Morgunblaðið - 29.10.1938, Blaðsíða 8
r
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 29. okt. I938L.
Isumar andaðist í Varsjá í Pól-
landi læknisfrú Krassowski,
fertug að aldri. Á banabeði sín-
um sagði hún frá því að hún væri
stórfurstafrú Tatjana Romanova,
dóttir Nikulásar Rússakeisara,
sem bolsjevikkar myrtu. Hin
deyjandi kona lagði eið út á að
hún færi með rjett mál og mað-
ur hennar hafði í fórum sínum
dagbók með skjaldarmerki keis-
araættarinnar og fleiri skjöl máli
sínu til sönnunar.
Stórfurstafrúin sagði frá því,
að systkini hennar hefðu verið
myrt í kjallara í Jekaterineburg,
en að hermaður einn hefði bjargað
henni nokkru áður en keisara-
hjónin voru myrt. Síðan komst
hún í samband við greifafjölskyld-
una Radicheu og fluttist með
henni til Póllands. Árið 1934 gift-
ist hún lækninum í Varsjá.
★
Fullorðinn gíraffa þurfti á dög-
unum að flytja frá dýra-
garðinum í London til Skotlands.
Fyrst var í ráði að flytja gíraffann
með járnbrautarlest. Sjerfróðir
menn voru fengnir til að reiícna
út hvort járnbrautargöng, sem eru
á leiðinni milli London og Skot-
lands, væru upgu iiá til þess að
lestin kæmist í gegn um þau
með gíraffann. Iíinir sjerfróðu
menn reiknuðu út að járnbrautin
kæmist óhindrað leiðar sinnar ef
gíraffinn lægi niðri á meðan farið
væri um lægstu járnbrautargöng-
in. Þetta þorðu forráðamenn dýra-
garðsins ekki að treysta á og varð
því að fara með gíraffann á skipi
til Skotlands.
Fyrir nokkru síðan kom það fyr-
ir í Nairbar í Indlandi, að hindú-
iskur prestur, ,sem átti að gefa
saman brúðhjón, fekk ákafa ást á
brúðurinn við fyrstu sýn. I stað
þess að gefa brúðhjónin saman í
lijónaband flúði hann með briið-
urina upp til fjalla. Brúðurin ljet
sjer þetta vel líka, en brúðguminn
og foreldrar hennar gátu ekki felt,
sig við þetta framferði prestsins.
Nú hefir presturinn verið dæmdur
fyrir tiltækið og 4 hann að greiða
100 rúbía í sekt og sitja eitt ár
í fangelsi.
Nýlega hefir verið sett á stofn
ástarmálaskrifstofa í Parísarborg.
Starfsm’enn skrifstofunnar veita
allskonar aðstoð í ástarmálum, en
aðalverkefni firmans er þó að
skrifa ástarbrjef. Hver sem þess
óskar getur látið skrifstofuna ann-
ast ástarbrjefaviðskifti sín gegn
vægri borgun. Skrifstofan hefir
meira en nóg að gera.
★
MÁLSHÁTTUR:
Guð veit hvað hver hefir að
geyma.
Islensk berjasaft í 1/1 og ^
flöskum — Pickles — Capers
— H. P. Sósa — Worshester-
shiresósa — Aspargues í dósum
— Tómatsósa 1.25 glasiS —
Tómat purré í litlum dósum —
Knorr súpur, margar tegundir
— Ávaxta gelé í pökkum —
Sýróp — Dr. Oatkes búðingar
— Maltin — Plómur niðursoðn-
ar — Gráfíkjur í pökkum og
lausri vigt. Þorsteinsbúð, —
Grundarstíg 12. Sími 3247, —
Hringbraut 61, sími 2803.
| Tölur, hnappar, spennur. —
Fjölbreytt úrval. Hvergi lægra
verð. Vesta, Laugaveg 40.
Motiv, svo sem Mickey más,
skip. akkeri, kanínur o. fl. —
Vesta, Laugaveg 40.
Nýtísku haustfrakkar og
vetrarkápur kvenna. Gott snið.
Lágt verð. Verslun Kristínar
Sigurðardóttur, Laugaveg 20 A.
Peystur á telpur og drengi.
Mikið úrval. Mjög lágt verð. —
Verslun Kristínar Sigurðardótt-
ur.
Hvítt bómullargam í peysur
og kjó'la nýkomið, ódýrast í
Þorsteinsbúð, Grundarstíg 12.
Sími S247, Hringbraut 61. Sími
2803.
Dömupeysur, fallegur ísaum-
ur. Verslun Kristínar Sigurðar-
dóttur.
Rykfrakkar karla, nýtt úrval
á kr. 44.0Q, 49.5D. 59.50. 74.50
og 108.50 úr alullarefni. Vesta,
Laugaveg 40.
K.F.U.M. og K. HafnarfirðL
Sr. Sigurður Pálsson hefir bib-
líufyrirlestur í kvöld og fram-
vegis á laugardagskvöldum kl.
9. Allir velkomnir.
Friggbónið fína, er bæjarins
besta bón.
Munið Matsöluna í Tryggva-
götu 6. Heitar máltíðir allami
daginn.
íslensk frímerki kaupir hæsta
verði Gísli Sigurbjörnsson Aust-
Silvo — Windoline — Hita-
brúsar i/4, og 1/1 liter.
Varagler í allar stærðir og pat-jurstræti 12 (áður afgr. Vísir),
enttappar. — Þorsteinsbúð, opið 1—4.
Grundarstíg 12, sími 3247,
simi
Hringbraut 61, sími 2803
Bestar fermingargjalir.
Sími 4527,
Sími 4627.
Kaupum flöskur, flestar teg-
undir, soyuglös, dropaglös með
skrúfuðu loki, whiskypela og
bóndósir. Sækjum heím. Versl.
Hafnarstræti 23 (áður B. S. í.)
Sími 5333.
Kjólar og blúsur altaf fyrir-
liggjandi. Einnig telpukjólar
frá 1—12 ára. Saumastofan
Uppsölum. Sími 2744.
um
Kaldhreinsað þorskalýsi sent
allan bæ. Björn Jónsson,
Vesturgötu 28. Sími 3594.
Mánaðarfæði 80 k-r. fyriir
karlmenn og 70 kr. fyrir konur,.
Garðastræti 47. Guðrún E''ríks.
nK&rísCeX'
Kenni byrjendum íslenskuy..
ensku, dönsku, þýsku og stærð-
fræði. Les einnig með börnum.
Upplýsingar hjá Jónínu Magn-
*úsdóttur, Barónsstíg 12.
Saumanámskeið byrjar 1.
nóvember. — Saumastofam
’ Bræðraborgarstíg 19.
t^fnnO'
Munið eftir að líta inn í Sápu-
búðina, þar fáið þjer íslenskar,
danskar, enskar og þýskar úr-
vals handsápur. Einnig hina
viðurkendu grænsápu og kryst-
alsápu, og alt annað sem þjer
þurfið til hreingerninga og
þvotta. Alt sent heim. Sápubúð-
in, Laugaveg 36. Sími 3131.
SWtytPttingtw
Notið Venus húsgagnagljáa,
afbragðs góður. Aðeins kr. 1.50
glasið.
K.F.U.M. Almenn samkoma
annað kvöld kl. 8!/2. Magnús
Runólfsson talar um kallið. —
Allir velkomnir.
Vanur sölumaður óskar eft—
ir atvinnu. A. v. á".
Geng í hús og sauma. UppL-
í síma 2516.
| Vinna. Stúlka óskast í visfc
)frá 1. nóvember. Upplýsingar
í síma 2176.
Fermingarstúlkna undirföt og
slæður til fermingargjafa, er
best að kaupa í Sápuhúðinni,
Laugaveg 36. Sími 3131.
Ódýrir frakkar fyrirliggj-
andi. Guðmundur Guðmundsson
dömuklæðskeri, Kirkjuhvoll..
Vakningar vika. Heimatrú-
boð leikmanna í Reykjavík hef-
ir vakningar viku í samkomu-
húsi sínu Síón, Bergstaðastræti
12 B, með samkomu á hverju
kvöldi frá 30. þ. m. til 6. næsta
mánaðar. Samkomurnar hefjast
kl. 8 e. h. hvert kvöld. Ræðu-
menn verða: Sjera Bjarni Jóns-
son, vígslub., Sigurður Vigfús-:
son, Magnús Runólfsson kand. i
theol., Sigurður Guðmundsson
ritstj., sjera Sigurður Pálsson,
Bjarni Eyjólfsson ritstj., Árm.
Eyjólfsson trúboði.
Unglingsstúlka, sem getur
ofið heima, óskast í vist tveggja>
mánaða tíma. Upplýsingar í
síma 1697.
Stúlka vön kápusaum óskast
nú þegar. Upplýsingar í dag
milli 1—2. Fyrirspurnum ekki
svarað í síma. Guðm. Guð-
mundsson, Kirkjuhvoll.
i Sjálfblekungur tapaðist s.L
fimtudag á leið frá Vesturgötu
upp í Verslunarskóla. Finnandi:
geri aðvart í síma 4210.
E. PHILLIPS OPPENHEIM: g
MILJÓNAMÆRINGUR I ATVINNULEIT.
kem aftur. Þjer fáið full lauu, og jeg vona, að þjer
notið tímann skynsamlega og látið engan leiða yður
afvega. Þjer getið búist við mjer að einu ári liðnu“.
Þjónninn var orðlaus af undrun. En Bliss var í óða,
önn að tína fram alla peninga, sem hann hafði á sjer.
Þegar hann hafði lokið því, lágu nokkrir peninga-
seðlar og smáhrúga í gulli á borðinu.
„Þrjátíu og fjögur pund“, sagði hann. „Þjer hjálp-
uðuð mjer til þess að klæða mig. Þjer getið borið
vitni um það, að jeg hefi ekki fleiri peninga á mjerf“
„Já, jeg get borið vitni um það“.
„Takið þenna fimm punda seðil“, hjelt Bliss áfram,
„og stingið honum í vasa minn. Hefi jeg meiri pen-
iuga á mjer,“
Þjónninn var eins og í leiðslu. Húsbóndinn hlaut
að vera brjálaður. Það var eina skýringin, sem hann
fann á framferði hans.
„Nei, vissulega ekki“, svaraði hann.
„Ágætt“, sagði Bliss. „Þjer getið hirt afganginn.
Og berið nú ferðatöskuna niður og náið í bifreið“.
Þjónninn hlýddi orðalaust og gekk eins og í draumi
inn í lyftuna á eftir húsbónda sínum. En Bliss var
aftur á móti liressari í bragði en hann hafði verið ár-
um saman. Ilann bar sig frjálsmannlega og beið eftir
bifreiðinni með óvæntri eftirvæntingu.
„Hvert á að aka?“, spurði Clowes, um leið og hann
fekk bifreiðastjóranum töskuna og sneri sjer að hús-
bónda sínum.
Bliss brá í brún við spurninguna. Hajm hikaði augna-
blik. Svo var eins og honum dytti ráð í liug.
„I áttina til City“, sagði hann ákveðinn.
III.
„Þjer eruð í atvinnuleit?“, spurði Mr. Masters og
tók svo mikið bakfall í skrifstofustól sínum, að við lá,
að hann dytti. „Svei mjer, ef jeg hjelt ekki, að þjer
kæmuð til þess að versla, þegar jeg sá yður!“
Ernest Bliss hallaði sjer líka aftur í stólnum, sem
hann hafði reyndar sest í, óboðinn. Hann var enn í
hinum sömu vel sniðnu, dökkbláu fötum. En buxna
skálmarnar voru orðnar slettóttar af aur, og skórnir út-
gengnir. Göngustaf sinn hafði hann lagt á hnje sjer
og dró glófana hægt af höndum sjer.
„Mjer þykir leitt, ef jeg hefi valdið yður vonbrigða“,
mælti hann. „Þjer auglýsið eftir sölumanni? Jeg er
fús til þess að taka að mjer að selja Alpa-eldavjelar
fyrir yður“.
Mr. Masters virti hann fyrir sjer frá hvirfli til ilja,
en gat ekki gert sjer grein fyrir, hverskonar maður
hann væri.
„Svo þjer viljið selja eldavjelar okkar?“, tautaði
hann, eins og hann hefði ekki mikla trú á því.
„Jeg las auglýsingu yðar í „Daily Telegraph“ í
Morgun“, hjelt Bliss áfram. „Þjer aúglýsið eftir ung-
um manni, duglegum og áhugasögum. Jeg hefi alla'
þessa eiginleika tíl að bera“.
„Hafið þjer verið sölumaður áður?“
Bliss hikaði augnablik, áður en hann svaraði:
„Það sem ávantar í æfingu, vinn jeg upp með þeim
hæfileikum, sem þ.jer kallið áhugasemi og dugnað“.
Ung stúlka, sem sat úti í horni í skrifstofunni, og
var að vjelrita, leit nú upp frá vinnu sinni og virtr
Bliss forvitnislega fyrir sjer. En góðlátlegt bros færð+-
ist yfir þriflegt andlit verksmiðjustjórans.
„Svolítið hæverskur?“ sagði hann í spyrjandi rómj
„Nei, ekki lengur“, svaraði Bliss. „Jeg Amr það, þeg-
ar jeg lagði af stað í atvinnuleit fyrir hálfum mánuði.
En nú reyni jeg að meta verðleika mína. Það virðist
vera eina leiðin, til þess að fá aðra til þess að sjá þá“.
Svipbrigði sáust á andliti forstjórans. Hann varð
grettinn í framan, og það vottaði ekki fyrir brosi á
andliti hans.
„Þjer liafið líklega ekki selt eyrisvirði á æfinni?“,.
sagði hann.
„Hvað kemur það máliiiu við?“, sagði gesturinn.
blíðlega. „Þjer hafið, eftir því sem jeg kemst næst,
búið til Alpa-eldavjelina. Og jeg er maðurinn, sem
örlögin hafa kosið til þess að selja hana — fyrir tvö-
pund á viku í sölulaun og fimm af hundraði af söl-
unni í viðbót“.
Mr. Masters ljet stól sinn falla fram að borðinu með
miklum skelli.
„Ungi maður“, sagði hann. „Jeg hefi ekki ráðið yður
ennþá“.
„En þjer gerið það“, sagði Bliss vongóður. „Jeg er*