Morgunblaðið - 14.07.1939, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.07.1939, Blaðsíða 2
2 M 0 R,G UNBJjAÐI Ð Föstudagur 14. júlí 1939. Gengur nii saman í Moskva? Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. keyti til „The Times“ ' frá Moskva hermir: Horfur eru á að innan skamms muni ganga sam- an í samningum Breta Frakka og Rússa um þrí- veldabandalag. í hvert skifti sem samn- inganefndimar hafa ræðst við hefir tilhögun og fyrir- komulag bandalagsins skírst. Ágreiningsatriðin eru stöðugt að verða færri. Næsta samningsáhlaup Breta og Frakka getur e. t. v. ráðið úrslitum. Næstu dagar I Reuterskeyti segir, að breska st jómin hafi sent ný fyrirmæli til sendiherra síns í Moskva, Sir William Seeds. I London, er þess vænst, að Molotoff muni á morgun eða næstu daga i boða sendiherra Frakk- lands og Bretlands í Moskva á fund sinn. Þjóðverjar reyna að >vera á undan Frjettaritari franska blaðsins ,,Figaro“ í Berlín símar blaði sínu, að Þýska- land muni innan skamms senda verslunarmálanefnd til Moskva. Mun nefnd þessi bjóða Rússum upp á 75 miljóna sterlingspunda viðskiptalán til tveggja ára. Danzig London í gær F.Ú. Frá Danzig berast fregnir um það, að smygl á vopnum og hergögnum frá Þýskalandi til fríríkisins færist í aukana á ný. i Albert Förster, leiðtogi naz- ista í Danzig, er nú kominn í heimsókn til Þýskalands. ts / * * * Lúðrasveitin kemur !W • annað kvöld Lúðrasveit Reykjavíkur er nú komin til Akureyrar á hring- ferðalagi sínu um lanclið. I gær spilaði hún á Kristneshæli fyrir sjúklingána. í gærkvöldi ljek Lúðrasveitin á Akureyri og í dag verður hún á Sauðárkróki og Blönduósi. Lúðrasveitin kemur • heim með Fagranesinu annað kvöld. Bretar undirbúa langflug til Póllands og Italíu Hlutleysi Dana rofið ef farið verður yfir Danmörku Þjóðverjar segjast eiga öflugasta flugflotann Frá frjettaritara vorum. ~~ ' Khöfn í gær. ÞAÐ er búist við að Danir kunnl að komast í örðuga stórpólitíska aðstöðu ef ' Bretar láta verða af þeirri fyrirætlan sinni, að senda sprengjuflugvjelar í hópflug til Póllapds. Þetta flug er tæplega hugsanlegt nema að flógið sje yfir Danmörku. Þýsk blöð segja að með því myndu Bret- ar gerast brotlegir við yfirlýst hlutleysi Dana, því að þau gera ekki ráð fyrir að Danir léyfi flug yfir land þeirra- Hið fyrirhugaða flug til Póllands hefir vakið mikla athygli og gremju í Þýskalandi. Þýsk blöð segja, að tilætlun Breta með ^ þessu flugi sje að hræða Þjóðverja. En þetta er þýðingarlaust, segja þau. Þjóðverjar vita, að þeir eiga öflugasta flugflota í heimi. Yfirleitt gefa þýsk blöð' i skyn, að Póllandsflugið kunni að leiða til margvíslegra vand- ræða. v 1 ÞRIGGJA ÞIJS. KÍLÓMETRA FLUG En það er nú að koma í ljós, að flugHbresku sprengjuflug- vjelanna um Frakkland í fyrradag vár aðéins upphafið að rnarg- falt stórfeldari flugæfingum. Meðal annars er verið að undirbúa að 200 sprengjuflugvjelar búnar öllum vopnum, eins og í hern- aði væri, fljúgi reynslu- eða „sýningar“-flug til landamseiiá Frakklands og ítalíu og til Italíustranda. I flugflota þessum verður 1000 manná áhöfn, þar af 300 flugstjórar. Er gert ráð fyrir, að flugvjelarnar fárí báðar lefðir án þess að nema staðar. Er það þriggja þúsund kílómetra flug. Síðar er gert ráð fyrir æf- ingaflugum í Frakklandi, til þess að breskir flugmenn geti kynst frönskum flugvöllum. ÞJÓDVERJAR HRIFNIR. London í gær F.Ú. Grein um styrk breska loft- flotans birtist nýlega í þýska tímaritinu „Adler“, og ber greinin vitni um það, að Þjóð- verjar hafa mjög mikið álit á hinum bresku hernaðarflugvjel- um. Þar er sagt, að Bretar eigl nú 2000 fyrsta flokks hernaðar*- flugvjelar, sem sjeu reglulega góðar. 1 greininni er rætt um nauð- syn Breta á því, að koma heild- arskipulagi á loftvarnir sínah, þar sem mörg löndin innan breska hein^eldisins hafi mjög fáment varnarlið og sjeu al- gerlega upp á England komin um landvarnir. Breski flotinn líka við búinn London í gær. FU. Mr. Chamberlain tilkynti í dag að 12.000 varaliðsmenn breska flotans, þar á meðal upp- gjafaflotaforingjar, verði kallaðir til að taka þátt í sameiginlegum heræfingum flota og flughers, sem fram eiga, að fara í ágúst og september. Þessi varafloti mun nema 50 skipum Yaraliðsmenn þessir verða að mæta hver á síuum aðalstöðvum þann 31. júlí,, og y^rður Jiverjum og einum -gepd sjerstöik -skipun um. að koma tib þjónustu. Mr. Chajnbeylain tilkynti sam- tímis, að konungur myndi skoðá flotann 9. ágúst, og myndi í flot frá stærstu onystuskjpum. ■ An TF-SUX fór í póstflug til Horna fjarðar í gærmorgun og kom hing- , - „ , * a5 aftur kl. «*. JM flugvjelinni jí“m' fór austur farþcgi, Jón ívarsson “f « #«■» alt alþingismaður, og í suðurleið tók flugvjelin farþega frá Hornafirði til Fagurhólsmýrar og frá Fagur-' hólsmýri að Hellum í Rangárvalla- sýslu, var það maðnr á úíræðis- aldri. Er þetta í annað sinn,- sem gamli maðurinn notar' flugvjel til ferðalags og viíi haíin hélfit ékki ferðast öðruvísi. FlugmaðUr var Björn Eiríksson. Björn flaug síð- an, nokkur hringflug yfir bæiiín í gærkvöldi með farþega. ■ií f vjrrgroi ? y- Ársskýrsla Rauða Kross fslands 1939’ er komin út. í skýrslunni er gerð grein fyrir störfum fjelags- ins á s.l. ári. þar er m. a. sagt frá því að á árinu fluttu sjúkra- bílar R. í. alls 1284 sjúklinga, þar áf 10 ’ slasaða menn. Flestir vóru flutningarnir innanhæjar, eða aíls 1186. Grandi á götu í London. „Grandi greifi þekkir England“ L°úóon í gær. FÚ. Lurdúnablaðið „Times“ ræðir í dag um skipun Grandis greifa í dómsmálaráðlierraembætt- ið á ftalíu og segir, að þess sje væiqst, að brottför hans frá Lond- on og embættistaka hans heima á Ítalíu muni ekki að öllu leyti þýða skaða fyrir England. Blaðið minnist á þá aðferð, sem notuð sje í sumum löndum, að varna þjóðinni að vita hið sanna um aðrar þjóðir, og heldur á- fram : „Grandi þekkir oss að minsta kosti. Hann veit, að við notum ekki helgar vorar til þess að æða I fram og aftur og í hring, rífa hár vort og klæðí eða fremja aðr- ar slíkar móðursýkisathafnir, eins og sagt er, að framdar sjeu í sum- um löndum". * „Hann mun skilja hina stilli- legu ákvörðun bresku þjóðarinnar um það, að koma sjer upp stefk- um her, hversu ógjarnan sem hún annars tekst það verk á hendur“. Engin tilkynning. Það var tilkynt í Rómaborg í gærkvoldi, að eitt af fýrstu verk- um Grandi greifa, sem dómsinála- ráðherra Italíu, yrði að stjórna bróttflutningi allra útlendra manna frá Súður-Tyrol. Grandi, sein áður hefir verið sendiherra í London, fór þaðan fyrir hálfum mánuði í sumarleyfi, Ög hefir breska stjórnin ekki enn- þá fengið aðra vitneskju um það, að hann væri látinn af sendiherra- störfum sínum í London, en blaða- fregnir. Horfur versna I Austur-Asfu Londön í gær F.LT Horfur í Austur-Asíu hafa skyndilega versnað við það, að japanska stjórnin hefir fallist á öfgakröfur japönsku herforingjanna. Felst stjórnin í dag í heild sinni á stefnu þá, cem hermálaráðuneytið og utan- ríkismálaráðuneytið höfðu tek- ið í samningunum við Breta. Þetta er að. skilja á þá leið, að Japatiar muni krefjast þess af Bretum, að þeir hætti að styðja stjórn Chang Kai Sheks og sýni einlægni sína með því að vinna með Japönum*, bæði á stjórnmálalegum og fjárhags- iegum sviðum, jafnframt því sem þeir taki ábyrgð á, að ekk- ert það gerist innan breska for- rj ettindasvæðisins í Tientsin, sem Japönum geti verið fjand- samlegt. „GEFUM BRETUM Á HANN“. Miklar hópgöngur og.fundir fóru fram í Japan í dag, og einkum í Tokio, til þess að láta í ljósi fjandskap við Englend- inga. Báru kröfugöngumenn spjöld, er á voru rituð ýms víg- orð á þessa leið: „Gefðu Eng- landi á hann“, „Niður með Bretland; erkif jandann, sem stendur á bak við Chang Kai Shek“. B.v. Karlsefni kom af veíðúm í gær með 1850 körfur. Skipið fór í gær álðiðis til Englands með aflann. Bindindismála- fundur í Gaul- verjabæ Asunnudaginn kemur fer fram minningarguðsþjón- usta í Gaulverjabæjarkirkju í tilefni af 100 ára afmæli síra Páls Sigurðssonar. Prjedikar þar herra biskupinn Sigurgeir Sigurðsson. Á eftir gengst stúkan Fram- tíðin í Reykjavík fyrir bindind- ismálafundi þar á staðnum í sambandi við stúkuna Samtíð- in og talar biskup þar líka. Er þar öllum heimill aðgangur, hvort sem þeir eru í Reglunni eða eigi. Söngkór Templara í Reykjavík skemtir með söng, og ýmsir ræðumenn verða þar. Þess er vænst, að fjelagar úr stúkunum í Árnessýslu fjöl- menni á fundinn, og eflaust verður þar margt annara gesta. Reykvíkingar, sem fara á fundinn, leggja á stað frá Góð- templarahúsinu kl. 11, en far- miðar eru afhentir þar í dag kl. 3—9 síðd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.