Morgunblaðið - 03.07.1938, Blaðsíða 7
MORGU N BLAÐIÐ
7
Simnudagur 3. júlí 1938.
FULLTRÚAÞING
BARNAKENNARA
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU
barn ætti að leita sjer atvinnu,
«em líkindi væru til að gæti
orðið því til frambúðar".
Ríkisútgáfa skólabóka.
Rætt var um framkvæmdir
þeirra laga í einstökum atrið-
um og útgáfu nýrra kenslu-
bóka. Er það eindregin ósk
kennarastjettarinnar að fá
meiri íhlutunarrjett um þau
mál en nú er. Um það var sam-
þykt eftirfarandi tillaga:
„Fulltrúaþingið leggur ríka
áherslu á, að Ríkisútgáfa náms-
bóka gefi ekki út aðrar náms-
bækur handa barnaskólum en
þær, sem skólaráð barnaskól-
anna leggur til að verði löggilt-
ar. Enda vinni skólaráðið að
því, að starfandi kennarar fái
þá íhlutun um samning kenslu-
bókanna, sem nauðsynleg er
barnanna vegna“.
önnur mál.
Rætt var um tóbaksnautn
barna og samþyktar tillögur
þess efnis, að unnið verði að
því að koma á banni á sölu og
afhendingu á tóbaksvörum til
bama og unglinga innan 16 ára
aldurs, og auka fræðslu barna
og foreldra um skaðsemi tó-
baksnautnarinnar.
Ennfremur var rætt um nauð
syn þess að útrýma lúsinni og
samþykt eftirfarandi áskorun
til heilbrigðismálastjórnarinn-
ar:
„Fjórða fulltrúaþing S. 1. B.
beinir þeirri áskorun til heil-
brigðismálastjórnarinnar, að
hún láti gera nauðsynlegar ráð-
stafanir til þess að útrýma lús-
inni samtímis allsstaðar á land-
inu. Samkvæmt eðli málsins er
augljóst að útrýming lúsarinn-
ar er framkvæmanleg, en
hvorki skaðlaust nje vansalaust
fyrir þjóðina að una við það
ástand, sem nú er — a. m. k.
sumstaðar á landinu. Virðist
einsætt að læknar, kennarar,
hjúkrunar- og yfirsetukonur
um land alt leggist á eina sveif
í þessu máli undir forustu heil-
brigðismálastjórnarinnar“.
Úr stjórninni gengu 4 af 7,
sem skipa stjórn S. 1. B., og
voru kosnir: Sigurður Thorla-
cius, Pálmi Jósefsson, Guðjón
Guðjónsson og Bjarni M. Jóns-
son.
Þinginu lauk með ferð full-
trúanna austur að Sogsfossum
og útifundi í Þrastaskógi. Þar
voru m. a. flutt tvö erindi, ann-
að af Ármanni Halldórssyni,
magister: Frásögn frá Vín, —•
hitt af Gunnari M. Magnúss:
Um undirbúning fræðslulag-
anna fyrir 30 árum.
Að öðru ieyti var umræðum
um það mál frestað vegna fyr-
irhugaðra hátíðahalda næsta
ár.
Forsetar þingsins voru: Frið-
rik Hjartar, skólastjóri á Siglu-
firði, Gísli Jónasson, yfirkenn-
ari í Reykjavík, og Kristbjörg
Jónatansdóttir, kennari á Ak-
ureyri.
Kristiim Björnsson læknir er á
förum burt úr bænum. I fjarveru
hans. gegna læknisstörfum fyrir
hann, Óskar Þórðarson og' Páll
Sigurðsson.
SAMTAL VIÐ LÁRUS
EINARSON
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU
hjá, sem E-vitaminið hefir
mikla þýðingu.
Það eru til aðalLega tvenns-
konar form af þessum vöðva-
rýrnunar-sjúkdómum. Annað,
sem mjög gengur í ættir, er
genotypiskt bundið; en hitt,
sem e. t. v. er nokkuð algeng-
ara og ekki liggur eins í ætt-
um, kemur fyrir við og við hjá
einstaklingum. Sameiginlegt
fyrir bæði þessi form er þó
það, að hin meðfædda bygging
og efnaskifti taugakerfisins hjá
þessu fólki krefst sjerstaklega
mikils neuro-trop E-vitamins í
fæðunni og þá einkum gefið
sem hveitikim-olía.
Við gerum einnig tilraunir
með innspýtingar á hveitikim-
olíu, til þess að ganga úr
skugga um, hvort það kann að
hafa nokkra sjerstaka þýðingu.
Við höldum einnig áfram til-
raunum með þetta á dýrum.
HÁSKÓLINN
I ÁRÓSUM.
— Þjer mintust á 10 ára há-
tíðarit háskólans í Árósum. Er
þetta afmæli háskólans á þessu
ári?
—- Já, og það verður haldið
hátíðlegt dagana 10.—13. sept.
næstkomandi. Verður mjög
vandað til hátíðahaldanna og
taka stúdentar mikinn þátt í
þeim.
Háskólinn í Árósum er ann-
ars í miklum uppgangi. Hann
var upphaflega stofnaður með
einni deild, heimspekideild, en
svo bættist við hver deildin af
annari og síðast læknadeildin,
sem nú er í mjög miklum upp-
gangi. Alls voru 600 stúdentar
við háskólann s.l. vetur, þar af
lásu 240 læknisfræði.
Háskólinn er sannkallaður
augasteinn fólksins, sem legg-
ur geysimikið af mörkum til
eflingar hans og framfara. Há-
skólinn minnir mjög á ameríska
háskóla.
Nú er á döfinni að stofna í
sambandi við háskólann stóra
deild fyrir taugasjúkdóma. Og
á næstu árum kemur sjerstök
deild fyrir næringarlíffræði og
matvælarannsóknir, sem einn-
ig á að hafa með höndum
kenslu og starfsemi, er bein-
línis kemur að gagni mataræði
almennings. Er þetta fyrsta vís-
indastofnunin í þeirri grein í
Danmörku.
Síðastliðinn vetur var aukin
kensla fyrir hjúkrunarkonur og
tekin upp sjerstök kensla fyrir
'pær hjúkrunarkonur, sem ganga
út til almennings og leiðbeina al
menningi (social workers). —
Ilafa aðeins lærðar hjúkrunar-
konur fengið þessa kenslu og
er kenslan meira vís.indaleg
en hjúkrunarkonur hafa feng-
ið hingað til. Aðsóknin að þessu
námi hefir verið mjög mikil og
færri komist að en vildu.
Útiskemtun heldur knattspyrnu
fjelagið „Haukar“, í Unaðsdal við
Hafnarfjörð. Meðal margs annars
keppa knattspyrnufjelögin Valur
og Haukar í handknattleik.
Betanía. Samkoma í kvöld kl.
8%. Ræðumaður Ingvar Árnason.
Allir velkomnir.
□agbók
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Stinningskaldi á N. Ljettir til.
Veðrið í gær (Laugard. kl. 17):
Við SV.-strönd íslands er grunn
lægð, sem virðist stefna NA.-yfir
landið. Vindur er A-lægur hjer á
landi, hvass við S-ströndina með
dálítinni rigningu. Hiti er 4—6
st. á A-land en annars víðast 8—
12 st.
Helgidagslæknir er í dag, Ólafur
Þorsteinsson Landspítalanum.
(Sími 1774), í staðinn fyrir Grím
Magnússon.
Messað í dag í Hafnarfjarðar-
kirkju kl. 2. Sjera Þorsteinn
Björnsson predikar. Safnaðarfund-
ur kl. 4, sjera Garðar Þorsteinsson
flytur erindi.
Sigurður B. Sigurðsson konsúll
hefir véríð settur aðalræðismaður
Breta í fjarveru John Bowering
aðalræðismanns, sem nrun dvelja
í Englandi um fjögra mánaða
skeið.
Sveiim Bjömsson, sendiherra
var ekki meðal farþega á Gull-
fossi í gær, heldur sonur hans,
Sveinn Björnsson.
t
Hjartans þakkir til allra þeirra mörgu, sem glöddu mig
á sjötugsafmæli minu með gjöfum, blómum, skeytum, heimsókn
og kveðjum.
Þurlður Markúsdóttir,
, „Ivv Hlíðarhúsum.
❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖❖<
Sjálfstæðiskvennafjelagið HVÖT
iieldur skemtun að Elði i dag:
Skemtunin sett kl. 3 af frk. Guðbjörgu Bjarnadóttur.
Ræður flytja: Frú Guðrún Guðlaugsdóttir og frú Marta
Indriðadóttir.
Kvennaflokkur Ármanns ((Noregsfararnir) sýnir leik-
fimi.
Dans hefst á pallinum kL 6. Bernburgs hljómsveitin
leikur.
Merki seld við innganginn og kosta 25 aura.
Veitingar á staðnum.
Skemtinefndin.
Ásgeir Eyþórsson á sjötugsaf
mæli í dag.
Hjónaefni. í gær opinberðuðu
trúlofun sína, Sigurjóna Friðjóns
dóttir og Páll Halldórsson, Hverf
isgötu 67.
Happdrætti T. R. er í fullum
gangi. Dregið verður 20. júlí -
eða eftir 17 daga.
Hjúskapur. I dag verða gefin
saman í hjónaharid í Kaupmanna-
höfn, mngfrú Ellen Margrete Mirn
er og hr. Jón Geir Ólafsson, vá-
tryggingarmaður, sonur Ólafs Guð
mundssonar fyrv. óðalshónda frá
Sviðugörðum. Heimili hrúðhjón-
anna verður; Östbanegade 175 III,
Kbh.
Útvarpifi:
Sunnudagur 3. júlí.
14.00 Messa í Fríkirkjunni (sjera
Sigurður Gíslason, prestur á
Þingeyri).
17.40 Útvarp til útlanda (24.52m).
20.15 Erindi: Úr eridurminningum
Frímanns B. Arngrímssonar
(Geir .Tónasson magister).
20.45 Einsöngur (sjera Marinó
Kristinsson).
21.10 Hljómplötiir; ..Dauðra eyj-
an“, tónverk eftir Rachmanin-
off.
Móðir okkar,
Þórunn Gunnlaugsdóttir,
andaðist 2. þ. m. að heimili sonar síns, Hellusundi 7.
Böm hinnar látnu.
Jarðarför mannsins míns og föðnr okkar
Einars Einarssonar,
blikksmíðameistara fer fram frá fríkirkjunni mánudaginn 4.
þ. m. og hefst með húskveSju frá heimili okkar, Laugaveg 53 A
kl. 1 e. h.
Kransar afbeðnir.
Athöfninni verður útvarpað.
Sigríður Jónsdóttir og dætur.
Jarðarför kontmnar minnar og móður okkar,
Guðrúnar Benediktsdóttur,
frá Þorkelshóli fer fram frá fríkirkjunni þriðjudaginn 5. þ.
m. og hefst með húskveðju að Garði í Skerjafirði kl. 1. e. h.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Þórður Guðmundsson og böm.
Jarðarför mannsins míns,
Magnúsar Snorrasonar,
fer fram þriðjudaginn 5. júlí n. k. og hefst með hæn að heimili
hans, Strandgötu 47 í Hafnarfirði kl. iy2 e. hád.
Sigríður Erlendsdóttir.
Inriilegar þakkir fyrir auðsýnda hluttekningu við andlát
og jarðarför
Guðnýjar Ólafsdóttur.
Rebekka, Emilía, Ida Hjörtþórsdætur.
Hjartanlega þökkum við öllum, se'm sýndu okkur hluttekn-
ingu og vinarhug við fráfall og jarðarför mannsins míns, föður
okkar og afa,
Þorsteins Ágústssonar, trjesmiðs.
Guðrún Hermannsdóttir og börn.
Mánudagur 4. júlí.
19.20 Síldveiðiskýrsla Fiskifje-
lagsins.
Hljómplötur: Göngulög.
19.50 Frjettir.
20.15 Sumarþættir (V. Þ. G.).
20.40 Lýsing á úrslitakappleik í
knattspyrnu á íþróttavellinum
í Rvík, milli íslendinga og
Þjóðverja.