Morgunblaðið - 16.05.1939, Page 3
Þriðjudagur 16. maí 1939.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Lán§(ilboð Höjgaards & Schulfz
HITAVEITAN FULLGERÐ
FYRIR LOK NÆSTA ÁRS
Lánið endurgreiðist
á 8 fyrstu starfsár-
um fyrirtækisins
BLÖÐUNUM hefir nú verið látið í tje tilboð
firmans Höjgaard & Schultz í Kaupmanna-
höfn um framkvæmd og fjárútvegun til Hita-
veitu Reykjavíkur.
Bæjarráð hefir haft tilboðið til athugunar, síðan Val-
geir Björnsson bæjarverkfræðingur kom heim, en það var
sem kunnugt er hann sem var milligöngumaður bæjarins
við útvegun þessa tilboðs. Sömuleiðis hefir ríkisstjórnin
og stjórn Landsbankans fengið tilboðið til athugunar.
Bæjarstjórnarfundur verður haldinn á morgun og verður tilboðið
lagt þar fram.
Tilboð firmans Ilöjgaard & Schultz er í aðalatriðum þetta:
17 vörutegundir
(ca. 2 90/o af inn-
flutningnum) sett-
ar á frílista
FYRSTA sporið hefir verið stigið til þess að
losa um innflutningshöftin. Viðskiftamála-
ráðuneytið tilkynti í gær að eftirtaldar vörur
hefðu verið settar á „frílista“, þ. e. að innflutningur
þeirra verði leyfður án þess að til þess þurfi sjerstök
innflutningsleyfi, (þótt innflytjendur verði auðvitað að
Uyggja sjer gjaldeyri hjá bönkunum fyrir innflutningn-
um):
9 þús. smálesta
hreskt herskip
kemur i morgun
Breskt herskip, H. M. S.
„Vindictive" kemur hing-
að til Reykjavíkur 17. maí og
dvelur hjer í vikutíma, þar
til 24. maí.
Skip þetta er 9100 smálestir
að stærð og er notað sem
skólaskip fyrir sjóliðsforingja-
efni.
Til samanburðar má geta
um það, að þýska herskipið
„Emden“, sem hjer var ný-
lega, er ekki nema 6 þúsund
smál.
Almenningi verður leyft að
skoða skipið einn dag meðan
það dvelur hjer. Verður á-
kveðið nánar síðar hvaða dag
það verður.
Rúgur, rúgmjöl, hveiti, hveitimjöl, hafragrjón, hrísgrjón,
bankabygg, kol, salt, brensluolíur, smurningsolíur, bensín, hessian,
tómir pokar, prentaðar bækur, blöð, tímarit.
Sje miðað við innflutninginn árið 1937, en sundurliðaðar inn-
flutningsskýrslur eru ekki til yngri, hafa 29% af heildar-
innflutningnum þannig verið sett á frílista. Innflutningurinn nam
það ár kr. 53,3 milj. og þar af voru vörur, sem nú eru settar á
frílista kr. 15—16 milj.
Þessar frílistavörur skiftust þannig (í krónum) :
Rúgur (54,317), rúgmjöl (973,390), hveiti (17,629) hveiti-
mjöl (1,846,203)', hafragrjón (505,508), hrísgrjón (176,088),
bankabygg (21,036), kol (7,014,219), salt (1,530,444), brensluolíur
(1,432,402), smurningsolíur (439,736), bensín (745,350), hessian
(310,927), tómir pokar (332,279), bækur og tímarit (133,864).
Lánstilboðið.
Áætlað er að allur stofnkostn-
aður Hitaveitunnar verði 6.8 milj.
danskar krónur. Býðst firmað Höj -
gaard & Schultz til að framkvæma
verkið og leggja fram fjeð, er
endurgreiðist á fyrstu 8 reksturs-
árum fyrirtækisins.
Br framkvæmd hugsuð þannig,
að bj-rjað verði á þessu ári, en
verkinu að fullu lokið um ára-
mótin 1940—1941. Myndi þá fyrsta
greiðsla af láninu koma á árinu
1941, en síðasta um áramótin 1948
—1949.
Vextir skulu vera *4% yfir
„diskonto“ danska þjóðbankans á
hverjum tíma, þó ekki undir 4)4%
og ekki yfir 5V2%- Ekki þarf að
greiða vexti af allri lánsupphæð-
inni strax, heldur jafnóðum af
upphæðum þeim, sem notaðar eru
til verksins. Þetta sparar mjög
mikla fúlgu, meðan verið er að
koma fyrirtækinu upp.
En auk vaxtanna á að greiða
danska ríkinu 5% affoll.af láns-
upphæðinni (6.8 milj. kr.), eða ca.
340 þús. krónur.
Ilverjir hinir raunverulegu vext
ir verða, er ekki liægt að segja
með vissu. En sje miðað við meða.l-
vexti (milli 4% og 5(4%), þ. e.
5%,; verða raunverulegir vextir
nál. 5.7%.
Kostnaðaráætlunin.
Með tilboði Höjgaard & Schultz
fylgir sundurliðuð áætlun vfir
stofnkostnað Hitaveitunnar. Er
hún í aðalatriðum þessi:
1. Aðalleiðslan frá Reykjum til
geymanna á Öskjiíhlíð, tvöföld
leiðsla þaðan að bænum, vinná við
þessar framkvæmdir, steypurenu-
ur í götum, 5 vatnsgeymar, dælu-
hús og þró, alls d. kr. 2.486.211.50.
2. Stáirör innan bæjar, þenslu-
stvkki, lnkur, dœlur, hreyflar o.
fl„ alls d. kr. 614.000.00.
3. Ýmislegt efni og vinna. með
einingar verði, innanbæjar og ut-
an, alls d. kr. 2 207.000.00.
Knud Höjgaard.
4. Ýmsar framkvæmdir, er bær-
inn annast, svo sem leiðslur í hús-
in, mælar, framhaldsboranir o. fl„
alls d. kr. 750.000.00.
Tekjur Hitaveitunnar.
Svo sem fvr segir er ætlast til,
að lánið greiðist á fyrstu 8 starfs-
árum Ilitavejtunnar. Spurningin
er þá sú, hvort fyrirtækið sjálft,
getur risið undir þessu.
I brjefi bæjarverkfræðings til
bprgarstjóra, þar sem lánstilboðið
ei- skýrt, eru brúttótekjur Ilita-
veitunnar áætlaðar sem hjer segir:
1941 d. kr. 720.000.00
1942 860.000.00
1943 — — 990.000.00
1944 _ 1.130.000.00
1945 —' — 1.270.000.00
1946 1.270.000.00
1947 1.270.000.00
1948 1.270.000.00
Alls d. kr. 8.780.000.00
I áætlun þessari er reiknað með
kolaverði 45 d. ltr. pr. tonn. En
árleg greiðsla af láninu er um
1.040 þús. d. kr. Sje ]>ví litið á
heildartekjur fyrirtækisius 8
fvrstu starfsárin, nægja þær ríf-
lega til þess að greiða lánið upp á
þessu tímabili. En þess ber að
Togsrarnir lenda
I aflahrotu
ð Hornbanka
Frjettir bárus-t um belgina frá
togurum, sem eru að veiðum
vestur á Hornbanka, að þar væri
nú góður afli.
Strax og þessar aflafrjettir
komu var farið að gera ráðstaf-
anir til að senda togarana, sem
búið var að leggja, út á veiðar.
Yar mikið að gera við höfnina í
gær við að setja kol og salt í skip-
in, sem fóru á veiðar.
Togararnir, sem fóru út í gær,
voru: Snorri goði, Arinbjörn hers-
ir, Gulltoppur, Trvggvi gamli og
Baldur.
Hafnarfjarðartogararnir bjugg-
ust einnig allir á veiðar og fóru í
gær vestur.
Fleiri munu far í dag ef sarni
góði aflinn helst vestra.
Skipin, sem voru á Hornbauka
er aflahrotan kom, voru þessi:
Karlsefni, Snrprise, Skutull, Gylfi
og Belgaum. Fengu þeir í fyrri-
nótt alt að 12 pokum frá miðnætti
til kl. 9 í gærmorgun.
Norræn lista-
vika í Stokk-
hólmi
¥ sambandi A7ið norrænu listsýn-
inguna í Svíþjóð í sumar verð
ur sjerstök „list-vika“ í Stokk-
hólmi dagana 15.—22. júní. Ýmsir
þektir listfræðingar frá Svíþjóð,
Danmörku og Finnlaaidi flytja
þarna fyrirlestra um list, sömu-
leiðis nokkrir frægir listamenn.
Meðal ræðumanna verða einn-
ig- mentamálaráðlierra Svía, Art-
hur Engberg og form. Norræna
fjel. överstáthállari Nothin, fyrv.
dómsmálaráðherra. Nokkrir um-
ræðufundir verða á mótinu, söfnin
verða skoðuð og farnar ferðir, m.
a. til Uppsala í boði Norræua fje-
lagsins.
Mót þetta er ætlað listamönn-
um, kennurum og öðrum, sem á-
hdga liafa fyrir listum.
Þeir, sem hug hafa á að taka
þátt í þessu móti eða öðrum mót-
um Norræna fjelagsins, sem háð
verða í sumar, verða að sækja um
þátttöku fyrir 20. maí tib ritara
Norræna fjelagsins í Reykjavík.
Kvennaskólanum verður sagt
upp kl. 2 í dag.
★
Um helgina kom hingað lít-
ið breskt hersekip, „Leda“.
Hefir það verið við fiskiskipa-
eftirlit.
Rafmagnseldavjelar
orðnar á 4. þús.:
Voru árið 1936 að
eins ca. 600
N»kkuð á fjórða þúsund raf-
magnseldavjela eru nú
aðeins hjer í bænum. Fyrir árið
1937 var talið að hjer hafi verið
notkun á heimilum um 600 raf-
magnseldavjelar.
Aukningin hefir aðallega orðið
síðan rafmagnsgjaldskránni var
breytt, gjaldið lækkað, 1. nóv.
1937.
Alt árið 1937 voru settar upp
626 rafmagnseldavjelar, þar af
þriðjungur (219 vjelar) í einum
mánuði, desember.
Árið 1938 voru settar upp
1661 vjel, eða aH-miklu fleiri
vjelar en til voru samtals í bæn-
um í ársbyrjun það sama ár.
I ár er og gert ráð fyrir að
ca. 1000 rafmagnsvjelar verði
settar upp.
Aukningin hefir verið sem
hjer segir:
936 voru rafm.eldav. ca. 600
937 fjölgaði þeim um 626
938 — — — 1661
939 fjölgar þeim væntanl. 10 10
3887
Tveir þriðju hlutar vjelanna,
sem settar hafa verið upp, hafa
verið keyptar upp á afborgun.
Af 1359 vjelum seldust 362 upp
á 12 mán. afborgun, en 997 gegn
24 mán. afborgun.
Langmest hefir selst af Rafha
vjelum (57%) og af Siemens-
vjelum (23%). Engin hinna vjel
anna fer yfir 4%.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU