Morgunblaðið - 21.11.1939, Síða 2

Morgunblaðið - 21.11.1939, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 21. nóv. 1939. Þjóðverjar og Bretar deila um hvor á sökina 5 skipum hlutlausra þjóða samtals 24 þús. smál. sökt þjóðanna Samtals 8 skipum 28 þúsund smálestum sðkt I Norður- sjónum um helglna 86 manns fórust af „Simon Bolivar" Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. BRETAR líta svo á, að Þjóðverjar sjeu nú að taka upp ótakmarkaðan tundurduflahemað (sbr. ótakmarkaða kafbátahernaðinn í síðustu styrjöld), þar sem 8 skip, samtals 28 þús. smálestir hafa rekist á tundurdufl og sokkið við austurströnd Englands síðustu tvo sólarhringana. SAMTALS 10 SKIP. Af þessum skipum eru þrjú bresk, samtals 4 þús. smá- lestir og 5 hlutlaus, eitt sænskt, annað ítalskt, þriðja jugo- síafneskt, fjórða litaueskt og fimta hollenska skipið Simon Bolivar, — skipin samtals 24 þús. smálestir. Sjeu talin með tvö bresk skip, sem þýskir kafbátar hafa sökt í Atlantshafi, hefir síðustu sólarhringana verið sökt 10 skipum, samtals um 34 þús. smál. HVER A SÖKINA? 1 Bretlandi er talið að þýskir kafbátar leggi leynilega tund- urduflum á mikilvægustu siglingaleiðum Breta í Norðursjónum. I Þýskalandi er uppi önnur skoðun. Þjóðverjar segja að hlut- lausu skipin hafi rekist á bresk tundurdufl, sem slitnað hafi upp í vestanstorminum sem geisað hefir í Norðursjónum undanfarna daga. Þeir segja að Bretar eigi þessvegna sökina á því, að hlut- lausu þjóðirnar hafi mist skip sín. Þessu er svarað í Bretlandi á þá leið, að bresk tundurdufl sjeu gerð þannig, að þau geti ekkert tjón unnið, ef þau slitna upp af þeim stöðum þar sem þeim hefir verið lagt. Boða Bretar, að þeir muni gera sjerstakar ráðstafanir til þess að mæta hihum „ótak- markaða tundurduflahernaði" Þjóðverja. TJÓN HOLLENDINGA. Alvarlegasta tjónið hafa Hollendingar beðið, með því að þeir mistu 8 þúsund smálesta skipið „Simon Bolivar“ og fórust með því samkvæmt síðustu upplýsingum 86 manns. Samtals hafa farist af hinum átta skipum, sem rákust á tundurdufl um 160 manns. Eitt hollenskt blað segir í dag, að Hollendingar hafi beðið jafn mikið manntjón eða því sem næst frá því að stríðið hófst, og orðið hafi á öllum vesturvígstöðvunum. Hollensk blöð láta í ljós mikla gremju yfir því, hve grátt þeir sjeu leiknir, en láta enga skoðun í ljós um það, hverjir þeir telji bera ábyrgðina. __________________________ Loftskeytamaðurinn á „Simon Bolivar“ hefir skýrt frá því hvernig það atvikaðist er skipið rakst á tundurduflin. — Hann segir, að fyrra tundurdufl- ið hafi komið á skipið miðskips, bakborða og hafi skilið þar eft- ir gínandi gap og svift stjórn- pallinum burtu. Hann hafi ekki getað sent út neyðarmerki vegna þess, að loft- netinu hafi verið svift í burtu með stjórnpallinum. Hann segist hafa bjargast í bát, en skömmu síðar rakst „Si- mon Bolivar“ á annað dufl og Voru boðaföllin frá sprenging- nnni þá svo mikil, að bát hans hvolfdi. Hann var margar klukku- stundir í sjó og hjelt sjer í skips- bátinn. Alt í kringum hann voru menn og konur á sundi og kölluðu á hjálp. Ertt af bresku skipunum, sem fórst af völdum tundurdufls í dag var togarinn ,,Wigmore“. óttast er að öll áhöfnin, 16 manns hafi farist. Frá Belgíu koma fregnir um að f jölmörg tundurdufl hafi rek- ið þar á ströndina undanfarna. daga. Hafa verið talin að minsta kosti tólf. Er eitt þeirra sprakk, brotn- uðu rúður í hermannaspítala í 5 kílómetra fjarlægð. Aróður Frá frjettcuritara vorum. Khöfn í gær. Ley, yfirmaður þýsku virmufylkingarinnar sagði í gær í tilefni af því, að tíu D'. vilnir VAfll 1 í An»v* frá Viví stríðið hófst: „England hefir aldrei verið veikara en það er nú, Þýska- land aldrei öflugra. í þessu stríði er það vinnan sem berst gegn peningunum, só- síalisminn gegn kapítalisman- um.“ Til þess að efla Þýskaland fyrirskipaði dr. Ley fyrir nokkr- um dögum að vinnustundadag- urinn skyldi lengdur í Þýska- landi úr 8 klst. í 10 klst. ★ í útbreiddasta blaði Bretaveldis, „Daily Express“ segir í dag: „Raeder stóraðmíráll Þjóð- verja lýsti yfir því hálfum mán- uði eftir að stríðið hófst, að Þjóðverjar myndu heyja sjó- hernað sinn að öllu leyti sam- kvæmt fyrirmælum Haagsam- þyktarinnar frá því 1907. Fyrsta dag styrjaldarinnar lýsti Hitler yfir því, að hann myndi ekki heyja stríð gegn kon- um og börnum. í dag halda Þjóðverjar því fram, að hollenska skipið „Si- mon Bolivar“ hafi rekist á breskt tundurdufl". Yfir þessari frásögn birtir blaðið fyrirsögnina: „Lygarnar verða æ stærri“. ★ Skýring: „Daily Express“ og raunar önnur bresk blöð, vitna óspart í ummæli Hitlers í „Mein Kampf“ í kaflanum um áróður, þar sem segir um lyg- ina í þjónustu áróðursins, að almúginn sje ginkeyptari fyrir stórum lygum en smálygum. Hollendingar skjóta niður þýska flugvjel Hollenskir hermenn fá nú aftur orlof eftir venjuleg- um reglum. En öll orlof í hern- um höfðu verið numin úr gildi 10. nóvember síðastliðinn, er út- litið þótti ískyggilegast í sam- húð Hollendinga og Þjóðverja. Þýsk hernaðarflugvjel var skotin niður yfir Hollandi ná- lægt, þýsku landamærunum í gær. Var hún á flugi yfir Hol- landi og lenti í viðureign við hollenska flugvjel. Flugrpaðurinn í þýsku flug- vjelinni beið bana. (FÚ) Fulltrxiar Osló-ríkjanna hjeldu nýlega með sjer fund í Kaupmanna- höfn til þess að ræða hlutleysismál. Fulltrúarnir eru: f fremri röð: Castberg, prófessor (Noregur), Castrén (Finnland), dr. jur. Cohn (Danmörk). í aftari röð, frá vinstri: Collin skrifstofustjóri( Dan- mörk), sendiherra Hollendinga, Kattendijke, svissneski sendiherr- ann, Dineehert og Unden prófessor (Svíþjóð). 680 mlljónir gegn 80 milj. Þjóöverjum Bresk-franska samsteypan Frá frjettar'itara vorum. Khöfn í gær. ambræðslan, sem átt hefir sjesr 'stað milli Breta og Frakka í hermálum og í við- skiftamálum vekur mikla at- hygli í Frakklandi og frönsk blöð leggja áherslu á hve feikn- arlega mikilvæg hú nsje. Blöðin gera ráð fyrir að hald- ið verði áfram að efla bresk- franska samvinnu og að fyrir áramót muni hernaðarleg og við- skiftaleg sambræðsla milli alls breska og franska heimsveldis- ins hafa átt sjer stað. Þjóðverjar segja, að Frakkar ofurselji sjálfstæði sitt. Með því verður sex hundruð og áttatíu miljón mönnum þjappað saman í eina hernað- arlega og viðskiftalega sam- steypu með sameiginlegu mark- miði. (í Þýskalandi voru íbúarnir áður en Þjóðverjar fengu sinn hluta af Póllandi 80—85 milj.; með Pólverjum eru þeir 100— 105 miljónir). í Þýskalandi er hin aukna bresk-franska samvinna túlkuð á þá leið að Frakkar sjeu smátt og smátt að láta af hendi sjálf- stæði sitt við Breta. Sjóhrakningar NorDmanna í 55 klst. Tólf skipverjar af skipshöfn- inni á norska skipinu „Arne Kjöbe“ voru settir á land 1 gær í hafnarborg á austurströnd Eng- lands. Höfðu þeir verið á hrakn- ingi í bátskel, sem þeir björguð- ust í, þegar þýskur kafbátur sökti „Arne Kjöbe“, í 55 klst. Upphaflega höfðu þeir verið 17 í bátnum. En bátnum hafði hvolft tvisvar, og í fyrra skiftið mistu þeir matmæli þau, sem í bátnum voru. Höfðu þeir aðeins vatnsleka til að svala sárasta þorstanum upp frá því. Þetta var fyrs'ta daginn. Þriðja daginn hvolfdi bátnum aftur og druknuðu þá 4 menn. Hinir voru svo máttfarnir1 orðnir, að þeim tókst eklti að komast upp í bátinn, og höfðu þeir haldið sjcr dauðahaldi í hann í 5 klst. er bresk hernaðarflugvjel kom auga á rþá og sendi hjálp. (FÚ) von Neurath gefur Hitler skýislu um ókyrðina í Prag Von Neurath er, að því er Eeutersfregn hermir, kominn tli Berlín, til þess að gefa Hitler skýrslu um óeirðirnar í Prag. Samtímis koma fregnir frá Ber- lín um, að margir æðstu foringjar S. S.-liðsins sjeu farnir til Prag til þess að skipuleggja baráttuna gegn undirróðri Tjekka.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.