Morgunblaðið - 01.11.1938, Side 3

Morgunblaðið - 01.11.1938, Side 3
Þriðjudagur 1. nóv. 1938. MORGUNBLAÐIÐ 3 Hj eraðsmót Sjálfstæðismanna í Gullbringusýslu Fjölmenni mikið og eining góð Hjeraðsmót Sjálfstæðismanna í Gullbringusýslu var haldið á sunnudaginn. Mótið hófst klukk- an rúmlega hálf fjögur í Ungmennafjelags- húsinu í Keflavík. Húsrými er þar ágætt, en svo var aðsókn mikil, að húsið var fult, ekki einungis niðri, heldur einnig uppi á lofti. Fund- arsalurinn niðri tekur hátt á 3. hundrað manns í sæti. Þar var hvert sæti skipað. En auk þess stóðu menn með öllum veggj- um, í fordyrinu, í stiganum upp á loftið og í veitingasalnum á loftinu. En þar hafði verið komið fyrir hátalara. En þótt troðningur væri gíf- urlegur og margir yrðu frá að hverfa, var svo mikil kyrð á þessum fundi, að fullkomlega er frásagnar vert. Menn sátu þarna og stóðu, maður við mann, um 4 klukkutíma, án þess, að nokkurn tíma heyrðist hark eða pískur, sem oft vill verða á mannamótum, þegar líkt hagar til. Bar öll fram- koma fundarmanna þess ljóst vitni, að þeir fylgdust af lif- andi áhuga með öllu því, sem fram fór. Ólafur Thors setti mótið í nafni Miðstjómar Sjálfstæðis- flokksins. Skýrði hann frá til- drögum þess og bauð fundar- menn velkomna. Fundarstjóri var Guðmundur Guðmundsson skólastjóri. Þvínæst hófust ræðuhöldin og fluttu ræður alþingismenn- irnir Ólafur Thors, Árni Jóns- son og Pjetur Ottesen, og Bjami Benediktsson prófessor. Milli ræðanna voru sungin þjóð lög og tók allur þingheimur þátt í söngnum. Að ræðuhöldunum loknum hófst skemtiskráin með því að Pjetur Jónsson óperusöngvari söng tvö lög. Síðan sungu þeir fjelagamir Ólafur Beinteinsson og Sveinbjöm Þorsteinsson frá Hurðarbaki mörg lög með gít- arundirspili. Og loks sungu þeir Pjetur og Árni frá Múla nokkra tvísöngva. Bjarni Þórðarson Ijek undir á píanó. Öllum þess- um skemtiatriðum var tekið hið besta. Þegar dagskrá var lokið, var klukkan langt geng- in 8 og hafði fundurinn þá stað- ið um 4 tíma. Þakkaði fundarstjóri ræðu- mönnum og söngvurum kom- una. En Ólafur Thors þakkaði frábæra fundarsókn og árnaði mönnum góðrar heimkomu. Klukkan hálf níu hófst dans- leikur og skemtu þeir fjelagar lÓlafur Beinteinsson og Svein- björn mönnum aftur með nokkr nm lögum. Húsfyllir var að nýju og var dansað af miklu f jöri fram eftir nóttu. Hjeraðsmót þetta sóttu menn úr öllum bygðarlögum Gull- bringusýslu, ungir og gamlir, konur og karlar. Var það ein- róma mál manna, að þessari dagstund hefði verið vel varið við frSðleg erindi og fjörgandi skemtiatriði. Kváðu sumir svo sterkt að orði, að þeir hefðu aldrei komið á betra manna- mót. Breskur tog- ari strandar í Dýrafirði Breski togarinn Lincolnshire frá Grimsby strandaði aðfaranótt sunnudagsins út af Keldudal við Dýrafjörð. Norð- an stormur og hríð var er tog- arinn strandaðL Hafði skipið legið fyrir festum í Dýrafirði en rekið upp í veðrinu. Skipshöfnin hefir haldið sig um borð í skipinu síðan það strandaði. Varðskipið ,,Ægir“ kom til Dýrafjarðar í gær og ætlaði að reyna að ná því á flot í nótt. Voru líkur taldar góðar fyrir því í gær, að það myndi takast. Togarann rak upp klukkan um 3,30 um nóttina og sendi þegar út neyðarmerki. Tveir enskir togarar, sem staddir voru í Dýrafirði fóru strax til hjálp- ar. Varðbáturinn Gautur lá á Þingeyri og fór varðbáturinn einnig á strandstaðinn og tók með sjer björgunartæki, sem til voru á Þingeyri. Ekki þurfti á björgunartækjunum að halda því lítið brim var og skipshöfn- in ekki í neinni yfirvofandi hættu. Um flóðið á sunnudag gerðu ensku togararnir tveir, sem þama voru tilraun til að ná Lincolnshire á flot, en sú til- raun misheppnaðist. Slitnuðu FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU Nýir bankastjórar að fæð- ast í Útvegsbankanum Valtýr Blöndal. Ásgeir Ásgeirsson. Fjölmennur Varðarfundur i gærkvöldi Varðarfundurinn í gærkvöldi var svo vel sóttur, að húsið var troðfult og urðu margir frá að hverfa. Formaður Sjálfstæðisflokksins, Ólafur Thors, fkitti ítarlega og þróttmikla ræðu um viðhorfið í stjórnmálunum. Talaði Ólafur í iy2 klst. og kom víða við. Sýndi hann með skýrum dæmum fram á óheilindin í stefnuskrám nýja kommúnistaflokksins og flokks- krílis Stefáns Jóhanns, ræddi á- standið í atvinnu- og fjármálnm og viðhorfið um áframhaldandi stjórnarsamvinnu. Verður hin ít- arlega og athyglisverða ræða Ólafs ekki rakin hjer, en útdráttur úr henni verður birtur bráðlega hjer í blaðinu. Var henni fylgt með óskiftri athygli af fundarmönnum og hlaut. ágætar undirtektir. Auk frummælanda talaði Jakoh Möller alþm. Var fundi slitið kl. ioy2. Sósíalistinn Spaak, utanríkis- málaráðherra Belgíu hefir lýst vf- ir því, að Belgía muni á næstunni senda opinberan verslunarerind- reka til Franco-stjórnarinnar í Burgos. (FÚ) Heimili brúðhjónanna Jóhönnu Alexandersdóttur og ísleifs Þor- kelssonar, sem getið var um í blað- inu í gær, átti að vera: Skeggja- götu 19. Fjármálaráðherrann gerir tillögu um Ásgeir Ásgeirs- og Valtý Blönda! Skipuninni frestað Klukkan 5 síðdegis í gær var boðaður fundur í fulltrúaráði Útvegsbanka íslands, og skyldi verkefni fundarins vera, að skipa tvo banka- stjóra. Fyrir fnndinum lá uppástunga frá fjármálaráðherra um, að skip- aðir yrðu bankastjórar þeir: ÁSGEIR ÁSGEIRSSON alþm. og VALTÝR BLÖNDAL fulltrúi. Endanleg ákvörðun var ekki tekin á fundinum, en í ráði mun vera að halda annan fund um miðja þessa viku, og þá mun eiga að ganga frá þessu. I fulltrúaráði Útvegsbankans eiga sæti þeir Stefán Jóhann Stef- ánsson hrm., Gðmundur Ásbjörns- son kaupmaður, Lárus Fjeldsted hrm., Magnús Torfason fyrv. sýslu maður og Gísli Guðmundsson rit- stjóri. < Eins og sjest af þessum nöfnum hafa stjórnarflokkarnir meirihluta í fulltrúaráðinu og ráða þar öllu. Þegar Útvegsbankinn var stofn- aður 1930 var vali bankastjóranhá hagað þannig, að sem minstur pólitískur styr yrði um bankann. Var því tekinn einn hankastjóri frá þremur stærstu flokkunum, og var þetta. hyggilegt eins og á stóð. Voru svo 3 bankastjórar í Út- vegsbankanum þar til Jón Ólafs- son ljest í ágústmánuði 1937. Eftir það voru bankastjórarnir tveir þar til í mars þ. á., en þá andaðist Jón Baldvinsson. Síðan hefir Hélgi Guðmundsson verið einn hahká- stjóri. Nú virðist það hinsvegar ætlan stjórnai’flokkanna, að hafa aðra tilhögun á stjórn Útvegsbankans í framtíðinni. Nú á að útiloka stærsta stjórnmálaflokkinn í land- inu — Sjálfstæðisflokkinn — frá þátttöku í stjórn bankans, og gera hann um leið að pólitískri stofnun rauðu flokkanna. Slík ráðsmenska hlýtur að hafa slæmar afleiðingar fyrir bankann. ★ Morgunblaðið var búið að segja það fyrir áður, að stjórnarflokk- arnir væru farnir að ræða stjórn- arsamvinnuna fyrir framtíðina. Blaðið spáði því þá jafnframt, að fyrstu sýnishornin af þeim við- ræðum myndu koma fram i út- hlutun feitra embætta og annara lífsins gæða til tryggra flokks- manna. Uppástuuga eða tilnefn- ing fjármálaráðherra í banka- stjórastöður Útvegsbankans bendir til þess, að þessi spá Morgunblaðs- ins ætli að rætast. Ekki veit Morgunblaðið hvað því hefir valdið, að nýju banka- stjórarnir fæddust ekki í gær, eins og fjármálaráðherrann og stjórn- arflokkarnir munu hafa liomið sjer saman um. Væfi óskandi að þessi frestur þýddi það, að stjórnarflokkarnir fjellu frá þessari fyrirætlan, sem hlýtur að hafa liinar alvarlegustu afleiðingar fyrir bankann, ef úr framkvæmdum verður. Stúúentamótið I Helsingfors 1939 Khöfn F.Ú. umarið 1939 verður haldið norrænt stúdentamót í Helsingfors og er skrifað um það í blöð Norðurlanda sem nokkurs konar aðalæfingu und- ir Olympisku leikana, sem haldnir verða í Finnlandi 1940, því að um leið og Norðurlanda- stúdentamótið verður haldið, fer fram alþjóða íþróttamót stúdenta. Boð um þátttöku í norræna stúdentamótinu verða bráðlega send til allra háskóla á Norður- 'löndum. RÁÐHERRA FRÁ SUÐ- UR-AFRtKU í HEIM- SÓKN HJÁ FRANCO London 1 gær F.Ú. i r o v, landvarnaráðherra Suður-Afríku ríkjasam- bandsins er lagður af stað frá Lissabon til Salamanca og mun heimsækja vígstöðvar uppreist- armanna á Spáni. Þaðan fer hann til London, og síðar ef til vill á fund Hitlers. Pirov átti langar viðræður við portúgölsku ráðherrana. Hefir för hans til Lissabon vakið mikla athygli, vegna þess hversu nýlendukröfur Þjóð- verja eru nú mikið ræddar í fyrverandi nýlendum þeirra í Afríku. Drætti í happdrætti íþróttafje- lags kvenna er, samkvæmt leyfi Stjórnarráðs, frestað til 3. des. næstkomandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.