Morgunblaðið - 26.10.1938, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.10.1938, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 26. okt. 1938. Forvígismenn Kínverja ráðgast um uppgjöf fyrir Japönum Japanar tóku Hankow í gær Matar- og hæliilaus- ir flóftamenn Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. J \PANAR settust að í Hankow í dag. Öllum fregn- um ber nú saman útti, að mótstöðuafl Kínverja sje á þrotum. Það var opinberlega staðfest í morgun, að Chiang Kai Shek væri flúinn frá Haaikow. „Daily Express“ í Lon- don segir, að Chiang Rai Í3hek og aðrir forvígismenn í opinberu lífi Kínverja hafi komið saman í Chung King í dag og rætt um hvað gera skuli vegna þess, hve gersam- lega varnir Kínverja hafi brugðist. „Daily Express“ álítuy, að Chiang Kai Shek muni segja af sjer og Wang Ching Wei, fyrv. forsætisráðherra og forseti Kuomitang-flokksins, muni taka við og undir-j búa almenna uppgjöf Kínverja. Lausafregnir hafa komist á loft um að Chiang Kai Shek væri flúinn til frakkneska Indo China. FLÓTTI KÍNVERJA. Kínversku hersveitirnar flúðu frá Hankow í morgun án þess að gera tilraun til þess að verja borgina og eru nú á hröð- um flótta vestur á bóginn. En áður en þær fóru, höfðu þær sprengt í loft upp öll mikilyæig mannvirki og byggingar Jap- ana. Eldar loga víða um borgina og verksmiðjuhverfið er í björtu báli. Sókn Japana síðustu dagana hefir verið afar hröð óg voru framsveitirnar komnar til Hankow í morgun, þótt þær hafi ver- jð 16 km. frá borginni í gærkvöl(ti. Meginher Japana fór inn í borgina um miðjan dag í dag. Vegna þess hve Japönum gekk sóknin vel, gat allur kín- verski herinn ekki komist undan í tœka tíð. Nokkrar herdeildir hafa orðið eftir í borginni og er búist við að þær muni verja sig, heldur en gefast upp fyrir Japönum. Meginhluti hersins komst þó undan á skipulegum flótta. HÖRMUNGAR FLÓTTAMANNANNA. Mikill fjöldi af flóttamönnum hefir leitað hælis í útlend- ingahverfum í Hankow. Hefir nefnd verið skipuð undir for- sæti fransks prests til þess, að lina þjáningar þessa fólks. íteut- er-skeyti frá Hankow í kvöld segir, að á öllum aðalgötum í breska hverfinu liggi maður við mann á gangstjettum eða á húsatröppum án nokkurs hælis og án þess að vita hvar þeir eigi að fá næstu máltíð. I ofanálag á a^ðrar hörmungar hefir það nú bæst við, að Hankow er vatnslaus. Nýlendukrðf- urnar verða ræddar við Hitler - Chiaug Kai Shek liefir mn ellefu ára skeið verið æðsti máður Kín- verja. Haun t<5k þátt í kínversku lýðveldishreyfingumu og' var um eitt skeið hSvntur kommúnistúixi, en hefir síðan 1928 unnið að því að útrýma kommúnismanum í Kína. Mark hans var að sameina alt Kínaveldi undir eina öfluga miðstjórn. Þéssu vet’ki hans miðaði vel áfram, þar til styrjöldin við Japana hófst. Chiang Kai Shek vann síð- ustu árin fyrir styrjöldina að því að efla hervarnir Kínverja. Á fiint- ugsafmæli sínu árið 1936 ijet hann kínversku þjóðina gefa sjer sprengjufiugvjelar í afiuælisgjöf. Þetta var um seinau. KínVerjar hafa undanfarna 18 mánuði átt í ,höggi við herveldi. sem hefir uiikla yfirburði yf'ir þá. 8 ÞUS. MANNS FARAST. Á vegunum vestan við borg- ina skjóta flugvjelar JapanaJ miskunnarlaust á flóttamenn og< sprengjur japanskra flugvjela hafa sökt fjölda skipa á Yangt- zefljóti sem fullskipuð hafa ver ið flóttamönnum. „Daily Telegraph" skýrir frá * því, að 500 japanskar flugvjei- ar hafi gert loftárásir í Kína í gær og að á fljóti einu nálægt Hankow hafi verið sökt þrem kínverskum skipum með sam- tals 8 þús. mönnum. Japanski herinn, sem sófcfi fram frá Bias flóa til Kanton 10 dögum, heldur áfram a hinni hraðfara sókn sinni og er nú kominn 50 km. norður fyrir borgina. Loftorusta yfir Tjekkoslóvakfu Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. Loftorusta var í dag hᣠyfir Tjekkóslóvakíu milli tjekk- neskrar flugvjelar og tveggja ungverskra flugvjela. Tjekkneska flugvjelin fjell til jarðar 12 km. innan við tjekknesku landamær- in og flugmaðurinn særðist. Stjórnin í Prag hefir ekki enn -syarað síðustu tillögum ungvc ’sku stjórnarinnar, en ungverska stjórn in krafðist í gær svars innan 48 klst. Vinátta Japana og Breta London í gær. FU. Japanska stjórnin tilkynnir, að ! bráðabirgðarannsókn á ! i loftárásinni á breska herskipið „Sandpiper“ sje lokið. Segja Japanar a$ flugmenn þeirra i hafi talið hið breska herskip vera kíaverskt herflutninga- skip, en á þessum slóðum voru nokkur kínversk skip, með fjölda mörgum kínverskum hermönnum. Japanar segja, að flugmönn- unum hefði verið tilkynt, að herskipið „Sandpiper“ væri á alt öðrum stað eða í námunda við Hankow. Hinn nýi sendiherra Japana í Lond- on, sem áður yar sendiherra Japana í Moskva, er nú kominn til London. í viðali við hlaðamenn sagði hami, að hann gæti ekki að svo' stöddu sagt neitt um seinustu atburði í Kína. Ræddi sendiherrann aðallega um vináttu Breta og Japana, sem stæði á gömlum merg,og þótt sitthvað hefði borið á milli í seinni tíð, kvaðst hann þess fuilviss, að Bretum og Japönum múndi auðnast að treysta vináttubönd sín. Vinátta Japana og Breta á sjer svo langa sögu, að hún er hefðbundin orð- in, sagði sendiherrann. Dr. !Wolf Rottkay flytur næsta háskólafyrirlestur sinn um þýskar mállýsku.* 1 kvöld kl. 8. Kemel: Hitler i varðbergi Ný vandræði Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. Ekkert saJmkonaulag' h©fir eim orðið milli lithauisku stjórnarinn- ar óg Memelbúa. Lithauiski land- stjórinn í Memel neitaði í dag í sjötta sinn að undirskrifa lög, sem Memel-þíngið hafði samþykt. Memelþingið hefir samþykt þessi lög hvað eftir annað og að þessu sinni Ijet það fylgja lögunum, að ef þeim yrði visað frá einu sinni enn, myndi það leiða til fulls fjandskapar Jnilli Memel og Lit- hauen. Steíidur ekki á sama. London í gær. FÚ. Af hálfu þýsku stjórnarinnar hefir því verið lýst 'yfir, að um- rpæli þau, sem Ilitler viðhafði á dögunum um það að Þýskaland iimndi ekki gera frekari kröfur til Janda í Evrópu, megi ekki mis- skilja, Með þessu sje engan veg- inn lýst yfir, að Þýskaland sje farið að láta sjer standa á sama um þýsknmælandi rnenn. sem búa ■utan landamæra ríkisins. Þvert á móti muni Þýskaland sjá um það, að líf þeirra og tilveru- rjettur verði á allan hátt trygður. Frá frjettaritara vorum. , Khöfn % gær. Pirov, landvamaráðberra Suður-Afríku sambands- ins er á leiðinni til Englands. Hann kom til Lissabon í dag og ætlar að ræða við portúgalska ráðberra um nýlendukröfur Þjóðverja. Hann hefir sagt við blaðamenn, að eftir að hann er búinn að ræða við bresku st jóm- ina, geti komið til mála, að bamn. fari tií Hitlers og rasði njrlendukröfumar við hann. j.: SUDUR-AFRÍK.A MÓTFAJLLIN. Lo'ndon í gær. FÚ. ; Herzog, forsætisráðherrai Suður-Afríku, átti í dag tal við f r a m k væ ni darstj ó r a Suðvestur- Afríku, dr. Konradi, er skýrðí honum frá því, að Þjóðverjar í Suðvestur-Afríku væru þeirr- ar skoðunar, að það væri áreið- anlegt, að nýlendunum ýrði brátt skilað aftur, en á því einu 'væri vafi, hve lengi það dræg- ist. Hefðu menn miklar áhyggj-i úr af þessu. Herzog.er sagður hafa full- vissað dr. Konradi um það, að Suður-Afríkuríkjasambandið ; væri því algerlega mótfallið, að iáta af hendi yfirráðarjettinn, sem því var fengínn í hendur yfir Suðvestur-Afríku. von Ribbentrop til italfu v Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. on Ribbentrop, utanríkis- I v málaráðherra Þjóðverja fer í stutta heimsókn til Rócna- borgar á fimtudag. í þýskum og ítölskum blöðum er látið vel að ræðu, sem Hali- fax lávarður utanríkismálaráð- herra Breta flutti í gær, Halir fax sagði að öruggasta leiðjn til varanlegs friðar, væri að for- ingjar stórveldanna ræddust við. En þýsk blöð vilja ekki fall- ast á þau ummæli Halifax lá- varðar, að enginn maður í Bref- landi vilji stríð. Þau segja, að síðustu vikurnar hafi komið fram í Englandi flokkur manna, sem reki áróður fyrir styrjöld við einræðisríkin. ísfiskssala. Surprise seldi aflaj sinn í Grimsby í gær, 1602 vætt- ir fyrir 1580 sterlingspimd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.