Morgunblaðið - 24.03.1939, Blaðsíða 3
Föettfdagur 24. mars 1939.
MORGUNBLAÐIÐ
3
. ———i
Kommúnistar senðu lygaskeyt-
ið til „Arbejöerblaöet“
Ritzau flytur
rangar fregnir
iijeöan um
flugmðlin
M
Khöfn í gær F.Ú.
orgunblöðin í Kaupmanna
höfn birta í dag skeyti
frá Ritzausfrjettastofunni á þá
Jeið, að Hermann Jónasson for-
sætisráðherra hafi gefið þær
upplýsingar í svari við fyrir-
spurn á Alþingi, að Þýskaland
gerði kröfu til að fá flughafnir
á íslandi með skírskotun til
gamalla samninga um bestu-
kjararjettindi. Flytja sum blöð-
in fregnina með stórum fyrir-
sögnum.
Sveinn Björnsson, sendiherra
Islands í Kaupmannahöfn og
utanríkismálaráðuneytið danska
hafa lýst yfir því opinberlega,
að þeirri sje alls ókunnugt um
þetta mál.
Kaupmannahafnarblaðið „NationaJ-
tidende“ birtir í dag einkaskeyti frá
Reykjavík, þar sem segir, að orðróm-
nrinn um það, að Þýskaland krefjist
flotahafna á Islandi, sje uppspuni
einn. Samningarnir milli íslensku rík-
isstjómarinnar og hinna þýsku full-
trúa snúast urn það, hver rjettindi
ÞýskaJand lcynni að hafa á Islandi til
flugliafna samkvœmt. gömlum samning-
um um bestukjararjettindi.
Munch, utanríkismálará'ðheiTa Dana,
hefir látið í ljósi, að krafa þessi kynni
að vera rökstudd með gömlum sátt-
mála milli Danmerkur og Prússlands
frá árinu 1918. Nationaltidende“ seg-
ir, að mál þetta hafi vakið athygli bæði
í Bretlandi og Ameríku.
. „Ekstrabkidet“ í Kaupmannahöfn
skýrir frá því í dag, að það hafi átt
símta.1 við Hermann Jónasson forsæt-
isráðherra í tilefni af orðrómi þeim,
sem gengið hefir um þetta mál.
Segir það, að forsætisráðherraun
hafi látið í Ijósi, að orðrómur þessi
væri stórum orðum aukinn, en liefði
að öðru leyti ekki óskað að eiga sam-
tal við blaðið um málið, þar sem grein-
argerð um málið og afgreiðslu þess
myndi verða send sendiráði fslands í
Kaupmannahöfn.
Hin opinbera tilkynning ísl. ríkis-
stjórnarinnar var kl. 12 í dag símúð
til sendiráðsins í Kaupmannahöfn.
Samtímis var utanríkismálaráðuneytinu
danska símað, að það gæti snúið sjer
til sendiráðs íslands í Kaupmannahöfn,
til þess að fá fulla ritneskju um þetta
mál.
Bæði sendiráði íslands og utanríkis-
inálaráðuneytinu danska höfðu borist
ýmsar fyrirspumir frá innlendum og
erlendum blaðamönnum um málið.
★
Það er stórfurðulegt, að
frjettastofa, sem er jafn gæt-
in og áreiðanleg eins og frjetta-
stofa Ritzau annars er, skuli
hafa glæpst á því, að flytja
aðra eins frjett eins og þá, sem
hjer er gerð að umtalsefni. Eins
og fregn þessi hefir borist út-
Þeir játuðu þetta
Á
Alþingi í gær
Athæfi þeirra hefir þegar
stórskaðað landið
M
ORGUNBLAÐIÐ birti í gær símskeyti frá
frjettaritara blaðsins í Kaupmannahöfn,
þar sem skýrt var frá furðulegri fregn
frá Reykjavík, er birst hafði í blaði kommúnista í Dan-
mörku.
í fregn þessari var skýrt frá því, að forsætisráðherra ís-
lands hefði staðfest á Alþingi, að Þýskaland gerði kröfu til að
koma upp flugvöllum á Islandi og að Þjóðverjar myndu senda
hingað herskip, til þess á þann hátt að hræða íslendinga til að
verða við kröfu Þýskalands.
ÞaS gat ekki leikið neinn vafi á því, hvaðan fregn þessi
var komin til hins erlenda kommúnistablaðs. Hún gat ekki frá
öðrum komin en kommúnistum hjer. Og á Alþingi í gœr urðu
kommúnistar að játa, að blað þeirra hjer, Þjóðviljinn, hefði
símað þessa lygafregn út til hins erlenda blaðs.
I franska útvarpið
Hin opinbera tilkynning ís-
lensku stjórnarinnar um saxun
ingána við Luft-Hansa-menn-
ina, sem símuð var til út-
landa í gær, hefir vakið irikla
athygli.
í gærkvöldi var t. d. les-
inn upp stór kafli úr henni í
frjettum franska útvarpsins.
Ný framleiðsla:
Fiskimjöl til
manneldis
Merkilegar rannsóknir
Guðmundar Jónssonar
A
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Á þingfundi í neðri deild í
gær kvaddi Ólafur Thors sjer
hljóðs utan dagskrár og beindi
nokkrum fyrirspurnum til for-
sætisráðherrans. Ólafur mælti á
þessa leið:
Út af fregnum, sem hingað
hafa borist frá útlöndum —
m. a. í símskeyti til Morgun-
blaðsins — um rangan frjetta-
burð hjeðan til erlendra blaða,
sem hlýtur að skaða okkar
þjóð, leyfi jeg mjer að spyrja
forsætisráðherrann:
1. Er forsætisráðherrann mjer
ekki sammála um, að frjetta-
burðurinn sje rangur?
2. Er ráðherrann ekki þeirr-
ar skoðunar, að slíkur frjetta-
burður sje skaðlegur landi og
þjóð?
Ef svo er, leyfi jeg mjer að
?spyrja:
1. Hvað vill ráðherrann gera
til þess að koma í veg fyrir slík
skemdarverk.
2. Hvaða vald hefir ráðherr-
ann til framkvæmda í því efni?
Hermann Jónasson forsætis-
ráðhérra kváðst sammála Ólafi
Thors um það, að umrædd
fregn til blaðs kommúnista í
Kaupmannahöfn væri röng og
að hún væri skaðleg fyrir ís-
lenska hagsmuni. Utanríkis-
málanefnd hefði þegar tekið til
athugunar hvað unt væri að
gera, til þess að koma í veg fyr-
ir slíka þjóðhættulega starf-
semi. Til frekari athafna í
þessu efni þyrfti aðgerða Al-
þingis og myndi verða farið
fram á það.
JÁTNING
KOMMÚNISTA.
Kvaddi nú Elinar Olgeirsson
sjer hljóðs. Hann játaði að
Þjóðviljinn (blað kommúnista
hjer) hefði sent danska komm-
únistablaðinu, ,Arbejderbladet‘
símskeyti í sambandi við fyrir-
spurnir þær, er E. O. gerði á
Alþingi á dögunum. Hefði í
skeytinu verið sagt nákvæmlega
á sama hátt frá því sem fram
fór á Alþingi og Þjóðviljinn
skýrði frá daginn eftir umræð-
urnar. Engin mótmæli hefðu
komið gegn frásögn blaðsins
hjer og væri það sönnun þess,
að rjett væri frá skýrt.
Hermann Jónasson forsætis-1
ráðherra: Út af upplýsingum
þeim, sem E. O. nú gefur, er
sjerstök ástæða til að vekja at-
hygli á því, að í fregninni til
hins danska blaðs, er beinlínis
farið með ósannindi. Og eins og
málið liggur fyrir, staðhæfi jeg,
að hjer hefir verið farið með
vísvitandi ósannindi.
Fregnin á að vera bygð á
umræðum sem fram fóru hjer á
Alþingi í heyranda hljóði. Um
misheyrn eða misskilning á svör
um mínum við fyrirspurnum E.
O. getur ekki verið að ræða,
því að í framhaldi umræðnanna
á dögunum var tekinn af allur
vafi í þessu efni. Jeg staðhæfi
því, að hjer hafa verið símuð
út vísvitandi óaannindi. Og jeg
fullyrði, að þessi fregn hafi
þegar skaðað Island verulega.
Jeg lýsi því hjer yfir, að jeg
mun ekki framar svara fyrir-
spurnum frá Einari Olgeirssyni,
fyr en hann hefir beðið afsök-
unar á framferði sínu.
LANDRÁÐ.
Ólafur Thors: Það er þá upp-
lýst, hvaðan þessi landráða-
starfsemi er komin. Við vissum
reyndar þetta áður, en gott er
engu að síður að fá játningu
Einars Olgeirssonar.
Það er aum vörn hjá E. O. að
Birger Ruiid
fagnað I Skíða-
skálanum
Skíðaskálinn í Hveradölum var
allur uppljómaður í gær-
kvöldi, þegar norski skíðakappinn,
Birger Rnud og frú hans, komu
þangað. Hafði verið komið fyrir
blysurn við skálann.
U'm 30- manns var fyrir í skál-
anum og' söng norska þjóðsöng-
inn. Voru móttökurnar í skálan-
lím innilegar og hátíðlegar. Marg-
ir skíðamenn höfðu safnast við
vegamótin hjá Kolviðarhóli og
hrópuðu ferfalt liúrra, er norskn
heiðursgestirnir óku framhjá.
verkfræöings
morgun Lemur í versl-
anir bæ.jarins alReng-
asta fæðutegund okkar Is-
lendinga — fiskur — í nýju
formi. Er bað fiskimjöl til
manneldis.
Fiskimjölið verður selt í snotr
um kg. pökkum og er hægt
að búa til úr mjölinu rúmlega
40 rjetti matar, samkvæmt mat-
aruppskriftarskrá þeirri, sem
fást í þeim verslunum, sem
fiskimjölið verður selt í.
Það er nýstofnað hlutafjelag,
„Fiskur“, sem framleiðir þetta
nýja fiskimjöl, en mjölið er
framleitt eftir uppgötvunum og
rannsóknum Guðmundar Jóns-
sonar verkfræðings, sem í nokk
ur undanfarin ár hefir gert til-
raunir með framleiðslu fiski-
mjöls til manneldis.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Skíðamótið í Hveradölum i dag:
40 þátttakendur
í 18 km. göngunni
ára afmælismót Skíðafjelags Reykjavíkur
hefst í dag klukkan 1 með 18 km. kapp-
göngu, og verður kept um Thule-bikarinn
og fleiri verðlaun.
Þátttakendur í göngunni eru alls 40 frá 6 fjelögum. Frá
Skíðafjelagi Siglufjarðar eru 10 þátttakendur, frá „Skíðaborg" á
Siglufirði (áður („Siglfirðingur") 9, frá K. R. 8, Ármanni 6,
Einherjum á Isafirði 6 og Ármanni í Skutulsfirði 1.
Snjór er nú frekar lítill, en þó
hefir nokkuð hatnað síðan um
síðustu helgi. Gangan mun fara
fram uppi á Hellisheiði.
Svigkepnin.
Á morgun hefst svigkepnin, sem
að líkindum fer fram í Skarðs-
'mýrarfjalli, og er ekki enn búið
að ákveða brekkuna, sem kept
verður í.
Keppendur í svigi eru 34 frá 7
fjelögum og bætast við þátttak-
endur frá í. R. og K. A. (Akur-
eyri).
Svigkepnin hefst með því, að
Birger Ruud fer niður svigbraut-
ina.
Kept verður um bikar Litla
Skíðafjelagsins, sem það gaf á
25 ára afmæli Skíðafjelags Rvík-
ur. Fleiri verðlaun verða veitt.
Stökkin.
* Skíðastökkin fara fram á
sunnudag og hefjast kl. 1. Birger
Ruud stekkur fyrst og vígir hina
nýju stökkbraut. Hann er auð-
kendur með nr. 20.
Keppendur í stökkinu eru 19
og þar á meðal aðeins tveir Reyk-
víkingar, þeir Björn Blöndal og
Gunnar Johnson, báðir úr K. R.
Hinir keppendurnir eru allir frá
Skíðafjelagi Siglufjarðar og
Skíðaborg á Siglufirði. Vivax.