Morgunblaðið - 07.11.1939, Blaðsíða 7
ÞriJöjudagur 7. nóv. 1939.
MORGUNBLAÐIÐ
7
Dagbók
□ Edda 59391187 = 5.
Fundi frestað til miðvikudagskv.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
NA-kaldi. Úrkomulaust.
Veðrið í gær (mánud. kl. 5):
Alldjúp lægð fyrir suðaustan ís-
Hjónaefni. Á sunnudaginn opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú Þur-
íður Sigmundsdóttir, Hverfisgötu
59 og Þórir Bergsteinsson, Berg-
þórugötu 21.
Trúlofun sína opinberuðu s.l.
laugardag ungfrú Lára Kristins-
dóttir, Ránargötu 32 og Artliur
Hensing, Breslau, Hippelstrasse 33
land. Vindur allhvass NA með
rigningu norðan lands og norð-
vestan. Iliti er 2—7 st. norðan
lands, en 8 st. syðra.
Næturlæknir er í nótt Daníel
Fjeldsted, Hverfisgötu 46. Sími
■3272.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Aðalstöðin, sími 1383 annast
næturakstur næstu nótt.
Sextug er í dag frú Anna L.
Kolbcinsdóttir, Vesturgötu 41.
Sveinn Þórðarson, gestgjafi á
Hótel Gullfoss á Akureyri verður
fimtugur á morgun.
Silfurbrúðkaup eiga í dag frú
Rósa og Jón Ivars, aðalbókari,
Sólvallagötu 37.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú Guð-
laug Bjarnadóttir, Njálsgötu 22
og Þorgils Bjarnason, Fitjum,
Miðnesi.
00000000^00^000^00
Harðfiskur
Riklingur
Vísin
Laugaveg 1. Sími 3555. X
Útbú FjölnUveg 2. Sími 2555. 0
OOOOOOOOOOOOOOOOOO
AUGAÐ hvilist Tg||C I £
með gleraugum frá I íllLLE.
KOLASALAN M
Ingólfshvoli, 2. hæð.
Símar 4514 og 1845.
Engllsftiman
and wftfe
seek two furnished rooms, if poss-
lihle with telephone.
Please communicate with British
Cionsulate general.
Morgunblaðið hefir verið beðið
að geta þess, að heimilisfang Mrs.
Jakobínu Johnson skáldkonu sje
nú: Mrs. Jakobína Johnson, 3208
W.S. 9 str. Seattle, Washington,
U. S. A.
Leikfjelag Reykjavíkur sýnir
sjónleikinn Á heimleið annað kvöld
Orator, fjelag laganema, heldur
fund að Garði í kvöld 7. nóv. kl.
8%. Á dagskrá er: takmörkunin
að Háskólanum.
Hlutavelta Svifflugfjelagsins á
sunnudaginn fjekk óvenjulega góð
ar viðtökur almennings, svo að alt
var upp dregið um kl. 9Á2 um
kvöldið. Tveggja ágætra drátta
var ekki vitjað, og var því ákveð-
ið að bæta þeim við vinninga-
skrána í happdrættinu (sem 8. og
9. vinnings). Það voru 500 kr. í
peningum og bílferð að Kirkju-
bæjarklaustri. Þegar dregið var
hjá lögmanni í gær komu þessi
númer upp: 1. Málverk (M. Á. Á.),
nr. 4491. 2. Flugferð til Akureyraf
og til baka nr. 3759. 3. Matarforði
nr. 1135. 4. Málverk (Eyj. Eyfells)
nr. 3310. 5. Ferðabækur Vilhj.
Stef. nr. 4108. 6. Klukkustundar
flug áTF-Sux nr. 1736. 7. Tungu-
málanám hjá Hendr. Ottóssyni nr.
3333. 8. 500 kr. í peningum nr.
3156. 9. Bílferð að Kirkjubæjar-
klaustri nr. 1814. Vinninganna sje
vitjað á verkstæði fjelagsins í
Þjóðleikhsúinu (vesturdyr) kl.
8—10 í kvöld og næstu kvöld.
Svo biður fjelagið blaðið að flytja
öllum velunnurum, og hjálparmönn
um kærar þakkir.
Skemtun heldur íþróttafjelag
Reykjavíkur í Oddfellowhúsinu í
kvold kl. 9. Verðlaun verða veitt
eftirtöldum fjelagsmönnum fyrir
íþróttir; Ingva Guðmundssyni, Jó-
el Sigurðssyni, Gunnari" Sigurjóns-
syni, Geir Róbert Jónssyni, Sigur-
gísla Sigurðssyni, Tómasi Hall-
grímssyni, Gunnlaugi Jónssyni,
Atla Steinarssyni, Jóhannesi Þóri
Jónssyni, Viggó Einarssyni, Þig-
ólfi Steinssyni, Einari Eyfells, Er-
lendi Erlendssyni, Elíasi Sigurjóns
syni, Svavari Óskari Jakobssyni,
Magnúsi Þorsteinssyni, Ólafi Guð-
mundssyni, Sigurði Sigurðssyni,
Gunnari Sigurðssyni. Ellert Sölva-
sj-ni, Jóni Jóhannessyni.
Aðalfund sinn hjelt íþróttafje-
lag Hafnarfjarðar föstudaginn 3.
þ. m. 1 stjórn voru kosnir: Víg-
lundur Guðmundsson form., Anna
Guðmundsd. ritari, Sigurjón Vil-
hjálmsson gjaldkeri, Hannes Sig-
urjónsson fjármálaritari og Helgi
Sigurðsson varaformaður. Á fund-
inum var tekin sú ákvörðun, að
fjelagið gengi í í. S. í. Mikill á-
hugi er nú innan Iþróttafjel. Ilafn
arfjarðar. Viggó Nathanaelsson er
ráðinn íþróttakennari hjá fjelag-
inu.
Ný barnabók. Allir kannast við
sögurnar, um Rauðhettu, Þyrni-
rósu, Öskubusku og fleiri, sem
notið hafa mikilla vinsælda, bæði
hjer og annarsstaðar. Nii er kom-
in út ný barnabók með líku sniði
og þessar áðurnefndu bækur, en
frábrugðin að því leyti, að þarna
er birt ein af vinsælustu sögunum
úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar,
Sagan af Sigríði Eyjafjarðarsól.
Bókin er prentuð með stóru letri
og prýdd myndum eftir Jóhann
Briem. — Þarna er á ferðinni þjóð
leg barnabók að efni og frágangi
Halifax lávarður, utanríkismála-
ráðherra Breta, flytur ræðu í
breska útvarpið í kvöld kl. 7.15
(ísl. tími). Ræðunni verður út-
varpað á bylgjulengd 391.1 meter
og 449.1. Ræðan verður tekin upp
á grammófónplöturog verður út-
varpað á stuttbylgjum kl. 11.15 e.
h. og á miðvikudag kl. 6 f. li. og 11
f. h.
Aðalfundur Knattspyrnufjelags-
ins „Fram“ var haldinn síðastl.
sunnudag. I stjórn voru kosnir:
Formaður Ragnar Lárusson fram-
færslufulltrúi, og meðstjórnendur
JtiHus Pálsson, Sæmundur Gísla-
son, Ólafur Ilalldórsson og Gunn-
ar Nielsen. Endurskoðendur voru
kosnir þeir Guðmundur Halldórs-
son og Matthías Guðmundsson.
öllum.
Til Hafnarfjarðar komu þessir
vjelbátar með síld: Aldan með
140 tunnur, Gulltoppur 67, Helgi
Hávarðarson 90, Gloria 99Á2 og
Ásbjörg með 18 tn. Öll þessi síld
var flutt til Reykjavíkur til fryst-
inga.r. í fyrrinótt. fór Helgi Há-
varðarson aftur á veiðar og kom
inn í gær með 70 tn. síldar, seim
var fryst í Hafnarfirði.
Póstferðir á morgun. Frá Rvík:
Mosfellssv., Kjalarness, Reykjan.,
Ölfuss og Flóapóstar, Laugarvatn,
Hafnarfjörður, Borgarnes. Stykk-
ishólmspóstur, Álftanespóstur, —1
Til Rvíkur: Mosfellssv., Kjalarn.,
Reykjan., Ölfuss og Flóapóstar,
Hafnarfjörður, Borgarnes, Dala-
sýslupóstur, Barðastrandarpóstur,
Strandasýslupóstur, Norðanpóstur.
Til fátæka heimilisins, sbr. grein
Evu Hjálmarsdóttur: B. E. 5 kr.
N. N. 5 kr. V. 10 kr. S. G. 5 kr.
Lilla 5' kr. F. G. 5 kr. Mæðgur 10
kr. S. M. 10 kr. Ónefndur 7 kr.
V. 10 kr.
Gengið í gær:
Styrlingspund 25.95
100 Dollarar 651.65
— Ríkismörk 260.76
— Fr. frankar 14.97
— Sv. frankar 108.74
— Sv. frankar 146.53
— Finsk mörk 13.08
— Gyllini 246.65
— Sænskar krónur- 155.40
— Norskar krónur 148.29
— Danskar krónur 125.78
Útvarpið í dag:
20.15 Vegna stríðsins: Erindi (Jón
Blöndal hagfr.).
20.40 Erindi: Vísindi og stjórnmál
(Ólafur Björnsson hagfr.).
21.05 Tónleikár Tónlistarskólans:
Sehumahn: Trio í F-dúr.
21.40 Hljómplötur: „Matthías mál-
ari“, tónverk eftir Hindemith.
Þj^ðsög’urnar með myndum.
Þjóðlegar bækur handa böí-tium.
Fyrsta bókin er komin, út. Það er
Sagan af Sigríði Eyjafjarðarsól
úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar. Með myndum eftir Jóhann Briem.
Þetta verða bestu og vinsælustu barnabækurnar.
Fást í öllum bókaverslunum.
Bókaverslun ísafoldtarprentsmiðju.
Iþróttafjeiag HafnarljarOar
Vetrarstarfsemin hafin. Innanhúsæfingar verða á eftirtöldum dögum:
Þriðjudögum kl. 8—9 f. karla
Þriðjudögum kl. 9—10 f. konur.
Föstudögum kl. 8—9 f. karla.
Föstudögum kl. 9—10 f. konúr.
Kennari fjelagsins er Viggó Nathanaelsson. STJÓRNIN.
Ostar - Ostar - Ostar
Mjólkurbú Flóamanna hefir kynningarsölu á ostum
í Ostakjallaranum á Laugaveg 30.
Ódýr matarkaup. Selt í heilum ostum.
Verð frá kr. 2.60 pr. stk.
Ostur er hollasta, næringarríkasta og ódýrasta á-
leggið.
Ostakjallarinn, Laugav. 30
BEST AÐ AUGLYSA 1 MORGUNBLAÐINU.
Hjer œeð tilkynnist vinum og vandamönnum, að konan
mín, móðir og tengdamóðir okkar
SIGNÝ ÞORSTEINSDÓTTIR
andaðist á Landsspítalanum að kvöldi þess 4. þessa mánaðar.
Lúðvík Jakobsson.
Kristín Lúðvíksdóttir.
Helga Gissurardóttir.
Ólafur Lúðvíksson.
Ársæll Jónsson.
Vilhjálmur Lúðvíksson.
Jarðarför eiginkonu minnar og móður
GUÐRÍÐAR GRÍMSDÓTTUR
fer fram frá dómkirkjunni fimtudaginn 9. nóv. og hefst með
húskveðju að heimili okkar, Leifsgötu 6 kl. 1 e. hád. Jarðað
verður í Fossvogi. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Sveinn Hallgrímsson. Halldór Sveinsson.
Jarðarför
ÞURÍÐAR JÓNSDÓTTUR
frá Fremri-Langey á Breiðafirði fer fram á morgun og hefst
með húskveðju kl. 1 e. h. frá Sólvallagötu 5 hjer í bænum. —
Athöfninni í dómkirkjunni verður útvarpað.
Aðstandendur.
Jarðarför föður og tengdaföður okkar
GUÐJÓNS GUÐMUNDSSONAR
frá Hrauni fer fram frá heimili hans, Barónsstíg 24 á morgun
kl. 2 síðdegis.
Sigríður Guðjónsdóttir. Sigurkarl Stefánss.on.
Þakka alla vinsemd við andlát og jarðarför móður minnar
STEINUNNAR HELGADÓTTUR.
Samúel Eyólfsson.