Morgunblaðið - 16.12.1938, Side 5

Morgunblaðið - 16.12.1938, Side 5
Fostudagur 16. des. 1938. MORGUNBLAÐIÐ S & Útgeí.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. Ritstjórar: J6n Kjartansson og Valtýr Stefánsson (ábyrgSarmaBur). Auglýsingar: Árni Óla. Ritstjórn, auglýsingar og afgréiSsla: Austurstræti 8. — Slmi 1600. Áskriftargjald: kr. 3,00 á mánutSl. í lausasölu: 15 aura eintakiB — 25 aura meB Lesbók. Páll Bjarnason skólastjóri „VANDRÆÐI BÆJANNA" -V andræði bæjanna verða $9 V aldrei leyst nema Framsóknarmenn leggi þar mik inn hlut til mála. Fram að þessu jhefir stuðnings okkar ekki ver- ið óskað •— —“. Þessar tvær setningar eru teknar orðrjett upp úr grein í Tímanum í gær, eftir Jónas íJónsson, formann Framsóknar- flokksins. Hvað meinar eiginlega for- maður Framsóknarflokksins með þessum ummælum? Hann lilýtur þó að vita það, að Fram- sóknarflokkurinn hefir farið með völdin í landinu síðustu 11 árin. Og þótt Jónas Jónsson liafi nú um nokkurt skeið stað- ið „utan gátta“ í pólitíkinni, jþar sem hann hefir verið á skemtiferðalagi í fjarlægri lieimsálfu, getur hann ekki ver- ið búinn að gleyma því, sem .gerst hefir hjer undanfarin 11 éx. Hann veit vel, að „vand- ræði bæjanna“ er ekkert ein istakt fyrirbrigði, heldur aðeins •einn þátturinn í því almenna "vandræðaástandi, sem skapast 3hefir í landinu undir miður far- Æælli stjórn Framsóknar og .sósíalísta. ★ En einmitt vegna þess að .„vandræði bæjanna“ eiga ræt- w sínar að rekja til hins aÞ menna ástands í landinu, leiðir ^eðlilega af því að ef þeir flokk- ar, sem fara með völdin í land- inu fást ekki til að gera neinar ráðstafanir til þess að ráða bót á ástandinu, þá verða seint Tundin bjargráðin. Það er öllum kunnugt, að -„vandræði bæjanna“ stafa af Jhruni atvinnuveganna við sjó- inn, og þá fyrst og fremst sjhv-> arútvegsins. En hrun sjávarút- vegsjns er ekkert sjermál kaup staðanna, heldur er það mál, :sem aljijóð varðar. Og það dett- ur sjálfsagt engum í hug, að unt verði að bjarga sjávarút- ’vegnum, eins og nú er komið, án þess að Alþingi geri ein- hverjar ráðstafanir honum til viðreisnar. Og ,,óskir“ hafa ver- ið fram bornar um þetta árlega nndanfarin 6—8 ár, þótt for- maður Framsóknarflokksins virðist hafa gleymt því, sem gerst hefir á þessum árum. ★ Máske ummæli formanns Framsóknarflokksins, að ekki hafi verið „óskað“ stuðnings flokksins til þess að leysa „vandræði bæjanna“ eigi að þýða það, að flest bæjarfjelög- in eru að reyna að basla sjálfstæð og hafa ekki enn gefist upp og flúið á náð- ir ríkissjóðs. Tvö hreppsfje lög og einn kaupstaður í kjör dæmi f jármálaráðherra hafa neyðst til að stíga þetta spor. En enginn hefir orðið þess var, að þetta hafi verið neinn gróði fyrir ríkið. Þvert á móti hefir þetta eymdarástand eystra kost að ríkið mikið fje og á vafa- laust eftir að kosta miklu meira. Stundum hefir manni fund- ist það skína út úr blaðaskrif- um Tímamanna, að þeim væri það einhver fróun ef illa gengi hjá bæjarfjelögunum, og þá al- veg sjerstaklega, ef þungt væri fyrir fótinn hjá Reykjavíkurbæ. Þá hafa Tímamenn einblínt á það, að það eru Sjálfstæðismenn sem hafa meirihlutann í bæjar- stjórn Reykjavíkur. Það er nú ekki von að ástand ið í okkar landi sje gott, ef að svona hugsun er ríkjandi hjá þeim mönnum, sem með völdin fara í landinu. Og — því miður — er ekki hægt að neita því, að þessi hugsun hefir ráðið of miklu á undanförnum árum hjá núverandi stjórnarflokkum. Til hennar má rekja ýmsar aðgerð- ir stjórnarflokkanna, þar sem beinlínis hefir verið seilst eftir því, að níðast á höfuðborg landsins og íbúum hennar. Ný bók--- Skriftir heiðingjans Minning i En þessi hefndarpólitík verð- ur að hverfa úr okkar stjórn- málalífi. Allir flokkar verða að skilja það, að hvert einstakt bæjarfjelag, sýslufjelag og hreppsfjelag eru meiðir á sama stofninum. Því er það, að sje á einhvern hátt gengið á hlut þeirra hittir það allan þjóðar- líkamann. Allir ábyrgir stjórnmála- menn í landinu vita vel hvar skórinn kreppir nú í dag. Þeir vita ,að það er hinn sífeldi taprekstur sjávarútvegsins, sem er undirrót allra meinsemda. Þeir vita, að ef ekki tekst að bjarga sjávarútveginum, þá er hrunið skollið yfir, hrunið, sem ekki aðeins bitnar á bæjarfje- lögunum og þeim, sem við sjó- inn búa, heldur á þjóðinni í heild. En fyrst stjórnmálamenn- írnir vita þetta, hví eru þeir þá að reyna að blekkja þjóð- ina með því, að láta svo sem þeir viti ekki hvar meinsemdin liggur? Hví hefjast þeir ekki handa og grafast fyrir meinsemdina, svo að sjúklingurinn geti lækn- ast? Mæðrastyrksnefndin hefir hafið jólasöfnun eins og- fyrirfarandi ár. Tekur hún með þakklæti á móti hverri gjöf, stórri eða smárri, sem getur orð- ið til að veita gleði eða bæta úr neyð á heimilum fátækra mæ'Sra. Yæntir nefndin Skriftir heiðingjans. Ljóð eftir Sig. B. Gröndal. Isafoldarprentsmiðja h.f. Fyrir úíu árum kom út lítið ljóðasafn, sem hjet nafninu „Glettur". Höfundur þess var kornungur maður, Sigurður Bene- diktsson Gröndal, Reykvíkingur í húð og hár og snortinn af nýj- um tíma — barn hinnar nýju, alþjóðlegu Reykjavíkur. Síðan hefir komið út fjöldi af smásögum eftir hann í blöðum tímaritum. Ymsar þeirra, á- samt öðrum fleiri, hafa komið út í bókarformi, undir nöfnunum „Bárujárn“ (1932) og „Opnir gluggar“ (1935). Það sem ein- kendi sögtrr þessar var næm eft- irtekt á mannlífinu og djúpur skilningur á mannlegum tilfinn- ingum. Og sögurnar voru skemti- legar aflestrar, því að þær voru ekki einhæfar, heldur kunni hof- undur að bregða mörgu fyrir sig og talaði jöfnum höndum í gamni og alvöru. Nú er Gröndal orðinn full- þroska skáld, sem leitar dýpra en áður og hiefir markað gleggri brautir en hann gerði áður. Þeim sem les nýju ljóðabókina hans, „Skriftir heiðingjans“, dylst ekki að hjer er óvenjulegur maður á ferð, sem síst vill fara troðnar götur. Svo fruinleg og einkenni- leg eru kvæðin í þessari nýju bók hans, bæði af efni og formi. Hvort heldur hann yrkir vögguvísuna eða ádeiluna ferst honum jafn vel. Það * er fögur hamning yfir þessari vögguvísu: Dauft er yfir austurheiðum, álfaborgin hljóð, yfir landið svefninn sígur, sú er miskunn góð. — Eg skal vaka og vaka ein, vöggu þinni lijá — aðeins myrkrið má móðurtárin sjá. Og það er neyðarleg nepja í kvæðinu um hana kisu (XVIII), sem mjálmar við dyrnar og minn ist svo liðinna tíma, er; „Úti í horni átti jeg ból og átta börnin fríð — og alt ljek í lyndi, þangað til t . . í poka setti hún börnin blíð, blessuð frúin góð — og steini í annan endann tróð. En slíkir harmar gleymast, og eftir að búið er að drekkja ketl- ingunum fer svo, að Kisa malar mett og vær — og minningarnar flýr — Mikið er það svipað um manneskjur og dýr. — — — En það er rangt að t vera að birta tilvitnanir. Bókin að Reykvíkingar mnni. er stutt og þeim sem unna ný- reynast henni vel og; mæli j ijóðagerð, skal ráðlagt þess, eins og fyr reynast l’cnni vel og greinilega. Skrifstofan er opin kl. 4- ag ]RSa bókiua Sigurðlir Gröndal 7 daglega í Þingholtsstræti 18. Þeir, sem vildu gefa föt eða annað,, en ættu, óhægt með að senda það, eru beðnir a að gera viðvart í síma Mæðrastyrks- nefndarinnar: 4349. yrkir ekki til þess að ríma. Hann sjerstæða skáldbæfileika, sem væntanlega eiga eftir að koma enn betur í ljós síðar. S.K. dag verður borinn til moldar í Vestmannaeyjum Páll Bjarna- son, skólastjóri barnaskóla Vest- mannaeyja, er andaðist hinn 5. þ. m. að heimili sínu eftir stutta legu. Páll Bjarnason var Arnesingur, fæddur að Götu á Stokkseyri 26. júní 1884 og voru foreldrar hans þau Bjarni Pálsson organisti, bróðir þeirra „Selsbræðra", m. a. Jóns, ísólfs og Gísla Pálssona, og Margrjet Gísladóttir, sem enn er á lífi — um áttrætt — -og býr í Traðarholti í Stokkseyrarhreppi með Jóni bónda Þórðarsyni. Faðir Páls druknaði í Þorláks- höfn, er Páll var kornungur, og ólst hann síðan upp með móður sinni. Systkini Páls er upp koniust eru: Friðrik, söngkennari og tón- skáld í Hafnarfirði, Þórður, starfsmaður á Vífilsstöðum og Páll Þorgeir, sem dvelst í Ame- ríku. Þrjú systkini önnur átti hann, er dóu í æsku. Nokkru eftir að Páll Bjarnason settist að í Vestmannaeyjum, kvæntist hann — li. 14. maí 1921 — eftirlifandi konu slnni, Dýrfinnu Gunnarsdóttur, hinni mestu ágætiskonu, dóttur merk- ishjónanna Gunnars Andrjesson- ar hreppstjóra í Hólmuhl í Austur- Landeyjum, og konu hans, Kat- rínar Sigurðardóttur, sem dvelst á heimili Dýrfinnu dóttur sinnar. Hugur Páls mun snemma hafa hneigst að bóklegum fræðum. Hann gekk á Flensborgarskólann og er mjer t.jáð að bræður hans Friðrik og Þórður hafi stutt hann fjárhagslega til námsins. Prófi frá Flensborgarskólanum lauk Páll vorið 1907 og stundaði kenslu eftir það austanfjalls í ýmsum stöðum. Varð síðar kenn- ari og skólastjóri á Stokkseyri alt til 1917, er hann fluttist til Vestmannaeyja, og gerðist þar ritstjóri að blaðinu „Skeggja“, en ritstjórnarstörf hafði hann áð- ur haft með höndum, því hann var ritstjóri að „Suðurlandi" á Eyrarbakka meðan hann var skólastjóri á Stokkseyri. Árið 1920 tók Páll við stjórn barnaskóla Vestmannaeyja og gegndi því starfi til dauðadags. Hafði hann gegnt þessu vanda- sama starfi nær 20 ár er hann ljest. Barnaskóli Vestmannaeyja er einn hinna stærstu á landinu og skólastjórastarfið vandasamt og erfitt. Öllum sem til þektu mun bera saman um, að Páll hafi haft mikinn áhuga fyrir því að leysa það starf vel af hendi og lagt mikið á sig í því skyni, en það var honurn þeim mun erfið- ara fyrir þær sakir, að liann var ávalt, einkum síðari árin, mjög veill á ur undir höfuð leggjast að full- komna þekkingu sína til að gera sig hæfari til skólastjórnar og kenslustarfa. Fór hann fjórum sinnum utan í því skyni og sótti námskeið á Englandi og Norður- löndum. Á landsmálum Páll Bjarnason. um hafði Páll mikinn áhuga og átti sæti í bæjarstjórn Vest- mannaeyja fyrstu árin, og um langt árabil í sáttanefnd: Gætti áhrifa hans víða í almennuini velferðarmálum Vestmannaeýinga og myndi þó liafa betur gert, ef heilsan hefði verið sterk. Hann kom til Eyja þegar liið mikla f»amtak í björgunarmálum var að hefjast. Lagði hann þeim mál- um ávalt hið besta lið og var síð- ar einn af forgöngumönnum að stofnun slysavarnafjelagsins „Ey- kyndill“. Ræktun Eyjanna og búnaðax- mál voru honum sjerstakt hugð- arefni. Hann gekst fyrir stofnun búnaðarfjelags Vestmannaeyja og var í stjórn þess fvrstu 10 árin, og var jafnframt trúnaðarmaður Búnaðarsambands Suðurlands. Hinn sjerstaka áhuga hans á ræktunarmálum Eyjanna og skiln ing hans á því, fiversu þýðingar- mikil þau eru fyrir afkomu fólksins, má einnig á þvi marka, að hann lagði þar sjálfur hönd á plóginn, tók verklegan þátt í ræktuninni á eigin kostnað, fyrir utan það sem hann var óþreyt- andi í að leiðbeina öðrum í þeim efnum. í sögu landsins var Páll óvenju fróður, og var ættfræði eitt af þeim málum, sem hann lagði við sjerstaka rækt. Allur almenningur í Vest- mannaeyjum mun sjá Páli skóla- stjóra á bak með söknuði. Hann var góður viðurtals, glaðlyndur og skemtinn á að hitta, trygg- lyndur og vinfastur. Munu þeir ótaldir, er til hans leituðu í yanda málum og sóttu hann að ráðum, því Páll var prýðisvel gefinn og ráðhollur. Nemendur Páls Bjarnasonar eldri og yngri og vinir þeirra hjóna munu í dag minnist hans með virðingu og þakkiæti og senda ástvinum hans hugheilar samiiðarkveðjur, J. Þ. J. Börnin skrifa nefnist nýútkom- heilsu. Ekki ljet Páll held- in barnabók, sem _ er sjerstök í sinni röð. I bókinni eru eingöngu sögur og ljóð, sem börnin hafa sjálf skrifað og samið. Eru það börn á aldrinum frá 6—13 ára og aðallega skólabörn í barnaskólum Reykjavíkur. Tveir kennarar hafa hafa valið efnið í bókina, en bóka- | útgáfa Guðjóns Ó. Guðjónssonar og hjeraðsmál-' gefið út.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.