Morgunblaðið - 25.08.1939, Side 3
Föstudagur 25. ágúst 1939.
MORGUN BLAÐIÐ
7
Sildarsöltunin 174.075 tunnurKappleikurinn I Essen
Mikil »íl«l í fyrii nóft
en ekkert veiðiveður
síðdegis I
TIL ríkisverksmiðjanna í Siglufirði komu í gær
3000—4000 mál síldar, sem var afgangur af
söltun.
I fyrradag höfðu alls verið saltaðar á öllu landinu
174.075 tunnur.
í fyrradag voru saltaðar í
Siglufirði 6288 tunnur,- þar af
540 tunnur reknetjasíld.
Mikil söltun var svö þar sc
flestum söltunarstöðvum í fyrri-
nótt og í gærmorgun.
Flugvjelin sá í gærmorgun
mikið af síld á tveimur stöðum
og fengu nokkur skip góð köst
þar, en þá fór að versna veður
og seinni hluta dags í gær
leituðu veiðiskipin hafnar, bæði
í Siglufirði og annars staðar
vegna þess hvað vont var orðið
í sjóinn.
FRÁ HÚSAVÍK
reru nokkrir bátar, og gat flug-
vjelin Örninn bent þeim á síld
undan Mánáreyjum. Fengust
alls 600 tunnur. f reknet hefir
veiðst um 100 tunnur.
Áður í. þessari viku .hafa
veiðst samtals 1200 tn.
Á AKUREYRI
voru saltaðar 935 tunnur dag-
ana 22. og 23. þ. mán.
Á SAUÐÁRKRÓKI
hafa nú verið saltaðar alls 4000
tunnur af síld.
TIL KEFLAVfKUR
komu í gær þrír bátar með sam-
tals 137 tunnur af síld. Síldin
var fremur feit en misstór.
HEILDARSÖLTUN.
Síðastliðið þriðjudagskvöld
var heildarsöltun einstakra sölt-
unarstöðva sem hjer segir:
Siglufjörður 110.767 tn.
Akureyri 3.068 —
Dalvík 2.126
Hrísey 4.605 —
Ólafsfjörður 4.548 —
Hofsós 490 —
Sauðárkrókur 2.643 —
Skagaströnd 8.642 —
Hólmavík 7.607 —
Ingólfsfjörður 9.322 —
Reykjarfjörður 9.658 —
Vestfirðir 16 —
Húsavík 1.780 —
Suðurland 197 —
Raufarhöfn 898 —
Heildarsöltunin á öllu land-
inu skiptist þannig eftir verkun-
araðferðum:
Matjessíld 16.126 tn.
og 6-603 hálftunnur
Venjuleg saltsíld 54.596 —
Stórsíld 19 —
Magadregin síld 2.992 —
Hreinsuð síld 60 —
Kryddsíld með haus 209 —
Hausskorin kryddsíld 28.717 —
Hausskorin og maga
dregin síld 50.430 —
Sykursöltuð síld 8.213 —
Flött síld 253 —
Aðrar verkunarað-
ferðir 1.449 —
Kristján Jónsson og Guðrún
Davíðsdóttir.
Höfðingleg gjöf frá
V estur-1 slendin gum
Kristján Jónsson frá Sveina-
tungu og Guðrún Davíðs-
dóttir frá Fornahvammi, nú bú-
sett í Duluth Minn. í Ameríku
hafa nýlega gefið allstórt Bóka-
safn eftir sinn dag ásamt 500
doll. í peningum, til eflingár
LeStrarfjelagi "fyrir 'þíorðurár-i
dalshrepp, og er fyrsta bóka-
sendingin þegar komin ásamt
penin.gauþþhæðinni.
Kristján Jónsson er nú 81 árs
að aldri og eru 53 ár síðan hann
flutti vestur um haf; hann seg-
ir meðal annars í brjéfi sínu:
,,Þetta ef gjöf fií 'Norðdæl-
inga, til stofnunar Lestrarfje-
lags fyrir sveitina, og fylgja
heillaóskir til míns kæra d,al&
og allra hans íbúa“.
Þau . hjónin hafa sýnt með
þessu överij umíkla átthagatrygð
og þakkarverðan bróðurhug.
Kveðfuskeyfi
í gærkvöldi barst Blaðamanna-
f jelagi íslands syohljpðandi skeyti:
Á heimleið úr hinu ógleym-
anlega boði Blaðamannafjelags
íslands sendum við, dönsku
blaðamennirnir, hjartanlegar
þakkir og kveðjur. Hittumst
heilir.
Carl Th. Jensen.
Oönsku
blaðamennirnir
kvaddir
Dönsku blaðamennirnir fóru
hjeðan heimleiðis með
„Lyra“ í gærkvöldi.
Aðiir en þeir'stigu á skip höfðu
þeir boð inni á Hótel Borg fyrir
íslensku blaðamennina, sem höfðu
verið með þeim á langferðalaginu
norður í land og austur að Geysi
og Gullfossi. I þessu samsæti gerðu
dönsku blaðamennirnir liver um
sig grein fyrir þeiin áhrifum, sem
þeir hefði örðið fyrir hjer á landi.
En fonnaður Blaðamannafjelags
íslands, Pjetur Ólafsson, ávarpaði
þá með þessum kveðjuorðum:
Fyrir hönd Blaðamannafjelags
Islands langar mig til þess að
þakka yður fyrir samverustund-
irnar þessa tíu daga sem þjer haf-
ið dvalist hjer.
í samræmi við það sem stóð í
boðsbrjefi voru höfum vjer reynt
að kynna yður ísland, ekki til
þess að þjer eigið að skrifa lang-
ar ferðalýsingar þegar heim kem-
ur, hehlur til þess að þjer sjeuð
fróðari og getið betur áttað yður
á íslenskum málum ef þjer þurfið
að fjalla uní' þau í framtíðinni.
Þjer hafið aðeins orðið fyrir ís-
lenskum áhrifum þessa fáu daga,
sem þjer dvölduð hjer, en jeg
hygg saint áð íneð hinu skarp-
skygna auga blaðamaiiusins hafið
þjef ’ þó um lfeið fengið yfirsýn
yfir land óg þjóð.
Nú er ekki annað eftir en að
þakka ýður fyrir að þjer þáðuð
boð vorl. Og fyrir hönd Blaða-
ma'nnáfjelágsins vil jeg þakka yð-
ur öllum, en eigi síst Carl Th.
Jensen, því að það var hann, sem
kom því í kring í Danmörku að
þessi heimsókn gat tekist.
Svo þakka jeg einnig mínum
íslensku stjettarbræðrum fyrir á-
gæta sámvinfiu við undirbúning og
framkvæmd ferðalagsins og mót-
takanná. Jeg hýgg að vjer verðum
állir, yaVtýr, Vilhjálmur, Einar,
‘Guðbrandur, Kristjafi og Svavar,
að skifta bróðurlega á milli vor
ábyrgðinni á því hvernig alt þetta
gekk.
Að lokuin þakka jeg Gunnar
Nielsen fy rir það að hafa boðið
•tiL santvini^i Blaðamannafjelags
'ÍSlánds- -dg .Journalistforbundet
; .,rv , í< ' _;D
dænska. Vjer æskjum eftir þessari
samvinnu, og vjer viljum efla hana
alveg eins og vjer viljum treysta
vináttu og samvinnu bönd mílli
vorra tveggja sjálfstæðu þjóða, ís-
lendinga og Dana.
ÞjóOverjar 4, íslendingar 2 mörk
KAPPLIÐIÐ, sem íslendingar fengu á móti sjer
í Essen í fyrradag, var mjög sterkt, og var
talið óhugsandi að landar fengi neina rönd
við reist. Þó var stundum tvísýnt hvernig fara mundi.
Samt höfðu Þjóðverjar að leikslokum 4 mörk á móti 2»
og er ástæðan sögð meiri hraði hjá þeim í leiknum, og*
öruggur markmaður.
Það voru þeir Björgvin og Gísli Kjærnested sem settu
mörkin fyrir íslendinga, Björgvin í fyrra hálfleik og Gísli
í þeim seinni.
Dómar þýsku blaðamro um kappleikinn eru á þá leið*
að íslendingar sje óþekkjanlegir frá því sem þeir voru
1935, svo stórkostlega hafi þeim farið fram.
Það hefir verið dekrað við landana síðan þeir komu
út, og hefir þeim verið sýnt alt hið markverðasta á þeim
stöðum þar sem þeir hafa komið, meðal annars fallbyssu-
verksmiðjur Krupps í Essen, en þær fá yfirleitt engir út-
lendingar að sjá.
Næsti kappleikur á að fara fram í Trier á sunnudag-
inn kemur. Trier er borg sunnarlega í Þýskalandi, á landa-
mærum Luxemburgs.
Ríkisútvarpinu hefir borist skeyti frá Þýskalandi, þar
sem frá því er skýrt, að endurútvarpið frá knattspyrnu-
kappleiknum í Essen hafi mistekist vegna þess, að sendir
þýsku stöðvarinnar var í ólagi.
Kúsvfklngar
I
við hvali
bardaga
TóKst að nð í 12 ðlna
langa andarnefju
Maður slasast
hættulega á ljá
Dað slys varð í fyrrakvöld við
Laxárvatn á Skagaheiði, að
ungur maður, Þorgeir Sveinsson
frá Tjörn, er var að koma frá
heyskap með öðru fóki, og reiddi
ljá fyrir framan sig, stakk sig á
honum í nárann og mæddi bann
þegar mikil blóðrás,
Þar sem þetta var langt frá
bæjum, var þegar sent niður .í
Kálfshamarsvík og þaðan símað
eftir lækni og safnað mönnum til
þess að bera sjúklinginn til bygða.
Sjúkrahörur voi’u ekki við hend-
ina og var hann því borinn í litl-
um bát, sem var á vatninu. Flutn-
ingurinn tók um 3% tíma. Yar
hjeraðslæknirinn þá kominn á stað-
inn og bjó hann um sárið. Sjúk-
lingurinn var þá mjög aðfram-
kominn af blóðmissi. — í gær var
hann svo fluttur í sjúkrahús
Hitaveitan. Bæjarverkfræðíiigur
ráðleggur þeim, sem ei’u að hyggja
ný hús, eða breyta gömlum hús-
um, að hafa hitalagnir þannig að
þær dugi þegar hitaveitan kemur.
Síðan var dönsku blaðamönnun-
um fylgt til skips og var múgur
og margmenni á hafnarbakkanum
til að kveðja þá. Þegar Lyra leysti
festar var þeim árnað góðrar heim-
ferðar og mannfjöldirin kvaddi þá
með ferföldu liúrra.
Igær tókst mönnum á Húsa-
vík að drepa 12 álna langa
andarnefju, eftir all harða við-
ureign.
Um hádegi urðu þeir varir
við þrjá hvali skarnt undan
landi. Reru þeir út og ætluðu að
freista þess að reká*"hvalina á
land. En þeir rótuðu sjer ekki,
þó skotið væri á þá með riíf ii
og grjóti troðið í blásturshol
þeirra. Loks var það ráð tekið)B1önduósi. (FÚ.).
að krækja í þann stærsta til
þess að draga hann í land. En
þá tók hann á sprett og dró bát-
infi með sjer langt út á flóa.
Mistu mennirnir af honum þar.
Síðan reru þeir aftur að hin-
um tveimur. En annar var þá
horfinn og sást ekki til hans
síðan.
Kræktu þeir nú í þann eina,
sem eftir var. En hann stefndi
þegar til lands, kendi brátt
grunxis og sat fastur.
Var hann nú skotinn og skor-
inn með ljáum, og tókst að
ráða niðurlögum hans til fulls.
Var þetta andarnefja, 12
álnir á lengd. En annar hinna,
sem slapp, var töluvert stærri.
a
‘Ríkisskip. Súðin kom til Siglu-
fjarðar kl. 3 í gær.
RagnarE. Kvaran
€Zj „ f -ri;
látinn
R
agnar E. Kvaran landkynnir
andaðist í gærdag, skömmu
eftir hádegi, á Landspítalan'úm.
Danska eftirlitsskipið „Hvid-
björnen“ mun liafa verið kvatt
skyndilega heim til Danmerkur í
gærkvöldi. Því að klukkan að
ganga 10 var byrjað að gera ráð-
stafanir til þess að skipið færi af
stað. Blásið var til, brottferðar, og
skiþsmenn, sem í landi voru, voru
kallaðir um borð þegar í stað.
Rjett eftir miðnætti sigldv skipið
úr Reykjavíkurhöfn.