Morgunblaðið - 29.04.1939, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 29.04.1939, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 29. apríl 1939. Ódýrir Lcilampar fást í Skermabúöinni Laugaveg: 15. RIMISINS Skafifellingur Meður til Öræfa og Skaftáróss þriðjudaginn 2. rnaí n.k. Tekur einnig flutning til Vík- ur, ef rúnii leyfir. Siómannaljóð: Tvenn Skaoabótaskylda 1 |l|Éi gagnvart bfleiganda 1. verðl. Magnús Stefánsson E.S. Nova fer hjeðan á hádegi þriðjudag- inn 2. maí, samkvæmt áætlun, vestur og norður um land til Bergen. Ilutningi veitt móttaka til kl. 3 í dag. Farseðlar sækist fyrir sama tíma. P. Smith & €o. r i margar nýtísku tegundir. Lítið í gluggana á Lanitave^ 1 Sími 4700. 0 0 80 FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. bætt hjá vátryggingarfjelag- inu, vegna þess, að þegar slysið bar að höndum hafi bílstjórinn, Karl Pjetur, borið ábyrgð á bílnum. — Bygði stefnandi skaðabótakröfu sína á 18. gr. bifreiðalaganna og taldi, að vátryggjandi bílsins væri skyld- ur að greiða þær skaðabætur, sem Hæstirjettur hafði dæmt Karl til að greiða. Undirrjettardómarinn, lög- maðurinn í Rvík, leit hinsvegar öðruvísi á þetta. Hann taldi að í 16. gr. bifreiðalaganna væri tæmandi talið upp hverjir beri ábyrgð á bíl, en það sjeu að eins eigandinn og sá, sem notar bílinn í heimildarleysi. Ákvæði 18. gr. eigi alls ekki við það, að sá sem noti bíl í heimild valdi slysi með bílnum, er sje skaða- bótaskylt skv. almennum skaða bótareglum, beri ábyrgð samkv. sjerreglum bifreiðalaganna, heldur eigi ákvæðið við það, að sá maður beri ábyrgð á skaða- bótaskyldum verkum sínum á venjulegan hátt, þrátt fyrir sjerreglur bifreiðalaganna. Vá- tryggingin sje aðeins gegn þeim skaðabótakröfum, sem þeim, er ábyrgð beri á bílnum sje gert að greiða. Sýknaði því lögmað- ur váttryggingarfjelagið af skaðabótakröfu stefnanda, en ljet málskostnað falla niður. Hæstnrjettur staðfesti þenna dóm. í forsendum dóms Hæsta- rjettar segir: ,,Skyldutrygging samkvæmt 17. gr. laga nr. 70, 1931 verður ekki talin ná til tjóns á eiganda bifreiðar sjálf- um, sbr. 16. gr. sömu laga“. Málskostnaður fyrir Hæsta- rjetti fjell niður, en ríkissjóður greiði málflutningslaun tals- manns áfrýjanda. Garðar Þorsteinsson flutti málið f. h. Sigurbjörgu (áfrýj- anda), en Jón Ásbjörnsson hrm f. h. vátryggingarfjelagsins. 2. verðl. Jón Magnússon Magnús Stefánsson skáld (Örn Arnarson) varð hlutskarpastur í samkepninni, sem sjómanna ráðið efndi til um bestu sjómannaljóð. Fekk hann fyrstu verðlaun (kr. 150), en önnur verðlaun (kr. 50) fekk Jón Magnússon skáld, og eru ljóð beggja prentuð hjer á eftir. Als hárust 42 kvæði. í dómnefnd voru dr. Guðm. Pinnbogason, próf. Sig. Nordal og Geir Sigurðsson skipstj. Sjómannaráðið hefir átveðið að veita 300 króna verðlaun fyrir besta lag við verðlaunakvæðið. í dómnefnd eru: Jón Halldórsson söngstjóri, Árni Kristjánsson píanóleikari og Halldór Jónasson, cand. phil. Hrísgrjóii, Hrfsmjöt, Sigtimjöl. O .Ef þess er óskað þá afgreiðast pappírar til kaupanda beirit frá verksmiðju í Hollandi. Sfig. Þ. Skjaldherg. (HEILDS ALAN). Kvæði Magnúsar Stefánssonar. íslands Hrafnistumenn lifðu tímamót tvenn, þó að töf yrði á framsóknarleið, eftir súðbyrðings för kom hinn seglprúði knör, eftir seglskipið vjelknúin skeið. En þótt tækjum sje breytt, þá er eðlið samt eitt, eins og- ætlunarverkið, er sjómannsins beið. Hvort sem fleytan er smá eða seglprúð að sjá og livort súðin er trje eða stál, hvort sem knýr hana ár eða reiði og rár eða rammaukin vjel yfir ál, — hvert eitt fljótandi skip ber þó farmannsins svip, hann er ferjunnar andi og hafskipsins sál. Hvort ineð heimalands strönd eða langt út í lönd á hann leið yfir ólgandi flóð, gegn um vöku og draum fljettar trygðin þann taum, sem hann tengir við land sitt og þjóð. Þegar hætt reynist för, þegar kröpp reynast kjör, verpur karlmenskan íslenska bjarma á hans slóð. íslands Hrafnistumenn eru hafsæknir enn, ganga hiklaust á orustuvöll út í stormviðrin höst, móti straumþungri röst, yfir stórsjó og holskefluföll, flytja þjóðinni auð sækja barninu brauð, færa björgin í grunn undir ffamtíðaihöll. TiOÐRIÐ EKKI 6IL Slæm smurning veldur orku- ts.pl og bensíneyðslu .... — Ljeleg smurning er bensínþjófur, heldur ekki 'timplunum þjettum, gerir ventlana stirða og sótuga — veldur óþarfa eyðslu og kostnaði. Komið í veg fyrir þetta með því að nota Veedol, „the extra mileage motor oil“ — sem búin er Jtil úr heimsins bestu hráolíu. VESDOL Kvæði Jóns Magnússonar. Sjómenn íslands, hetjur hafsins, halda vörð um land og þjóð. Djörfum sonum fjalls og fjarðar flytur Ægir, töfraljóð. Gnýr og liljómar hafsins átt. Hugi unga aldan þunga dregur út á djúpið blátt. Glampar sjór í sólareldi. Siglir knörr á ystu mið. Daga, nætur stolt að starfi stendur valið kajipalið. Streymir þrek í þreytta hönd. Ljómar háa, hvíta bláa Islands kæra stormaströnd. H'eim að landi hugur flýgur, lieim í kæra vina sveit. Göfugt starf um arð og yndi öllum gefur fyrirlieit. Stendur vörð hin vaska drótt. Ruggar alda kjölnum kalda. Dregur mökk úr djúpi skjótt. Brýtur sjó á breiðum herðum. Beitir knörrinn undir strönd. Himinglæfur háar rísa. Hvar er íslands móðurhönd? Rýkur gráu drifi Dröfn. Gnoð úr voða brims og boða fylgdu, Drottinn, heim í höfn. Engar frjettir bárust í gær frá togurunum, sem eru í fiskileit. Tryggvi gamli hafði, orðið lítils- háttar var, en það hvarf aftur. Þórólfnr símaði ekkert, enda var hann á leið upp að landinn, og Gulltoppur er á leið vestur í Græn landshaf. Súðin fer frá Reykjavík kl. 9 í kvöld í strandferð austur um land til Siglufjarðar. iUGAÐ hvíli«t HIELE með gleraugum frá 1 MOTOR OIL Pergament og: Silkiskermar Mikið úrval. 5kermabúðin Laugaveg: 15. Glerslípun og speglagerð h.f. Ludvig Storr. Við Klapparstíg 16 er einlyft verksmiðjubygging, auðsjá- ánlega þannig bygð, að ætlast er til að bæta við hana fleiri hæðum. Þaðan heyrist ýmiskonar hvinur hverfisteina. Þetta er glerslípun og speglagerð, er Ludvig Storr kaupmaður kom upp fyrir ári síð- an, en hann hefir um alllangt skeið haft mikla glerverslun hjer í bæ. Notkun á gleri við húsbygging- ar og húsgagnagerð evkst með ári hverju. En til þess hægt sje að grípa til glersins í þeim mynd- uin ,sem hver þarf í það og það skiftið, þurfa að .vera áhöld og útbúnaður til þess að skera það og slípa 'og laga í hendi sjer eins og með þarf til hvers eina. Eins og kunnugt er, eru glerhurðir not- aðar mjög í allskonar húsgögn, glerplötur í búðargögn, borðplöt- ur, innan á veggi, í hyllur o. fl. o. fl. En alt verður að sníða þetta til eftir þörfum og slípa brúnir og þessháttar. I sambandi við þessa gleriðju hefir Storr komið upp speglagerð. Til þess að koma henni af stað þurfti hann að gera margvíslegar og erfiðar tilrannir. En nii er þeim lokið. Og nú eru gerðir þarna speglar af öllum stærðum, alt frá vasaspeglum og upp í 3 metra háa spegilfleti. I verksmiðjunni'við Klapparstíg vinna 5 menn að staðaldri. Yerk- smiðjustjórinn er þýskur, M. Perschil að nafni. Hann er lista- maður í sinni grein. Hann slípar alskonar útflúr og skraut í spegil- gler og glervasa með þeirri fimi og hagleik, að ánægjulegt er að sjá hvernig hann vinnur. Ætlast er til að hann kenni hin- um ungu mönnuni sem á verk- stæðinu vinna, svo glerslípunin og speglagerðin geti í framtíðinni að öllu leyti verið unnin af íslensk- um höndum. Liðin eru 7 ár síðan Storr byrj- aði á glerslípun. Fyrst var það aðallega slípun á bílarúðum, sem hann fekst við, þörfin fyrir það mest aðkallandi. En húsgagnasmiðir, bílaviðgerð- armenn og býggingameistarar, sem þurfa á gleri að halda í iðn sinni, finna best til þess hve mikill mun- ur það er fyrir þá, að geta fengið þessa glervinnu hjer, í stað þess að áður þurfti að senda jafnvel smámuni af því tagi til útlanda eða fá það fullunnið þaðan eftir pöntun. Ludvig Storr kaupmaður liefir FRAJVTH. Á SJÖUNDU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.