Morgunblaðið - 07.07.1938, Page 5

Morgunblaðið - 07.07.1938, Page 5
MORGUNBLAÐIi-i Fimtudagur 7. júlí 1938. í .....—JFflcrrgtœMaftið---------------------------- Útgef.: H.f. Árvakur, Keykjarlk, Rltstjörar- Jön KJartansaon o* ValtjT Btafknuon (kbyrffSarmaOur). Auglýsingar: Árnl Ól*. Rltatjörn, auBlýalnfcar og afjrraltlala: Auatnratraeti 8. — Btml 1800. ÁakrlftarsJald: kr, t,00 A mAnnSl. 1 lauaaaölu: II aura aintaklt) — li attra matl Laabök. LÁNTÖKURNAR PA Ð verður trauðla með sanni sagt, að löggjöf síð- justu þinga hafi vakið verulega athygli alþjóðar, enda hefir hún verið fremur bragðdauf, eins og stjórnmálin yfirleitt. Á þessu eru þó að sjálfsögðu nokkrar undantekningar, og má þar til fyrst nefna 12 miljón króna lántökuheimildina, er síð- asta Alþingi veitti ríkisstjórn- inni. — Til þess lágu ýms rök, að lántökuheimild þessi vekti á sjer sjerstaka eftirtekt, m. a., og ekki síst þau, að kjósendum landsins, og þá einkum í liði xíkisstj órnarinnar, mun hafa komið mjög á óvart, að slík |)örf væri fyrir hendi eftir all- an þann gleðiboðskap er stjórn- .arblöðin höfðu flutt þeim um fjárhagslegan velfarnað undan- farinna ára. Þykir ekki ástæða til að rekja þá sögu að þessu sinni, heldur skal á það mint, að Sjálfstæðisflokkurinn á Al- þingi gerði þá grein fyrir að- stöðu sinni til lántökunnar, að liann teldi eftir atvikum og eins »og komið væri um fjárhag þjóð arinnar, að eigi yrði hjá því komist, að freista þess að taka slíkt lán, þareð ella yrði trauðla Ikomist hjá vanskilum. En á »engu riði fátækri þjóð meir en •einmitt því trausti, sem sú þjóð •ein gæti öðlast og átt, sem fyr herti sultarólina og svelti sig, þeldur en að hún gerðist ber að því að rifta gefnum heitum um greiðslur erlenda skulda. Hins vegar taldi Sjálfstæðisfloklcur- inn sjer ekki skylt að greiða þeinlínis atkvæði með lántöku- heimildinni, vegna þess að hans Táð höfðu um langt tímabil verið að engu höfð, en einmitt það hafði að verulegu leyti leitt út í þær f jármálaógöngur, sem nú þurfti að reyna að ráða fram úr. Þessi afstaða Sjálfstæðis- flokksins skifti að því leyti ekki máli, að lántökuheimildin var samþykt, alveg án hliðsjónar til stuðnings eða andstöðu flokksins. Svo sem kunugt er, var lán- fökuheimildin þá líka samþ. með atkvæðum Framsóknarmanna, .sósíalista og kommúnista. Fóru þeir Magnús Sigurðsson banka- stjóri og Jón Árnason banka- ráðs formaður þegar að ;afloknu þingi, utan á vegum ríkisstjórnarinnar, í þeim erind að útvega þetta lán. Eftir nær tveggja mánaða íjarveru erú þessir umboðsmenn fíkisstjórnarinnar nú nýverið Eeim komnir, og birtist hjer í blaðinu í gær tilkynning ríkis- útjórnarinnar Um árangur þess- ítrar faráf. Það skal þegar tekið fram, að enginn dregur í efa, að þess ár sendimenn hafi verið ft. m. k. ekki miður líklegir en aðrh þeir, er bestir kynnu að hafa reynst, til þess að ná tilætluð- um árangri. En því alvarlegri eru þau tíð indi, sem boðskapur ríkisstjórn arinnar flytur, er lýðnum er gert ljóst, að 12 miljón króna lánið hefir ekki fengist, a. m. k. ekki að svo komnu, heldur hefir aðeins náðst smá „bráða- birgðalán" að upphæð rúmar 2 miljónir króna. En sú upphæð nægir ekki einu sinni þörfum líðandi stundar, heldur hverf- ur hún til þess eins, „að inna af hendi mest aðkallandi greiðsl ur hins opinbera“, eins og kom ist er að orði í tilkynningu stjórnarinnar. 1 þessari tilkynningu skýrir ríkisstjórnin frá því, að þótt hafi „óhentugt af ýmsum ástæð um að bjóða nú þegar út fast lán fyrir ríkið erlendis", og er það að sjálfsögðu rjett, því ella hefði þess verið freistað, svo mjög sem að þrengir. Hitt er svo á huldu, hvenær slíkt útboð verður talið „hentugt", en það veltur auðvitað á því hvort eða hvenær hinum erlendu lánar- drotnum þykir ,,hentugt“ að veita hingað meiru fje. Þetta eru ill tíðindi og alvar- leg, en verst þó ef satt reynist það er heyrst hefir, að hinir erlendu lánardrotnar hafi gert það að ófrávíkjanlegu skilyrði fyrir því að veita ríkinu þetta smáa ,,bráðabirgða“ víxillán, að Landsbankinn skrifaði upp á víxilinn. Og enda þótt það út af fyrir sig sjeu gleðitíðindi að „telja megi miklar líkur til að lán til hitaveitunnar fáist í Svíþjóð", eins og í tilkynning- unni segir, eru það þó engar full nægjandi sárabætur. Þar ræðir um traust á ákveðnu arðvæn- legu fyrirtæki, en undirtektir erlendra lánadrotna undir ríkis- lánið, er almennur mælikvarði á traust ríkisins sjálfs, traust ís- lex.sku þjóðarinnar á erlendum v ttvangi. Þessum tíðindum geta Islend ingar snúið til góðs, ef þeir af þeim láta sjer skiljast, að nú er bikarinn fullur. Nii er sá — og sá eini — kostur fyrir hendi, að snúa við o gtaka öllum afleið ingum þess, að við verðum að bjarga okkur sjálfir. Vinátta og bræðrahjal er kunnara fyrir- brigði í skálaræðum en sala- kynnum fjármálamannanna. Lokakappleikurinn. Eimskip. Gullfoss fór til Vest- fjarða og Breiðafjarðar í gærkv. kl. 8. Goðafoss er í Reykjávík. Brúárfoss er í Khöfn. Dettifoss er á leið til Vestmannaeyja frá Hull. Lagarfoss fór frá Leith í gær, á- leiðis til Austfjarða. Selfoss er á leið til Vestmannaeyja frá Hull. II . íþróttaleiðtoginn dr. Erbach: íslenskir íþróttamenn eru efnilegir — en þá vantar alhliða þjálfun P/ska knattspyrnuliðið fer hjeðan í dag heimleið- is. Munu allir Reykvíking- ar ljúka upp einum munni um það, að koma Þjóðverj- anna hingað hafi verið góð. Reykvísk æska hefir haft bæði ánægju og- gagn af kappleikum þeirra. Þetta er í annað skifti sem leiðtogi þeirra, dr. Erbach kemur hing-að til Reykjavík- ur. Hann stendur, sem kunn- ugt er, framarlega í sveit forystumanna þýskra í- þróttamála, og hefir mikla þekkingu á öllu því, er að líkamsuppeldi lýtur. Það var því sjerstök ástæða fyr- ir Morgunblaðið að fregna hjá honum, hvaða áht hann hefir á íslenskum íþróttamönnum og íþróttamálum. Aður hefir hann látið blaðinu í tje áht sitt við- víkjandi þessum kappleikum milli Þjóðverja og íslendinga, sem nú eru afstaðnir. En í gær hafði blaðið tal af honum til þess að spyrja hann m. a. um, hvern- ig honum hafi litist á hin ís- lensku knattspyrnulið nú, í sam- anburði við kappleikina 1935, hvað hann hafi sjerstaklega um íslenska knattspyrnumenn að segja, hvað þeir eigi sjerstaklega að leggja áherslu á, að hans áliti, og hvernig honum litist á hið fyr- irhugaða íþróttasvæði í Benevent- nm og við Nauthólsvík. Framför síðan 1935. Þegar jeg ber saman liappleik- ina nú og 1935, segir dr. Erbach, þá er jeg í engum efa um, að ís- lenskum knattspyrnumönnum lief- ir farið mikið fram þessi þrjú ár. Þetta kom best í ljós á fyrstu kappleikunum. En á seinni kapp- leikunum hefir mjer ekki sýnst þeir vera eins góðir, vanti úthald og leikni, rjett eins og þeir sjeu orðnir þreyttir. Þ. e. a. s. eltki hefir borið á því, að þeir þreytt- ust í sama leik, svo að þeir hjeldu ekki kappi og hraða til leiksloka. En það er eins og þreytumerki hafi komið í Ijós,- er maður ber saman fyrri og síðari leikana. Þreytumerki þessi hafa sýnt sig í því, að öryggið var minna í með- ferð knattarins, samleikurinn stirðari og verri, meira hugsunar- leysi í leiknum. Alhliða þjálfun nauðsyitleg. Þettá ber ljósan vott um, áð hina íslensku knattspyrnumenn vantar alhliða þjálfun. f Þýskalandi er þjálftm og námi knattspyrnumanna hagað með það fyrir augum, að þeir fái fimi og leikni í að nota svo ftð segja 'hvern vöðva í líkamanum. En til þess að það fáist, þurfa íþróttamenn að eiga völ á veru- lega góðum íþróttakennara. Til Æfingarvellir, almenn þátt- taka æskunnar, aðalatriðið Dr. Erbach. þess að áhrif og kensla slíks kenn- ara eða leiðtoga komi að sem betu og öruggustu gagni, þá höf- um við Þjóðverjar oft þessa að- ferð: Kennarinn finnur brátt hvaða nemendur hans skara fram úr. Hann leggur kapp á að kenna þeim, til þess að þeir geti síðan hver um sig kent smáhópum af fjelögum sínum. Þannig væri hægt að fara að hjer. Ef hjer væri einn verulega góður alhliða íþróttakennari, þá kendi hann nokkrum mönnum úr hverju fjelagi og þeir kendu síð an út frá sjer. — Þessi undirbúningsmentun (Grundschule) er undirstaðan undir þjálfun og iðkun allra í- þrótta, en er ekki miðuð við knatt- spyrnu sjerstaklega. Hún niiðar að því, að menn fái stælingu bók- staflega í öllum líkamanum, og fullkomið vald yfir hverri sinni hreyfingu. í stað þess, að þeir sem vinna eitthvert verk, þeir fá stælingu í þeim vöðvum 'sem þeir aðallega nota. Að vissu leyti gildir hið sama um þá, sem iðka knattspyrnu. Þeir fá stælingu í fótum, hand- leggjum o. s. frv. En til þess að geta verið góðir knattspyrnumenn og tekið þeirri þjálfun og leikni, sem til þess þarf, þá þurfa þeir að vera fimir í öllum líkamanum. Þessi undirbúnin gsþ j ál fun er Hauðsynleg fyrir allar úti- íþróttir, hlaup, tökk, köst og livað sem er. Þá komum við að næsta þætti jþjálfun kuati'spyrnumanna, er mðiar að knattspyrmt sjérstak- lega. Þar reynir mest á fætur, hand- leggi og mjaðmir, sem æfa þarf sjerstaklega. Þetta er gert á knaftSpyrnunámskeiðuni. Þar æf- ast menn í því að vera viðbragðs- fljótir, geta staðnæmst skjótt, snú ið sjer við á harðahlaupum, og hafa í þessu fult vald á hverrí hreyfingu. Þessir tveir þættir þjálfunar- innar eru undirbúningur undir að læra að fara með knöttinn, að skjóta honum á hlaupum til ann- ara, með fótstöðu, að stöðva knött- inn, skalla liann o. s. frv. Af þessu er það ljóst, að við látum okkur ekki nægja að knatt- spyrnuþjálfarar leiðbeini og kenni knattspyrnumönnum okkar, nema að þeir sjeu jafnfærir í því að kenna undirbúningjnn, hina al- hliða fimi og stæling líkamans, einnig lokaþáttinn, sem er með- ferð knattarins á vellinum. En auk þessa þurfa knattspyrnu menn að æfa samleik og það sem þeir alment nefna „taktik“. Að lokum segir dr. Erbach; Það er engin tilviljun, að knatt spyrna er oft nefnd „íþrótt íþrótt- anna“, eða fremst allra íþrótta. Því sá maður, sem hefir þá al- hliða líkamsþjálfun, sem knatt- spyrnan útheimtir, og um leið æf- ingu í samleik, það kapp og þann fjelagsanda, sem með þarf svo vel sje, hann hefir hina bestu íþróttaskólun, sem hægt er að fá. Því er það, að í Þýskalandi er lögð svo mikil áhersla á íþrótt þessa, að ætlast er til þess, að bókstaflega hver einasti skóla- drengur jðki þessa íþrótt, til gagns fyrir sjálfan sig, fyrir heilsu sína. Ef þjálfun íslenskra knattspyrnumanna verði hagað eins og jeg hjer hefi drepið á> er jeg í engum efa um, að íslensk knattspyrna tekur skjótum fram- förum, því hjer eru áreiðanlega mjög efnilegir knattspyrnumenn, sem komast langt í íþrótt sinni, ef þeir fá rjetta þjálfun og tæki- færi tíl að leggja stund á íþrótta- iðkanir. íþróttasvæðið við Skerjafjörð. Við fórum í £ær meg (jr_ Er- bach suður á hið fyrirhugaða íþróttasvæði vestan við Öskjuhlíð- ina, og sýndum honum staðinn, höfðum skipulagsuppdráttinn með, sem gerður hefir verið af vænt- anlegum mannvirkjum þar. Ein- ar Sveinsson arkitekt var með. Hann hefir unnið að skipulags- uppdrætti þessum. Dr. Erbaeh lítur svo á, að stáð- ur þessi sje tilvalinn fyrir íþrótta svæði, sakir legu og landrýmis. En á hverju ætíið þið svo að byrja? spyr hann. Var hoiium sagt, að áforrojað væri að hýrjá á æfiugavöllúm fyrir knattspyrnufjelögin. FRAMBL Á SJÖTTU SfiW.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.