Morgunblaðið - 24.08.1939, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAöIÐ
Fimtudagur 24. ágúst 1939.
Jórsalaförin
MEÐ ELDFLUGU TIL
TUNGLSINS
PEAMH. AF FIMTU SÍÐU.
Ur geti komist út í geiminn á
„skrefa-eldflugu“. Það er heilt
kerfi af eldflugum og dregur hver
aðra, en þegar sú fyrsta er út-
brunnin hrapar hún, en spreng-
ingarnar halda áfram í þeirri
úæstu og þannig koll af kolli. Ef
byrjað væri með 22 eldflugum,
sem samtals væru 225 kg. á þyngd,
mundi síðasta flugan komast til
tunglsins og sprengingin í henni
sjást neðan frá jörðinni, sam-
kvæmt því sem Goddard reiknast
tfl.
Aðrir reiknimeistarar, í Frakk-
landi og Þýskalandi, hafa kom-
ist lengra. Þeir láta sjer ekki
nægja að komast til tunglsins,
heldur vilja þeir nota það sem
áfangastað, en gera út ferðir til
Mars.
En svo að maður haldi sjer við
jörðina: Margir hafa þá trú,
að eldflugan verði framtíðar sam-
göngutækið mflli heimsálf anna.
Vísíiidamennirnir þykjast hafa
komist að þeirri niðurstöðu, að
aldrei takist að gera flugvjelar,
sem fara hraðar en 1120 km. á
klukkustund, eða álíka hratt og
hljóðið berst. En eldflugunni verð
ur hægt að skjóta á ská upp í
1500 kílómetra hæð, þar sem loft-
ið er svo þunt, og þar getur hún
borist áfram með 5000 km. hraða
á klukkustund. Slíkt farartæki
yrði líkt risavaxinni byssukúlu,
er væri knúð áfram af gasi, er
sífelt spýttist aftur úr henni.
Goddard hefir tekið einkaleyfi
á einskonar samblandi af eld-
flugu og flugvjel, en ekki smíðað
hana ennþá. Kallar hann þessa
v-jel „turbin-rakettu“. Hún er
kmið áfram með gasmótor meðan
hún er að komast upp í háloftin,
en þegar þangað er komið, á gas-
rensli eldflugunnar að reka hana.
Það verður varla í bráð, sem
þesskonar vjelar fá hagnýta þýð-
ingu, en Goddard fullyrðir samt,
að sá tími muni koma. Ilann seg-
ist hafa sigrast á ýmsum agnúum,
sem hver fyrir sig hefðu gert eld-
flugurnar ónothæfar, En hann
telur nauðsynlegra að endurbæta
eldfluguna svo, að hún geti kom-
ist hærra en nokkur flugvjel, held
ur en að búa til vjel, sem ryðji
hraðametum flugvjelanna.
^Farþegaflugvjelarnar fara nú
að nálgast 500 kílómetra hraða á
klukkustund, svo að manni mætti
finnast, að öllum kröfum til að
Ifomast fljótt um veröldina væri
fúllnægt í bili. En mikið vill alt-
af meira. Þeir menn eru til, sem
halda því fram, að öld hraðans
sje aðeins að byrja, og að lienni
Ijúki ekki fyr en allar fjarlægð-
ir í tíma eru svo að segja horfn-
ar lir veröldinni.
Bíll
fer til Grundarfjarðar sunnudag-
inn 27. þ. m. Nokkur sæti laus.
Bæjarbílstöðin,
Sími 1395.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU,
leið okkar um Palestínu, því að
landið er beinlínis í hernaðará-
standi og yrði alvarlegt stríð milli
Araba og Gyðinga ef Englending-
ar skærust ekki í leikinn. Hvað
eftir annað vorum við stöðvaðir
af hermönnum, og fyrir okkur
brýnt, að hættulegt væri að ferð-
ast í landinu. Yið gætum átt von
á því að á okkur yrði ráðist hve-
nær sem væri, eins og margt annað
fólk, sem hefði verið skotið niður
alsaklaust.
Fyrir okkur var mest hætta á,
að Arabar tækju okkur fyrir Gyð-
inga og þá var voðinn vís. Hinar
tíðu sprengjur voru líka ægilegar.
Dæmi vissi jeg til að sprengju var
komið fyrir hjá barnaskóla, er
börnin áttu að koma í skólann, og
það var altítt, að reynt væri að
sprengja almenningsvagna í loft
upp.
Yið mistum af því að sjá ýmis-
legt vegna hinna miklu óeirða í
landinu. En þrátfc fyrir alt höfð-
um við af að sjá flest markvert,
sem við höfðum hug á. En Jerú-
salem var raunalegur bær. Skemt-
anir urðum við lítið varir við. Og
blöðin voru ófriðleg.
JERÚSALEM.
Það merkilegasta sem við sáum
í Jerúsalem, og þýðingarmesta í
allri ferðinni, fanst mjer Grafar-
kirkjan, sem bygð er yfir Gol-
gata og gröf Krists. Urðum við
að sækja um sjerstakt leyfi borg-
arstjórans, til þes sað komast á
þann helga stað, því að bannað er
að sýna hann ferðafólki um þess-
ar mundir. yið komum og á via
doloris, og í Getsemanegarðinn, í
vesturhlið Olíufjallsins.
Það er hátíðlegt að koma á slíka
helga staði, segir prófessorinn,
Sagan verður lifandi fyrir manni
og minningarnar dýrmætar alla
ævi.
Uppi á Olíufjallinu er kapella
í hringmynduðum garði. Þar er
marmarahella með spori, sem sagt
er að sje eftir fót Ki’ists.
BETLEHEM.
I Betlehem skoðuðum við m. a.
fæðingarkirkjuna og úr ánni
Jordan, sem hulin er í trjágróðri,
fengum við okkur vatn, þar sem
Kristur á að hafa verið skírður.
Við Dauðahafið er hitabeltis-
gróður og þar var mikill hiti. Á
ferðalaginu kom það stundum fyr-
ir, að við urðum lasnir af hita, en
það var ekki oft.
Frá Jerúsalem fórum við 11.
júlí til Nazaret, um Samarin, Silo
og Sike, segir prófessorinn enn-
fremur. Einu sinni gengum við á
Taborfjall og sáum við þaðan
glitta á hið langþráða Generaset-
vatn.
En frá Nazaret fórum við eftir
fjóra dag, en höfðum þaðan farið
um marga fræga sögustaði.
Þorpið Tapgha, niður við Gen-
erasetvatnið, er yndislegt.
Þann 19. júlí fórum við frá
Tapgha og var ferðinni heitið til
Haifa. Ferðnðumst við í bílum
með grindum fvrir, til þess að
forðast sprengjur.
í þessari aðalborg Gyðinga
reyndum við að fá að sjá það
merkilegasta, en hjeldum þaðan
þann 21. júlí, í bíl, norður með
ströndinni, fram hjá Tyrus og
gegn um Sydon, og skoðuðum þær
frægu systraborgir. En hjeldum
síðan alla leið til Bairuth, sem er
höfuðborgin í Sýrlandi.
í Bairuth vorum, við svo hepnir,
að ná í skip, sem sigldi meðfram
strandlengjunni til Haifa.
En að kvöldi dags hinn 26. júlí
lögðum við úr höfn Haifa með
ítalska skipinu ,,Galilea“ og íór-
um skemstu leið til Brindisi á ít-
alíu.
Til Triest komum við 31. júlí
og sama dag til Feneyja, hinnar
dásamlegu borgar. Þaðan fórum
við eftir tveggja daga dvöl tfl
Múnchen og þaðan til Berlín. Loks
hjeldum við svo til Kaupmanna-
hafnar frá Þýskalandi og komum
þangað sunnudaginn 6. ágúst.
Eftir það er lítið í frásögur fær-
andi, segir próf. Ásmundur Guð-
mundsson að lokum. Próf. Magnús
Jónsson fór með „Konprins 01av“
til Noregs, en eg silgdi með Gull-
fossi heim til fslands 16. ágúst.
Höfum við í hyggju að skrifa
langa ferðasögu, þar sem við er-
um fyrstir íslenskra prófessora,
sem styrktir eru af sáttmálasjóði
til Jórsalafarar.
Þetta er lang merkilegasta ferða
lag mitt á ævinni, sem mikla þýð-
ingu mun hafa fyrir líf mitt og
starf. Og eftir það finst mjer jeg
'eiga tvö lönd — Island og Landið
helga.
SIR ROBERT
VANSITTART
ann er eigi aðeins ráðgjafi
bresku stjórnarinnar í
utanríkismálum. Hann er líka
skáld og rithöfundur. Hann hef-
ir gefið út Ijóðabækur eftir
sig, svo sem ,,Foolery“ og „The
singing Caravane“. Og nú ný-
skeð var byrjað að sýna leikrit
eftir hann í London. Það heitir
„Dead heat“, og í formála hef-
ir hann gert grein fyrir því,
hvaða skoðanir það eigi að
túlka. Hann segir, að bæði menn
og konur baki sjer mikið amstur
og gremju með því að gera of
mikið úr tilfinningum sínum og
æsa sig upþ. Vjer ættum held-
ur segir hann, að þroska vora
meðfæddu, syndandi rósemi, og
vofn „skemtilega skort á eldi“.
Ef vjer gerðum það, inundi ver-
öldin vera laus við vitfirring ó-
friðar, og einstakir menn lausir
við harðstjórn ástarinnar.
Hann hefir fengið mjög harða
dóma fyrir þetta leikrit sitt.
Menn segja að þama sje lif-
andi lýst utanríkispólitík Breta,
sem leggi stund á að þroska sína
með fæddu, syndandi rósemi,
þegar hvorki hafi skort á áræói
nje eld hinum megin. Mr. W. A.
Darlington, gagnrýnandi „Daily
Telegraph“ segir að ef eitthvað
eigi að ganga þá dugi ekki
„dead heats“ heldur brennandi
áhugaeldur, en það sje auðsjeð
að Sir Robert Vansittart hafi
breytt eftir sínum eigin kenn-
ingum.
Erlendar
fregnir
Þýsk flugvjel
skotin niður
af Pólverjum
í nýkominni frjett frá þýskri
frjettastofu segir, að Pólverj-
ir hafi skotið niður þýska flug-
vjel með loftvarnabyssum. í
fregninni eru Pólverjar sakaðir
um að vera að reyna að egna
upp' Þjóðvérja með slíku at-
hæfi.
Þýsku blöðin halda áfram
að birta fregnir um ofsóknir í
garð Þjóðverja í Póllandi.
í fregnum frá Varsjá er sagt
frá árekstri, sem orðið hafi á
landamærum Póllands og Aust-
ur-Prússlands. Segir í fregninni,
að þrír þýskir hermenn hafi
elt liðhlaupa 7 yfir landamærin.
Pólskir landamæraverðir komu
á vettvang og skipuðu hinum
þýsku hermönnum að hverfa
aftur yfir landamærin, en þeir
neituðu því, og skiptust síðan
Pólverjarnir og Þjóðverjarnir
á skotum. Einn hinna þýsku
hermanna særðist. (FÚ).
Sendinefndirnar
f Moskva hafa frí
Hermálafulltrúar Breta og
Frakka komu tvisvar saman á
fund í gær. Hvorki í gær né í
dag hafa farið fram viðræður
milli þeirra og rússnesku her-
málafulltrúanna. Hinir bresku
og frönsku fulltrúar skoðuðu
Moskvaborg í dag, og voru sum-
ir hinna rússnesku heriválasér-
fræðinga í fylgd með þeim.
(FÚ)
Flugbann við landa-
mæri Póllands
Tilkynt hefir verið í Berlín,
að bannaðar sjeu allar flug-
ferðir annarra en flugmanna
hersins um tvö tiltekin allstór
svæði. Er bannaö að fljúga yf-
ir svæði þessi frá kl. 6 í kvöld
til kl. 8 á laugardagskvöld. Er
annað þetta svæði alt Austur-
Prússland, og gildir flugbannið
þar til á sunnudagskvöld. Hitt'
svæðið nær alt frá suðurlanda-
mærum Austurríkis til Eystra-1
salts og felur í sjer landhelgina
við strendur Þýskalands þar.
(FÚ)
Eystrasaltsríkin
hafa ekkert að ótíast
í þýskum og ítölskum blöð-
um er lögð mikil stund á að
leiða athygli að því, að fregn-
irnar um hlutleysissamninginn
hafi valdið hinu mesta óðagoti
og hræðslu í lýðræðisríkjunum.
Þýsku blöðin lýsa yfir því, að
Eystrasaltsríkin hafi ekkert að
óttast. Itölsku blöðin segja, að
yfirlýsingar Breta og Frakka
sjeu ómerkilegir pappírsmiðar.
Blöð einræðisríkjanna neita
því, að það sje í ósamræmi við
andkommúnistíska bandalagið,
að Þjóðverjar og Rússar geri
með sjer hlutleysissamning, því
að sáttmálinn sé óviðkomandi
ríkjandi stjórnmálastefnum og
innanlandsfyrirkomulagi í hlut-
aðeigandi ríkjum.
Smáþjóðirnar hræddar
Frá Finnlandi koma fregnir
um það, að þar í landi sjeu
menn áhyggjufullir út af hlut-
leysissamningi Þjóðverja og
Rússa. Óttast Finnar, að Þjóð-
verjar sjeu með sámningi þess-
um að gefa Rússum frjálsar
hendur gagnvart Finnlandi.
(FÚ).
I Ungverjalandi, Rúmeníu og
Júgóslavíu hefir fregnin um
fyrirhugaðan hlutleysissamning
Þjóðverja og Rússa vakið skelf-
ingu. (NRP).
Ráðstefna
Oslóríkjanna
I Brússel var í dag haldinn.
fundur á ráðstefnu Oslóveld-
anna. í fundarhljei settu full-
trúarnir sig í samband við ríki
isstjórnir sínar. Búist var við
því, að samþykt myndi verða-
siðar í dag yfirlýsing og áskor-
un um varðveislu friðarins. Leo-
pold Belgíukonungur flytur út-
varpsávarp í kvöld og gerir
grein fyrir ákvörðunum ráð-
stefnunnar. (FÚ).
Svissland hafnaði þátttöku í
fundi Óslóríkjanna í BrússeL
Fundurinn var settur í morgun
og verður að líkindum lokið í
kvöld. Búist er við, að samþykt
verði áskorun til allra þjóða um
að varðveita friðinn. — Koht
utanríkismálaráðherra er vænt-
anlegur aftur til Osló annað
kvöld. (NRP).
1 Stórviðburðir
í vændum
í Rómaborg gengur orðróm-
ur um, að stórviðburðir sjeu £
vændum. (F.Ú.).
%
Fornleifafundur
Osló 23. ágúst F.B.
Um það 1 km. fyrir vestan
Grinde í Roysen hefir fundist.
steinhrúga rhikil, einkennilega
hlaðin. Við nánari athuganir
kom í ljós, að þar undir var
gröf lögð hellum, og er ætlað að
hún sje frá bronseöld eða 1500
árum fyrir Krists burð. (NRP)-
LögjafnaðarnefRdin
Khöfn í gær F.Ú.
Lögjafnaðarnefndin dansk-ís-
lenska kemur saman á fund í
Kristjánsborgarhöll í dag eða á
morgun.
Norðmenn
selfa flsk
Khöfn í gær F.Ú.
Norðmenn hafa gert samn-
ing um sölu á 15(7.000 pökkum
á saltfiski til Portúgal og fer
afhending fram í haust. Verðið'
er 30 shillings pakkinn.