Morgunblaðið - 26.06.1938, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudaginn 26. júní 1938.
NÝIR ORÐUGLEIKAR Á SPÁNI
OG ÍAUSTURASÍU
Kæra til Hitlers
Austurrískir nazistar
settir i fangabúðir
Þýskir nazistar vilja ðllu rðða
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Sendinefnd austurrískra nazista er lögð
af stað til Berlín, til þess að kæra yfir
framferði þýskra nazista í Austur-
ríki við Hitler.
Hvað eftir annað hefir heyrst undanfarið, að
Hitler ætlaði til Vín til þess að jafna einhverjar
deilur, sem þar hefðu risið. Nú hefir þetta snuist
við. Pjallið kemur til Muhameds.
„Daily Telegraph“ skýrir frá því, að hver höndin sje upp á
móti annari milli þýskra og austurrískra nazista. Þýsku nazisti
arnir reyna að grafa undan fjelögum sínum í Austurríki, til þess
að geta sjálfir fengið æðstu embættin þar. Hinir austurrísku naz-
istar erq sendir í fangabúðir.
Milli dr. Seyss-Inquarts rík-
, isleiðtoga í Austurríki og
Biirckels, ríkiserindreka,
sem settur kefir verið yfir
dr. Seyss-I«quart á meðan
að verið er að ganga að
fullu frá sameiningu Þýska
lands og Austurríkis (sam-
eiginlegt rjettarfar o. fl.)
ríkir vaxandi sundrung.
Er búist við að austurríska
nazistasendinefndin krefjist
þess að Burckel verði kallaður
heim.
Hitler sendi Burcker til Vín
í febrúar, og það var hann, sem
afhenti dr. Schussnigg úrslita-
kostina á sínum tíma. Áður sá
Búrckel um innlimun Saar í
þýska ríkið.
UMBOÐí ÁR
Fyrsta maí síðastliðinn gaf
Hitler Búrckel umboð til þess að
gera hverjar þá ráðstafanir er
hann teldi nauðsynlegar til þess
að ljúka endanlega við samein-
ingu þýsku ríkjanna. Þetta um-
boð á að gilda til 1. maí 1939.
Samtímis skrifaði Hitler dr.
Seyss-Inquart brjef, þar sem
hann sagðist mundu skipa hann
ráðherra í þýska ráðuneytinu
þegar umboði Búrckels væri
lokið.
Gyðingar í Austurríki
Yfirvöldin í Vín hafa gefið út
fyrirskipun um, að allir for-
stjórar atvimmfyrirtækja skuli
segja upp samstarfsmönnum sín-
um, sem ekki eru Aríar, fyrir 1.
júlí.
Þessi ráðstöfun, samfara öðrum,
sem áður hafa verið gerðar til
þess að útiloka Gyðinga, hefir í
för með sjer, að allir Gyðingar í
Vín eru í raun og veru sviftir
mögnleikum til þess að sjá sjálf-
nm sjer farborða.
Liögreglustjórinn í Vín hefir
bannað Gyðingum aðgang að
skemtigörðum borgarinnar.
„Komdu sæll“
— segir Poul
Reumert
Frá frjettaritara tvorum.
Khöfn í gær.
ANNA Borg og Poul Reu-
mert komu til Kaupm.-
hafnar í morgun, úr íslands-
ferð sinni. — í samtali, sem
kvöldblöðin birta við Poul
Reumert, segir hann:
„Jeg hefi lifað dásamlegar
stundir — þúsund og eitt æv-
intýr. Jeg hefi aldrei farið
jafn dásamlega ferð til Is-
lands — og þá er mikið sagt“
„Mjer finst jeg vera orðinn
hálfgildings íslendingur. —
Jeg er hættur að segja
„Goddag".
„Jeg segi — komdu sæll“.
ÍTALIR OPINSKÁIR.
London í gær. FÚ.
T talska blaðið ,,Tribuna“
segir í dag frá því fullum
fetum, að ítalskar flugvjelar,
sen? hafa bækistöð sína á
Balear-eyjunmr, hafi það sem
af er þessum mánuði sökt 17
skipum, sem voru á einn eða
annan hátt í þjónustu spönsku
stjóraarihnar.
★
Tvö ítölsk skip komu til
Gíbraltar í morgun og tóku
þar milli 400—500 ítalska
flugmenn og vjelfræðinga,
sem verið hafa í þjónustu
Francos, og verði þeir fluttir
heim til Ítalíu.
Hafa þeir fengið leyfi frá
störfum um stundarsakir.
ALVÁRLEGÁ bliku er að dragaá loft í sambandi við styrj'aldirnar,
sem geisa í heiminum — styrjöld Japana og Kínverja í Austur-Asíu og
innanlandsstyrjöldina á Spáni. Á báðum stöðum vofir yfir, að bjóðir, sem
standa utan við styrjaldirnar, dragist inn s þær — Frakkar og Bretar í
Austur-Asíustyrjöldina og ítalir (og b&r &f leiðandi fleiri þjöðir) í Spán-
arstyrjöldina.
Hótun
Frakka
í Austur-
Asíu
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Austur-Asíu hafa
Japanar reynt að
setja herlið á land á
eyna Hainan (kínversk
eyja, sem er skamt aust-
an við Indochina, sem er
frönsk nýlenda. Hainan
hefir því mikla hernað-
arlega þýðingu frá sjón-
armiði Frakka).
Japanska herliðið varð
að láta undan síga fyrir
vjelbyssukúlujm Kín-
verja.
En Frakkar hafa í hótunum
að setja franskt herlið á land
í Hainan, ef Japanar gera til-
raun aftur til þess að setja
þar lið á land.
Bretar hafa gefið japönsku
stjórninni ótvírætt til kynna að
ekki verði komist hjá erfiðleik-
um í sambúð Breta og Jap-
ana, ef Japanar leggja undir
sig Hainan.
Síðasta herútboð Japana, sem
er alment herútboð, mun valda
því að um 800.000 manns verða
kvaddir frá vinnu til herþjón-
ustu.
Rjettindi
útlendinga
í Kína
Londonoí gær. FÚ.
Fulltrúi japanska utanríkis-
málaráSuneytsins endur-
tók í dag yfirlýsingu japönsku
stjórnarinnar um rjettindi út-
lendra manna á þeim svæðum
í Kína, sem Japanar hafa á
valdi sínu. En nú var yfirlýsing-
in nokkuð breytt.
í hinni fyrri tilkynningu fólst
hótun um að útlendingar yrðu
sviftir öllum rjettindum, en í
dag segir fulltrúinn, að þetta
ákvæði muni ekki koma til fram
kvæmda gegn útlendingum,
nema því aðeins að þeir grípi
til vopna gegn Japönum, eða
aðstoði Kínverja á annan hátt.
Spánverjar hóta
aö gera loftárásir
á ítalskar borgir
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Iörvæntingu um að vinna sigur i borgara-
styrjolamm a bpani, herir stjornm í
Barcelona í hótunum að gera loftárás
á borgir í Ítalíu og með því hleypa Evrópu í bál.
Stjómum Bretlands og PYakklands hefir verið
tilkynt þetta. Segist Barcelonastjórnin ætla að
grípa til þessara ráðstafana, þar sem ítalir hafi
gert loftárásir á óvíggirtar borgir, varnarlausar
konur og börn, á Spáni.
GEIGVÆNLEGAR AFLEIÐINGAR.
Halifax lávarður utanríkismálaráðherra Breta, hefir lagt
fast að spönsku stjórninni að hverfa frá þessari fyrirætlan, sem
sje örþrifaráð og hljóti að hafa í för með sjer að ítalir geri flota-
árás á Spán og setji þar lið á land.
En afleiðingar af því gætu orðið geigvænlegar fyrir Evrópu.
Signor Gayda skrifar í dag (skv.FÚ) í Popolo d’Italia og segir
þar, að ef ráðist verði á flugmenn ítala eða flugvjelar, þá muni
Italir svara þegar í stað og ekki með brjefaskriftum heldur með
vopnum.
í „LÖNDUM“ UTAN SPANÁR.
London í gær. FÚ.
I París er staðfest í dag, að spánska stjórnin hafi tilkynt
frönsku stjórninni, að hún muni taka upp mótaðgerðir gegn
loftárásum uppreisnarmanna með því, að hefja loftárás-
ir, ekki einungis á borgir uppreisnarmanna, innan landamæra
Spánar, heldur einnig á borgir utan Spánar í þeim löndum, sem
telja megi að beri ábyrgð á árásum uppreisnarmanna.
Þessi tilkynning er af ýmsum álitin vottur um yfirvofandi
stór-styrjöld.
Það hefir verið kunnugt í London að spánska stjórnin hefir
undanfarna þrjá daga verið með ráðagerðir af þessu tagi.
TILKYNNING SENDIHERRANS
Sendiherra spönsku stjómarinnar í París, segir í tilkynningu
í dag, að spánska stjórnin hafi hvað eftir annað lagt fram mót-
mæli gegn loftárásum Francos við stjórn Frakklands og annara
í-íkja, en það hafi engan árangur borið.
Sendiherrann segir að almenningur á Spáni sje svo særður
og hneykslaður af því að sjá útlendinga gera sjer það að leik að
strádrepa niður konur og börn og .varnarlaust fólk, að ástandið
sje að verða þannig í landinu, að það sje ekki unnt fyrir stjórn-
ina að komast hjá því, að gera einhverjar ráðstafanir.
Mótmæli gegn
Chamberiain
SÓKN KÍNVERJA.
Sir Robert Cecil lávarður
hefir sagt sig úr breska
íhaldsflokknum og færir þau
rök fyrir þessari ákvörðun sinni
að Mr. Chamberlain hafi neit-
að að vernda bresk skip í
spönskum höfnum.
Sir Robert Cecil fekk friðar
verðlaun Nobels í fyrra.
Hann er einn áhrifamesti for-
mælandi Þjóðabandalagsins í
London í gær. FÚ.
Kínverska herstjórnin ti 1-
kynnir að Kínverjar hafi
unnið stórkostlegan sigur á
suður-bakka Yangtsefljóts á
herliði, sem Japanar settu þar
í land í gær.
Flótti braust út í hinum jap-
anska her og f jellu 3000 manns
af Japönum.
Golfkepni fer fram á
inum í dag kl. 10 f. 1).
íolfvell-