Morgunblaðið - 22.10.1938, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.10.1938, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 22. okt. 1938. Yfir hverju Göring mar- skálkur býr Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. Göring marskálkur Ijet tilkynna í gær að hann gæti ekki komið opinberlega fram við hátíð- leg tækifæri, eða sint öðru en brýnustu em- bættisstörfum fyrst um sirin næstu mársuði, vegna mála, sem hann hefði með höndum og krefðust bráðrar úrlausn- ar og alls þess tíma, sem hann hefði yfir að ráða. í gær vissu menn ekki hvaða mál þetta væru. I dag er það kunn- ugt orðið. ÖFLUGASTA ÞJÖÐIN Skeyti frá Belín herma að veriiB sj^ að undirbúa að gera að veruleika meginkjarnann í utanríkismála- stefnu Hitlers, sem kemur fram í „Mein Kampf“: að gera Þýskaland að öndvegisþjóð á meginlandi/ Bvrópu. Lausn Sudeten-málsins hefir haft í för m@0 sjer gjörbreytingu á meginlandinu um valdaskiftingu. Fyrst og fremst hefir hún leitt til algers hruns bandalags- kerfis Frakka í Austur-Evrópu. Frakkar voru tengdir Tjekkum, Rúmenum og Júgóslöfum, hinu svokallaða „Litla-bandalagi“ nántfm vináttuböndum, sem nú hafa' slitnað, eða eru um það bil að slitna. Árangurinn af för Funks atvinnu- og viðskiftamála- ráðherra Þjóðverja til Júgóslafíu, Tyrklands (þar sem m. a. var samið uití 250 milj. króna þýskt lán til Tyrkja) og Búlgaríu, béndir til ’ þess, að þessi ríki ætli að taka upp samvinnu við Þjóðverja. Þ'ýsk viðskiftanefnd fer innan skamms til Rúmenlu. „RÍKIÐ í MIÐIГ í grein, sem Göring skrifaði nýlega, segir hann að Þýska- land sje „ríkið í miðið“. „Þýskaland hefir óvjefengjan- legt hlutverk í Evrópu“, skrifar Göring, „sem hægt er að leysa án landvinninga, eða „germaniseringar“. Göring hefir nú dregið sig í hlje á sveitabýli sínu á Schorf- heide, Karinhall. Þangað hefir hann kallað á fund sinn forvígis- menn atvhinulífsins og setið á látlausum ráðstefnum með þeim. Er álitið að hann sje að leggja drög að tröllauknum iðnaðar- og viðskifta-áætlunum. Ér álitið að Þjóðverjar ætli að breyta fjögra ára áætlun sinni í átta ára á- ætlun, og færa um leið út kvíarnar og gefa öðrum þjóðum, aðallega smáríkj- unum í suð-austur-Evrópu kost á að gerast aðilar að henni. Gjörbreytingar. Er búist við, að gagngerðar breytingar verði gerðar á öllu atvinnulífi Þýskalands með við- skifta fyrirætlanir Þjóðverja í suð-austur-Evrópu fyrir augum. I þessu er talið að felist m. a. aukin gernýting og aukin þátt- taka hins opinbera í atvinnu- lífinu. Þjóðverjar ætlast til að ríkin í suð-austur-Evrópu geri sams- konar áætlanir og geri breyt- ingar á atvinnulífi sínu með aukna samvinnu við Þjóðverja fyrir augum. Ekkert að óttast. Fyrirætlanir þessar hafa vak- ið feikna athygli um allan heim. Breska blaðið Times segir, að ástæðulaust sje að óttast þess- ar viðskiftafyrirætlanir Þjóð- verja á Balkanskaga, ef Þjóð- verjar leyfa heiðarlega sam- kepni annara þjóða og að mark mið þeirra sje ekki pólitísk yf- irráð. Hermann G-öring. Blaðið bendir á,. að kaup- máttur Balkanríkjanna hafi verið lítill, en með hjálp Þjóð- verja og nýju skipulagi megi Lúast við að af því leiði aukin alþjóðaviðskifti. í sama streng tekur Shake- speare, aðstoðarflotamálaráð- herra Breta, sem líklegastur þykir til þess að verða flota- málaráðherra eftir Duff-Coop- er, sem sagði af sjer á dögun- um. KEMAL ATATÚRK Kemal Aiatiirk einræðisherra Tyrklands var sagður á góðum batavegi í gær. (F.Ú.). KÍNVERJAR BIÐJA UM FRIÐ Kanton á valdi Japana Miljón manna her á flótta við Hankow Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. Fregnir frá Austur-Asíu herma að varnir Kín- verja sje að bila. Framsveitir Japana eru komn- ar inn í Kanton í Suður-Kína, Á miðvígstöðv- unum er miljón manna kínverskur her á flótta eftir norð- urbakka Yangtze-fljótsins í áttina til Hankow Chiang-Kai- Shek er flúinn frá Hankow til Changsa. Formaður Kuomitang-flokksins, Wang-Chi-Way, fyr- verandi forsætisráðherra, hefir látið svo um mælt við frjettaritara Reuters í Tschung-King, að Kínverjar hafi altaf verið reiðubúnir að semja frið við Japana, ef Kín- verjar fengi að halda sjálfstæði sínu. Tíðindi þessi liafa komið algerlega á óvart, ekki síst hin hraða sókn Japana til Kanton. Japönsku hersveitirnar, ca. 50—60 þús. manns, hafa sótt fram 180 km. á 10 dögum. Framvarðasveitirnar fóru síðustu 40 kílómetrana á einum sólar- hring. FLÓTTI FRÁ KANTON London í gær F.Ú. Þessar sveitir hjeldu innreið sína í austurhluta Kantonborgar kl. 2.30 í dag, eftir Austur-Asíu tírna. íbúarhir í Kánföri viásu ekki að hætta væri á ferðum fvr en í morgun, er brúin yfir fljótið. sem renn- ur um borgina, var sprengd í loft upp. Erlendir frjettaritarar, sém voru á leið til vígstöðvanna í morgun, urðu að snúa við, er þeir mættu hersveitum Kínverja á hröðu undan- haldi. Nokkurum klukkustundum áður liafði stjórnin í Kanton tekið ákvörðun um að hverfa úr borginni og fyrirskipa brottflutning íbú- anna, til þess að bjarga borginni frá eyðileggingu. Brottflutningur íþúanna — en margir voru farnir áður — fór skipulega fram, og af 600.000 manns eru nú aðeins um 100.000 eftir. Aliir embættismenn í borginni flýðu með stjórninni. Chiang'-Kai-Shek. Tjekkar segja upp samningn- um við Rússa Frá frjettaritara vorum. Kliöfn í gær. jekkne&ka utanríkismála- ráðuneytið tilkynti sendi- herra Rússa í Prag í dag, að Tjekkar litu svo á, að tjekk- nesk-rússneski vináttusáttmál- inn frá 1935 væri ekki lengur í gildi. Með sáttmála þessum Var ákveðið að Rússar og Tjekk ar skyldu veita hvor öðrum að- stoð í ófriði, ef Frakkar gerðu það lika. í gær Vir kommúnistaflokk- urinn bannaðar um alla Tjekkó slóvakíu. Með því var stigið fyrsta sporið til samningsslita með Tjekkum og Rússum. Syrovy, forsætisráðherra Tjekka flutti ræðu í dag, þar sem hann sagði að aðaltakmark tjekknesku stjómarinnar væri að gera hin nýju landa- mæri ríkisins örugg. Það yrði best gert með því, sagði Syrovy, að taka upp nána samvinnu við nágrannaríki Tjekkóslóv- akíu, þ. e. Þýskaland. i j' - ' . f v §■' | 'f Áhrif Þjóðverja. London í gær F.Ú. Ýms merki þess sjást í dag, að Tjekkar leggja kapp á að afja sjer vináttu Þjóðveria í g'ærkvöldi sást í Prag að letrað var á glugga á gildaskála ein- um: „Gyðingum bannaðiu að- gangur“, og þykir það benda til þýskra áhrifa. Þorvaldur Skúlason listmálari, hefir opnað málverkásýningu á Vestúrgötu 3. Þjóðstjórn í Frakklandi? London í gær F.Ú. eon Blum foringi franskra jafnaðarmanna átti í gær klukkustunda viðræðu við Daladier forsætisráðherra. Er talið, aö viðræður þeirra hafi staðið í sambandi við óskir Daladiers um það, að endurskipuleggja stjóru sína á breiðari grundvelli, en húu er nú á. Síðar í gær talaði Daladier langt mál við Marehandeau fjármálaráð- herra sinn. Olympiuleik- arnir 1940 Khöfn í gær F.Ú. innska Olympíunefndin hef ir nú sent út boðsbrjef um Olympíuleikana 1940 til 58 landa. Viðbúnaður er mikill undir leikana og verður leikvangur- inn í Helsingfors '3tækkaður svo, að þar verður rúm fyrir 63000 áhorfendur. Fregnir frá Hankow herma, að miljón manns hafi flúið síðustu dagana þaðan. Fregnirnar um flótta kíuversku hersveitanna á norðurbakka Yangtze-fljótsins eru hafðar eftir japönskum flugmönnum, sem voru á rannsóknaflugi vfir víglínum Kínverja. Krafa Japana. Wang-Ching-Wei, sem sagði við fjettaritara Reuters að Kínverjar væri reiðubúnir að semja frið, var forsætisráðherra þar til fyrir einu ári, er honum var sýnt banatil- ræði. Hann baðst lausnar og mág- ur Chiang-Kai-Sheks, Soong, tók við. Eitt höfuðskilyrði Japana fyrir því, að friður verði saminn, er að Chia ng-Kai-Shek yf irhershöf ðingi verði sviftur embætti. Kona Chiang-Kai-Sheks er flúin til Tschung King, þar sem kín- verska stjórnin hefir aðsetur sitt. ÞÝSKI HERINN FARINN % gær slepti þýski herinn * stjórn sinni á Súdetahjeruð- unum í dag og almenn yfirvöld taka við stjórnarstörfum. (FÚ)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.