Morgunblaðið - 25.03.1939, Page 3
taugardagur 25. mars 1939.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Sjálfum
sjer líkir
„Arbejderbladet"
birtir ekki grein-
argerð stjórnar-
innar
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Oll blöðin í Kaupmannahöfn,
að undanskildu blaði komm
nnista, „Arbejderbladet", birta
ííreinargerð íslensku stjórnarinn-
ar um viðræðurnar, sem hjer fóru
fram við fulltrúa frá þýska flug-
fjelaginu Luft-Hansa. Blöðin birta
greinargerðina athugasemdalaust
með öllu.
★
Hjer er kommúnistum rjett lýst.
Pyrst breiða þeir út lygafregnir
txm viðkvæm mál, sem hljóta að
skaða landið. Þegar svo greinar-
gerð kemur frá ríkisstjórninni,
sem tekur af allan vafa, stinga
kommúnistar henni nndir stól.
Þeir viija halda fast við lyga-
fregnina, vegna þess að hxtn skað-
ar okkar land.
---------Birger----------
Ruiid stekkur
40 m,
Birger Ruud, norski skíða-
kappinn, stökk tvisvar af pall
inum í Flengingarbrekku í
gær. Bæði stökkin voru afar
falleg og í síðara skiftið
stökk hann 40 metra.
Birger Ruud fór 3trax í
fyrrakvöld að skoða stökk-
pallinn. Leist honum vel á
hann, nen*?. hvað honum þótti
aðrenslið áður en stokkið er
full lítið.
Eftir að hann hafði reynt
pallinn í gær, sagði hann að
hægt væri að líkindum að
stökkva 50—52 metra fram
af pallinum, þegi?s- búið væri
að bera í hann nægan snjó.
I allan gærdag var yerið
að bera snjó í pallinn. Onnu
að því 36 verkamenn.
Tvær svargrein-
ar I „Manch.
Guardian"
«----• I
Tvær greinar birtust í „Man-
schester Guardian“ sem
svar við greininni „Augu Þjóð-
verja á íslandi". önnur grein-
in var frá dr. Jóni Stefánssyni
og birtist hún 9. mars.
Mótmælir Jón fregn blaðsins
um nazistaáhrif hjer á landi,
vopnasmyglið, frásögninni um
niðrandi viðskifti Breta og Þjóð
verja hjer á landi o. fl. Þessari
grein svarar „Manschester Gu-
ardian“ þegar i stað og segir að
ekki muni allir íslendingar vera
sömu skoðunar og Jón um starf-
semi Þjóðverja hjer á landi.
Hin greinin birtist 11. mars
og er eftir Louis Zöllner kaup-
mann. ZöIIner segist vera sann-
færður um að samúð Islendinga
sje með Bretum.
I grein sinni vekur Zöllner at-
hygli á orsökinni til þess, að
viðskifti Breta og Islendinga
hafi minkað og segir sökina
vera Breta, þar sem þeir hafi
síðan 1932 sett hömlur á inn-
flutning ísl. afurða til Bret-
lands.
Samsæti fyrir
Birger Ruud
Kveðjusamsæti fyrir norska
skíðakappann Birgev Ruud og
frú.hans fer fram-á mánudag-
inn. Verður snæddur íirdegis-
verður að Hótel Borg kl. 12Va-
„Jín Ólafsson"
Hinn nýi togari
„Alliance"
Olafur H. Jónsson fram-
kvæmdastjóri Alliance
var meðal farþega á Goða-
fossi frá Englandi í fyrra-
kvöld.
Svo sem kunnugt er fór Olafur
utan, ásamt Guðmundi Markús-
syni skipstjóra. Erindi þeirra var
að athuga togara, er Alliance-fjei
lagið ætlaði að kauþa.
Morgunblaðið hefir áður skýrt
frá því, að þeir fjelagar hafi f^st
kaup á togara í Hull.
— Jeg er mjög ánægur með
ferðina, sagði Ólafur. H. Jónsson
framkvæmdastjóri við tíðindamann
Morgunblaðsins í gær. Togari sá,
sem við keyptum, er sjerlega vand
að skip. Hann hjet áður „Loch
Seaforth" og er bygður í Bever-
ley 1933. Ilann er 423 tonn brúttó
og 162 tonn nettó. Ilann er lölþíj
fet á lengd, 25Mj fet' á, breidd og
15 fet á dýpt. IJanri er 4% feti
lengri en Hannes ráðherra var. ,
Togarinn hefir yfirhitun og er
búinn öllum nýjustu og fullkomn-
ustu tækjum. Gengur. 11 mílur og
er sjerlega kolaspar; eyðir aðeins
8% tonni á sólarhring.
— Þið hafið þegar valið nafn
á skipið — er ekki svo?
— Jú; togarinn heitir nú „Jón
Olafsson"..
★
Hinn nýi togari Alliance, „Jón
Olafsson", leggur af stað frá Eng-
landi í dag og mun sennilega
koma hingað á miðvikudag.
Morgunblaðið óskar Alliance til
hamingju með skipið.
Norðlendingar unnu
skiðakappgönguna
Magnús Kristjánsson
sigurvegari í kappgöngunni.
íslandsmynd
Dams komin
i slandskvikmyndin, sem Or-
* logskapt. Dam tók hjer í
fyrrasumar og sýnd hefir ver-
ið undanfarnar vikur í Kaup-
mannahöfn við mikla aðsókn og
miklu lofsorði vérið lokið á, er
nú komin hingisð.
Frumsýning á myndinni fer
fram á skemtifundi Ferðafje-
lags íslands 1 Gamla Bíó næstk.
miðvíkudag 29. mars kl. 9 síð-
degis.
Olriöaihæltan
Flugvjelin TF — Örn flaug
norður i gær með póst og far-
þega. Farþegar voru: Vilhelmína
Þór og Sólveig Axelsdóttir. Flug-
vjelin kom aftur um miðjan dag
í gær. Þarþegar að norðan voru:
Jakob Frímannsson, Þór Björns-
sori ög Páll Sigurgeirsson.
Fyrirspurn til
stjórnarinnar
Tveir þingmenn úr Sjálf-
stæðisflokknum, þeir
Magnus Gíslason og Árni Jóns-
son i'lytja i efri deild svohljóð-
andí fyrirspuni til ríkisstjórn-
. . H"í ? ;ii' ' %
annnar:
a) Hvað hefir ríkisstjómin
gert til þess að tryggja þjóðina,
ef ófrið ber að höndum?
b) Hvaða ráðstafanir telur
stjórnin, að gera beri nú þegar
út af yfirvofandi styrjaldar-
hættu ?
Svigkepnin fer
liklega fram i
brekkunni við
Skíðaskálann
Kepnin í svigi á Thule-mót-
iiiu í Hveradölum hefst
kl. 1 í dag. Ekki var fullráðið í
gærkvöldi hvar kepnin skyldi
fara fram, en talið var líklegast
að það yrði í brekku við Skíða-
skálann.
Til mála hafði komið að
kepnin yrði látin fara fram í
Skarðsmýrarfjalli.
Kepnin hefst með því, að
Birger Ruud opnar svigbraut-
ina.
ísfirðingur var fyrstur
að marki
Birger Ruud opnar svig-
brautina í dag
SIGURVEGARI í skíðakappgönguiini í gær varð
Magnús Kristjánsson úr Skíðafjelaginu Ein-
herjar á ísafirði. Gekk hann vegalengdina á
1 klst. 13 mín. 0.8 sek.
Annar vaj-ð Guðmundur Guðmundsson (Skíðafjelagi Siglu-
fjarðar) á 1 klst. 14 mín. 47 sek. Þriðji varð Jóhann Sölvason
(Skíðaborg) á 1 klst. 18 m. 57 sek.
Sigurvegarinn, Magnús Kristjánsson, fór 15. af stað. Þeg-
ar hann kom að markinu eftir fyrri umferðina (8—9 km.) var
hann búinn að taka fram úr öllum, sem á undan honum byrjuðu
gönguna nema nr. 1. Hjelt hann þeirri röð allan tímann, bg
kom sem annar maður að marki.
Gangan er flokkakepni, þannig að það fjelag vinnur, sem
hefir bestan tíma fjögra fyrstu manna sinna.
Skíðafjelagið „Skíðaborg“ (áður Siglfirðingur) vann göng-
una í þetta sinn. Er það í annað sinni, sem það fjelag vinnur
Thulebikarinn.
„Skíðaborgin“ átti 3., 5., 6.
Og 10. mann. Samanlagður tími
5 klst. 21 mín. 40 sek.
Annað var Skíðafjelag Siglu-
fjarðar, átti 2., 7., 9. og 11.
mann ; samanlagður tími 5 klst.
23 mín. 39 sek.
Þriðju voru Einherjar á ísa-
firði, áttu 1., 4., 8. og 20. mann;
samanlagður tími 5 klst. 24
mín. 26 sek.
Magnús Kristjánsson, sigur-
vegari í skíðagöngunni er 22
ára gamall. Hann er ísfirðing-
ur að ætt og uppruna og hefir
stundað skíðaæfingar með
skátafjelaginu ,,Einherjar“.
Magnús er kunnur öllum sem
áhuga hafa fyrir skíðaíþrótt-i
inni af fyrri afrekum sínum.
Hann hefir 4 sinnum unnið
hið svonefnda „Fossavatns-
hlaup“, sem árlega fer fram
á Isafirði og orðið sigurveg-
ari í 10 kílómetra göngu. —
Bróðir hans, Gísli, er afar efni-
legur skíðamaður. Hann vann
Fossavatnshlaupið í vetur, en
þá tók Magnús ekki þátt í því.
I gær varð Gísli þriðji að marki.
Magnús kepti hjer syðra á
fyrsta Thule-mótinu 1937 og
varð þá annar, Jón Þorsteins-
son varð á undan honum.
Þriðji varð Magnús á Thule-
mótinu 1938 og fyrstur á Lands-
mótinu á Siglufirði í fyrravetur.
Núna í vetur kepti hann í inn-
anfjelagskepni Skíðafjelags
Siglufjarðar og varð þriðji. Var
hann svo óheppinn að brjóta
skíði sitt á því móti. Magnús
byrjaði 15—16 ára að iðka
skíðaferðir.
Jeg átti tal við hann í gær
um gönguná. Kvað hann hana
ekki hafa verið erfiða, nema
hvað verst hefði verið að smyrja
rjett. Einnig sagði hann, að víða
hefði verið snjólaust á brautinni
og á einum stað varð hann að
taka það ráð, að stökkva yfir
blett sem var alauður og ekk-
ert nema bert grjót undir.
GÖNGUBRAUTIN.
Kappgangan hófst hjá þjóð-
veginum rjett fyrir ofan Skíða-
skálann. Fyrst var haldið niður
með veginum og síðan suður í
hraunið hjá Meitli. Þá var
beygt til austurs og komið í dal-
verpi og tók þá við flatneskja.
Snúið var við í hrauninu og
gengið í ótal hlykkjum og loks
komið aftur að marki. Voru
ppendurnir þá búnir að
ganga 8—9 km. eða helming
leiðarinnar rúmlega. Frá mark-
inu var haldið í norður upp
brekku þar sem hæðarmismun-
urinn er um 75 metrar og síðan
norður með Hellisskarði og inil
undir Skarðsmýrarfjall. Þar vari
enn snúið við og haldið suðúr
og fram hjá Flengingarbrekku.
Lokaspretturinn 800—1000
metrar lá í stórri beygju rjefct
hjá marki, svo áhorfendur Attú
gott með að fylgjast með k'ðþp-
endum er þeir komu að marki.
Öll leiðin var um 16 kílÓ-
metrar.
Öll var brautin greinilega
merkt með flöggum og grætafift
pappír, sem stungið var riiðúf 4
snjóinn meðfram brautinni. Var
unnið að lagningu brautarinnar
á fimtudagskvöld og síðan geng
FRAMH. Á FJÓRÐU SÍÐU.
í. R. STÖKKBRAUTIN
AÐ KOLVIÐARHÓLI
VlGÐ I DAG
Stökkbraut í. R.-inga að
Kolviðarhóli verður vigð í dag
kl. 4—5. Fyrstu stökkvaramir
verða Siglfirðingar, sem taka
þátt í Thule-skíðamótinu,