Morgunblaðið - 25.05.1939, Side 2

Morgunblaðið - 25.05.1939, Side 2
2 M ^RGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 25. maí 1939. Stjórnarskrárbreyt- ingin í Danmörku feld Þingrof og nýjar kosningar í vændum Christmas Möller segir af sjer flokksforustu íhaldsflokksins Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. Þjóðaratkvæðagreiðslan í Danmörku um stjórnar- skrána nýju fór þannig, að ekki fengust nægj- anlega mörg atkvæði með stjórnarskránni. Alls greiddu 966.037 atkvæði með stjórnarskránni. 85.401 sögðu nei, en 1.121.982 greiddu ekki atkvæði. Með stjórnarskránni greiddu því 44,4% þeirra, er voru á kjörskrá atkvæði, en til þess að hin nýja stjórnarskrá Dana hlyti staðfestingu, þurfti hún að fá 978.039 atkv. eða 45% allra atkvæða. Talið er að þessi úrslit megi frek- ar kenna því hve almenningur er á móti þjóðaratkvæða- greiðslu, heldur en hinu, að þjóðin sje á móti hinni nýju stjómarskrá. tJrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar mun hafa það í för með sjer, að þing verður rofið og efnt til nýrra kosninga í haust. Formaður Ihaldsflokksins danska, Christmas Möller, hefir sagt af sjer formensku fyrir flokkinn. Hafði hann barist ötulllega fyrir því að stjórnarfrumvarpið næði fram að ganga. Christ- mas Möller hefir um margra ára skeið verið formaður íhalds- flokksins. Ríkisjárnbrautirnar dönsku hafa látið setja kvikmyndatæki, til að sýna kvikmyndir með í nokkra járnbrautarvagna, og er ætlast til þess að farþegar með dönsku járnbrautunum geti eftirleiðis skemt sjer við að horfa á kvikmyndir, meðan þeir eru á ferðalagi. — Myndirnar eru af kvikmyndasal í járnbraut arvagni og vagninum að utan. Samkomuiag í grundvallar- atriðum milli Breta og Rússa Lohdon í gær. FTT. Viðræður þeirra Halifax lávarðar, Bonnets utan- ríkismálaráðherra Frakka og Maiskys sendi- herra Rússa í London, sem fram fóru í Genf, hafa borið þann árangur, að samkomulag um grundvallar- atriði hefír náðst milli stjórna Bretlands og Sovjet-Rúss- lands. Mr. Chamberlain forsætisráðherra tilkynti þetta í neðri málsstofunni í dag, og gaf hann stutta yfirlýsingu um samkomu- lagsumleitanirnar í Genf og þennan árangur þeirra. Það hefir komið mönnum yfir leitt mjög á óvart, að þjóðarat- kvæðagreiðslan skyldi hafa far ið á þessa leið, þar sem lögin höfðu verið samþykt bæði í fólksþingjinu og landsþinginu með atkvæðum þingmanna úr þremur stærstu stjórnmálaflokk um landsins, jafnaðarmanna-, radíkala og íhaldsmanna. ENGAR BREYTINGAR Á DÖNSKU STJÖRNINNI Ekki er búist við, að neinar breytingar verði gerðar á dönsku ríkisstjórninni, þrátt fyr ir þessi málalok, sjerstaklega þar sem í síðustu kosningum var eingöngu kosið um stjórnar- skrárbreytinguna. — Ráðherra-* fundur kemur saman, þegar bú-i ið er að telja atkvæðin á ný. Við fyrstu talningu atkvæða voru 12000 atkvæði úrskurðuð ógild, þar á meðal voru mörg atkvæði, sem ef til vill verða skoðuð sem gild já atkvæði við síðari talningu, en það eru atkvæði, sem kjósendur hafa skrifað „já“ á atkvæðaseðilinn í staðinn fyrir kross. Ólíklegt er þó talið, að seinni talning at- kvæða breyti úrslitunum. ÚR SÖGUNNI Dómar blaðanna í Danmörku um þjóðaratkvæðagreiðsluna eru afar misjafnir. Málgagn jafnaðarmanna í Árósum sting- ur upp á því, að þjóðaratkvæða- greiðsla verði látin fara fram á ný í haust og færir þau rök að tillögu sinni, að tilviljunin ein hafi ráðið um, hvernig at- kvæðagreiðslunni lauk. Önnur blöð, þar á meðal Kaupmannahafnarblöðin Póli- tiken og Nationaltidende telja að stjórnarskrárbreytingin sje hjer með úr sögunni fyrst uni sinn. Höfuðblað jafnabarmanna, Social-Demokraten í Kaup- mannahöfn, segir (skv. FÚ) um' niðurstöðuna, að hún sýni það . eitt, að fólkið í landinu óski eftir lýðræðisfyrirkomulagi. Höfuðmálgagn íhaldsflokks-1 ins, Berlingske Tidende, segir, að með þessu sje baráttunni um stjórnarskrármálið lokið í Dah- mörku, og sje það einungis til góðs fyrir landið. ÚRSLIT í EINSTÖKUM LANDSHLUTUM Samkvæmt frjett frá sendi- herra Dana hjer í bæ urðu úr- slit í einstökum landshlutum þessi: Á Færeyjum greiddu 8,9% atkvæði með stjórnar- skrárbreytingunni, á -Jótlandi 33%, á eyjunum 46% og í Kaupmannahöfn sjálfri 63,8%. KRÓNPRINSHJÓNUNUM ÞÖKKUÐ AMERÍKU FERÐIN Sendinefndir og fulltrúar frá helstu stofnunum og fje- lögum í Danmörku hafa farið á fund krónprinshjónanna, eftir að þau komu úr Ameríkuferð sinni og afhent þeim skjal, þar sem krónprinshjónunum er þakkað fyrir hina framúrskar- andi góðu framkomu þeirra sem fulltrúa fyrir Danmörku og ís- I land. (Sendiherrafrjett). Amerfskur kaf- bátur hjðlpar- laus á hafs- botni 26 manns íarast: von um að þeim sem eftir liía verði bjargað London í gær. FÚ. aust eftir hádegi í dag voru kafarar komnir nið ur að kafbátnum ameríska, sem sökk undan strönd New Hams- hire í Bandaríkjunum í gær með 56 manna áhöfn og 3 farþeg- um. Kafararnir og kafbátsmenn- irnir töluðust við með merkj- um, og að þeim viðræðum lokn- tim kom það í ljós, að 26 menn af kafbátnum druknuðu, þegar hann sökk og sjór flæddi inn i í tundurskeytabyrgið. Kafbátsmennirnir hafa hvorki ljós eða ráforku. Níu björgunarskip eru komin á vett vang, og kafarar frá einu björg unarskipinu eru síðdegis í dag að vinna að því að koma niður loftheldu byrgi til björgunar. Kafbátsmennirnir eiga að hafa nægilegt súrefni í nokkra daga Seinasta Lundúnafregn segir, að köfurunum hafi tek- ist að festa taugar við kafbát- inn, og sje verið að byrja að draga hið lofthelda byrgi, sem á að verða mönnunum til bjarg- ar, niður að kafbátnum. SJÖ MANNS BJARGAÐ Síðustu fregnir af starfinu við björgun ameríska kafbáts- ins herma, að búið sje að bjarga sjö af kafbátsmönnum. Um ger- völl Bandaríkin bíða menn með j óþreyju frekari fregna af björg unarstarfinu. Maður hverfur á Akureyri Tj^ rjettaritari vor á Akureyri símar í gær, að s.l. sunnu- dag hafi maður horfið á Akur-. eyri og hefir ekkert spurst til hans síðan. Maður þessi hjet Tryggvi Guðmundsson, ekkjumaður, og nokkuð við aldur. Síðast sást Tryggvi út á Odd- eyrartanga. Fanst þar fyrir framan mannlaus bátur á reki. 3 fangelsisdómar 20 dagar fyrir rangar sakargiftir. — 3 mán- uðir fyrir skjalafals. — 30 dagar fyrir þjófnað. Lögreglustjóri kvað í gær upp dóma í þremur málum, Voru tveir kvemrenn og einn karlmað- ur dæmd í fangelsi. Stúlka ein var dæmd í 20 daga fangelsi fyrir rangar sakargiftir. Hafði hún borið á mann einn að hann hefði rænt frá henni 10 krónum í peningum. Við yfirheyrsl ur kom í Ijós að þetta voru ó- sannindi. Stúlkan gaf þá skýringu á fram- komu sinni, að hún hefði ætlað að hefna sín á manninum, sem húu kærði vegna þess að sá maður hefði barið vin hennar! ★ Maður nokltur var dæmdur í 3 mánaða fangelsi fyrir skjalafals. Hann hafði tekið út kaup annars manns og falsað kvittun fyrir kaupinu. Hr Loks var kona ein dæmd í 30 daga fangelsi fyrir þjófnað. Hún hafði stolið peningum og gull- hring. Chamberlain sagði, að alt, sem vafa var bundið, hefði ver- ið rækilega skýrt í umræðum þessum, og kvaðst hann hafa alla ástæðu til að yona, að fulln aðarsamkomulag myndi nást bráðlega milli bresku stjórnar- innar og sovjetstjórnarinnar, þó að enn væru nokkur atriði, sem ræða þyrfti frekar. Kvaðst hann þeirrar trúar, að engir alvarlegir erfiðleikar myndu koma til sögunng,r úr þessu. Fyrirspurn frá Attlee, leiðtoga jafnaðarmanna, sem mæltist til þess, að forsætisráð- herrann gæfi frekari upplýsing ár, svaraði Chamberlain á þá leið, að eins og hann hefði þeg ar tekið fram, væru nokkur atr iði, sem þyrftu frekari meðferð-f ar, og væri því ef til vill betra að bíða þar til þingið kæmi sam an aftur eftir hvítasunnuhlje. Kvaðst hann vona, að hann gæti þá gefið fullnaðarupplýsingar um árangurinn. Við atkvæðagreiðsluna um Palestínu-málin, sem fór fram í neðri málsstofu breska þings- "ins í gærkvöldi, hefði ríkisstjórn in aðeins 89 atkvæða meiri hluta. Churchill 0g 19 aðrar fiokksmenn stjórnarinnar greiddu atkvæði á móti henni, en blöðin segja, að á annað hundrað þingmanna, þeirra er viðstaddir voru, hafi ekki greitt atkvæði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.