Morgunblaðið - 10.07.1938, Blaðsíða 8
Á.
Sunnudagur 10. júlí 1938..
r 8
MORGUNBLA ÐIÐ
Krossgéla Morgunblaðsins 37
Lárjett.
1. þýskur knattspyrnumaður. 6. bruggar. 11. glufa.
13. betur. 15. látbragð. 18. umdæmi. 20. aflaga. 22.
læt. 24. fum. 25. markvörður. 27. á litinn. 28. fyrsta
flokks. 30. toga. 32. keyr. 33. tónn. 34. byrjun. 36.
ögn. 37. hreyfast. 38. haf. 39. skip. 41. á fæti. 43.
aðgæta. 44. leit. 46. hefir orðið. 49. mannsnafn. 51.
stjórn. 52, yrkisefni. 56. tortryggja. 57. þræll. 58.
skrafar. 59. stefna. 61. 11 menn. 63. æsa. 66. skófla.
68. fargið. 69. snuðrarar.
Lóðrjett.
2. glanni. 3. tónn. 4. ættingi. 5. efnafræðisskamm-
stöfun. 7. undir skjölum. 8. stýra bíl. 9. komast. 10.
rifrildi. 14. markvörður. 15. losa sig við. 16. fiskur.
17. mannsnafn. 19. gert í knattspyrnu. 20. á togur-
um. 21. á reikningum. 23. hafa í fórum sínum. 25.
spurning. 26. deild. 29. banna. 31. af hval. 33. á mat-
borði. 35. yfirbragð. 39. vera málhaltur. 40. kven-
mannsnafn. 42. tala. 43. grobbað. 44. við Hverfisgötu.
45. blótsyrði. 47. þýskur knattspyrnumaður. 48. biti.
49. fæði. 50. ber á móti. 53. skammstöfun. 54. gefið.
55. tímabil. 60. kjáni. 62. gróður. 64. upphafs§tafir
skálds. 65. úttek^. 66. tónn. 67. íþróttafjelag.
Ráðning á krossgátu 36.
Lárjett.
1. hrammur. 6. Mosfell. H. gröm. 13. kári. 15. rim.
18. Níl 20. regin. 22. tár. 24. Are. 25. fengsæl. 27.
Ari. 28. ragna. 30. talað. 32. ar. 33. fa. 34. an. 36.
Ra. 37. för. 38. áma. 39. G. S. 41. út. 43. dr. 44. ás.
46. okkar. 49. glæða. 51. sóa. 52. prangar. 56. raf.
57. arm. 58. ánægð. 59. inn. 61. ama. 63. anda. 66.
rugg. 68. röndótt. 69. fjall.
Lóðrjett.
2. agaleg. 3. M. R. 4. mör. 5. um. 7. Ok. 8. sál. 9.
fr. 10. eintal 14. snara. 15. renna. 16. missa. 17. friða.
19. Jrar. 20. re. 21. næ. 23. árar. 25. fa. 26. lt. 29.
Nafta. 31. aðall. 33. frú. 35. nár. 39. gosar. 40. skór.
42. trana. 43. dugga. 44. áðan. 45. safna. 47. Kamb-
an. 48. Rp. 49. gr, 50. æringi. 53. rá. 54. næmi. 55.
að. 60. ódó. 62. m,un. 64. Nd. 65. at. 66. re. 67. G. G.
Tjöld og tjaldsúlur fyrirliggj-
andi, einnig saumuð tjöld eft-
ir pöntun. — Ársæll Jónasson
— Reiða- og Seglagerðaverk-
stæðið. Verbúð nr. 2. — Sími
2731.
Nýkomin sumarefni, röndótt,
rósótt, einlit. Fóðurefni í mörg-
um litum. Millifóðurstrigi. Vatt.
Silkitvinni. Smellur o. fl. Sauma-
stofa Ólínu og Bjargar, Ingólfs-
stræti 5. Sími 3196.
I sumarfríi.ð og sólskinið fáið
þjer ódýra, hvíta og mislita
kjóla hjá Guðrúnu Arngríms-
dóttur, Bankastræti 11. Sími
2.—3. herbergja íbúð með
nýtísku þægindum óskast 1.
sept. eða 1. okt., helst í Aust-
irbænum. Kristján Arinbjarnar,
læknir, Hótel Borg.
Friggbónið fína, er bæjarins
besta bón.
Vjelareimar fást bestar hjá
Poulsen, Klapparstíg 29.
2 stórir silfurrefir til SÖlu með
tækifærisverði í Kápubúðinni á
Laugaveg 35.
2725.
Kaupi gamlan kopar. Vald.
Poulsen, Klapparstíg 29.
EF LOFTUR GETUR ÞAÐ
EKKI-----ÞA HVEK
Tapast hefir kven-armbands-
úr úr gulli. Skilist gegn fundar-
launum á Eiríksgötu 31, uppi.
Vasfcúr fundi.ð. Vitjist að
Haukalandi.
&tf&yntUn€jxw
K. F. U. M. og K. Hafnar-
firði. Almenn samkoma í kvöld
kl. 8,30. Ingvar Árnason talar.
Allir velkomnir. (Fórnarfund-
ur).
Heimatrúboð leikmanna,
Bergstaðastræti 12. Samkoma í
kvöld kl. 8. Hafnarfirði, Linnet-
stíg 2. Samkoma í dag kl. 4.
Allir velkomnir.
Síðan er fögur sveit —. Fast-
ar áætlunarferðir frá Reykja-
vík til Kirkjubæjarklausturs
alla þriðjudaga. Frá Kirkju-
bæjarklaustri til Reykjavíkur
alla föstudaga. Vandaðar bif-
reiðar. Þaulæfðir bílstjórar.
Afgreiðslan Bifreiðastöð ís-
lands, sími 1540.
Slysavarnafjelagið, skriístofa
Ilai'narhúsinu við Geirsgötu.
Seld minningarkort, tekið móti,
gjöfum, áheitum, árstillögum
Bikum þök. Benedikt. SímL
4965.
Geri við saumavjelar, skráí
og allskonar heimilisvjeiar. H.
Sandholt, Klapparstíg 11. Sími
2635.
Otto B. Arnar, löggiltur ií',
varpsvirki, Hafnarstræti 19. —
Sími 2799. Uppseining og við-
gerðir á útvarpstækj um og loft
netum.
Erum í bænum. Tökum að
okkur utan og innanhússþvott.
Jón og Guðni. Sími 4967.
i
!--------------------------------
Hvort heldur er um „Ka-
rikatur“-teikningar Stróbls
að ræða eða aðrar myndir,
geta allir verið sammála um
að innrömmunin er best og'
ódýrust hjá
Betanía. Samkoma í kvöld kl.
8þ4- Ræðumaður Sigurður Guð-
mundsson, ritetjóri.
GUÐM. ÁSBJÖRNSSYNI,
Laugaveg 1.
Fyrirliggjandi:
HAFRAMJÖL — KARTÖFLUMJÖL
KANDIS — FLÓRSYKUR
MAKARÓNUR — KANILL heill og steyttur..
Eggerl KriiQáoðsoii & €o.
Slmi 1400.
FAITH BALDWIN:
EINKARITARINN. 80.
„En jeg get ekki lofað þjer að gera það“, sagðx
Anna. „Vertu sæll“. Hún rjetti fram höndina, en hætti
við aftur. Hvers vegna átti hún að viðhafa þetta
venjulega látæði? „Vertu sæll“, sagði hún aftur.
Hún sneri sjer frá þeim og gekk burt. Ted gekk að
viðarstaflanum, bölvaði í hljóði og sparkaðí í trjá-
bútana með sandala sínum, eins og úrillur drenghnokki.
Hún hafði komið að honum í hlægilegu ástandi. Hún
hafði sagt honum upp í viðurvist annarar stúlku, sem
gat ekki að því gert — það varð hann að játa —•
stúlku, sem elskaði hann. Jæja, Anna hafði þó að
minsta kosti heyrt, að einhver gat elskað hann. Það
var honum nokkur rannabót.
Ekki var hægt að kenna Polly um þetta. Hann gat
aðeins sjálfnm sjer um kent. En var hægt að álasa
manni fyrir að leita þangað, sem hanrx var velkominn?
Að vísu hafði Polly komið honum í slæma klípn, og
hann beið þessa aldrei bætur með Önnu. En þrátt fyrir
alt elskaði Polly hann. Hún bar enga ábyrgð á þessu.
Hann hafði tekið hana í faðm sinn og kyst hana eftir
að hún hafði spurt hann, hvenær þau ætluðu að giftast
og farið að gráta yfir öllu saman.
Nei, Polly átti enga sök á þessu. Hún var hálfgerð-
ur kjáni, barn, ein af þessum ungu stúlkum, sem mað-
ur brosir að, en vill gjarna hjálpa og vera góður við.
Hún fekk mann ekki til þess að vera feiminn eins og
skóladrengur. Hún fekk mann til þess að finna til sín,
finria til hverrar tommu af hs^ð sinni, hvers punds af
þunga sínum og hverrar atómu af styrkleika sínum —
og ef til vill svolítils meira.
Anna? Hann var búinn að misa hana, en hann hafði
í raun og veru aldrei átt hana.
Eftír nokkra umhugsun, fór hann til Polly, laut
niður og reisti hana á fætur.
„Nú sitjum við laglega í því“, sagði hann hlíðlega.
„Komdu, við skulum koma inn til hinna“.
„Fyrirgefðu mjer“, sagði Polly.
„Þetta er alt í lagi“, sagði hann kæruleysislega, og
þau gengu hlið við hlið að húsinu. Hann gleymdi að
haga göngu sinni eftir hinum smáu skrefum hennar,
svo að hún varð að lilaupa við fót, til þess að geta
fylgst með honum. Hann mundi varla eftir Polly. Yar
að hugsa um Önnu. Það var ekki fyr en löngu seinna,
að honum var ijóst, hve feginn og þakklátur hann
fyxúrgaf þeim báðum tveim af öllu hjarta.
TÓLFTI KAPÍTULI.
Þegar Anna liom aftur út í bílinn, sat móðir hennar
með hendur í kjöltu og beið eftir lienni. Frá henni
stafaði einstök þolinmæði og ró. Hún leit rjett aðeins
á dóttur sína og sagði: „Er þetta þá í lagi?“
Anna kinkaði kolli og settist við hliðinaá henni. Síð-
an óku þær heim að litla múrsteinshúsinu. Mrs. Mur-
dock var nú eins óðamála og hún hafði áður verið
þögul.
Hún talaði um heima og geima, en mintist ekki á
erindi þeirra, fyr en þær óku heim að húsinu. Þá sagði
hún, hugsi á svip:
„Þú verður að segja föður þínum það. Hann verður
ekki ánægður“.
Þegar þær komu inn í garðinn lá Murdock í hengi-
rúmi fyrir utan húsið og reykti pípn sína í ró og næði.
Hann spurði, hvar þær hefðu verið, og Anna sagði
honum eins og var.
„Við vorum hjá Ted“, svaraði hún. „Jeg hefi sagt
trúlofun minni slitið, pabbi“.
Murdock tók pípuna út úr sjer og hristi úr henni
ösknna.
„Jeg er ekki hissa á því“, sagði hann rólega. „Stúlk-
urnar taka ekki nærri sjer að brjóta gefin loforð nú
á dögum. Burt með þá gömlu og góðu ást, og sú nýja
í staðinn, þannig leika þær sjer. Þú iðrast eftir þetta,
Anna. O’Hara er góður drengur og á betra skilið. Þú
verður að fara langt, ef þú ætlar þjer að finna lians
líka“.
Hann var í geðshræringu en stilti sig venju fremur.
í hans augum var trúlofun næstum það sama og hjóna-
band. Stúlkur, sem voru svona fljótar til að gefa lof-
orð og svíkja þau, gátu eins auðveldlega brotið hin
tíu boðorð. Eins og venjulega, flýtti kona hans sjer að
koma barni sínu til hjálpar.
„Anna hefir farið rjett að ráði sínu“, sagði hún
hátíðlega. „Heldur vildi jeg sjá hana snúa við fyrir
framan altarið en telja hana á að ganga út í hjóna-
band, sem hún myndi iðrast eftir“.
„Já“, sagði maður hennar, „þú tekur auðvitað mál-
stað hennar“.
„Mjer þykir leiðinlegt, að þú tekur þetta svona<
nærri þjer, pabbi“, sagði Anna. „En jeg elska hanm.
ekki, og jeg get ekki haldlð áffam lengur“.
„Jeg tek það ekki nærri mjer“, sagði faðir hennar
hneykslaður. „En mjer finst, að þú hefðir átt að vita,-
hvort þú elskaðir hann eða ekki, áður en þú gafst
honum heitorð þitt“. ^
Anna ypti öxlitm, vonleyisleg á svip, og gekk inn.
í húsið og upp í svefnherbergi sitt.
Molly settist við hlið manns síns og tók hörid hans..
„Anna er óhamingjusöm“, sagði hún. „Gerðui Hennu
elcki erfiðara fyrir en þegar er“. \
Hann svaraði ekki strax, nema með því að klappa-
blíðlega á litlar og grannar herðar hennar. Síðan tróð
hann tóbaki í pípu sína með harðri hendi og sagði:
„Jeg skal stilla mig. En þegar jeg var ungur, hjelt
fólk loforð sín. Jeg skil ekki unga fólkið nú á dögum„.
Molly. Við eigum þrjú börn og þau eru gerólík okkur,
eins og við ættum ekkert í þeim. Jeg held“, hjelt hann
áfram, og barðist við þessa óvæntu tilhneigingu til
þess að tala, „að það sje af því, að þau eru þriðji
ættliður. Jeg man eftir foreldrum mínum, og þú manst
eftir þínum. Þau voru bestu manneskjur og óbrotnar.
Við erum líka óbrotnar manneskjur, en við höfum þau
þægindi, sem okkar foreldrar höfðu ekki, eigum hæg-
ara með að vinna okknr inn peninga, höfum dagblöð-
in, útvarp og margt fleira, okkur til skemtunar. Ea.