Morgunblaðið - 07.02.1939, Page 3
Þriðjudagur 7. febr. 1939
MORGUNBLAÐIÐ
3
Sendimenn
i fðrum til
Spánar
Ríkisstjórnin hefir nú loks
tekið ákvörðun um að
senda menn til Spánar, til þess
að eiga viðræður við stjórn
Francos og athuga möguleika
fyrir fisksölu á Spáni í fram-
tíðinni.
Stjórn S.Í.F. ski'ifaði ríkis-
stjórninni þessu viðvíkjandi 10.
f. m. og hvatti mjög eindregið
tií þess, að menn yrðu sendir til
Spánar. Svar stjórnarninar kom
nú um helgina og segir þar, að
ákveðið hafi verið að senda
Helga Briem suður til Spánar.
Jafnframt óskar stjórnin þess,
að stjórn S.Í.F. sendi einnig
mann, sem kunnugur sje salt-
fisksversluninni.
Stjórn S.Í.F. mun sennilega á-
kveða í dag hvern hún tilnefn-
ir til fararinnar.
'k
Þá hefir einnig verið ákveðið
að hefja á ný samninga við
Þýskaland, en eins og kunnugt
er hafa þeir samningar gilt fyr-
ir eitt ár í senn.
Þrír menn múnu annast þessa
samninga f. h. íslensku stjórn-
arinnar, þeir Sveinn Björnssoil
sendiherra, Jóhann Jósefsson
alþm. og sennilega Óli Vil-
hjálmsson framkvæmdastjóri.
Ekki er enn fyllilega ráðið,
hvort samningarnir fari fram í
Berlín eða Kaupmannahöfn
(hjá sendiherra Þýskalands
þar).
★
Ekki mun enn fast ákveðið
hvenær haldið verður áfram
viðræðunum við Norðmenn, en
þær eiga nú að fara fram h.jer
í Reyk.javík. Ráðgert er að full-
trúar Norðmanna komi hingað
kring um 20. þ. m. og upp úr
því hefjist samningaumleitan-
ir.
Nefndarkosning
á Búnaðarþingi
gær var annar fundur Bún-
aðarþings. Þar var kosið í
íastanefndir þingsins.
Kosningin fór þannig:
Fjárhagsnefnd: J ón Hannessón,
Kristján Guðlaugsson, Björn Hallsson,
Hólmgeir Þorsteinsson, Jón Sigurðs-
son, Þ. M. Þorláksson, Jakob H. Lín-
dal
Allsherjarnefnd: Sveinn Jónsson,
Þorsteinn Sigurðsson, Helgi Kristjáns-
son, Guðjón Jónsson, Þorsteinn Þor-
steinsson.
Jarðrœktnn/efnd: Ólnfur Jónsson,
Hafsteinn Pjetui'sson, Kristján Karls-
son, Þórarinn Helgason, Pálnii Ein-
arsson.
Reikninganefnd: Gunh'ar Þórðarson,
Magnús Friðriksson, Guðttiundur Er-
lendsson.
Búfjárrœktarnefnd: Sigurður Jóm-
son, Arnarvatni, Sigurður Jónsson
Stafafelli, Kristjón Guðmmrdsson, Páll
Stefánsson, Páll Pálssou,
Skáli íslendinga á heims-
sýningunni í New York
Peningar sviknir út
úr aðkomumanni
Maður einn, sem er gestkom-
andi hjer í bænuni, koni
til lögreglunnar í gærkvöldi og
kærði yfir því að hann hefði verið
svikinn af ókunnugum manni.
Aðkomumáður háfði fengið sjer
herbergi á Hótel Heklu og var
hann búinn að Iraupa sjer flösku
af víni. A gistihúsinu hitti hann
mann, sem gaf sig á tal við hann
og sem endaði með því að þeir
urðu mestu mátar.
Utaubæjarmaðurinn sendi þenna
nýja kunningja sinn til. þeps að
kaupa flösku af víni og fekk .hon-
um 100 króna seðil til fararinnar,
en síðan hefir hvorki maðurinn
nje seðillinn komið til skila.
Lögreglan hefir málið til með-
ferðar.
Valur, 2. fl., æfing í 1. R.-hús-
inu kl. 9.
Unglingar játa
á sig innbrot
og þjófnaði
Lögreglan hefir handsamað
þrjá unglingspilta á aldr-
inum 15 og 17 ára, sem þegar
hafa játað á sig fjölda þjófnaði
og smáinnbrot.
Einn þeirra hefir t. d. átt þátt
í 10 þjófnuðum, annar í 9 og sá
þriðji í 7. Oft hafa þeir verið sam-
an um þjófnaðina, en stundum
einir.
. Núna um helgina brutust þeir
inn hj á Jóni & Steingrími fisk-
•sölum, Bankastræti 2, og Mána-
g'ötu 18.
Þýfið hefir jafnan verið rýrt í
livert einstakt sirrni, *en þó nema
þjófnaðir þeirra töluverðu verð-
mæti þegar alt et lagt saman.
Piltar þessir hafa ekki áðuf'
komist undir manna liendnr fyrir
þjófnað og er því ekki getið um
nöfn þeirra hjer að þéssu shini.
Tilhðgun sýningarinnar:
Skýrsla sýningarráðs
og framkvæmdarstjórnar
N
Sýningarráð og framkvæmdastjórn, sem undirbýr og annast
þátttöku okkar íslendinga í heimssýningunni í New-York, hefir
nú ákveðið tilhögun alla á sýningunni. Er nú í óða önn verið að
senda sýningarmuni vestur. Alt verður að vera tilbúið 15. apríl,
en sýningin verður opnuð 30. apríl. Fer hjer á eftir ítarleg
greinaragerð um tilhögun sýningar okkar.
Eins og- alþjóð er kunn-
ugt, hefir verið ákveð-
ið fyrir alllöngu síðan, að
íslending'ar tækju þátt í
heimssýnin£U þeirri, sem
hefjast á 30. apríl næstk. í
New York, í minninR-u þess,
að þá eru liðin 150 ár frá
því, að fyrsti forseti Banda-
ríkjanna tók við stjórn þess
ríkis.
Eftir því, sem nú er kunn-
ugt, munu það vera 62 þjóð-
ir, sem taka þátt í sýnino;-
unni, og flestar þeirra hafa
mjög mikinn viðbúnað og
verja til þess of fjár.
★
Það dylst engum, að það er í
mikið ráðist fjmir smáþjóð eins og
íslendinga að skipa sjer þarna á
bekk með miíjónaþjóðum, en þó
hefir það verið talið rjett, að
ýmsra góðra manna yfirsýn og
ráði, að' ekki væri látið undir höf-
uð leggjast að nota þetta tæki-
færi til þess að vekja þá athygli
á þjóðinni, sem þessi mikla heims-
sýnitig veitir svo óvenjulega að-
stöðu til.
Síðari hluta arsins 1937 fór
fram töluverð rannsókn á því,
hvort þetta fyrirtæki af íslend-
inga hálfu mætti virðast gerlegt,
og hafði þá rannsókn með hönd-
um sjerstök nefnd, sem ríkisstjórn
in skipaði. Eftir að nefnd þessi
liafði leitað hófanna hjá ýmsum
atvinnufyrirtækjum landsmanna
um fjárstyrk og annan stuðning
við málið, var að því horfið í janú
armánuði 1938 að hrinda málinu
í framkyæmd á þann hátt, að
fyrirtæki þau, sfem heitið höfðu
málinu stuðningi, kusu 10 menn
í sýningarráð, sem ásanit 5 mönn-
um, er ríkisstjórnin skipaði, skyldi
hafa mál þetta með höndum. I
sýningarráð völdust þessir menn
af hendi einstakra fyrirtækja og
stofnana, er lofað höfðu fjárfram-
lögum.
Aðalsteinn Kristinsson framkv.-
stj., Ásgeir Þorsteinsson framkv -
stj., Eggert Kriscján-sson stórkaup
maður, Finnúr Jónsson form. Síld-
útvegsuefndar, Guðm. Yillijálms-
sön framkv.stj., Hallgrímur Beiie-
diktsson stórkauþmaðúr, Helgi
Bérgs forstjóri, Helgi Pjetursson
verslunarfulltrúi, Matthías Þórð1-
arson þjóðminjavörður Thor Thors
framkv.stj.
En af hálfu ríkisstjórnarinnar
voru þessir skipaðir:
Áriii Friðriksson magister, Emil
Jónsson alþm., Jón Baldvinsson
forseti Alþýðusambands íslJón-
as Jónsson förmaður Mentamála-
ráðs, Steingrímui' Steinþórsson
b ú n að arm ál a st j óri.
★
ýningarráð kom fyrst saman
8. febrúar 1938 og valdi sjer
að formanni Thor Thors framkv.-
stj. Ritárar voru kosnir Stein-
grímur Steinþórsson alþm. og
Emil Jónsson alþm. Yaraformaður
var kosinn Guðmundur Yilhjálms-
son framkv.stj.
Þær breytingar bafa síðar orðið
á sýningarráðinu, að í stað Hall-
gríms Benediktssonar stórkaupm.
hefir tekið sæti Garðar Gíslason
stórkaupm., og í stað Jóns heit.
Baldvinssonar hefir tekið sæti
Haraldur Guðmundsson alþm.
Ríkisstjórnin skipaði síðan i'or-
mann framkvæmdarstjórnar Vil-
hjálm Þór framkvæmdastjóra, og
sýningarráðið kaus í framkvæmda
stjórn. þá Harald Árnason, kaup-
mann í Reykjavík, og Ragnar E.
Kvaran landkynni, og vai'ð hinn
síðarnefndi ritari framkvæmdar-
stjórnar.
Sú verkaskifting var í önd-
verðu samþykt á milli sýningar-
ráðs og framkvæmdastjórnar, að
sýningarráð skyldi ákveða öll
meginatriði, er snertu þátttöku
vora í sýningunni og fyrirkomu-
lag hennar, en einkmn taka á-
kvarðariir um allar tillögur, er
hefðu fjárútlát i för nieð sjer.
Hinsveg'ar skyldi framkvæmdar-
Btjórn annast öll dagleg störf í
sambandi við sýninguna og sjá um
öll einstök atriði, er snertu únd-
irbúniiig liennar af vorri hálfu,
og .starfrækslu hennar. Samkvæmt
þessari verkaskiftingu hefir sýn-
ingarráðið og framkvæmdarstjórn
síðan nnnið að undirbúningi máís-
ins, og hefir sýningarráðið haldið
alls 18 fundi, auk þess sem ein-
stakar iiéfndir sýningarráðs hafa
haldið sína sjerstöku fundi. Fram-
kvæmdarstjórn hefir haldið alls
nm 70 fuödi, og unnið mikið starf
einnið utan’ fundanna.
Nú eí svo langt komið undir-