Morgunblaðið - 02.11.1939, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 02.11.1939, Qupperneq 5
fflmtudagur 2. nóv. 1939. I orgndbl^id Útgef.: H.f. Árvakur, Reykíavlk. Rltstjörar: Jðn KJartansson og Valtýr Stefánsson (ábyrgBarmatSur). Auglýsingar: Árni Óla. Stitstjórn, auglýsingar og afgreiiSsla: Austurstræti 8. — Stmi 1600. Áskriftargjald: kr. 3,00 á mánuSi. í lausasölu: 15 aura eintakiC — 25 aura meS Lesbök. ÞÁ ER MJER AÐ MÆTA! Enska lífsstefnan D að ætlar að sýna sig nú, sem endranær, að auð- veldara er að hækka útgjöld TÍkissjóðs en lækka. því að altaí verða ótal torfærur á vegi, ef ymprað er á niðurskurði, jafn- 'vel hversu nauðsynlegur og að- íkallandi sem hann er. Glöggt dæmi þessa er máls- íhöfðun sú, sem fram er kom- in á hendur einum hinna þing- íkjömu endurskoðanda ríkis- ireikninganna, Jóni Pálmasyni ■áilþm. Ein athugasemd Jóns við aríkisreikningana 1937 er svo- ihljóðandi: „Kostnaður við ríkisspítalana • og ríkisbúin hefir hækkað gíf- urlega síðustu árin. Á eftirtöld- um stofnunum var breytingin frá 1936—1937: Landsspítal- •;anum, Holdsveikraspítalanum, •Gamla Kleppi, Nýja Kleppi, Vífilstaðahæli, Reykjahæli, Víf- ilsstaðabúi og Kleppsbúi: Starfsmannalaun hækkuðu um kr. 63.357.85 IKostnaður alls um — 179.176.70 ..Reksturshalli vor- ið 1937 meiri en 1936 um . . — 120.791.35 Af þessu sjest, þótt orsakir ;sjeu ekki raktar, að fjárstjórn- :in á þessum stofnunum er eitt- hvað undarleg. Væri æskilegt að vita, hort hjer eru ósjálfráð •••öf1 eða eitthvað annað að verki“. Ríkisreikningur sá, sem at- tiugasemdin er gerð við er ekki komin út og er því ekki kunn- ugt, hverju stjórnin hefir svar- .að athugasemdinni. En stjórn- arnefnd ríkisspítalanna, formað ur Vilmundur Jónsson land- ‘iæknir, hefir höfðað meiðyrða- anál gegn Jóni Pálmasyni, fyr- ír fyrgreind ummæli. 'k Það út af fyrir sig er harla •«inkennilegt, að slík málshöfð- in skuli komin af stað áður en IRíkisreikningurinn, með athuga- semdinni, kemur út. Er líkast því, sem hjer sje ógnun í garð Alþingis, að það skuli ekki vera að hrófla við útgjöldum rík- is-starfsmanna. En málshöfðun- án er að öðru leyti tákn tím- anna, sem við lifum á. Sú hefir verið venjan undan- farið, að hrúga upp hverri ríkis- stofnuninni af annari, með fjölda starfsfólks og með launa- greiðslum langt fram yfir það, sem ákveðið er í launalögum. Þessar stofnanir hafa svo vax- ið með hverju ári og gerst svo yfirgripsmiklar og ráðríkar, að líkast hefir verið því, sem þær stæðu yfir Alþingi og ríkis- stjórn. Það hefir og jafnan orðið svo I reyndinni, að ef einhver hefir viljað hrófla eitthvað við þess um báknum, hefir hann mætt svo ramgirtum víggirðingum, að ■ekki hefir verið viðlit að fá þar meinu um þokað. Ástæðan er cfur einföld. Við stofnanirnar eru tengdar háttsettar pólitísk- ar sprautur, sem hafa haft sterka aðstöðu á hærri stöðum. Hjer fæst einnig skýringin á því, hvernig á því stendur, að í hvert skifti sem farið er fram á, að leggja niður einhverja af þessum ríkisstofnunum og spara með því útgjöld ríkissjóðs, rísa jafnan upp einn eða fleiri stjórnmálaflokkar og telja slíkt hina mestu fjarstæðu. Hjer eru það flokkshagsmunirnir, sem settir eru ofar þjóðarhagsmun- um. Það er vissulega tími til kom- inn, að þessi mál verði tekin föstum tökum. Þær ríkisstofnan- ir, sem óþarfar eru, eiga að leggjast niður. Ríkið hefir vissulega nóg á sinni könnu nú, þótt ekki sje vafstrast inn á starfssvið, sem einstaklingarnir geta annast með margfalt betri árangri. Aðrar stofnanir ríkis- ins, svo sem verslunarfyrirtæki (einkasölurnar) eiga síðan að sameinast undir eina stjórn. Mætti áreiðanlega spara stór- fje á þann hátt í rekstri fyrir- tækjanna. Það hefir verið mein okkar, að margar þessar ríkisstofnan- ir hafa beinlínis orðið til fyrir ákveðna menn, sem þurftu að fá meiri laun, en ekki fyrir það, að þeirra væri þörf, frá þjóðar- heildinni sjeð. Af þessu stafar. það einnig, að ókleift hefir ver- ið að hrófla hið minsta við þess- um báknum. Þau hafa orðið einskonar ríki í ríkinu, og velt árlega miljónum króna, án veru- legs eftirlits eða aðhalds frá valdhöfunum. ★ Á Alþingi er árlega rifist dögum og vikum saman um smávægilegar upphæðir, hvort þær skuli greiddar úr ríkissjóði eða ekki. Á sama tíma eru for- stjórar ríkisstofnananna að hrúga utan um sig starfsfólki, sem Alþingi fær ekkert um að vita, fyr en löngu seinna, er reikningar stofnananna liggja fyrir, en þeir sýna árlega stór- ffclda hækkun í launagreiðslum. Það sýnist engin goðgá, að endurskoðandi Ríkisreikning- anna bendi á, að starfsmanna- launin við ríkisspítalana og stofnanir, sem tengdar eru við þær, hækka á einu ári um yfir 63 þús. króna. Það virðist ekki ástæðulaust, að óska skýringa á þessu. Það getur ekki verið nein persónuleg móðgun við land- læknirinn, sem formann stjórn- arnefndar þessara stofnana, að bent sje á þetta og spurt um á stæður. En landlæknirinn telur ,sig vafalaust öruggan í víggirð ingunni og því svarar hann hin- um forvitna endurskoðenda með málshöfðun, í stað hins, að skýra ■málið og leggja gögnin á borð- ið, frammi fyrir alþjóð. „England, den okcinda ön“ lieit- ir bók eftir Paul Cohen-Port- heim, sem þykir lýsa Eng- lendingum og enskum óhrif- um betur, en nokkur önnur bók, sem skrifuð liefir verið um það efni síðustu áratugi. Höfund- urinn, sem var Gyðingur, er látinn fyrir nokkrum ámm. Hjer er kafli úr bókinni: Langflestir Frakkar og Þjóð- verjar munu víst aldrei hafa gert sjer Ijóst, hve alger- lega þeir hafa gert ýmsar ensk- ar lífshugsjónir að sínum. Svo fullkomlega hafa þeir gert þetta að þeir hafa gleymt hvaðan þær fluttust til meginlandsins frá Englandi kringum aldamót- in 1700, voru íþróttir til skemsta óþektar á meginlandinu. — En í dag eru þær ein af atkvæða- mestu lífshugsjónunum og hafa virðingarsess í öllum blöðum. Englendingurinn hefir tæp- ast getað gert sjer grein fyrir því enn, að hugsjónir hans hafi sigrað erlendis. Hann horfir á það með undrun að aðrar þjóð- ir skuli hafa áhuga á íþróttum og vinni afrek í þeim. Hjer er ekki einungis um það að ræða, að tennis, knattspyrna, golf, hnefaleikur, polo o. s. frv. skuli hafa orðið vinsælar um alla Ev- rópu og meðal allra hvítra — og sumpart litaðra þjóða, held- ur að íþróttirnar hafa valdið byltingu í uppeldismálum, lífs- skoðun og sambýli karla og kvenna. Fyrir fjörutíu árum þótti enska íþróttakonan þjösna- legt viðrini, klædd eins og karl- maður og vantaði allar boglín- urnar, sem þóttu prýða hvern sannan kvenmann. Hún var kærasta viðfangsefni skopteikn- arans. En í dag er hún fyrir- myndin, hugsjónin, án þess að við vitum af því. Kona með mjaðmir og brjóst, sem ekki getur verið í leikfimifötum er óhjákvæmilega aftur úr tísk- unni, enska girl-fyrirmyndin hefir sigrað, bæði í daglega líf- inu og á leiksviðinu, og enska boy-fyrirmyndin um leið. Hvað er orðið af stífa flibbanum, upp snúna yfriskegginu og gömlu, hnarreistu liðsforingjafyrirmynd inni? Ungi íþróttamaðurinn er orðinn hugsjón hinna eldri. í- þróttin hefir breytt daglegum lífsvenjum, hefir eflt útilífið og ?amveru karla og kvenna — og aðstaða kvennanna í mannfje- laginu hefir breyst um leið. En xhuganum fyrir bóklegum sýsl- unum hefir hnignað. Ungu kyn- slóðinni i nærri því öllum lönd- um Evrópu svipar til þeirrar ensku. ★ Ekki aðeins íþi’óttin, heldur þvínær allar greinar þjóðlífsins hafa þroskast eftir fyrirmynd. Dagleg umgengni í þjóðfjelög- um nútímans er jafn ensk nú og hún var frönsk kringum 1700. Sá tími bygði Versailles fyrir drotna sína, en nútíminn byggir hixushótel fyrir sína. Lúxus- bótelin í London, París, Biarritz, St. Moritz, Deauville, Venezia og Baden-Baden eru hallir fursta nútímans; en hver minn- ist þess, að nýtískuhótelið er sigrar ensk uppfinning og að bað, j lestrarstofa, billiardstofa, setu- stofa og bar — alt þetta, sem okkur finst vera sjálfsagður hluti úr sæmilegu gistihúsi, er ensk innflutningsvara, sem er í samræmi við enskar venjur og hefir rutt sjer til rúms vegna enskra ferðamanna. Svo mjög menningur sje ósnortinn af þvL Lúxushótelin, golfklúbbarnir og þesskonar er að vísu ekki fyiir fjöldann, en hugsjón fjölcíans er þetta eigi að síður. Fjöldann dreymir jafnan um að mega lifa eins og hinir ríku og líf þeirra ríku er lífshugsjón fjöldaiiSw Enska hugsjónin, sambland af iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiifiiiii>iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii*iiii«iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiin« Eftir Paul Cohen-Portheim iiiiiimiiiiiiiiiiiiifiiiiiimiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiii kveður að þessu, að jafnvel ensku gistihúsin hafa dregist aftur úr og meginlandið er orð- ið enskara en England sjálft. um alla veröldina hagar karl- mannafatatiskan sjer eftir London, öll Evrópa drekkur te síðdegis, menn hafa fataskifti áður en þeir borða miðdegis- verðinn og baða sig á morgn- ana. Þetta er talið alveg sjálf- sagt. Maður notar enskan hæg- .indastól, drekkur whisky, rekir Abdullah eða stuttpípu, spilar bridge, tekur sjer enskan weekend, fer á baðstaðina, sem Englendingar urðu fyrstir til að uppgötva, eru í klúbb og búa fyrir utan borgina. í stuttu máli: öll tilveran verður upp á ensku. Svo er það í París og Róm, í Berlín og Buenos-Aires; England hefir sigrað alstaðar. ★ Enginn getur sagt, að þetta sjeu gárar á yfirborðinu, tísku- tildur og mannalæti og ekki heldur að það sje aðeins meðal ríkismannanna, sem enska stefnan hefir sigrað, en að al- þægindum, glæsileik, íþróttuni og útilífi er hugsjón allra í da-g. Hún hefir kæft allar aðrar hug- sjónir: hinn franska salon, Boudoir og esprit, þýsku Kðsfoi- ingjafyrirmyndina og boheme- fyrirmynd listamannanna. Þetta hefir sínar góðu hliðar: hreinlæti, heilnæmi, eðlilegri framgöngu, og sínar skugga- hliðar: að það líkamlega er sett hærra en það andlega og form- ið hærra en innihaldið. En þa5 er þýðingarlaust að vera að ræða um kosti og gaila hinnar nýju tísku. Enska tískan hefir útrýmt öllum öðrum, frá Mið- jarðarhafssiglingum miljóna- mæringanna til knattspyrmi rauðra verkamannasona, frá lúxushótelinu til sumarskýlis broddborgarans, frá húsaskipmi auðkýfingshallarinnar til vatns- salernisins í verkamannabú- staðnum. Alt ber þetta stimpxl- inn: Made in England. Og hvorfc sem við dáum eða fyrirlítma þessar ensku fyrirmyndir, þá breytir það engu um þá stað- reynd, að þær eru ráðandi. Frá LoimIod Fjölmennar hersveitir sjást daglega á göngu umi götur í Londom. Að haki sjest þinghússbyggingin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.