Morgunblaðið - 03.07.1938, Síða 6
MQRGUN BLAÐIÐ
Sunnudagur 3. júlí 1938,
C
Síðasti dagur Iiins
alm. kirkjufundar
Eftir hádegi á föstudag hjelt
hinn almenni kirkjnfnndur
áfram störfum undir forsæti Gísla
JBveinssonar sýsltananns.
Aður en gengið var til dagskrár
fjekk síra Pjetur J. Oddsson leyfi
til að flytja stutt ávarp. Mintist
hann á, að bræðurnir Ríkarður
Jónsson skurðlistarmaður og Pinn
«r Jónsson listmálari væru báðir
úr sömu sókn — frá Djúpavogs-
*ókn. Sú stund væri sigurstund
þjóðarirmar allrar, er íslenskur
andi ynni nýja sigra. Þjóðinni
væri því eigi vansalaust að bygð-
ir þær, er þá ólu, ættu ekkert
það, er minti á nöfn þeirra.
Hngmynd væri vakin um að fá
útskorinn prjedikunarstól frá
hendi Ríkarðs Jónssonar og alt-
aristöflu, málaða af Finni Jóns-
jyni í væntanlega kirkju á Djúpa-
vogi. Þjóðin öll ætti að gjalda
sína þakkarskuld við þessa lista-
»enn m. a. með því að gera þessa
hugmynd að raunveruleik.
Bað hann fundarmenn að
styrkja málefnið með einhverjum
fjárframlögum. — Lá söfnunar-
listi frammi 5 síðustu klst., er
fundurinn starfaði, og komu inn
kr. 167.00 á þeim tíma.
Nú voru fram lagðar tillögur í
dócentsmálinu. Að umræðum lokn
um var gengið til atkvæða. Dag-
skrártillaga Knud Zimsens um að
vísa málinu frá var feld með
52:45 atkv.
Þá var eftirfarandi tillaga sam-
þykt með 78 atkvæðum gegn 1:
„Kirkjufundurinn lítur svo á, að
veiting dócentsembættisins við
guðfræðideild Háskólans síðastlið-
inn vetur sje bein móðgun við
kirkju landsins og skorar á kirkju
ráð að láta undirbúa löggjöf, er
tryggi kirkj'unni svo mikið sjálf-
stæði, að svipað geti ekki endur-
tekist“.
Önnur tillaga var samþykt í
málinu með 47 atkvæðum gegn 12,
svohljóðandi:
„Kirkjufundurinn leyfir sjer að
skora á sr. Sigurð Einarsson, að
taka aftur opinberlega allar guð-
Jeysis og siðleysisfullyrðingar í
ýmsum eldri og J'ngri ritgerðum
sínum, eða að segja af sjer dóc-
entsembættinu að öðrum kosti“.
í umræðunum um tillögurnar
tóku þátt þessir: Sigurbjörn Á.
Gíslason, sr. Priðrik J. Rafnar,
Stefán Hannesson, Ásm. Gestsson,
Þorvaldur Kjartansson og Jórunn
Guðmundsdóttir.
Þá var tekinn fyrir dagskrár-
liðurinn „Önnur mál“.
Jón Þ. Bjömsson fylgdi svo-
hljóðandi tillögu sinni úr garði
með noklrmm orðum:
„Pundurinn . ályktar að skora á
þing og stjórn að ljetta algjorlega
innheimtu prestanna sjððsgjálda
af sóknarnefndum, og fela þá inn
heimtu, eins og aðra innheimtu
ríkisgjalda, innheimtumönnum rík
isins á hverjum stað“.
Samkvæmt tillögu Gísla Sveins-
sonar var tillögunni vísað — sam
þyktri — til kirkjuráðs.
Skólastjórinn á Eiðum, Þórarinn
Þórarinsson bar fram svohljóð-
andi tillögu:
„Pundurinn væntir niikils af
íþróttastarfseminni í landinu og
skorar á presta og kennara og
aðra æskulýðsleiðtoga að ljá henni
hiklaust fylgi sitt“.
Tillagan var samþykt einum
rómi.
Ennfremur var svohljóðandi ti!
laga samþykt: ..
„Pundinum er Ij’ós þýðing kristi
legra barna- og æskulýðsblaða og
heitir á menn til stuðnings við
slík blöð“.
Er fundur hófst á ný, eftir ltaffi
talaði S. Á. Gíslason nokkur
orð og lagði fram fyrir fundinn
svohljóðandi tillögu frá Guðrúnu
Lárusdóttur:
„Fundurinn skorar * fC' "prgsta
landsins, að veita söfnuðum sín-
um, hver á sínum stað, fræðslu um
kristinboðsstarfið víðsvegar í heið-
ingjalöndunum og verja til þess
sjerstökum messudögum, sem aug
lýstir sjeu fyirfram“.
Tillagan yar samþykt í ein'u
hljóði.
2. fundardaginn var Horin uþþ
og samþykt svohljóðandi tillaga
frá sjera Sigurði Z. Gíslasyni:
„Kirkjufundurinn ályktar, að
lýsa vfir því, að hann telur nautn
áfengis, tóbaks og ýmsra annara
eiturlyfjá svo mjög útbreidðá og
svo ört vaxandi með þjóðinni, að
eigi sje annað sýnilegt, en að fjár-
hagur hennar, heilbrigði og sið-
gæði sje í beinnm voða, ef ekki
verður þegar rönd við reist.
Samþykkir því kirkýufundurinn,
um leið og hann heitir á alla hugs
andi menn í landinu til öflugs
liðsinnis við bin<lindismálið, að
kjósa úr hópi fundarmanna 3ja
manna samvinnunefnd við fram-
kvæmdarnefnd Stórstúku íslands
og sjerhvern annan fjelag|^kap,
er vinna vill að eflingu bindindis
um gagngjör ráð til framkvæmda
í þessu aðkallandi nauðsynjamáli
þjóðarinnar".
í hlutaðeigandi nefnd hlutu kosn
ingu Sigurður Halldórsson, Rvk.,
frú Jórunn Guðmundsdótir, Arn-
þórsholti og Sigmundur Sveins'son,
Rvk. I undirbúningsnefnd hinna
almennu kirkjufunda voru endur
kosnir:
Gísli Sveinsson, sýslumaður, Ás
mundur Guðmundsson prófessor,
sjera Sigurgeir Sigurðsson, ísa-
firði, Priðrik J. Rafnar, vígslu-
biskup Ak„ Sigurbjörn Á. Gísla-
son, cand theol, Ólafur B. Bjöins-
son kaupm. Akranesi og Yaldemar
V. Snævarr. Ennfremur voru 7
varamenn einnig endurkosnir.
Hófust því næst fundarslit með
kveðjuorðum Gísla Sveinssonar,
sýslumanns, til fundarmanna og
þakkarorðum til K F. U. M. fyrir
húslán og kvenfjelagi safnaðanna
í Reykjavík fyrir hinar rausnar-
legu veitingar. Þessir fundarmenn
mæltu þakkar og árnaðarorð: Jór
unn Guðmundsdóttir, Stefán Hann
esson, Magnús Stefánsson, Valde-
mar Stefánsson, Jón Engilberts-
son, sr. Þorgrímur Sigurðsson,
Knud Zimsen, Árni Gíslason, Árni
Þórarinsson og sjera Guðmund-
ur Einarsson. Þá var sunginn
kirkjufundarsálmur, eftir sjera
Böðvar Bjarnason. Þá á eftir var
guðræknisstund er próf Ásmund
ur Guðmundsson stýrði, þar sem
hann minntist sjerstaklega orð-
anna, Jóh. X. 1-4. Seinustu stundir
liins 4. kirkjufundar sameinuðust
hinir 200 fundarmenn í bæninni:
Faðir vor, er allir báðu uppháft
og því næst hljómaði sigursöngur
inn : Son guðs ertu með sanni.
Það er hið seinasta er frjettist
af þessum fundi, en síðar um kvöld
ið söfnuðust nokkrir fundarmanna
til sameiginlegrar altarisgöngu í
dómkirkjunni. Sjera Þorsteinn
Briem prófastur, þjónaði fyrir
altari.
Kirkjufundurinn er á enda. Hin
fjölmenná fundarsókn frá öllum
hjeruðum landsins, hin þjettskip-
uðu sæti í fundarsölunum alla fund
ardagana og fjölbreyttu nmræður
— alt þetta er bjarmi hins nýja
dags í trúar og siðgæðislífi þjóð-
arinnar, sem fjölmargir þeirra bíða
með eftirvæntingu, sem eiga ást á
háfleygum hugsjónum og bjartar
framtíðarvonir og starfsþrek til
handa „fjallkonunni fríðu“.
Guð blessi henni framtíðina.
Pjetur T. Oddsson.
Annað hefti af Austurstræti kem
ur út á morgun.
Sextug: Frú
Anna Bessadóttir
I fjarveru
næstu tvær vikur gegnir Ólafur
Þorsteinsson hálsl., sjerlæknisstörf-
um mínum en Bergsveinn Ólafs-
son augnlæknir, öðrum læknisstörf
um minum.
G. Einarsson.
minni
Orgel
(Harmonium)
sjerstaklega vandað, er til sölu
Hentugt í kirkju o. þ. h. Uppl.
gefur Oliver Gnðmundsson. Vest
urgötu 56, kl. 2—3 daglega.
Frú Anna Bessadóttir verður
60 ára á morgun, fædd 4.
júlí 1878.
Foreldrar hennar voru heiðurs-
og manndómshjónin Bessi Þorleifs
son skipstjóri og Guðrún Einars-
dóttir, sem þá ráku véitingahús
á Siglufirði', jafnhliða því sem
sægarpuririn Bessi stundaði þá og
af kappi sjósókn, , jafnt á þorsk-
fiski og hákarl. Párra ára flutt-
ist Anna með foreldrum sínum að
Sölvabakka í Húnavatnssýslu,
hvar hún ólst upp síðan.
Prú Anna var og er enn fríð
kona og myndarleg, enda snemma
eftirsótt og giftist því ung manni
sínum, Gísla Guðmundssyni,
Prú Anna er rausnar kona liin
mesta, gestrisin með afbrigðum,
leysir allra vandræði eftir því
sem geta leyfir, enda oft frekar.
Hún má ekkert aumt sjá, og á
því marga virii
Anna Og riiaður hennar bjuggu
um skeið á Sölvabakka, ráku síð-
ar greiðasölu á Blönduósi, en
fluttU íringað til Reykjavíkur ár-
ið 1926 og búa nú í Von lijer í
bænum, Laugaveg 55.
Þau hjónin Anna og Gísli eiga
5 börn á lífi, 3 dætur og 2 sonu,
öll gift. Dæturnar verslunarmönn
um. Ajpnar sonurinn rekur hjer
verslun, en hinn er skipstjóri í
Hafnarfirði, og heitir sá Bessi.
Frú Anna hefir verið börnum
. sín'um ástrík og umhýggjusöm
móðir eins og framast má vera og
eiginmanninum hollur og tryggur
lifsförunautur, ymhyggjusöm með
afbrigðum fyrir sínu heimili og
forkur dugleg.
Margir skyldir og vandalausir
munu því minnast hennar á af-
mælisdaginn með þökk og óska
henni gleðiríkrar framtíðar. B.
v-ÁV_(
crr^i'n
Skaftfellingur
hleður til Víhuf
á morgun.
Best að auglýsa í
Morgunbllaðinu.
Framköllun.
Kopiering.
Stækkanir.
iiiiiiiminiiiiiiiimiiiiiiiiiiimiiiiiimtimiiiiiiiiiiiininiiiitime
„Austurstræti"
annað hefti kemur út á morgun.
Efni: Æfintýralandið og anðæfi
þess. — Skopkaflar með myndum. — Fólkið í borginni. —
Þrjú brjef um ungu stúlkurnar. — Vitið þjer að ?. — Er-
lendir dátar og íslenskar stúlkur og fjölda margt annað.
VERÐ aðeis 30 aura.
I. S. í. 4. kappleikur. Á K. R. R.
Þýska úrvalsliðið - íslenska úrvalsliðið I
mánudagskvöld kl. 8 stundvíslega.
Geta landarnir sigrað? Allir standa á öndinni!