Morgunblaðið - 07.02.1939, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 07.02.1939, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 7. febr. 1939. Stjórnin á Spáni leitar um frið Vill fa óháðan Mið- og Suður-Spán Endanlegur sigur Francos í Kataloníu Frá frjettaritara, vorum. Khöfn í gær. Franco hefir endanlega sigrað her stjórnarinnar í Kataloníu. Hersveitir hans nálgast nú landa- mæri Frakklands á stóru svæði. Dr. Negrin og sex aðrir ráðherrar flúðu yfir landa- mærin til Frakklands í morgun. Á bílum þeirra voru merki eftir byssukúlur, svo að augljóst er að skotið hefir verið á þá á leiðinni. Azana forseti, Company, forseti Kataloníu, og margir ráðherrar flúðu til Frakklands þegar í gær. Daily Mail skýrir frá því að dr. Negrin hafi falið sendi,- herrum Breta og Frakka á stjórnar-Spáni að leggja fyr- ir Franco tillögur um frið. í þessum tillögum lofar dr. Negrin að leggja niður vopnin, með því skilyrði, að sá hluti Spánar (austurhluti Mið- og Suður-Spánar), sem enn er í höndum stjórnarinnar verði óháður. Þótt því hafi síðar verið mótmælt, að dr. Negrin hafi lagt fram nokkur friðartiiboð, er alment fullyrt, að friðarsamn-' ingar eigi sjer nú stað. Því til sönnunar.er m. a. bent á ,að del Vayo utanríkismála- ráðherra, sat lengi á ráðstefnu með sendiherra Breta og Frakka í dag. Ýmsar lausafregnir ganga sem erfitt er að henda reiður á, m. a. að Azana forseti, sem talinn hefir verið einn hinn harð- snúnasti af stjórnarliðum, vilji gefast upp skilyrðislaust. Miaja hershofðingi er aftur á móti sagður vilja halda stríðinu áfram. „Daily Telegraph" í London hvetur í dag Spánverja til þess að stöðva blóðsúthellingarnar. „Frekari mótstaða af hálfu stjórnarinnar er tilgangslaus“, segir blaðið. Franska stjórnin hefir lýst hjeruðin við landamæri Stjómar-Spánar í hernað- arástand. í Frakklandi hefir í dag gætt nokkurs ótta við það, að ítölsku hermennirnir í liði Francos myndu e. t. v. elta flótta Kata- loniuhersins yfir landamærin til Frakklands. En árekstur milli franskra og ítalskra hermanna myndi geta gefið Mussolini til- efni til nýs fjandskapar við Frakka, með hinum alvarleg- ustu afleiðingum. Síðdegis í dag hafa borist fregnir frá Spáni, sem benda. til þess að Fran- co hafi ákveðið samkvæmt ósk frönsku stjómarinnar, að halda ítölsku her- sveitunum til baka, svo að þær færi ekki alla leið til landamæranna. HERMENNIRNIR AFVOPN- AÐIR I FRAKKLANDI. Margir mikilsmetnir Spánverjar eru flúnir til franska landamærabæjarins Þerthur. Þrjú þúsund bílar, troðfull- ir af flóttamönnum komu til Perthur í morgun. ' Hart nær tvö hundruð þúsund reyndum Kataloninhermönnum hef ir verið þjappað saman á 15—50 km. breiðu svæði við landamærin. Franska stjórnin hefir nú ákveðið að leyfa hermönnunum að flýja yfir landamærin. Eru hermennimir, sem ekki hafa þegar kastað frá sjer vopn- um sínum á flóttanum, afvopnaðir um leið og þeir koma til Frakklands. Hópur óbreyttra borgara kvenna og bama, sem flúið hafa undan Franco og safnast saman við frönsku landamær- in, verð'ur stöðugt meiri. Frjettaritárar lýsa mjög átakanlega hinni hræðilegu sýn sem mæti augunum við landamær- in, þar sem flóttamennirnir bíða í kíló- metra löngum og breiðum röðum. Margir em aðfram komnir af hungri. Sjerstaklega er átakanlegt að sjá bömin þreytt og hungruð. Flóttamennirnir eru fluttir irin í Frakkland í hópum, 2 þús. í einu. KULDALEG OG SORG- LEG SJÓN. London í gær. FU. Frjettaritari Reuters við frönsku landamærin skýrir svo frá, að það hafi verið kuldaleg og sorgleg sjón, sem fyrir augun bar, þar við landamærin, snemma í morgun. Era Iandamærin lokuð til’ld. 7,45 á morgnana. Segir hann, að fögnuður þessa ör- magna flóttafólks hafi verið svo mik- ill í morgun, er landamærjn voru opn- uð, að Iíkast var sém verið væri að opna fyrir þvi hlið Paradísar. ERFIÐLEIKAR FARA ' VAXANDI. Mjög margt starfsfólk er komið til frönsku landamæranna til þess að leið- beina flóttafólkinu, og peningar, mat- væli og lyf berast að hvaðanæva. Samt er það miklum erfiðleikum bundið, að bæta úr þörfum allra, og fara erfið- leikamir váxandi með fjölda flótta- mannanna og einkum vegna þess, hve margt fólkið er veikt og þarf hjúkr- unar við. Hermenn Mussolinis verða kyrrir i Spáni Myndarlegt afmælishóf Glímufjel. Ármanns Rúmlega 300 manns sátu hátíðaveislu glímufje- lagsins Ármanns að Hótel Borg s.l. sunnu- dag, sem haldin var í tilefni af 50 ára af- mæli fjelagsins. Margar ræður voru haldnar undir borð- um og barst fjelaginu mikið af gjöfum, heillaóskaskeyt- um og blómum. Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. CT undi stórráðs fascista á ■ laugardagskvöldið lauk án þess að Mussolini flytti opinbera ræðu, sem þó al- ment hafði verið búist við. í Berlín er sú skoðun lát- in í ljós, að Mussolini telji að tími sje ekki til þess kom- inn enn að setja fram opin- berlega kröfurnar á hendur Frökkum. I ^taðinn er talið, að rætt hafj verið um Spán og samþyjct að kalla ítölsku hermennina ekki heim fyrst um sinn, jafnvel þótt Franco vinni úrslitasigur. Signor Gayda segir, að Fran- co ætli ekki aðeins að vinna hernaðarlegan sigur, heldur líka pólitískan sigur. Hann seg-> ir, að ítölsku hermennirnir verði ekki kallaðir heim fyr en búið sje að hrekja rauðu hermenn- ina frá Spáni og nálægum lönd- um, þar sem rauðliðar ieiti hæl- is og fái hjálp. Er augljóst, að með „nálægari löndum“ á hann við Frakkland. London í gær E.Ú. Mörg frönsk blöð eru í dag’ ærið þungorð út af þessum skoðurmm, sem koma. fram í ítölskum blöðum. Eina hvössustu greinina skvifar Madame Tabois í 1‘Ouvre og minnir þar á það loforð Mussohnis, sém var höfuðgrand- völlur bresk-ítalska sáttmálans, að hin- ir ítölsku hermenn skyldu fluttir heim frá Spárii undir eins og stýrjöldifini væri lokið. Útgáfa rita Sveins Pálssonar læknis Skemtikvöld heldur skíðadeild íþróttafjelags Reykjavíkur að Hótel- Borg n.k. fimtudagskvöld. Ýmislegt verður þar til skemtun- ar, t. d. kvikmyndasýningar, daris o. fl. Aðalfundur var haldinn í Nátt- úrufræðifjelaginu á laugar- daginn var. Afgreidd voru venjuleg aðal- fundarstörf, og síðan var samþykt tillaga frá Pálma Ilannessyni rektor, þess efnis, að Náttúru- fræðifjelagið leitaði samvinnu við iækna landsins mn útgáfu á, rit- um Sveins Ólafssonar læknis, en handrit að þeim er geymt á safn- inu. Stjórn fjelagsins var endurkos- in, en hana skipa: Bjarni Sæ- mtindsson form., og meðstjórnend- ur, Þorkeli Þorkelsson, Pálriri Hannesson, Árni Friðriksson og Gísli Jónássori. Trúlofun. Nýlega hafa opinber- að trúlofun sína ungfrú Kristín Sigurðardóttir, Laugaveg 24 B, og Daníel Sigurbjörnsson rafvirki, Njálsgötu 98. Sá eini sem nú er lifandi af stofnendum Ármanns og’ annar aðalhvatamaður að stofnun fjelag’sins, síra HeFi Hjálmarsson, sat hófið. Glímufjelagið Ármann er eitt af fjölmenmistu fjelögum bæjar- ins, telur ríiml. 1200 fjelaga. Er svo oft búið að lýsa starfsemi fje- lagsins. hjer, að. ekki gerist. þörf á að telja Jiað upp enn einu sinni. Þessi 50 á.ra afmælishátíð fór í alla staði hið besta fram og var fjelaginu ti 1 sóma og öllum, sem viðstad.dir voru, til ánægju. Formaður Ármarins, Jens Guð- björnsson bókbindari bauð gesti og fjelaga veílcomna.’ Mintist hann aðal hvatamanns að stofriun fje- lagsins og leiðtoga þess í fjölda rnörg ár, Pjeturs Jónssonar blikk- smiðs. Synir Pjeturs, Kristinn og Bjarni og konur þeirra sátu veisl rina sem gestir fjelagsins. Eyjólfur Jóhannsson framkv.- stj. hjelt aðalræðuna og leiddi full rök að því, að Ármann var stofnaður 15. des. 1888. Rakti Eyjólfur sögu fjeiagsins frá 1888 ■—1906, en þá var fjeiagið end- urvakið og af flestum talið stofn- að 7. janúar 1906, þangað til sr. Helgi Hjálmarssön og fleiri gaml- ir Ármenningar þentn á, að fje- lagið væri raunverulega eldra. Að ræðu Eyjólfs iokimii var sungið frumort hátíðakvæði eftir ung- frú Rannyeigu Þorsteinsdóttur. Næstur talaði formaður Ár- riianns og afhenti nokkrum mönn- vun lieiðursmerki fjelagsins. Heið- ursfjelagar voru sæmdir Ármanns krossinum, en heiðursfjelagar eru: Síra Helgi Hjálmarsson, Guð- mundur Guðmundsson, Sigurjón Pjetursson, Hallgrímur Benedikts- son, Haíldór Hansen, Guðmundur Þorhjarnarson, Guðmundur Stef- ánsson, Matthías Einarsson' lækn- ir. Látnir heiðursfjelagar: Páll Erlingssön sundkennari og ’Jóna- tan Þorsteinsson kaupm. Kjörnir heiðursfjelagar við þetta tækifæri: Hermann Jónasson (var ekki við- staddur) og Benedikt G. Waage. Heiðursmérki fjelagsins voru eftirtaldir menn sæmdir; Eyjólf- tir Jóhannsson, Gnðmundur Kr. Guðmundsson, Eggert Kristjáns- son, Jón Þorsteinsson, Ágúst Jó- liannsson, Magnús Stefánsson, Björn Rögnvaldsson, Jakob Möll- er og Erlendur Pjetursson, form. K. R. Yakti það sjerstakan fögn- uð, að Erlehdur Pjetursson skyldi vera sæmdur heiðursmerki Ár- manns og þótti bera vott um bróð- urhug og sannan íþróttaanda hjá Ármenningum, að meta rjett störf Erlendar, þó hann væri formaður þess fjelags, sem Ármann keppir að jafnaði mest við um efstu sæt- in í íþróttum. Er úthlutun heiðursmerkjanna var lokið, töluðu þessir menn: Sr. Þorgrímnr Sigurðsson fyrir minni Islands. Guðm. Kr. Guð- mundsson fyrir minni í. • S. í. Sr. Bjarni Jónsson dómkirkjuprest- nr. fyrir’ minni kvenna. Þórarinn Magnússon fyrir minni heiðurs- gestsins sr. Helga Hjálinarssonar. Þá stóð sr. Heigi Hjálmarsson upp og lijelt, ræðu. Kom hann víða, við í ræðu sinni og mátti af hverri setningu, er hann talaði, fintia ást hans á þjóðaríþrótt ís- lendingá, glímunni. Hann henti m. a. á þá staðreyrid, að bestu glímnmenn sinnar sveitar eða hæj- ar hafa jafnan orðið hinir nýt- ■ustu menn, að hverju sem þeir lia.fa snúið sjer í lífínu. Hallgrímur Benediktsson stór- kaupmaður mælti fyrir minni Pjeturs Jónssonar blikksmiðs og fór viðurkenningarorðum um leið- beiningarstarf lians í þágu fje- lagsins og íslenslaar glímu. ★ Forseti í. S. 1., Ben. G. W'áage. flutti kveðju frá í. S. í. og af- henti fj-eiaginu að gjöf frá sam- bandinu íslenskan þorðfána ,stend ur stöngin á vörðu útskorinni. Er þetta hin fríðasti gripur. Sem ]jer- sónulega gjöf frá sjer færði hann Jens Guðbjörnssyni og Þórarni Magnússyni eirskildi og- þakkaði þeim ágætt starf í þágu íþrótt- anna. Stefán Runólfsson flutti þrótt- mikið kvæði. Sigurjón Pjetursson flutti ræðu og færði fjelaginu að gjöf upphleypta silfurmynd af fs- landi og skal þessi gripur vera verðlaunagriprir fvrir leikfimi. Erlendur Pjetursson flutti kveðjuorð frá K. R. og helt eina af sínunr þróttmiklu og mergjuðu ræðum. Lofsöng til íþróttanna ög hvatningarorð til íþróttamanna. Kristinn Pjetursson færði Ár- manni þakkir fyrir hönd ættingja Pjeturs Jónssonar. Eiríkur Magn- ússon, form, sundfjelagsins „Æg- ir“, færði fjelaginn að gjöf hag- lega brjefapressu og þakkaði sam- starf undanfarinna ára. Ólafur Sigurðsson, forrii. knattspyrnufjel. „Valur“, færði Ármanni eirskjöld með merki Vals og árnaði fjelag- inu heilla fyrir hönd fjelags síns. Þá fekk Ármann fagran silfur- bik'ar að gjöf frá gömlum Ár- menningi, sem ekki vildi láta nafns síns getið, og fánastöng frá I. fl. karla. Að lokum mælti Jens Guðbjörns son nokkur orð og las npp fáein FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.