Morgunblaðið - 16.08.1938, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 16.08.1938, Blaðsíða 5
mt&aa&aii 3>riðjudagur 16. ágúst 1938. MORGUNBLAÐIÐ JPlóttjraiMaMd Ötgef.: H.f. ArVakur, Reykjavík. Ritstjórar: Jón Kjartansson og Valtýr Stefánsson (ábyrgtSarmaTSur). Auglýsingar: Árni Óla. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiTSsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: k r. 3,00 á mánuði. í lausasölu: 15 aura eintakið — 25 aura með Lesbók. SAMSÆRI í ÚTVARPINU? að er nú komið nokkuð á f-* aðra viku siðan útvarps- stjóri tilkynti, mjög hátíðlega, .að hann hefði gert ráðstafanir ;til málshöfðunar gegn ungfrú Jórunni Jónsdóttur og dagblað- inu Vísi. Eigi vitum vjer hvort ungfrú Jórunni hefir borist nein -stefna, en í gær hafði Vísir enn •ekki fengið neina stefnu. Á föstudaginn segir í frjettadálki 'Tímadagblaðsins: „Útvarps- stjóri hefir óskað eftir gjaf- sólcn í máli því, er hann ætlar að höfða gegn Jórunni Jóns- 'idóttur og ritstjóra Vísis. Vitan- lega verður sú beiðni ekki tek- in til greina". Mönnum blöskr- aði vesalmenska Jónasar Þor- .bergssonar við þessa gjafsókn- arfregn. En sennilega ber þó ekki að skilja dráttinn, sem torðinn er á málshöfðuninni svo, að hann sje því að kenna að út- •varpsstjóri treysti sjer ekki til • að standast kostnaðinn af mál- ami. Útlit er á, að dómsmálaráð- Hierrann :ætli að skella skolla- eyrunum við þeim kröfum sem 'fram hafa komið — þar á með- ;al frá stuðningsblaði ráðherr- ans, Alþýðublaðinu — um opin- fbera rannsókn málsins. Öll mál- færsla Tímadagblaðsins gengur iút á það, að engu skifti, hvort jmálfð sje rekið sem meiðyrða- mál, eða hvort tekin sje skýrsla fyrir lögreglurjetti. Hjer 1 blað- 'inu hefir verið gerð grein fyrir þeim mun, sem er á þessu tvennu og sikal ekki farið út í það að sinni. En sannleikurinn er sá, að einmitt þegar Tímadagblaðið er :að verja undanfærslu ráðherr- ans frá opinberri rannsókn, snúast vopnin svo í höndum þcss, að þeim sem ekki hefir verið það fullljóst fyrirfram, að Umræðuefnið í dag: íopmoer rannsókn yrði fram að t fara, hlýtur að verða það full- rannsókn í því. Ijóst eftir síðustu skrif Tíma- ■ dagblaðsins. Tímamenn hafa nefnt þetta mál „Jórunnarmálið'*. Það er „skapgölluð“ stúlka, „fljótfær og stórlynd“, sem ráðist heíir á Jónas Þorbergsson með „vís- vitandi uppspuna“. Þannig hefir málið verið lagt fyrir af þeirra 'hálfu, bæði í blaði þeirra og í útvarpserindi Jóns Eyþórssonar, sem um hefir verið getið hjer í blaðinu. Það þykir hæfileg hefnd á þessa 17 ára gömlu stúlku, að kenna inálið við hana . en ekki við útvarpf stjórann. En á sunnudaginn var kveður við nokkuð annan tón í blaðinu. Nú er það ekki lengur stúlkan sjálf, heldur tveir af „helstu óvinum“ Jónasar Þorbergsson- ar, sem taldir eru potturinn og pannan í kærumálinu. Menn- irnir eru ekki nafngreindir, en talið er að þessir tveir „helstu óvinir“ Jónasar Þorbergssonar sjeu starfsmenn við Útvarpið, og þá sennilega ráðnir þangað af honum sjálfum. En úr því þetta er nú svo, að stúlkan er aðeins ,,verkfæri“ í höndum vondra manna, verður manni á að spyrja: Hversvegna er stúlkan rekin umsvifalaust frá starfi, en „vondu mennirnir“ látnir halda áfram við útvarp- ið? Tímadagblaðið hefir hjer fært málið alveg inn á nýjan grundvöll. Það er að reyna að færa sönnur á, að ekki sje þörf á opinberri rannsókn, en verður s.vo sjálft til þess að benda á atriði, sem ekki virðast geta upplýst til fullnustu nema við opinbera rannsókn. Tímadagblaðið leggur málið þannig fyrir, að tveir af starfs- mönnum útvarpsins hafi narr- ■>.ð unga stúlku til þess að fara með tilefnislausa ákæru á hend- ar útvarpsstjóra. Þessir menn hafi ætlast til þess að málið yrði 'eyst í kyrþei, en hafi síðan ætl- að að nota kæruna í „baktjalda hernaði gegn útvarpsstjóranum og ráðherranum“. Hjer er með -öðrum orðum, eftir því sem Tímadagblaðið segir, á ferðinni samsæri gegn útvarpsstjóranum. Fyrir þessu samsæri standa undirförulir menn og kaldrifjaðir. Þeir nota hrekkleysi ungrar stúlku til þess að koma hinum skuggalegu á- formum sínum fram. Stúlkan sem látið hefir ginn- ast af fortölum þessara manna, er rekin frá starfi og útflæmd í aðalblaði stjórnarinnar og sjálfu Ríkisútvarpinu. Eftir að þetta er komið fram í málgagni dómsmálaráðherr- ans, hlýtur hann að láta sjer skiljast, að málið er komið á þann grundvöll, að hann getur hjeðan af ekki skorast undan að láta þegar hefja opinbera Hvernig Svíar urðu rík þjóð Með því að notfæra sjer auðæfi lands- ins og framtak þjóðarinnar, varð hún eínaþjóð á einum mannsaldri Haustheræfingar Þjóöverja. Dýrtíðin fer vaxandi amkvæmt mátiaðaryfirliti Hag- O stofunriar um smásöluverð í Reykjavík á matvælum, eldsneyti og Jjósmeti hefir aðalvísitala mat- varanna verið 202 í byrjun júlí- mánaðar s.l. (miðað við 100 1914). en var 200 í byrjun júnímánaðar. Er aðalvísitalan 9 stigum hærri en á sama tíma í fýrra. í júnímánuði höfðu 5 matvöru- flokkanna hækkað (þ. e. garðá- vextir, smjör, mjólk, ostur og egg, kjöt og slátur og fiskur), en 3 lækkuðu (þ. e. kornvörur, sykur, kaffi o. fl.). Vísitalan fyrir elds neyti og Íjösmeti iækkaði lítið eitt. Asíðustu tímum er oft talað um ríkis þjóðina Svía. En sjaldnar er umTþað spurt eða frá því sagt, hvern- ig þjóðin varð auðug. Það er rjett eins og rnenn haldi að auðurinn hafi fallið þeim í skaut af sjálfu sjer. Að þjóðin hafi einn góðan veð- urdag vaknað við það, að hún væri orðin rík, og auð- urinn hafi safnast henni meðan hún svaf. En þetta er á alt annan vCg. Fvrir mannsaldri voru Svíar fá- tæk þjóð, sem höfðu lítið álit og iitla trú sjálfir á framtíð sinni. Fyrir 70 árum síðan, árin 1868— ’69 er talið að 1500 manns hafi dáið úr hungri í Svíþjóð. Menn eiga erfitt með að átta sig á því nú, að uppskerubrestur þar í landi sknli hafa haft svo hroðalegar af- leiðingar. Fátækt sú, sem var til í Sví- þjóð fyrir mannsaldri síðan, er hvergi til nú meðal menningar- þjóða nema í Rússlandi og Kína. En á tiltölulega mjög skönnnum tíma, liafa Svíar unnið sig upp úr armóði þessum, og orðið ein af efnuðustu þjóðum í heimi. Talið er að heildarárstekjur þjóð arinnar nemi nú níu miljörðum króna, og sjeu meðalrástekjur 1500 krónur á mann í landinu. Á sjötíu árum hefir tíma- kaup fimmfaldast í landinu, og meðal árstekjur þrefaldast. En þegar kreppan var þar sem mest fyrir nokkrum árum síðan, voru atvinnuleysingjar aldrei fleiri jen 170.000 eða 3V2% af þjóðinni. Þó framþróunin hafi verið ör, hefir hún ekki farið fram í stór- stökkum, heldur með jöfnum Jiraða. Framfaramöguleikarnir voru fyrir hendi, í skauti jarðar- innar í fossum, skógum og Öðrum ónotuðum auðsuppsprettum. Jafn- framt því sem landbúnaðurinn tók framförum, þróaðist iðnaðurinri. En ekkert af þessu kom af sjálfu sjer. Það þurfti framsýna, duglega, framtakssama forystumenn. Þjóð- in átti þá. Þeir byrjuðu á og sköp- uðu það, sem kallað hefir verið „æfintýri Svíþjóðar11. Það æfintýri spratt upp af auð- lindum landsins. En þær auðlindir befðu aldrei komið þjóðinni að notum, ef ekki væru menn-meðal þjóðarinnar er brutust í því að notfæra sjer þær. Kapitular æfintýrisins eru þess- ir: Fossarnir framleiða rafmagn. Rafmagnið er látið vinna málma, járn, timbur, pappír. En í hverjum | námum England kapitula fyrir sig er það framtak einstakra manna, sem fengið íief- ir að njóta sín, manna, serii hafa haft þekkingu, áhuga og stjórn- semi til þess að hrinda stórvirkjum í framkvæmd. Varla nokkurs staðar í víðri ver- öld hefir framtak manna fengið að njóta ,sín betur en í Svrþjóð undanfarinn mannsaldur. Úr 75.000 tonnura í 10 miljónir. I margar aldir hafa menn unn- ið járn úr uámum Svíþjóðar. Bergslagenjárnmálmurinn inni- heldur 50—60% járn. Eiida þótt menn bafi unnið úr Bergslagen- járunámum Svíþjóðar alt frá byrjun járnaldar er talið, að enn sjeu þar óunnar í jörð nokkur hundruð miljónir smálesta. Rík- astar eru járnnámurnar í Gellivara og Kiirunavaara. Þar er talið að fólgin sjeu í jörð 1000 miljónir smálesta af járnmálmi. Og þaðan er útflutningurinn mestur. . Fyrir 50 árum, er fyrsta eim- lestin flutti járn úr námum þess- um til Luleá nam útflutningurinn 75.000 toníium á ári. En í fyrra nam þessi útflutningur 11,25 milj- ónum tonna. Mest af þessu málm- járni er nú ekki lengur flutt til Eystrasaltshafna, beldur vestur yf- ir, til norska hafnarbæjarins Nar- vik. Þar eru risavaxin hafnarvirki. 232 milj. tonna af námujárni hefir verið tekið í námum Lapplands, og af þeim hafa 150 miljónir tonna verið flutt út. Það eru samtals 4.400.000 járnbrautarvagnhlöss. Ef flytja ætti þenna málm út í einum rykk, þyrfti að senda lest með 50 vögnum á hverri klukkustund í 10 ár. Miklar verðsveiflur eru á járn- inu, og vinslan breytist eftir því. Árið 1931 var útflutningurinn ekki neriia 2 milj. tonn. Meðan Evrópuþjóðir hervæðast af sama kappi og þær gera nú, þá geta Sví- ar selt alt það járn er þeir fá unnið. 70% af járnframleiðslu þeirra fer til Þýskalands. Miklar járnnámur á Skáni. Aldrei er hæg-t að vita hvað fólgið er í jörðu, fyrri en það er rannsakað .Nil er verið að bora eftir olíu á Skáni. Þar hafa fund- ist miklar járnnámur, norðan við Ystad. Talið er, að þar sje meira járn í jörð en í Bergslagen og Lapplandsnámunum. Námujárnið á Skáni hefir sömu samsetningu og námujárn í Lothringen og Englandi, og er öðru vísi en járn- ið norðar í Svíþjóð. En sjerfræð- ingar fullyrða, að þar sje meira , járn í jörðu en samanlagt er í löngu var því haldið fram, að þar væm dýrir málmar í jörðu. Líf- læknir og stjörnufræðingur Kristjáus II., Paraeelsius var á sveimi á þessum slóðum. Hann fullyrti að gull væri í jörð í Sví- þjóð milli 63 og 64 gráðu norður- breiddar. Þetta reyndist rjett. Boliden er á 64. breiddargráðu. En þó námufræðingarnir hefðu hin fullkomnustu málmleitartæki, tók það þá sex ár að finna aðal- gullæðina í námunum. Leitin byrjaði fyrir alvöru 1918. Og námugröftur byrjaði 1924. Nú eru grafin þarua upp 400.000 tonn af málmi, og úr honum unn- in 18 tonn af silfri. 6 tonn af kop- ar, auk gullsins. Og svo fá menn þar í aukagetu brennistein og arsenik. Fjársjóði Boliden-námanna fundu menn með áhaldi, sem alla málma finnur í jörð. Svíar eru slyngir í að firnia góðlmálma. Til eru 4 aðferðir til að finna verðmæt efni í jörðu, rafmagns- aðferðin og segulmagnsaðferðin, sem notaðar eru til að finna málma og „seismiska“ og „gravi- metriska“ aðferðin tH að finna olíu. Málmleitarmenn starfa að stað- aldri í Svíþjóð. Yinna venjulega 14 menn í einum málmleitarlióp. Af þeim eru 2 verkfræðingar, er stjórna verkinu og gera upp- drætti af hinum rannsökuðu svæð- um. Þeir geta gagnskoðað 3 fer- kílómetra á ,viku. g Lothringen. Samt liafa Svíar ákveðið, að snerta ékkert við þessum námum fyrst um sinn, því af svo miklu er að taka í þeim námum, sem nú er tekið úr, enda er skánska námu- járnið ekki eins gott og járnið er. annars stáðar í landinu. Að finna málma í jörð. f námum Svíþjóðar eru fleiri málmrar en járnið. Silfur var fyr á dögum unnið í stórum stíl í námunum í Sala. Og í Boliden- námunum er mikið silfur. En ínargt bendir til þess að víðar sjeu góðmálmar í jörð í Svíþjóð. Byrjgð var að vinna í Boliden- námunum árið 1924. En fyrir langa I Svíþjóð starfar fjelag eitt, sem lieitir Málmleit með rafmagni (Elektrisk Malmletning). Fjélag þetta liefir einkarjett á bestu málm leitaraðferðum. Það var stofnað árið 1924. Verkfræðingar frá þessu 1 fjelagi liafa verið fengnir í allar heimsálfur til málmleita. Og 40 þjóðir hafa haft gagn af málmleit þeirra. (Laiísl. þýtt). Veítingar ríkis- borgararjettar A þessu ári hefir 18 rnönnum. verið veittur íslenskur ríkis- borgararjettur með lögum. í fyrra voru ekki afgreidd nein lög uiu ríkisborgararjett, en l!h)6 fengu 16 ménn íslenskan ríkisborg- ararjett. . Á næstu 5 árum þar á undan (1931—’35) fengu 37 menn ríkis- borgararjett, eða 7,4 á ári að með- altali. Þrjú síðustu árin hefir meðaltalið verið 11.3. (Hagtíðindi)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.