókasafnsins og ér vert að
geta þess í,því sambandi, að Jón
Sigurðsson forseti Var mikill og
góður stuðningsmaður þess, enda
var hann gerður að heiðursforseta
bókasafnsins á fyrsta aðalfundi
þess ,1863.
Á umliðnum 75 árum hefir það
átt sín erfiðu og góðu ár. stund-
um hefir það verið í blóma, en
það hefir einnig átt sín hnignun-
artímabil.
Hinsvegar má gera sjer vonir
um að það geti á næstu árum
aukist að vexti, þar sem bæjar-
stjórnin nýja hefir hækkað fjár-
veitinguna til bókasafnsins. Enn-
frémur er vert að geta þess. að
núverandi bókasafnsnefnd, sem
skipuð er Ástþór Matthíassyni for-
seta bæjarstjórnar, Lofti Guð-
mundssyni kennara og Sig. Gutt-
ormssyni bankaritara, hefiFtlmik
inn áhuga fyrir því, að safnið sfe
þannig úr garði gert, að það sje
Vestmannaeyjum til sóma.
Bókasafnið nýtur einnig styrks
úr ríkissjóði, en hann þarf nauð-
synlega að hækka, þegár tekið er
tillit til þess, að bókasafnið nýtur
ékki neinna hlunninda eins og til
dæmis amtsbókasöfnin, en verður
að kaupa allar þær bækur, er það
þarf að eignast. Það eru fleiri en
Vestmannaeyingar, sem hafa af-
not af safninu, því fjöldi a|H
komumanna, sem eru í Eyjum ; á
vertíðinni, hefir aí/?ót af safuinu.
Bókasa f n Vest n i ann áey j abæ j ar
iánar :út bækur á veturna 3 daga
í viku, en á sumrin er það opið
einu sinni í viku.
Lestrarsali er hinsvegar ekki
hægt að starfrækja á meðau það
þarf að vera í núverandi hiása-
kynnum. Sigurður Scheving.
Eins og tíðkast hefir í nokkur
undánfarin ár bauð Ferðafjelagið
fullnuma prófsbörnum hjer í Rvík
í ferðalag nú fyrir skömmu. Að
þessu sinni var farið á Hengil.
Skólastjórar barnaskólanna hafa
beðið Morgunblaðið að færa J’je-
laginu þakkir sínar og barnanna
fyrir þessa ferð — og sjerstak-
lega hinum ötula starfsmanni
þess, Helga, Jónassyni frá Brennu.
HÆSTARJETTARDÓM-
UR I MJÓLKURMÁLI.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐO
fæði, þjónustu o. s. frv. fyrir
umsamið verð á dag, þá sie þar
í innifalin sala mjólkur til skól-
ans og beri því að greiða verð-
jöfnunargjald af henni.
Fógetarjetturinn taldi upp-
lýst í málinu, að frú M. Ras-
mus hafi 6 ha. lands og að eins
6 kýr á því landi. Ennfremur,
að hún seldi ekki hina fram-
leiddu mjólk út um bæinn,
heldur í Mjólkursamsöluna, það
af mjólkinni sem hún ekki not-
aði til síns heimilis og til Mál-
leysingjaskólans. Loks taldi fó-
getarjetturinn upplýst, að sam-
kvæmt samningi við ríkisstjórn-
ina seldi frú M. Rasmus skól-
anum alt hatida nemendunum,
svo sem fæði, þjónustu og rúm-
fatnað fyrir umsamið verð á
dag, en innifalið í fæðinu sje
hluti þeirra mjólkur, er hún
framleiðir. Hjer sje ekki um
sjálfstæða sölu mjólkur að
ræða og taldi fógetarjetturinn
því ekki heimilt að krefja verð-
jöfnunargjalds af henni og
synjaði um lögtakið.
Þessum úrskurði fógetarjett-
arins áfrýjaði Mjólkursamsalan
til Hæstarj ettar.
Hæstirjettur kvað upp dóm í
málinu þ. 3. þ. mán. og staðfesti
fógetaúrskurðinn og dæmdi
Mjólkursamsöluna til að greiða
200 kr. í málskostnað.
í forsendum dóms Hæsta-
rjettar segir m. a.:
,,Það er ágreiningslaust í mál-
inu, að stefnda samkvæmt samn
ingi við ríkiggtjómina framfærir
á heimiii sínu að öllu leyti börn
þau, sem uppfræðslu njóta á
daufdumbraskólanum, gegn um
sömdu gjaldi á dag fyrir barn
hvert. Þegar þessa er gætt,
verður ekki talið, að stefndu
hafi verið skylt samkvæmt lög-
um nr. 1 frá 1935 að greiða
verðjöfnunargjald af mjólk
þeirri, sem hún framleiddi og
hagnýtti greindum börnum til
íæðis, og ber því að staðfesta
hinn áfrýjaða úrskurð með
þessari athugasemd“.
Sveinbjörn Jópsson hrm. flutti
málið fyrir frú M. Rasmus, en
Stefán ,.Jóh. Stefánsson hrm.
fyrir Mjólkursamsöluna.
Jarðarför Sigurðar Jónssonar
rafvirkja fór fram í gær. Síra
Bjarni Jónsson hjelt húskveðju
og líkræðu. Nánustu frændur báru
kistuna frá heimilinu og í lík-
vagninn og úr honum í kirkju-
garðinn. Samstarfsmenn Sigurðar
heitins báru hann í kirk.ju, og úr
kirkju báru hann rafvirkjameist-
arar.
Verjið kálplönt-
urnar fyrir kál-
orminum!
Undanfarin tvö sumur hefir
mikið borið á því hjer í
Rvík, að flugulirfa ein, sem í dag
legu tali er kölluð kálormur, eyði-
leggur kálplönturnar unnvörpum
eftir að búið er að gróðursetja
þær í garðana. Af þessu hefir
orðið mjög tilfinnanlegt tjón, þar
sem mikið af erfiði manna við vor-
vinnuna kemur að engu gagni, og
menn fá lítið sem ekkert af kál-
inu.
Erlendis befir verið notað sub-
limat gegn þessum ófögnuði, en
sá galli er á því, hve eitrað það
er og eru menn því byrjaðir að
nota vökva, sem kallaður er
„Carbocrimp“. Af honum leggur
þef, sem kálflugunum líkar ekki.
En flugurnar, sem hugsa um af-
kvæmi sín, kállirfurnar, verpa
eggjum sínum rjett hjá kálplönt-
unum, til þæginda fyrir kálorm-
ifln, en tjóns fyrir garðeigendur.
Nú er um að gera fyrir káleig-
endur, sem plantað hafa út í garða
sína; að vera fyrri til en flugan,
og vökva kálbeðin utanum plönt-
urnar með Carboerimp, því flugan
fælist lyktina af því, og verpir
ekki eggjum sínum þar sem sá
þefur er í garðinum.
Það mun þurfa ca. 10 1. -af car-
bocrimp-blöndu á 100 kálplöntur
„Carbocrimp“ fæst m. a. í
Gróðrarstöðinni víð Laufásveg,
sími 3072.
Skemtun verður haldin á Arn-
arhólstúni í dag, til ágóða fyrír
sumarheimili Vorboðans. Þeyttir
verða lúðrar, ræðuhöld, upplestur
(Friðfinnur), söngnr o. fl.! Einn-
i" verður barna basar oc
Minningarorð um
Þórð Sigurðsson
I —
Pörður Sigurðsson búfræðing-
ur andaðist laugardaginn 28.
maí og verður ti! moldar borin-m
í dag.
Þórður sálugi var fæddur 22.
apríl 1866 að Sauðagerði í Reykja
yík. Fluttist hann á öðru ári að
Langholtr, í Borgarfirði og ólst
þar upp til 18 ára aldurs hjá þein*
heiðurshjónum Guðmundi Þórðar-
syni og konu hans Oddnýu. Mun
hann eftir það hafa farið að
Hvanneyri og gekk þar á búnaðar-
skólann. Þar lauk hann fullnaðar
prófi með bestu einkunn.
Þórður kvæntist Steinunni Sig-
urðardóttur frá Iiofsstöðum í
Hálsasveit. Hún lifir mann sinn
ásamt 3 börnum þeirra.
Sá sem þessar línur skrifar var
vel kii'nnugur og handgenginfl
Þórði sáluga í uærfelt 20 ár. Á
þessum árum hefi jeg unnið nokk
uð með Þórði og' sá fljótt að hann
var betur verki farinn en menn
gerast yfirleitt, að vandvirkni og
öllum frágangi. Á jeg þar helst
við fagvinnu hans, svo sem hey-
skap, túnasljettun og blómarækt
og mátti vel margt af honum læra
1 því efni. Ilann var mikill nátt-
úruvimir og fann helst yndi þær
stundir, sem hann mátti njóta úti-
í fegurð náttúrunnar.
Jeg veit það vinur að þú vilt
ekki óverðskuldað hó! og' ætla jeg
mjer ekki að gera það, en það er
víst, að það sem jeg segi hjer er
ekki of sagfe
Nú ertu horfinn frá okkur inn
í dýrð drottins vors. Við horfuín
hrygg á eftir þjer, en við megum
samt vepa glöð yfir hinum góðu
og göfugu. endurminningum uin
þig. Göfugmenska þín í orði og
•drætti. Vorboðmn vinnur að því,
að komá fátækum börnum til dval
ar í sveit, og verðskuldar því stuðn.
ing bæjarbúa.
n ----x x
ölliun athöfnum gladdi okkur svo
oft.
Drottinn blessi minningu þíng.
N. N.
011 Reykjavfk i „Karikatur“
„Karikatur“ sýning STEFANS STRÓBL verður opnuð í hús-
gagúaverslun Kristjáns Siggeirssonar, Laugaveg 13, í dag, sunnudag-
inn 12. ]). m., og stendur til kvölds 21. þ. m.
Sýningin verður opin daglega frá kl. 2—6 og 8—10 síðd. — Inn-
gaug'iir kr. 1.50.
ATHS. Hver gestur fær „karikatnr“-teikningu af sjálfum sjer ókeypis.
Hafnfirðingar!
Allir þeir, sem ekki hafa greitt áfallin prests- og kirkjugjöld, eru
mintir á að greiða þau fyrir 1. ágúst n.k. svo komist verði hjá lögsókn.
F. h. þjóðkirkjusafnaðarins.
Steingr. Torfason.
F. h. fríkirkjusáfnaðarins.
Guðm. Einarsson.
Goliat.