Morgunblaðið - 14.09.1939, Blaðsíða 7
7
Fimtudagur 14. sept. 1939.
MORGUNBLAÐIÐ
Minningarorð um
Ágústu K. Árnadóttur
Idag verður til moldar borin
liúsfrú Ágústa Ketilríður
Áxnadóttir, Frakkastíg 5 hjer í
fc'é.
Ágústa var fædd hinn 18. ágúst
1870. Hún ljest á Landakotsspít-
ela, eftir uppskurð, 1. þ. m.
Ágústa giftist eftirlifandi manni
»ínum, Guðlaugi Þorbergssyni
veggfóðrara, hinn 14. júní árið
1900. Höfðu þau því verið í hjóna-
bandi full 39 ár.
Eignuðust þau hjón 6 börn, 4
dætúr og 2 syrii, sem öll eru upp-
komin og á lífi. Ólu þau þenna
barnahóp upp með svo mikilli
*æmd og prýði, að orð er á ger-
andi.
Öll hafa börnin — að undan-
@kildri einni dóttur, sem er gift --
haldið hópinn á heimili foreldra
sinria. Eldri sonurinn, Jóhann, er
kvæntur, en er einnig búsettur á
heimilinu (Frakkastíg 5).
Við hjónin áttum því láni að
fagna að kynnast þessu ágæta
heimili, þessara merku hjóna, fyr-
ir 10 árum síðan, og hefir vinátta
haldist jafnan upp frá því.
Af þessu fyrirmyndarheimili
aiátti mikið læra, svo sem: Stjórn-
#emi, ráðdeild, reglusemi, frábæra
umgcngni, utan húss og innau,
ifijusemi allra á heimiliriu, jafrit
húsbænda sem barna, og síðast
MÁLAFLUTNINGSSKKIFSTOFA
Pjetur Magnússon.
Einar B. Gufimnndison.
Guðlaugur Þorláksson.
Símar 3602, 3202, 2002.
Austurstræti 7.
Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—8.
Hfiselgnin
nr. 10 við Stýrimannastíg er til
sölu á góðu verði og með hag-
kvæmum greiðsluskilmálum. —
Húsið er vandað og vel við haldið
timburhús á stórri eignarlóð
(hornlóð milli Bárugötu og Stýri-
mannastígs.
Upplýsingar gefur
Lúrus Jóhannesson
hæstarjettarmálaflutningsmaður
Suðurgötu 4. Símar 4314, 3294.
ooooooooooooooooo#
Harðfiskur
Rlklingur
vmn
Laugaveg 1. Sími 3555.
Útbú Pjölnisveg 2. Sími 2555.
-óoooooooooOOOOOOOK
Nýtl
Kálmeti og rabarbari í kjallaran-
nm við Lækjartorg (Hótel Heklu)
en ekki síst fyriririyndar heimil-
isbrag.
Jeg hefi oft hugsað út í það- —
og altaf komist að sömu niður-
stöðu —, að svona ætti éigirdega
hvert einasta heimili í landinu að
vera, allir — ungir og gamlir —
sístarfandi í kyrð og friði heirn-
ilishelginnar, allir að gera skyldu
sína, störfin ganga fyrir öllu, all-
ir á heimilinu eru ■ í góðu skapi
og gera að gamni sínu. Þetta er
fyrirmynd, þannig á það að vera.
Ef svona hugsunarháttur ríkti á
öllum íslenskum heimilum, þá er
jeg viss um, að hagur almennings
í þessu fándi stæði fástari fótum,
en hann gerir nú. Og myndi þá
ekki þjóðin, á þeim ógnartímum
sem nú virðast fara í hönd, geta
horft með minni ugg til komandi
tíma ?
Ágústa vár miklum mannkóst-
um gædd, og: mátti ekkert aumt
sjá svo úr yrði ekki bætt, en
ógleymanlegpst vei’ður hún mjer,
fyrir hina óvenju miklu vinnu-
gleði, jeg héld helst,‘ áonún hefði
verið lang ánægðust með að gera
alt, sem gera þurfti, ekki einasta
á sínu eigin heimili, heldur og
alt fyrir alla aðra sem hún gat
náð til.
Allir, sem kyntust þessari góðu
koriu, sakna hennar; fórnfýsi
hennar og hjálparlund var alveg
frábær.
En mestur er söknuðurinn hjá
þreyttum og vinnulúnum eigin-
manni, sem hefir nú, eftir svo
langa og farsæla sambúð, orðið
á bak að sjá svo tryggum og
traustum förunaut, og svo hinum
heimilisræknu börnum og dætra-
sonum, sem voru að alast upp á
heimilinu, undir handleiðslu hinn-
ar umhyggjusömu ömmu.
Við ykkur öll vildi jeg mega
segja þetta; Ástvinur ykkar
kvaddi heiminn á rjettum tíma;
starfskraftarnir voru þrotnir, eft-
ir það gat lífið aldrei orðið henni
annað en þjáning. Hún hafði sjeð
ávextina af símii göfuga og óeig-
ingjarna starfi, í vexti og þroska
óvenjulega góðra barna.
Dagsverkinu var lokið, með snild
og prýði, og þá liafði hún fulla
þörf fvrir hvíld.
Endurminningarnar um hina
starfsglöðu konu munu seint
gleymast þeim *r henni kyntust,
en best munu þær gevmast í hug-
skoti eftirlifandi ástvina. Fyrir þá
eru þær ómetanlegur fjársjóður.
9 Helgi Kr. Jónsson.
Qagbófc
I. O. O. F. 5= 12191481 /2 =
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Vaxandi SA-átt, allhvast og rign-
ing síðdegis.
Veðrið í gær (miðv.d. kl. 6):
Milli íslands og Noregs er allstór
lægð. Vindur er norðlægur um alt
larid, en er að ganga niður, og
veður víðast þurt og- bjart. Hiti
er 5—7 st. á N- og A-landi, en
8—12 st. syðra. Ný lægð er að
nálgast frá S-Grænlandi.
Næturvörður er í nótt í Ingólfs
Apóteki og Laugavegs Apóteki.
Næturlæknir er í nótt Jón G.
Nikulásson, Ilrefnugötu 5. Sími
3003.
I nótt er opin Bæjarbílstöðin,
Austurstræti 1, sími 1395.
K. R. 2., 1. og meistaraflokkur.
Æfing í kvöld kl. 7 á íþróttavell-
inum.
í dag verður lokið við að berá
út- eyðublöðin, sem húsbændur
e’iga að fylla út í sambandi við
skömtunina, sem hefst á mánu-
daginn. Skömtunarskrifstofa bæj-
arins hefir fengið húsnæði Ferða-
skrifstofu ríkisins í Tryggvagötu
28 til umráða og tekur til starfa,
sem fyr segir, á mánudaginn.
Ungbarnavernd Líknar, Templ-
arasundi 3, er opin þriðjudaga og
föstudaga kl. 3—4.
Súðin kom úr hringférð í fyrra-
kvöld.
Á Hólmavík voru saltaðar í
fyrrinótt 60 turinur af herpinóta-
síld.
Sundlaug í Hafnarfirði. í gær
sámþykti sundlaugarþyggingar-
néfnd Hafnarfjarðar einróma, að
héfja nú þegar framkvæmdir að
býggingu sundlaugar, við svo-
uefndan Gataklett. Verður þessi
samjiykl Hafnfirðingum tvímæla-
íaust mjög mikið gleðiefni. Og
væntanlega verður þess ekki langt
að bíða, ef ekki hamla óviðráðan-
legir Örðugleikar, að sundlaug rísi
upp í Hafnarfirði.
Ferðir skipanna. Lesendur blaðs
ins hafa spurst fyrir um það,
hvefsvegria eigi hafi staðið í blað-
inu undanfarna daga, eins og
venja er til, hvar skipin sjeu. Eu
skipafrjettir eru feldar niður sam-
kvæmt ósk skipafjelaganna. Er
ekki óskað eftir því að auglýsa
neitt um ferðir þeirra.; Flugufregn
irr gengu um það um daginn, að
Gullfoss hafi verið beint til Kirk-
wall tií eftirlits. En ekki hefir af-
gijeiðsla Eimskipafjelagsins feng-
ið neitt uiri þftð að vita, og er
freg’nin því iir lausu lofti' gripin.
Orðsending frá Nemendasam-
bandi Kveunaskólans í Reykjavík.
Basarinn verður ekki haldinn fyr
en í byrjun desember. Sendið muni
yðar fyrir 20. nóvember.
F'arsóttir og manndauði í Rvíli
vikuna 27. ágúst til 2. sept. (í
svigum tölur næstu viku á und-
an) : Ilálsbólga 49 (31). Kvefsótt
60 (34). Iðrakvef 18 (14). Kvef
lungnabólga 2 (0). Skarlats’sótt 1
(0). Munnangur 1 (0). Mannslát
6 (5). Landlæknisskrifstofan (FB)
Útvarpið í dag:
19.45 Frjettir.
20.20 Hljómplötur: Ljett .lög.
20.30 Frá útlöndum.
20.55 Utvarpshljómsveitin leikur
(Einleikur á eelló: Þórli. Árna-
son).
Ofl SGl
0 D S ®
iKO^JáLT
Tilkynning
frá ríkisstfóiminmi.
Allar verslanir, sem versla með vörur þær, sem
taldar eru í bráðabirgðareglugerð útg. 1. sept. þ.
á., skulu í síðasta lagi að kvöldi föstudagsins 15.
sept. leggja í póst til viðskiftamálaráðuneytisimi
skýrslur þær> sem getið er í 6. gr. nefndrar reghi-
gerðar, en það eru:
1) skýrslur um birgðir 1. sept. 1939.
2) skýrslur um innkaup á tímabilinu 1.—15. sept.
3) söluskýrslu, þ. e. skrá um viðskiftamenn og
sölu til þeirra, er sjeð verður af, hve mikið
ðlV.j ■: .ÍJil i
hver einstakur hefir keypt.
Reykjavík, 13. sept. 1939. >
UTLA BILSTOÐIN Er nokkuð stór
UPPHITAÐIR BÍLAR. í
LOGTOK.
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík f. h. ríkissjóðe og
að undangengnum úrskurði í dag verða lögtök látin fram
fara fyrir ógreiddum tekju- og eignaskatti, fasteigna-
skatti, lestagjaldi, hundaskatti, lífeyrissjóðsgjaldi og náms-
bókagjaldi, sem fjellu í gjalddaga á manntalsþingi 1939,
gjöldum til kirkju, sóknar og háskóla, sem fjellu í gjald-
daga 15. júlí 1939, bifreiðaskatti, skoðunargjaldi bifreiða
og vátryggingariðgjaldi ökumanna bifreiða, sem fjellu í
e#.
gjalddaga 1. júlí 1939, og vitagjöldum fyrir árið 1939.
Lögtökin fara fram á ábyrgð ríkissjóðs en á kostnað gjald-
enda að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar aug-
auglýsingar. 1 *. J ’ ¥ WÉtt'
Lögmaðurinn í Reykjavík, 12. sept. 1939
Björn Þórðarson.
Lokaö i dag
kl. 12-4 vegna (arðarfarar.
Ullarverksmiðjan Framtíðin.
Litla dóttir okkar
JÓNÍNA MARÍA
andaðist að kveldi þ. 12. þ. mán.
Soffía Jóhannesdóttir. Lúðvík Kristjánsson.
Jarðarför sonar míns og bróður okkar
FINNBOGA JÓHANNSSONAR
fer fram frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 16. sept. og hefst
með húskveðju á heimili hans, Íshússtíg 6, Keflavík, kl. 3 síðd.
Kristín Guðmundsdóttir og synir.