Morgunblaðið - 04.09.1939, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Mánudagur 4. sept. IS391
Styrjaldar
stjórn í
Englandi
St y r j a 1 d ar-ráðuneyti var
myndað í Englandi í gær.
{ því eiga sæti niu menn.
Öll stjórn Bretlands er þó
skipuð 23 mönnum, og er styrj-
aldarráðuneytið sá hluti henn-
ar er mestu ræður og þá fyrst
Qg fremst um það, hvernig
stríðið er háð.
I styrjaldarráðuneytinu eiga
sæti:
Forsætisráðherra er Neville
Chamberlain eins og verið hefir.
Fjármálaráðherra er John
Simon.
Utanríkism’álaráðherra er
Halifax lávarður.
ÍLandvarnarmálaráðheríra er
Chatfield lávarður.
Flotamálaráðherra er Win-
ston Churchill (nýrístjórninni).
Hermálaráðherra er Hoare
Belisha.
Flugmálaráðherra er Sir
Kingelsy Wood.
Innsiglisvörður konungs er
Sir Samuel Hoare.
Loftvarnarmálaráðherra er
Sir John Andersen.
Ráðherrar án stjórnardeild-
ar er Hankey lávarður, en hann
,var einkaritari stríðsstjórnanna
í Bretlandi frá 1914—1918.
Meðal ráðherranna, sem ekki
eru í styrjaldarráðuneytinu er
Mr. Anthony Eden. Hann er
samveldismálaráðherra.
Það eru sömu stjórnarflokkar
og áður, sem standa að stjórn
Mr. Chamberlains. — Hvorki
yerkamannaflokkurinn nje
frjálslyndi flokkurinn vildu
taka þátt í myndun hennar,
þótt þeir hafi lýst yfir stuðn-
ingi við hana. (FÚ)
FRÁ VÍGSTÖÐVUNUM
I PÓLLANDI.
FEAMH. AF FYRSTU SÍÐU.
atjórnarinnar stungið upp á því,
að báðir aðilar, þ. e. Þjóðverjar
og Pólverjar, gerðu ekki árásir
nr lofti á óvíggirtar borgir, eða
á almenning. Pólverjar hefðu fall
ist á þetta.
Samt sem áður hefðu Þjóðverj-
ar gert 24 loftárásir á opnar
pólskar borgir á laugardag og
mörgum sinnum á sumar.
Bresk-pólsk
samvinna.
Mikill mannfjöldi safnaðist í
gœr saman fyrir framan bústað
fereska sendiherrans í Yarsjá, Sir
Howard Kennard, til þess að láta
í ljós hrifningu sína yfir banda-
lagi Breta og Pólverja.
Sir Howard kom fram á svalir
sendisveitarbústaðarins og með
honum Beck ofursti, utanríkis-
málaráðherra Pólverja. Beek of-
ursti flutti ræðu, þar sem hann
fór mörgum fögrum orðum um
hina bresk-pólsku samvinnu. Hann
það Georg VII. Bretakonung lengi
lifa.
Sir Howard flutti líka ræðu og
sagði, að Bretar og Pólverjar
myndu berjast hlið yið hlið gegn
í fremri röð frá v.: Munch utanríkismálaráðherra Dana. Erkko (Finnland). Sandler (Svíþjóð).
í aftari röð: Koht (Noregur), Beck (Luxemburg). Motta (Sviss) og Pierlot (Belgía).
Ræða Bretakonungs.
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
í annað sinn í Iífi okkar flestra,
eigum við í stríði. Aftur og aft-
ur höfum vjer reynt, með frið-
samlegum umleitunum, að ná
samkomulagi um deilumálin, við
þá, sem nú eru fjandmenn vorir,
en það varð árangurslaust. Vjer
höfum verið neyddir til þátttöku
í styr jöld, því að vjer erum kvadd
ir til, ásamt bandamönnum vor-
um, að snúast til varnar gegn
því, að það lífssjónarmið verði
ríkjandi, sem — ef það fengi fót
festu — mundi boða hrun sið-
menningarlegrar skipunar í heim
inum.
Það er lífssjónarmið, sem heim
ilar, að seilst sje til valda í anda
eigingirninnar, samningum sje
riftað og hátíðlegar skuldbind-
ingar, og það rjettlæti valdbeit-
ingu eða hótanir um valdbeitingu
í garð sjálfstæðra ríkja. — Slíkt
lífssjónarmið, svift öllum dul-
klæðum, boðar að hnefarjettur-
inn skuli ráða. Ef slíkar kenn-
ingar næði útbreiðslu og fótfestu
í heiminum, mundi frelsi vor
sjálfra, allra þjóða Bretlands, í
hættu, og meira en það, því að
þjóðir heimsins mundu verða
hneptar í viðjar óttans. — Allar
vonir vorar, um frið, rjettlæti,
öryggi og frelsi þjóðanna mundi
líða undir lok. Það, sem vjer verð
um að gera oss ljóst, er, að vegna
alls, sem oss er helgast, siðmenn-
ingarskipunar í heiminum og
friðarins, er það óhugsandi, að
vjer neitum að snúast til varnar.
Það er vegna þess háleita
marks, að jeg nú ávarpa alla
þegna mína, heima og fyrir hand
an höfin, sem nú gera vort mál-
efni að sínu málefni, og jeg bið
yður að vera róleg og örugg og
vinna saman.
Hlutverkið er erfitt, og það
kunna að vera dimmir dagar fram
undan, og styrjöld verður ekki
háð nú aðeins á vígstöðvunum.
Vjer getum aðeins gert það,
sem rjett er — það, sem oss virð-
ist rjett vera, og af lotningarfull-
um huga felum vjer málefni vor
Guði. Með hans hjálp munum vjer
ekki tortímast. Megi við njóta
blessunar hans og hjálpar.
(Samkvæmt FÚ).
Sala é benslni
Talsverðar birgðir eru af ben-
síni í landinu, með meðalnotkun
nægja þær nokkuð fram á næsta
ár. En samt hefir ríkisstjómin
ákveðið að setja nokkrar hömlur
við úthlutun eða sölu á bensíni,
eins og segir í eftirfarandi
Bráðabirgðareglugerð um sölu og
afhending bensíns.
1 gr.
Eigendum og umráðamönnum
bensínbirgða, sem ætlaðar eru til
afhendingar í smásölu er óheim-
ilt að láta úti nokkuð af þeim
til bifreiðaaksturs fram yfir það,
sem nægir til að fylla bensín-
geymi bifreiðar þeirrar, sem ben
sínið tekur og má ekki tæma
bensíngeymi bifreiðarinnar á ann
an hátt en með eðlilegri eyðslu
gangvjelar bifreiðarinnar. Heild-
salai* mega ekki láta úti bensín
til bifreiðaaksturs nema til smá-
sala, sem annast bensínsölu á
bifreiðar annaðhvort fyrir eigin
reikning eða í umboði heildsal-
ans (olíufjelagsins).
Atvinnumálaráðuneytið getur
þó veitt undanþágu frá þessum
ákvæðum, þegar það telur á-
stæðu til.
2. gr.
Bensín til annarar notkunar
en bifreiðaaksturs er bannað að
afhenda nema til nauðsynleg-
ustu þarfa og ekki, án sjerstakr
ar heimildar atvinnumálaráðu-
neytisins, meira en venjulegan
vikuforða hlutaðeiganda.
3. gr.
Brot á reglugerð þessari varða
sektum alt að 10000 krónum, og
skal með mál út af slíkura af-
brotum farið sem almenn lög-
reglumál.
í ríkisstjórn Islands 2. sept. 1939
Ólafur Thors
Jakob Möller
Hermann Jónasson
Eysteinn Jónsson.
Heyrst hafa raddir um það, að
takmarka ætti bensínnotkun með
því að skamta bensín þeim sem
eigi hafa brýna þörf fyrir bP i-
akstur. Verður það mál ssnni-
lega athugað nánar.
Það getur
komið afla-
hrota enn
Asgeir Pjetursson er manna
elstur og reyndastur í síld
,arútgerðinni, sem kunnugt
er. Átti blaðið tal við hann í gær
til þess að heyra hvernig hon-
um litist á framhald síldveið-
anna.
Það frjettist hvergi af síld-
veiði í dag, segir hann. Veðrið
er gott og mikil áta er í sjón-
um.
En kolkrabbinn. Er hann þar
ekki líka?
— Nei, hann er farinn. Það
gætu vel komið góð aflahrota
enn. Síldin er óútreiknanleg eins
og hún hefir altaf verið. Og
þegar hann hvessir næst, þá get
ur reknetaveiðin glæðst, sagði
Ásgeir.
Hann er ekki af baki dottinn
frekar en fyrri daginn.
Dr. Helgi Tómasson kom heim
með Goðafossi fyrir helgina. Hann
hefir verið 3 vikur í burtu. Sat
hann fnnd erfðafræðinga í Edin-
borg, er var haldinn 21.—28. á-
gúst, en dr. Helgi hefir, sem kunn
ugt er, xtnnið að erfðarannsóknum
nokkur undanfarin ár. Hjelt hann
fyrirlestur á fundinum um þess-
ar rannsóknir sínar.
Þýskt flutningaskip, 5—600
tonn að stærð, kom hingað í gær
morgun og lagðist á ytri höfnina.
Skipið var á leið til Ameríku, en
var skipað að fara hingað og bíða
átekta. Skipið höitir Sardinien.
Skipshöfnin er 34 menn.
Fanö, danska seglskipið, sem
hjer er og átti að taka hrogn og
annað til Frakkiands, getur ekki
siglt með farminn. Hefir skip-
stjóri fengið fyrirmæli um að
skipa farminum aftur í land. Skip
ið fæst ekki vátrygt.
Mánudagsblað. Þó Morgunblað-
ið komi út í dag á mánudag
(aukablað aðeins 4 síður), geta
lesendur blaðsins því miður ekki
vænst þess, að blaðið komi út
framvegis á mánudögum. En
vegna þess hve alvarleg tíðindi
gerðust yfir helgina, og þær yfir-
lýsingar og ræður, sem birtust í
sambandi við þau, þótti nauðsyn-
legt að láta blaðið flytja þær í
dag.
Skákþingið: ls-
lendingar unnu
Guatemaia
v\ .
O 2 .
Eins og Morgunblaðið skýrð^i
frá í gær, þá er nú lokið
að keppa í flokkunum á skák-
þinginu í Buenos Aires, og hef-
ir þinginu verið skift, þannig,
að þrjár efstu þjóðirnar í hverj-
um flokki, eða alls 12 þjóðir
eru nú byrjaðar að keppa um
Hamilton-Russel bikarinn, og er
það úrslitakepni, þannig , að
þessar 12 þjóðir keppa ein við
allar og allar við eina.
Hinar 15 þjóðirnar eru einnig
byrjaðar að keppa um verðl.auna-
bikar þann, sem forseti Argen-
tínu hefir gefið, og keppa þær á
sama hátt, ein við allar og allar
við eina.
Við útreikning á punktafjöldæ.
til ákvörðunar um það, hvaða
þjóð vinni hvorn bikar, verður
ekki tekið tillit til þeirra punkta,
sem unnist hafa í kepninni inn-
an hinna fjögurra flokka, og verð
ur því nú byrjað að telja sarnan
punktana sem hver þjóð fyrir sig -
vinnur hjer eftir, þannig að sam-
tala þeirra punkta, sem vinnast:
hjer eftir, ræður því, hvaða þjóð'
vinnur hvorn bikar.
Samkvæmt símskeyti, sem;
Morgunblaðinu barst í gær frás
Buenos Aires, þá eru fslending-
ar nú byrjaðir að keppa ásamt 14:
öðrum þjóðum um forsetabikar—
inn. fslendíngar hafa nú kept við
Guatemala-, og urðu úrslit, þau, að'
íslendingar unnu með S^/2 gegn þs
Baldur Möller gerði jafntefli á
fyrsta borði.
Ásmundur Ásgeirsson vann á*
öðru borði.
Jón Guðmundsson vann á þriðja>
borði, og
Guðmundur Arnlaugsson vann;
á fjórða borði.
Þetta er mjög glæsilegur vinn--
ingur, og er vonandi að fram--
hald verði á slíkum stórsigrum,
til handa íslensku keppendunum.
Það er engum vafa undirorpið, aðs
skákstyrkur íslendinganna hefir-
vakið mikla athygli meðal þeirra,
sjö þjóða, sem þeir nú eru búnir-
að keppa við.
Matthías Þórðarson þjóðminja-
vörður er farinn norður í land tiL
þess að sjá um viðgerð á gamla^
bænum í lGaumbæ í Skagafirði.
Þar er gamall scór torfbær, sem
Þjóðminjasafnið hefir fengið til
umráða og varðveislu. Hefir safn-
ið nú fengið þrjá torfbæi nyrðra,.
er allir voru prestssetur, Grenjað-
arstað, Laufás og Glaumbæ. Legg'
ur Matthías mikla áherslu á, að’
þessum bæjum verði haldið vel við
Sjálfstæðismlenn á Akureyri
hjeldu skemtun í gær á skemti-
stað sínum að Yogum. Þar voru.
um 700 manns. Yeður var gott.
Þar fluttu þau ræður Sigurður
Hlíðar, Árni Sigurðsson, Amfinn-
Björnsdóttir, Páll Halldórsson og
Jóhann Seheving. Síðan fórn,
fram ýmsar skemtanir, reiptog,
pokahlaup og að síðustu var dans-
að fram eftir nóttu. Sjálfstæðis-
menn á Akureyri eru mjög ánægð-
ir með þenna skemtistað slnn.