Morgunblaðið - 07.09.1938, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.09.1938, Blaðsíða 6
* 6 | ÚR DAGLEGA § I LÍFíNU s ? □ o □ aoacoDcaoaccj ooooooaacDCD Halldóv Hermannsspn vjek ! fyrsta fyriríestrinmn sem hann helt um VíríÍandsféréimar að þeim ágrein- ingi, sein áltaf er uppi um það, hvort reikna skuli Leit' Eiríksson sem ís- lenskan mann eða norskan. Haun vitl helst jafna þessa deilu, sem verið hefir tilfinningamál og er enrí, eftthvað á þessa leiS: Éifíkur raiuði var Norðmaður. TJm það er ekki hægt að deila. Og því er rjettast að skoða Leif sem Norðmann að hálí'u leyti og að hálfu leyti Is- lending. Norðmenn geta svo auglýst af- rek Leifs eins og þeim sýnist. Við fá- um okkar þátt í þeim heíðri. En, segir Halldór Hermannsson. Þegar litið er á afrek þeirra Vínlands- fara, þá er það engan veginn Leifur sem á mestan heiðurinn skilið. Leifur fatin landið af hendingu í hafvillum. En maður eins og Þorfinnur Karlsefni er engn síðri en Leifur. Því hann lagði í landnámsferS til landsins, af dugnaði og ráðnum hug. ★ Ein n af lesendum blaðsjns hafði orð á því í gær, hversvegna Morgunblað- ið hefði birt öll þessi ummæli, sem hjer vora birt úr dönskum blöð- pm um þátttöku íslendinga í tónlista- hátíðinni í Höfn. Honum fanst að dóm- arnir væru ekki nægilega góðir til þess að þeim væri haldið hjer á lofti. Hjer skal enginn dóniur á það lagð- ur, hvort hinir dönsku gagnrýnendur hafá verið of strangir eða ekki. Frá sjónarmiði blaSsins er það alveg sjálf- sagt og nauðsynlegt, að almenningur hjer á landi fái að kynnast því, hvem- ig hinni íslensku tónlist var tekiS að þpssu sinni. Okkur íslendinga vantar svp tilfinnanlega samanburS á okkur og nágrannaþjóSum okkar. Úr þessu vtrður fyrst bætt með því, að íslend- irígar taki þátt í er). kepni, hvort þeld- ur er á sviði andlegra eða líkamlegra iþrótta. En tit þess að þátttakan komi að fullum notum þarf hingað að ber- ast sem gleggstar og gi’einilegastar frjettir af henni. ★ Mikið er talað um þaS á síSustu ár- um, aö nokkirír gamlir torfl)æir þurfi að geymast óhaggaðir fvrir síðari tíma, svo óbornar kynslóðir geti sjeð það með eigin augum hvernig hýbýli manna hafa verið hjer á landi. Torfbæimir flestir verða ekki „lang- Jífir“ og þurfa mikið viðhald, ef þeir !ga ekki alveg að grotna niður. A Norðurlandi halda þeir sjer þó skár, en í votviSi’Unum hjer fyrir sunnan. Á Xorðurlandi eru nrí gamlir torf- bæir á þrem prestsetrum, sem fólk er hiett að nota að mestu lév’ti, að Grenj- aðarstað að Laufási og Glaumbæ í Skagafirði. Alla þessa gömlu torfbarí ætti aS varSveita. ★ Þp eru þeir allir laugtum yngi’i en einn sunnlenskur torfbær, sem er vafa- laust allra torfbæja merkastur, skálinn að Keldum á Rangárvöllum. Þar býr Skúli Guðmundsson og börn hans. Má treysta því, að srí fjölskylda varSveit- 'ir bæinn eins vel og auðið er. En fyr eða síðar verður vafalaust með þjóð- arfje að gera ráSstafanir til þess, aS þessi gamla bygging, sem menn jafn- vel telja, að sje að nokkru leyti alt frá Sturlungaöld, varSveitist óhögguð í framtíðinni. ★ Menn hafa verið að velta fyrir sjer orðinu strokkvartett. MaSur, sem var nýlega á ferð, mætti fjórum stroku- hestum, og hugsaði meS sjer, að þama væri strokkvartett. Annar var að velta því fyrir sjer, hvort erlendur kvariett, sem hjer var um skeið, hafi verið nefndur strokkvartett, af því hann strauk undan skatti. ★ Jeg er að velta því fyrir mjei’, hvort meira mnni verSa af frosnu fje, er fram ’á haustið kemur, í íshrísunum eða bönkunum. Svar til Páls Zophonfassonar PANN 25. ágúst s.l. birti jeg í Morgunbl. stutta grein um sumarslátrun sauðfjár. Þá voru liðn- ar 6 vikur frá því að sumarslátrun venjulega byrjaði, meðan kjötsalan var frjáls, og búið að lýsa því margsinnis yfir, að engin slátrun yrði leyfð fyr en 20. sept. Við lestur þessarar greinar varð kjötverðlagsnefnd svo hverft, að liún leyfði slátrun 29. s. m. Er bersýnilegt, að nefndin hefir óttast það, að andúð bænda gegn henni, vegna hinnar herfilegu framkvæmd- ar kjötsölnlaganna, mundi blossa upp, er þeir voru mintir á tjón það, er þeir bíða við afnám sumarslátrunarinnar. Hitt er og auðsætt, að nefndin hefir ekki veitt þetta leyfi með glöðu geði. Má það glögt skilja af gneggi því, er form. nefndarinnar lýstur upp í Nýja dagbl. í gær (31. ág.). Nú getur að sönnu slátrun eftir lok ágústmánaðar varla talist sumarslátrun. Þó mun mega telja það heldur til hagræðis fyrir bænd ur að mega hefja slátrun í lok ágústmán., hjá því að verða að bíða til 20. sept. Og það hygg jeg, að bændur láti sjer í ljettu rúmi liggja, hvort þessi tillátssemi er hræðslugæði, eða af gofugri toga spunnin. Páll Zophóníasson er að sönnu miklu hentugri til að hlægja að honum, en tii þess að tala við hann. En sökum þess, að hann erí löggiltur til þess að vinna bænd um landsins fjárhagslegt tjón og margháttaða mæðu með fram- kvæmd kjötsölulaganna, þvkir mjer ekki rjett að láta vaðli hans með öllu ósvarað. „Jeg skal upplýsa", segir P. Z. í sinni venjul. dul. Og hvað er það svo, sem hann upplýsir? —- í fyrsta lagi, að síðan kjötsölu lög’in gengu í gildi, hafi sumar- slátrun byrjað á svipuðum tíma. í öðru lagi, að sumarslátrunin sje ákaflega lítils virði fyrir kjöt- söluna. I þriðja lagi, að það hafi venjul. verið 1 til 1%% af kjöt mágni haústsins, sem selst hafi á sumarmarkaðilium. Það eru undúr, að nokkur mann vera skuli svö fífldjörf að skella slíkum lygum sem þessum í and- lit bændum, sem sjálfir vita greini le'ga sánnleikann í þessu máli. Bændur vita það vel. að áður en kjötsölulögin voru sett, byrjaði sauðfjárslátrun ætíð í júlí, og var algerlega ótakmörknð, svo að hver bóndi mátti slátra og selja slát- urfje eftir vild. Bændur vita það einnig, að þessi sumarslátrun var þeim fjárhagslega mikils virði. Þeir fengu mjög hátt verð fyrir sumarkjötið, eins þótt það væn af geldum ám, sauðum eða hrút,- um, þeir fengu andvirðið í pen ingum, og kjötkaup þessi drógu ekkert úr kjötkaupum að haust inu. Loks vita bæudur vel, að sú staðhæfing P. Z., að sumarslátr- unin hafi numið aðeins 1 til U/2% af haustslátruninni, er svo fjarri sanni, að annað tveggja eru þau ósannindi vísvitándi, eða maður- inn er um það bil geliginn frá vitinu. Ef menn bera saman sumar slátrunina nú, og áður en kjöt sölulögin gengu í g’ildi, verður að athuga þetta.- Áður höfðu alliif menn á Tslandi slátrunarleyfi, og allir hændur landsins söluleyfi. Til allra sjávarbygða á Islandi var frá miðjum júlí til hausts stanslaust selt kjöt, ýmist lifandi kindur til slátrunar, eða kjöt af heimaslátruðu. Þeir, sem tóku þátt í þessari sölustarfsemi, hafa eflaust skift þúsundum. Engar skýrslur eru til um þessar sölur. P. Z. veit því ekkert, hve miklu slátrun þessi nam. Það eitt veit hann, að tala sú, sem hann lýgur upp, 1 til 114% af haustsölunni, er svO fjarri saimi, að það þarf algerlega blygðunarlausan mann til þess að nefna hana. Þegar kjötsölulögin komu í gildi, varð í fyrsta lagi sú breyt- ing á, að aðeitis örfáir menn fengu slátrunarléyfi, og þó bundið við takmarkaða kindatölu, og að ekki fekst slátrað nema á örfáum stöð- um. Með þessari tvennskonar breytingu lagðist sumarslátrunin þegar að miklu leyti niður. Og nú er smiðshöggið rekið á, með því að banna .sumarslátrunina nær því með öllu, því eins og áður segir, getur varla talist að sum arslátrun eigi sjer stað, er sala á nýju kjöti byi’jar með september, eins og _nú. P. Z. skýrir mjer frá því, að bændur á Norður Ströndum vilji endilega fá að fara til Isafjarðar með fje sitt til slátrunar. Og þetta segir hanti að stafi af því, að þeir vilji selja slátrin á Isa- firði! Þeg'ar Páll birti þessa speki, var liðinn rúmur mánuður frá því að jeg hafði tal af meirihluta þess- ara bænda. Töldu þ^ir þá, að það væri ein hin mikilsverðasta nauð- syn bygðarlagsins að losast við að flytja sláturfje til ísafjarðar. Og hvað slátrth snertir, þá flytja þeir þau hehn alla leið frá Isa- firði. „IJpplýsingar" Páls í þessu efni eru því vægast sagt heldur óheppilegar. P. Z. vill ékki viðurkenna, að kjötneyslan innan lands hafi mink að jafn mikið, er kjötsölulögin komu til framkvæmda, eins og Rauðka (skipulagsnefnd atvinnu- mála) telur. Rengir hann skýrsi- ur nefndarinnar fastlega í þessu efni. Rök Páls fyrir því, að Rauðka bafi komist að rangri niðurstöðu um minkun kjötneyslunnar, eru sum nokkuð hæpin. Vhrðist hann éinkum byggja á því, að á meðan slátrun sauðfjár og kjötsala var frjálst, hafi ekki fengist til slátr unar í kaupstað nema 4 Iömb und an hverjum 7 ám, sem fram voru taldar að vori. En Rauðka hafði eitt lamb í sláturtíð fyrir hverja fi’amtalda á. Erfitt mun reynast að telja bændum trú um það, að aðeins fáist 4 lömb út af hverjum 7 ám. Og ekki er það heldur líklegt, að bændur liafi talið fram fleiri ær, en þeir áttu. Hitt er senni legra, að á þeim árum hafi drjúg- um hluta dilkanna verið slátrað annarsstaðar en í kaupstað. Jeg skal játa, að mjer finst það ótrúlegt, að neyslan hafi mink að svo stórkostlega, sem Rauðka segir, og mundi það mega telj ast hrakleg reynsla af kjötsölu- lögunum, þótt minkun neyslunn- ar hefði ekki orðið nema helming- ur þess. En hitt er þó enn ólík- legra, að Rauðka hafi viljað sýna áhrif kjötsölulaganna verri en éfni stóðu til, því nefndin var eingöngu skipuð þeim mönnum, sem fylgjandi voru lögunum, og vildu fyrir hvern mun sýna sem glæsilegastan árangur af „skipu- laginu“. Páll er ákaflega óánægður yfir því, að jeg skuli jafna saman því tjóni, sem hændur híða af kjötsölulögunum og framkvæmd þeirra, og tjóni því, er f.járpestin veldur. Jeg vil nú viðurkemia, að mál þessi eru Páli nákomnari en flest- um eða öllum öðrum, því það er haft fyrir satt, að hann hafi flutt fjárpestina inn í landið, er hann fjekk Alþingi til að heimila inn- flutning á sauðfje því, er talið er að hún hafi flust með. Hann má því teljast faðir fjárpestarinnar hjer á landi. En ríkisstjórnin hef ir, sem kunnugt er, fengið hon- um í hendur framkvæmd kjöt- sölulaganna, svo að hann er fóstri þeirra, og sánUást þar fullkom- lega, að fjórðungi bregður til fösturs. Læt jeg mig það en£u skifta, hvort hann ann meir einka dóttprinni eða fósturbarninu. En þeir, sem þekkja P- Z., fara sjálf- sagt nærri nm það, hvort það muni hafa nokkur áhrif á ást. hans til þessara barna hans, að npp úr pestinni hefir hann ekki ennþá haft nema smámuni, en fósturlaunin til hans með kjöt- söTulögunum eru fimm þúsund krónur á ári. 1. sept. 1938. Sigurður Kristjánsson. FLOKKSÞING NAZISTA FRAMH. AF AHNARI SÍÐIJ því, að Göring marskálkur hefði komið því til leiðar, að safnað hefði verið matvælaforða í land- inu, sem mundi endast í mörg ár og þyrftu Þjóðverjar ekki að vera upp á aðrar þjóðir komnir í þeim efnum. Hitler vjek einnig að þeim ráðstöfunum, sem gerðar hefði verið í Italíu, varðandi Gyðinga bar í landi og kvað þakkarverð- an þann áhuga, sem nú kæmi svo greinilega í Ijós í ítalíu, til verndar þjóðinni. Um 30.000 nazistar frá Aust- urríki eru komnir til Núrnberg. Miðvikudagur 7. sept. 1938v Guðmundur írá Tungu Minning. Þann 28. ágúst andaðist að heimili sínu, Barónsstíg 10 A^ merkisbóndimi GuðmundUr Hann- esson frá Tungu í Gaulverjabæj- arhreppi. Hann var fæddur 16.. nóv. 1859 að Lambastöðum í S'and- víkurhreppi. Að Tungu fluttist hann með foreldrum sínum 4 ára gainall og byrjaði þar búskap, ungur að aldri, og bjó þar fyrir- myndarbúi, þar til hann fluttist til Reykjavíkur árið 1923. 18. des* árið 1888 giftist hann eftirlifandi konu sinni, Katrínu Jónasdóttur. Þau hjónin eignuðust 4 börn, og eru 3 á lífi, öll uppkomin og hin mannvænlegustu, 1 sonur, Bjarni, ógiftur, sem altal' hefir verið hjá foreldrum sínum. og 2 dætur, Kristín og -Xngibjörg, báðar giftar og húsettar, í Reykjavík. Guðmundúr í Tungu (éins og hann var altaf nefndur) var sómí sinnar stjettai’, . framúrskárandi elju og atorkumaður bæði tit'sjós og lands. Hann setti á stofn út- gerð á opnum skipum og var for- maðUr frá 18 ái’a aldri í 35 ár. pg jafnan með þeim aflahæstu af 30—40, sem stunduðu útræði frá Loftstaoasandi í mörg ár, jafn- framt því að hann stundaði sveita- búskap á eignar og ábúðarjörð sinni, Tungu, með rausn og prýði. Ilann gegndi flestúm trúnaðar- störfum fyrir hreppinn í mörg ár rneð alúð og trúmensku, því það þótti altaf vel skipað þáð sæti, við hvaða starf sem var, sem Guð- mundi í Tungu var falið, það var festa og kjarkur í ölbi hans starfi, samfara útsjón og ráðdeild. Enda þurfti hann oft á því að halda, ekki síst við Ægi, þar sem brima-. samt var mjög. Ekki var slegf ið slöku við að komast út, seni kallað var, því nóg var björgin, ef komist var á fiskimið, en aldrei’ man jeg eftir því, að honum hlekt* ist neitt á, þótt hann sækti djarf- lega sjóinn. Árið 1928 misti hanu alveg sjón- ina og var blindur til dauðadags, þá var það trúarþrekið, sem hann hafði í ríkum mæli, ásamt ein- stakri umönnun konu hans, sem hjálpaði honum í myrkrinu svo aldrei heyrðist æðruorð fremur en endranær. Nú er myrkrið horfið og Ijósið komið á ný. Nú nýtur þú þín aftur með dugnaðinn og festuna. Jeg veit að menn eins og þú fá áframhaldandi verk að vinna, sem leiða til blessunar, bæði hjer og á því tilverustigi, sem þú nú flytur á. Biðjum Guð að gefa þjóð vorri marga menn þjer líka. Guð hlessi þig og minningu þína, góði vinur. Vinur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.