Morgunblaðið - 27.08.1939, Page 7
Sumuidagur 27. ágúst 1939.
JáORGUN BLAÐlb
Róslnrnar
i Siglnfirði
Ut af grein í Morgunblaðinu
22. þ. mán. um róstur í
Siglufirði, hefir Edvard. Frederik-
sen, gestgjafi í Hótel Hvanneyri,
þar sem rósturnar urðu, beðið
þlaðið fyrir þessar skýringar:
1. Það er stranglega tekið fram
við alla þá, sem gangast fvrir
dansleikum hjer í hótelinu, hvort
faeldur það eru einstakir menn et'a
klúbbar, að gestir þeir, sem á hót-
elinu búa, hafi frjálsan aðgang
að dansleikunum, því að ellá
inundu þeir sæta ónæði og hvort
sem er ekki geta sofið.
2. Æsingamaður var aðeins einn
á þessum dansleik, Jón Gíslason
fajá Einco, en Erlendur Þorsteins-
son alþingismaður var ekkert við
þetta riðinn og kom þarna hvergi
nærri, sást ekki á hótelinu þennan
•dag nje kvöld. Þormóður Eyólfs-
son kom þar ekki heldur. Sveinn
Benediktsson, sem býr hjer í hót-
«linu, og kom á dansleikinn eins
«g aðrir gestir, átti enga minstu
sök á því sem gerðist. Hann á held
tir ekki sök á því, að hann hefir
■engan frið haft síðan.
★
Ath. í áminstri grein í Morg-
tinblaðinu var það hvergi sagt að
Erlendur Þorsteinsson hefði verið
5 þessum róstum, heldur að hann
mundi standa fyrir æsingum í bæn
um út af Kauðku-málinu, sem með-
-al annars hafa leitt það af sjer að
„Sveinn Benediktsson hefir engan
frið haft síðan“.
Berjaför. Stúkan Verðandi ætl-
nr að fara í berjaför í dag, er
ferðinni heitið upx> að Jaðri, land-
námi Templara. Þar verður hald-
inn útifundur um leið, eins og í
fyrra. Lagt verður á stað frá
'Góðtemplarahúsiiiu kl. 12 á há-
degi. — Stúkan Einingin ætlar
líka að fara í berjaför í dag upp
.að Tröllafossi.
Amatörar.
FRAMKÖLLUN
Kopiering — Stækkun.
Pljótt og vel af hendi leyst.
Notum aðeins Agfa-pappír.
Ljósmyndaverkstæðið
Laugaveg 16.
Afgreiðsla í Laugavegs Apó-
teki.
»
Y|
RIMI
Ms „Es|a“
fer frá Danmörk kringum
15. september n.k. beint til
Vestmannaeyja og Reykja-
yíkur.
Tekur farþega og flutning
eftir því sem rúm leyfir.
í Danmörk fást nánari
upplýsingar hjá: Samb. ísl.
samvinnufjelaga, Khöfn, og
.Johs. Utzon, Aalborg.
Qagbófc
Veðurútlit í Rvík í dag: A-gola.
Ú'rkomulaust.
Veðrið (laugardagskvöld kl. 6) :
Vindur er milli N og SA hjer á
landi, allhvass í Vestmannaeyjum
og við NA-land. Á S-landi hefir
sumstaðar rignt lítið eitt í dag,
annars er víðast skýjað. Hiti 7—10
st. Grunn lægð er suður af Islandi,
en hæð fyrir austan land.
Helgidagslæknir er í dag Ólafur
Þ. Þorsteinsson, Mánagötu 4, sími
2255.
Næturlæknir er í nótt Karl S.
Jónasson, Sóleyjargötu 13, sími
3925.
Næturvörður verður þessa viku
í Ingólfs Apóteki og Laugavegs
Apóteki.
Messað verður í Dómkirkjunni í
dag kl. 11, f. h. Síra Garðar Svav-
arsson prjedikar.
90 ára er í dag frú Sesselja Guð-
mundsdóttir frá Fossi í Hruna-
mannahreppi. Hún dvelur nú á
heimili sonar síns, Ingimars Jóns-
sonar skólastjóra Gagnfræðaskól-
ans í Reykjavík — í Franska
spítalanum.
70 árá verður í dag Jóhanna G.
Jónsdóttir, Lindargötu 28.
60 ára verður í dag Salomon
Jónsson, verkstjóri, Hverfisgötu
112.
56 ára er í dag frú Þóra Svein-
bjarnardóttir, Bergstaðastræti 43.
50 ára verður á morgun (mánu-
dag) Ingibjörg Jónasdóttir, Freyju
götu 24.
Björn Ólafsson fiðluleikari held-
ur hljómleika á þriðjudagskvöld
fyrir styrktarfjelaga Tónlistarfje-
lagsins. og opinbera hljómleika á
fimtudagskvöld.
3. flokks knattspyrnukepnin í
gær fór þannig, að K. R. vann
Víking með 2:0. Milli Fram og
Vals varð jafntefli 0:0. Einn kapp-
leikur er nú eftir af fyrri umferð.
Fer liann fram á mánudagskvöld.
Þá keppa Fram og Víkingur kl.
6Y2, en K. R. og Valur á eftir.
Meistaramótið. Keppendur, starfs
menn mótsins og stjórnir íþrótta-
fjelaganna mæti hjá K. R.-húsinu
kl. 1.30 í dag.
Færeyjafarar K. R. keptu í
Klaksvílr í gær og töpuðu fyrir
Færeyingunum með 2:0. í dag
eiga þeir að keppa í þriðja og
síðasta sinn í Thorshavn.
Þýskalandsförin. í dag eiga ís-
lensku knattspyrnumennirnir að
keppa í Trier.
Jarðarför frú Betzy Guðmunds-
son fór fram í gær að viðstöddum
fjölmennum vinahópi. Síra Garðar
Svavarsson flutti bæn í heimahús-
um- og ræðu í kirkjunni. Kristján
Kristjánsson söng einsöngva, norsk
ljóð og íslensk, við hrifningu á-
heyrenda. Kistan var haglega
skrýdd norska fánanum, bundn-
um úr blómum. Báru hana frá
heimilinu vinir og venslamenn, og
eins í kirkju og úr, en starfsmenn
Mjólkurfjelags Reykjavíkur í
kirkjugarð. Kransar bárust m. a;
frá Hinu íslenska garðyrkjufje-
lagi, Mjólkurfjelagi Reykjavíkur,
starfsfólki í Blómum & Ávöxtum
og frændfólki hinnar framliðnu í
Noregi og Danmörku. — Yfir at-
höfninni allri var bjart og hlýlegt,
eins og yfir minningu þessarar
mætu ltonu.
Aðstandendur barna, sem dvalið
hafa á barnaheimilinu að Fhiðum,
eru beðnir að vitja barnanna á
mánudagskvöld kl. 7 á „Líkn“,
Templarasundi 3.
Eldur kom upp í gærkvöldi í
kjallará hússins nr. 7 við Austur-
stræti. Hafði kviknað þar út frá
miðstöð í rusli og Var allmikill
eldur þegar slökkviliðið kom að,
en sjerstaklega mikill reykur.
Fljótt tókst að slökkva eldinn og
urðu engar skemdir nema þá af
vatni.'
ísfisksala. Venus seldi afla sinn
í Cuxhafen í gær fyrir 14.267 ilk-
ismörk.
Heybruni. í síðastliðinni viku
bruunu um 100 hestar af heyi hjá
Jónasi Sveinssyni bónda í Bænda-
gerði í Glæsibæjarhreppi. Upptök
eldsins eru ókunn. (FÚ.).
Sundmót Norðlendingafjórðungs
var haldið á Ákúreyri dagana 19.
og 23. þ. m. Forgöngu hafði1 Sund-
fjelagið Grettir á Akureyri. Þátt-
takendur voru 47 alls. (FÚ.).
Eimskip. Gullfoss var í Stykkis-
hólmi í gær. Goðafoss er á leið til
Hull frá Hamborg. Brúarfoss er í
Grimsby. Dettifoss er í Reykjavík.
Lagarfoss var á Hólmavík í gær.
Selfoss er í Antwerpen.
Meistaramót í. S. í. hefst í dag.
Er mikil þátttaka í mótinu, og
búast má við, að fjölment verði á
íþróttavellinum ef veður verður
gott. Kl. 1.45 byrjar Lúðrasveit
Reykjavíkur að leika á Austur-
velli, en þangað koma íþrótta-
mennirnir, stjórnir fjelaganna, í.
S. í. og fulltrúar Stórstúkunnar
og hlýða á ræðu, er Jakob Möller
fjármálaráðherra flytur á svölum
Alþingishússins. Síðan verður
gengið fylktu liði suður á íþrótta-
völl. En þar heldur Ben. G. Waage,
forseti f. S. í., ræðu, áður en mótið
hefst. í dag verður kept í þessum
íþróttagreinum: 100 m. hlaupi,
kúluvarpi, stangarstökki, 1000 m.
boðhlaupi, sleggjukasti og 10000
m. hlaupi. En á undan 100 m.
hlaupinu fer fram 5x80 m. boð-
hlaup milli „öldunga“ og stjórna
íþróttafjelaganna, og þykir það
venjulega ágæt skemtun.
Kveðjusamsæti halda K. R.-ing-
ar þjálfara sínum, Mr. L. Brad-
bui’y, kl. 9 í kvöld að Hótel Skjald
breið. Hann hefir nú dvalið hjer
um tveggja mánaða skeið og þjálf-
að af miklum áhuga bæði yngri
og eldri flokka K. R.-inga. Nýtur
hann mikilla vinsælda meðal
þeirra og mun því verða fjölment
á samsætinu í kvöld.
Útvarpið í dag:
11.50 Hádegisútvarp.
13.45 Útvarp frá hátíð íþrótta-
manna: Ávarp Jakobs Möller
ráðherra frá svölum Alþingis-
hússins. Lúðrasveit Reykjavíkur
leikur.
17.00 Messa í Fríkirkjunni (síra
Árni Sigurðsson).
19.30 Illjómplötur; Ljett lög.
19.45 Frjettir.
20.20 Illjómplötur: Lög eftir
Hándel.
20.30 Erindi; Heimsókn dönsku
blaðamannanna (Yaltýr Stefáns-
son ritstj.).
20.55 Einsöngur (frú Annie Cbal-
opek Þórðarson).
21.20 Kvæði kvöldsins.
21.25 Útvarpshljómsveitin leikur.
Útvarpið á morgun:
12.00 Hádegisútvarp.
19.30 Hljómplötur; Ljett lög.
19.45 Frjettir.
20.20 Hljómplötur: Göngulög.
20.30 íþróttaþáttur.
20.40 Strokkvartett útvarpsins
leikur.
21.00 Húsmæðraþáttur: Hagnýting
berja (frú Guðbjörg Birkis).
21.20 Hljómplötur:
a) Þjóðlög, sungin.
b) Harmóníkulög.
Braðferðir Sfeindórs
Til Akureyrar um Akranes eru:
FRÁ REYKJAVÍK alla sunnud., mánud., miðvikud., föstud.
FRÁ AKUREYRI alla sunnud., mánud., fimtud., laugard.
M.s. Fagranes annast sjóleiðina. Nýar upphitaðar bifreiðar
með útvarpi,
Eifreiða§föð Sfeindórs.
ÞAÐ ER EINS MEÐ
Hraðferðir B. S. A.
OG MORGUNBLAÐIÐ.
Alla daga nema mánudaga
Afgreiðsla í Reykjavík á
BIFREIÐASTÖÐ ÍSLANDS. — SÍMI 1540.
Bifrefttfasföð Almreyrar.
Sonur okkar,
ÞORSTEINN,
frá Sólbakka í Garði, andaðist á Landsspítalanum 25. þ. m.
Jarðarförin ákveðin síðar.
Steinunn Steinsdóttir. Gísli Sighvatsson.
Jarðarför mannsins míns og föður,
ÞORLEIFS ÞORLEIFSSONAR
fiskimatsmanns,
fer fram frá Fríkirkjunni þriðjudaginn 29. þ. m. og hefst með
húskveðju á heimili hans, Bræðraborgarstíg 32 A, kl. 1 e. h.
Geirlína Þorgeiridóttir. Pálína Þorieifsdóttir.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför
konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐRÚNAR BJARNADÓTTUR.
Fyrir mína hönd, barna okkar og tengdabarna.
Þorsteinn Jónsson, járnsmiður.