Morgunblaðið - 18.09.1938, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 18.09.1938, Blaðsíða 3
Buitnudagur 18. sept. 1938. 3 50-60 þús. pakkar seldir M«ðal farþega á Brúarfossi k föstudaginn var Ólafnr Proppé, framkvæmdastjóri í Sölu- sambandi ísl. fiskframleiðenda. Hefir hann undanfarið verið er- lendis í erindum fjelagsins. í þessari för sinni tókst Ólafi Proppf að géra bindandi samninga «b 50—60 þúsund pakka af Spán- arverkuðum fiski, en í fyrri för kafði hann lagt drög að þessari sölu. Ólafur Proppé hefir að mestu leyti verið utanlauds seinustu 3—4 mánuðina í erindum Pisksölusam- bandsins. Það er því vægast talað dáiítið seinheppilegt hjá aðalmál- gagni stjórnarinnar, að finna upp á því, að Ólafur Proppé hafi látið skrifa þær blaðagreinar, sem mest hafa fárið í taugarnar á Tíma- mönnum síðustu dagana. Góð síldveiði í reknet U ndanfarna daga héfir verið gott veiðiveður og rekneta- 'veiðj ágæt, símar frjettaritari vor á Siglufirði í gærkvöldi. Söltun hefir verið eins og hjer segir undanfarna daga: fimtudag 3156% tn., þar af 278% tn. síld véidd með herpinót. I fyrradag voru saltaðar 3031% tn., þar af herpinðtasíld 392 tn. Blíðviðri var á Siglufirði í gær, hægur sunnan kaldi. Sjómenn segja að síldartorfur, sem þeir vérða varir við, sjeu afar þunnar og dreifðar og fást aðeins nokkr- ir háfar í kastí. SÍId sást vaða inni á Siglufirði í gær. Flutningaskipið Varegg hefir Hndanfarna daga 'lestað síld til Svíþjóðar, Skagfirðingar kveðja Jónas Kristjánsson Samsæti hjeldu Skagfirðingar Jónasi Kristjánssyni lækni og fjölskyldu hans í Sauðárkróki í fyrrakvöld. Jónas læknir lætur af læknisstörfum í Skagafjarð- arhjeraði um nýár næstkomandi. Samsætið var lialdið í stóru tjaldi — Skagfirðingabúð. Var hún Ijósum og blómum skreytt og sátu þar um 200 manns. Margar ræður og kvæði voru flutt. Jónas Kiústjánsson læknir sagði frá síðustu ferð sinni til Þýskalands, skýrði frá ýmsum ný- ungum í læknavísindum, einkum náttúrulækningum, sem hann er nú farinn að gefa sig við. Karla- kór Sauðárkróks skemti með söng. Að lokum fylgdu allir heiðurs- gestunum heim. (FÚ). MORGUNBLAÐIÐ Dreifing Sogsrafmagnsins þarf að aukast sem örast Skuggi „foringjans“ Háspennulínan yfir Mosfellsheiöi endurbætt í sumar HEFIR rafmagnsnotkun Reykvíkinga aukist eins mikið og við var búist? spurði blaðið rafmagnsstjóra í gær. Það er of snemt að dæma um það, fyr en Ljósafoss- stöðin hefir verið starfrækt heilt ár. En jeg tel, að raf- magnsnotkunin hafi aukist fult eins mikið og gert var ráð fyrir í upphafi. Talið var, að tvær vjelasamstæður Ljósafossstöðvarinnar full- nægðu þörfinni í 4—5 ár. Og líklega lætur það nærri að svo verði. En þegar sá tími er liðinn þarf að auka einni vjelasamstæðu við. Hvað líður dreifingu Sogsraf magnsins, spurði blaðið raf- magnsstjóra. Reykjavíkurbær lagði há- spennulínuna til Hafnarfjarðar á sinn kostnað, og var hún full- gerð í júní. Samdist svo um milli bæjarráðs og ríkisstjórnar, að bærinn tæki að sjer að leggja þessa línu, þareð ekki er ákveð- ið enn, hvernig útlínur Sogs- virkjunarinnar skuli reknar. Hafnarfjarðarbær fær svo raf- orkuna keypta á bæjarmörkum, og selur síðan bæjarbúum. Raf- orkunotkun hefir aukist þar nokkuð í surriar, en ekki eins mikið og verið hefði, ef til hefðu verið nægilega margar rafsuðu- vjelar, til þess að fullnægja eft- irspurninni. í framtíðinni er ætlast til þess að orkuveitan frá Elliðaánum til Hafnarfjarðar verði ekki sjer- stakt fyrirtæki, heldur verði hún þáttur í lengri rafveitulögn suður með sjó. Með hvaða kjörum fær Hafn- arfjarðarbær Sogsrafmagnið ? I lögum er það ákveðið, að hjeruð og kaupstaðir hafi rjett til þess að kaup raforku Sogs- virkjunarinnar með kostnaðar- verði, að viðbættum 10%, þó sje rafmagnið ekki selt hærra verði, en það er selt Rafmagns- veitu Reykjavíkur. Þegar talað er um að selja Rafmagnsveitu Reykjavíkur brkuna fyrir ákveðið verð, þá skilja menn kannske ekki við hvað er átt. En það er af því, að menn taka ekki til greina, að Sogsvirkjunin er fyrirtæki útaf fyrir sig og Rafmagnsveita Reykjavíkur annað. Sogsvirkj- unin er sem sje: Stöðin við Ljósafoss, háspennulínan það- an og að Elliðaánum og skifti- stöðin við Elliðaárnar. Þar er svo rafmagnið selt Rafmagns- veitu Reykjavíkur. Þetta eru tvö aðskilin fyrirtæki, enda þótt Reykjavíkurbær eigi bæði. Hvaða háspennulínur verða fleiri lagðar út frá Sogsvirkj- uninni á næstunni? Við höfum lagt línu upp að Reykjum í Mosfellssveit ,svo nú er Sogsrafmagn þar, á Korp- úlfsstöðum og í Gufunesi. En svo er með öllu óráðið hverjar línur verði lagðar næst. Frv. var fyrir síðasta þingi um þetta. Það fekk engan andbyr. En það dagaði uppi. En fulltrúar þeirra hjeraða, sem geta fengið not af Sogsrafmagninu ættu að leggja áherslu á, að hrinda málinu sem fyrst áleiðis. Hve miklu getur rafmagis- notkunin numið í öðrum kaup- stöðum, samanborið við notkun- ina í Reykjavík? Þó rafveitur verði komnar frá Ljósafossi um þorpin í Árnes- sýslu, suður með sjó og til Akra- ness, verður notkunin á þessum slóðum aldrei yfir 15—20% af notkuninni í Reykjavík. í Árnessýslu kemur ekki til greina að leggja rafleiðslur nema um Selfoss að Eyrarbakka og Stokkseyri og aukalínu e. .t v. að Hveragerði. En öllu meiri þýðingu hefði rafveita til Akraness og Kefla- víkur, því þar kæmi rafmagnið að meiri notum við framleiðsl- una, við frystihúöin og annað, sem kemur sjávarútvegi við. • Hvað hefir verið gert í sumar til þess að tryggja betur en í upphafi, að línan frá Ljósafossi bili ekki í ofviðrum, eins og kom fyrir í fyrra? Þ. 5. mars s.l. í hinu mikla vestanveðri, sem þá var, brotn- uðu staurar austast á Mosfells- heiði og í Grafningi fyrir austan Hagavík. Var gert við þetta til bráðabirgða, en í sumar betur, svo nú er það trygt. í fyrra gerðu menn sjer í hug- arlund að línan „læki“ raf- magni í stórviðrum, vegna þess að selta settist á einangrarana. En þetta hefir reynst rangt. Bilunin lá í straumrofun, sem voru á tveim stöðum á línunni, við Villingavatn og við Hraða- vtaði. Það lcom í ljós, að rofar þess- ir voru ekki eins vandaðir og til var ætlast, og hefir verksmiðjan sem seldi þá, tekið þá aftur og látið nýja vandaðri í staðinn, Sogsvirkjuninni að kostnaðar- lausu. REYNSLUFERÐ ZEPPELINS GREIFA. London í gær. FÚ. ýi Graf Zeppelin er lagður af stað frá Friederichshaf- en í aðalreynsluförina og stend- lur hún yfir í sólarhring. Flog- ið verður yfir mikinn hluta Þýskalands. Dr. Eckener stjórn- ar flugferðinni. í loftskipinu eru alls í þess- ari ferð 65 manns. Hitler og Henlein í Niimberg. Verkamenn tveir, sem báðir eru góð- ir hagyröiugar höföu það sjer til gam- ans að Jeggja rím-þrautir hvor fyrir annan. Annar þeirra cr sósíalisti, hinn Sjálfstæðismaður. Sósíalistinn kastaði fram þessum vísuhelming og bað hinn að botna: Arðráns greipar Ihaldsins, öllu steypa í glötun. En hinn svaraði fljótt með þessum botni: Sýður á keipum Síldar-Finns, svangur gleypir mötun. Þótti vel af sjer vikið, því það er erfitt að rima á móti „glötun“. ★ Jeg mintist hjer á bílinn, sem hing- að kom fyrir 25 árum. Um upphaf ferðanna skrifaði Ólafur Bjömsson ritstjtóri í Isafold: Þá er liún farin að þjóta, bifreið Vestur-íslendinganna Sveins Oddssonar og fjelaga hans, um alla vegi hjer í grend, út og suður austur og vestur. Til Keflavíkur, austur að Ægissíðu, austur á Þingvöll -— allar þessar leiðir hafa verið reyndar og gengið vel þrátt fyrir hina ódœma bleytu sem er á öll- um vegum, eftir mikla úrkomu langa hríð undanfarið. Mjer var í gær boðið að aka í bif- reiðinni upp að Lögbergi, og þótti mjér heldur nýstárlegt, að vera „kom- inn upp að keyra" á þennan hátt á voru landi..... ★ Örugglega og þægilega rann bifreiðin áfram — á stundum, þar sem vegUr var góður og umferð engin, eins og örskot, með 5 mílna eða 40 rasta. hraða á klukkustund, á hún þó meiri hraða til, og beitir honum stundum fyrir sig. Það er gaman að geta farið svo fljótt yfir landið, og þurfa ekki að vera neitt hræddur við, að „ofbjóða skepnunni". En flýtinum hamlar mjög á köflum vondir vegir, og þó einkum umferðin, hestar og vagnar. Fólki hjer ætlar aldrei að lærast að haga sjer eftir scttum og sjálfsögðum reglum, að aka og ríða vinstra megin á veginum, og víkja til vinstri. Það er því iniður svo að sjálfsagt þarf eitthvað slysið til að festa lærdóminn þann í hugum fólks. * Ekki virtust skepnur fælast bifreið- ina það talist gæti, og óþarfi held jeg það hafi verið af okkar ágæta austan pósti, að halda fyrir augun á .klárun- um, meðan bifreiðin fór fram hjá. Með þeim töfum, sem vegur og um- ferð veldur, mun bifreiðin að jafnaði geta farið til Þingvalla á þremur klst. og á eitthvað dálítið lengri tíma austur að Ölfusá. Má geta nærri, að svo fljót ferð, í þægilegu sæti í mjúkum vagni, verði mikið notuð af Reykvíkingum, og mundi það eigi furða mig að þessi eina bifreið yrði innan skamms alls ónóg“. * Arna frá Múla barst eftirfarandi visa í pósti í gær, og var undirskriftin „Tímamaður“. Háskakjaftur Ama er á, ólán hlaust af flani. Talinn verður tarfur sá Tímadagblaðsbani. ★ Kunningi minn kom imi til mín í gær og var að velta því fyrir sjer, hvort labbakútar geti nokknmtíma hlaupið, hvað þeir taki að jafnaði marga potta og hvort í þeim muni vera kútmagar. Eins var hann að velta því fyrir sjer, hvort bróðurþel og reiptog sje ull af sömu skepnunni. Svo kom gamall Reykvíkingur inn á skrifstofu blaðsins í gær og sagðist vera að velta því fyrir sjer, hvort miklir hestamenn gætu fengið Mára- dellu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.