Morgunblaðið - 04.09.1939, Síða 2

Morgunblaðið - 04.09.1939, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Mánudagur 4. sept. 1939. Igærmorgun var gefin út frá bústað forsætisráð- herrans í London tilkynn- ing á þessa leið: Þann 1. sept. s.l. afhenti sendi- herra Breta í Londn, Sir Nev- iile Henderson, þýska utanríkis- málaráðherranumN yfirlýsingu, þar sem hann segir, að ef þýska stjórnin gæfi ekki fullnægjandi yfirlýsingu um að hún stöðvaði vopnaviðskifti í Póllandi og kalaði heim þýsku hersveitirnar, sem komnar væru inn í Pólland, þá myndi breska stjórnin ekki hika við að standa við allar skuldbindingar sínar g-agnvart Pólverjum, til hins ítrasta. í dag, 3. september kl. 9 f. h. (eftir breskum tíina) var Sir iNeville Henderson, sendiherra falið að fara á fund von Ribb- entrops og tjá honum, að ef ekki væri komið fullnægjandi svar fyrir kl. 11, og svar þetta komið til London, þá myndi breska stjórnin líta svo á, að stríðsástand væri ríkjandi milli Bretlands og Þýskalands. RÆÐA CHAMBERLAINS Laust eftir klukkan 11, eftir breskum tíma, flutti Mr. Cham- berlain stutt ávarp í breska út- varpinu og var það á þesr^a, leið: „Jeg tala frá, ráðuneytisher- berginu í Dwning Street 10. í morgun afhenti breski sendiherrann í Berlín þýska utanríkismálaráðherranum síð- ustu orðsendinguna frá bresku stjórninni, þar sem segir, að ef þýska stjórnin hefði ekki látið frá sjer heyra fyrir kl. 11 um það, að hún væri reiðubúin til þess að draga hersveitir sínar í Póllandi inn fyrir þýsku landa- mærin, þá væri ófriðarástand ríkjandi milli Bretlands og Þýskalands. Jeg verð að segja ykkur, að ekkert svar hefir komið, og þess vegna er þetta land í stríði við Þýskaland. Þið getið ímyndað ykkur hve mikil vonbrigði þetta hafa orð- ið fyrir mig. En jeg held ekki nð hægt hafi verið að gera neitt annað en við höfum gert, eða á annan hátt til þess að afstýra styrjöld. Til hins síðasta hefði verið hægt að finna friðsamlega og heiðarlega lausn á deilumálum Þjóðverja og Pólverja. En Hitl- «r vildi ekki friðsamlega lausn. Hann hafði sýnilega ákveðið að ráðast á Pólland, hvað sem það hostaði. Og þótt hann segi nú, að hann hafi sett fram sann- gjarnar málamiðlunartillögur, sem Pólverjar hafi hafnað, þá «r það ósatt mál. Pólska stjórn- in hafði aldrei sjeð þessar til- lögur og breska stjórnin ekki heldur. Og þótt hann hafi látið bera þessar tillögur upp í þýska útvarpið, þá beið hann ekki eft- ir að þær yrðu íhugaðar, held- ur skipaði þýska hernum strax £ eftir að ráðast inn í Pólland. Þetta sýnir, að ekki er hægt að venja þenna mann af því, að bei1?a ofbeldi. Hann verður ekki stöðvaður fyr en ofbeldi kemur í mót ofbeldi. Við og Frakkar erum ákveðn- ir í því, að hjálpa Pólverjum, Hvernig Brefar ' verfum stríH §ögðu Þjéð- á liendnr sem nú hafa í nokkra daga barist af mikilli hreysti gegn innrás Þjóðverja. Við höfum gert alt, sem í okkar valdi stóð til þess, að afstýra styrjöld. En það ástand, að enginn getur borið traust til orða eða athafna Hitlers, er orðið óþolandi. Jeg veit, að þið munuð öll gera skyldu ykkar. Það er mikil huggun og hvatning að vita trúmensku- legan stuðning breska heims- veldisins á þessum tímum örð- ugleika og armæðu. Stjórnin hefir gert ýmsar ráð- stafanir til þess að þjóðin geti mætt þeim vandræðum, sem nú eru fyrir höndum. En við verð- um að njóta hjálpar frá ykkur. Þið, sem skrásett eruð í hern- um, gefið ykkur strax fram. Þið, sem eigið að starfa í verksmiðjum og að atvinnumál- um, haldið áfram að vinna, svo að framleiðsla þjóðarinnar geti haldið áfram. Að lokum: Guð blessi ykkur öll. Við vitum, að hann mun varðveita rjettlætið. Það eru hörð örlög, að þurfa nú að taka upp baráttu gegn órjettlæti, kúgun, og ofsóknum. En jejt er sannfærður um að rjettlætið mun sigra“. ÓFRIÐARYFIR- LÝSINGIN Klukkan 11.15 eða um það bil, sem Mr. Chamberlain lauk máli sínu, fór fulltrúi frá utanríkismálaráðuneytinu á fund Herra Korks, sendiherra- fulltrúa (charge d’affairs) Þjóðverja í London og afhenti honum skjal, þar sem, Bretar segja Þjóðverjum stríð á hend-. ur og fekk honum um leið vega- brjef hans. Þao var tilkynt í London skömmu síðar að sendiherra Breta í Berlín, Sir Neville Hend- erson hefði beðið um vegabrjef sitt hjá von Ribbentrop og að sendiherra Bandaríkjanna í Ber-j lín færi með málefni Breta í umboði bresku stjórnarinnar eftir að Sir Neville væri farinn. MANNFJÖLDINN FAGNAR Múgur og margmenni hafði safnast saman í gærmorgun fyr- ir framan konungshöllina í Lon- don. Mannfjöldinn hlýddi þög-, ull á þegar „Big Ben“ sló 11: þ. e. frestur Þjóðverja til að svara úrslitakostunum var útrunninn. Mannfjöldinn heyrði það í útvarpi í bifreið, sem þarna var, að Bretar hefðu sagt Þjóðverjum stríð á hendur. — Laust hann þá upp miklu fagn- aðarópi. Síðan skundaði allur hópur- inn til stjórnarbyggingarinnar í Whitehall. Fyrsti ráðherrann sem sýndi sig, eftir að styrjöld hafði ver- ið lýst yfir var Sir Samuel Hoare, innsiglisvörður konungs (hann var innanríkismálaráð- Atburðir dagsins í gær í Fnglandi raktir Að ofan. Mr. Chamberlain í bifreið fyrir utan Downing Street 19. Að neðan: Mannfjöldinn í Downing Street les nýjustu fregnirnar í blöðunum, á meðan hann bíður eftir að sjá ráðherrunum bregða fynr. ^ «6* herra, þar til í gær). Var hon- um ákaft fagnað. Fólkið þyrptist nú í Downing Street 10, til þess að sjá þegar Mr. Chamberlain æki í parla- mentið. Var honum fagnað ;mjög, þegar hann kom út úr bústað sínum. Bifreiðarstjóri hans lagði gasgrímu hans og stálhjálm inn í bifreiðina, áð-' ur en hann steig inn í hana. í PARLAMENTINU Mr. Chamberlain tók til máls strax og hann kom inn í þing- 3alinn. Það var á rjettu hádegi. Hann vjek að þeim kvíða, sem fram kom á þingfundi á laugardag hjá einstökum þing- mönnum um að Bretar mundu ekki halda skuldbindingar sín- ar. Kvaðst Mr. Chamberlain vel hafa skilið þetta — hann myndi sennilega hafa verið svipað skapi farinn og þeir, ef hann hefði staðið í þeirra sporum og ekki haft þær upplýsingar, sem hann hafði. Hann sagði, að allan daginn í gær, hefðu farið fram viðræð- ur milli bresku og frönsku stjórnarinnar og að lokum hefði það verið ákveðið að sendiherra Breta í Berlín skyldi krefjast svars af þýsku stjórninni fyrir ákveðinn tíma. Hann kvaðst geta skýrt þing- heimi frá því, að franski sendi- herrann væri nú (þ. e. á meðan Mr. Chamberlain var að tala), að afhenda þýsku stjórninni yf- irlýsingu Bretá, með ákveðnum frest. GEGN HITLERISMA Síðan hjelt Mr. Charnberlain áfram: Þar sem ekkert svar hefir borist frá þýsku stjórninni við síðustu orðsendingu þá sje þetta land nú í styrjöld við Þýska- land. Við erum tilbúnir. Þetta er hryggilegur atburður og þjer munuð skilja að engum er hann meira þrygðarefni en mjer. Jeg verð nú að horfa á alt sem jeg hefi starfað fyrir, sett von mína á og trúað, hrynja í rústir. Jeg get ekki sagt hvaða hlut- verk mjer verður ætlað í þeim atburðum, sem fyrir höndum eru. En jeg mun leggja fram illa krafta mína til þess að vinna að sigri okkar málstaðar. Jeg vona að jeg lifi það, að sjá Hitlerismann upprættan, svo að Evrópuþjóðirnar geti notið friðar og frelsis aftur“. Ræðu Mr. Chamberlains var tekið með dynjandi lófaklappi. VERKAMANNNA FLOKKURINN MEÐ Þegar næsti ræðumaður stóð upp. Mr. Arthur Greenwood, var honum líka tekið með miklu lófaklappi. Mr. Greenwood sagði, að alt annar andi væri ríkjandi í þing- sölum en daginn áður, er menn voru kvíðafullir yfir því hvaða afstöðu breska stjórnin ætlaðl að taka. Fn nú væri þessi kvíða- fulla bið á enda. Mr. Greenwodd fór viður- kenningarorðum um Pólverja, sem varið hefðu einir rjett frjálsborinna þjóða í Evrópu- Hjörtu Breta væru hjá þeim £ baráttu þeirra. Mr. Greenwood hjet stjórn- inni fullum stuðningi verka- mannaflokksins á meðan hún hjeldi áfram þeirri stefnu, sem hún fylgdi nú. BARÁTTAN FYRIR FRELSI Winston Churchill sagði m. a. að styrjaldarofviðrið myndi brátt skella á, en þrátt fyrir það er friður í hjörtum vorum, sagði hann, á þessum sunnu- dagsmorgni. Hann bað menn, að gera ekki of lítið úr þeim hættum og erf- iðleikum, sem framundan væri, og hvatti til hreinskilni og djörf- ungar. Sú kynslóð, sem nú bygði Bretland, myndi sýna hreysti og harðfengi í anda þeirra manna, sem skapað hefði sögu Bretlands. Menn verða að vera því bún- ir, sagði Churchill, að þeir njóti ekki þess frelsis og frjáls- ræðis, sem á venjulegum tím- um, en vjer horfum fram í tím- ann öruggir og vongóðir um, að sá tími komi, er vjer getum notið fylsta frelsis og öryggis með þeim þjóðum, sem nú geta ekki notið þess. L.EIÐBEINGAR TIL ALMENNINGS Strax eftir að Mr. Chamber-i lain hafði flutt útvarpsræðu sína í gærmorgun, voru birtar í útvarpinu ýmsar leiðbeiningar fyrir fólkið. M. a. var fólkinu ráðlagt að vera sem minst á ferli á götunum, öllum skemti- stöðum var lokað, þ. á. m. leik- húsum og kvikmyndahúsum; þó er talið líklegt, að sum kvik- myndahúsin verði opnuð síðar. Einnig eru öll íþróttamót bönn- uð. Öllum er boðið að hafa gas- grímur sínar með sjer, hvert sem farið er. Að lokum, kl. 5 í gær, flutti Georg VI Bretakonungur ávarp í útvarp til þegna sinna um alt breska heimsveldið. Hann mælti á þessa leið: RÆÐA KONUNGS Á þessari ‘alvörustundu, ef til vill hinni örlagaríkustu á vorum tíma, sendi jeg inn á öll heimili þjóðarinnar, heima og fyrir hand an höfin, þessa orðsendingu, hverjum einstökum ykkar, af jafndjúpri tilfinningu < ; jeg hefði gengið yfir þröskuld yðar og talað við yður. FRAMH. Á FJÓRÐU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.