Morgunblaðið - 21.11.1939, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 21.11.1939, Qupperneq 3
Þriðjudagur 21. nóv. 1939. MORGUNBLAÐIÐ 3 Herskip setur flutningaskip 1 bál framundan Hornafirði — Yíir London — Þýsk hernaðarflugvjel var á svermi yfir London í gær. Breskar flugvjelar ráku hana á flótta. Hús skjálfa í fall- byssuskothriðinni IGÆR urðu menn í Hoj-nafirði varir við, hve styrjöldin er nálægt okkur hjer úti á íslandi að þessu sinni. Fallbyssuskothríð var svo mikil skamt undan landi, að húsin hristust í Höfn í Hornafirði, og jafnvel alla leið upp að Hólum hristust gluggarúður, er skotþrumurnar dundu yfir bygðinni. Um tvö-leytið í gær sáu :menn þar eystra, að tvö skip komu að austan og hjeldu vestur með landinu. Virtist annað vera flu'tninga- ekip, en hitt herskip. Var herskipið að elta flutningaskipið og náði því utan við Hornafjörð, ska'mt vestan við Hornaf jarðarós. Skaut herskipið 4 skotum til þess að Stöðva flutningaskipið. Það var'stundarfjórðungi yfir klukkan tvö, sem bæði skipin staðnæmdust þarna. Stinnings- kaldi var af suðvestri og skygni ekki gott. Var svo að sjá úr landi, sem skipin væru mjög ná- lægt landhelgislínunni. Ekki var hægt að greina það úr landi, hvort bátar færu frá skipum þessum, eða milli þeirra. Voru þau að lóna þarna þangað til klukkan var langt gengin fjögur, þá hóf herskipið skot- hríð á flutningaskipið. Skaut það alls 14 skotum, svo mikl- um að hús hristust, eins og fyr er sagt. En ekki varð það sjeð úr landi að nokkurt skot kæmi frá flutningaskipinu. Brátt stóð flutningaskipið í ibjörtu báli. Var það mikið bál, EKKERT HEFIR REKIÐ. Einkenni á skipunum sáust engin úr landi, svo hægt væri að vita af því, hvaða skip væru þarna á ferðinni. En loftskeyta- menn á Seyðisfirðu heyrðu neyð arkall frá skipi um það leyti, sem skip þessi staðnæmdust þarna fyrir utan Höfn og hjeldu menn að það kynni að hafa ver- ið þaðan. En ekki var í neyð- arkallinu tilgreint neitt um nafn skipsins eða þessháttar. Sjór var ekki það ókyrr á þessum slóðum í gær, að menn teldu það hafa verið nokkrum erfiðleikum bundið að fara á bátum milli skipanna. En ef skipshöfnin frá því skipi sem brann, hefði reynt að komast á sínum bátum að landi, þá hefði lending orðið þeim hættu- leg, nema ef þeir hefðu farið inn í Hornafjarðarósinn. Voru menn í gærkvöldi á fjörunum til þess að hafa gát á því, hvort nokkuð slíkt væri á ferðinni. En ekkert hafði borist að landi frá skipinu, er blaðið átti tal við Hornafjörð í gærkvöldi. HIÐ BRENNANDI SKIP STRANDAR Rjett áður en símanum í gær- Átta „sanntrúaðir“? í miðstjðrn kommúnista Vildu rek.it Benja- mín Eiríksson íðstjórnarfundur kommún- istaflokksins var haldinn hjer í vikunni sem leið, og var lok- ið á laugardag. Eitt af umræðuefnum miðstjórn arinnar var það, hvort reka ætti Benjamín Eiríksson úr flokknum, sein refsingu við því, að hann hef- ir skrifað bækling um núverandi u'tanríkispólitík Rússa, og lýst sig andvígan henni. En brottrekstur hans úr flokkn u:m; fjekst ekki samþyktur. Voru 8 með því að refsa honum með brottrekstri, en 17 vildu láta það nægja að gefa. honum áminningu fyrii' að skrifa andstætt stefnu flokksins. Þeir, sem vildu reka hann fyrir pð skrifa gegn utanríkispóli'tík Rússa, voru: Brynjólfur Bjarna- son, Ilalldór Kiljan, Einar Olgeirs- son, Elísabet Eiríksdóttir, Gunnar Benediktsson, Þóroddur Guðmunds j son, Pjetur Laxdal og Jón Rafns- son. ■Samþykt var, að Þjóðviljinn skyldi ha.fa sömu „línu“ og hann hefir haft — og sömu skeytin. Alþingi Fundir voru haldnir í báðum deildum Alþingis í gær. Voru tvö :mál á dagskrá í hvorri deild. í Ed. voru tvö stríðsfrumvörp stjórnarinnar, um sölu og útflutn- ing á vörum og um bann við að veita upplýsingar um ferðir skipa. Bæði komin frá Nd. og fóru um- ræðúlaust til 2. umr. og nefnda. í Nd. voru til 1. umr. frumvarp um almennan vinnuskóla ríkisins og um breyting á lögum um fræðslu barna. Bjarni Bjarnason mælti með frumvörpunum, sem síðan fóru. til 2. umr. og nefndar. Kafbátnr í Þistilf irði í gær T gær var draguótabátur frá Þórs -*• höfn á Langanesi að veiðum á Þistilfirði. Er báturinn var á heirn- leið tirðu skipverjar varir við skip, sém þeir' töldu vera kafbá't, og fylgdi hann dragnótabátnum eftir inn að höfninni á Þórshöfn, en þar hvarf hann sjónum þeirra, enda var þá komið myrkur. (FU) Haustmót Tafl- fjelags Reykja- vikur: TJrslit Haustmót Taflfjel. Reykja- víkur í fyrsta, öðrum og þriðja flokki er nýlega lokið. Vegna fjarveru Argentínu- faranna þótti ekki gerlegt að láta keppa um meistaratitil Taflfjelagsins og fer sú kepni ef til vill fram seinna í haust. í stað þess fór fram æfingar- kepni í meistaraflokki. Þátttak- endur voru sex, og urðu þessi úrslit: nr. 1. Steingrímur Guð- mundsson 4 vinninga, nr. 2. Sturla Pjetursson 3(4, nr. 3— 4 Hafsteinn Gíslason og Sæm. Ólafsson 2l/2 vinning hvor, nr. 5 Magnús G. Jónsson iy2 og nr. 6 Jóhann Jóhannsson 1 v. í 1. flokki voru 9 þátttakendur og þessi úrslit: Nr. 1. Guðmundur S. GuS- mundsson, 8 vinninga nr. 2. Hannes Arnórsson 6% v. nr. 3. Sigurður Giss- urarson 6 v. nr. 4.—5. Óli Valdimars- son og Víglundur Möller 4 v. hvor, nr. 6. Ingimundur Guðmundsson nr. 7. Guðjón Jónsson 2, nr. 8 Kristján Syl- veríusson 1% og nr. 9 Aðalsteinn Hall dó^sson 1 vinning. í 2. flokki voru 9 þátttakendur. Úr- slit urðu þessi: Nr. 1. Geir Jón Helga- son 6 v., nr.. 2 Ólafur Einarsson 5(4, nr. 3 Maríus Guðmundsson 5, nr. 4.— C. Ingi Eyjólfsson, Kaj Rasmussen og I’orsteinn Þorsteinsson 4(4 v. hver, nr. 7 Haukur Einarsson 4, nr. 8 Áskell Kjerúlf 1(4 og nr. 9 Sigurður Pjet- ursson (4 vinning. 3. fl. voru 8 þátttakendur og þessi úrslit: Nr. 1 Lárus Johnsen 6 v., nr. 2.—4. Róbert Sigmundsson, Þórður Jí'rundsson og Þorsteinn Jóhannsson 5 v. hver, nr. 5 Karl Tómasson 4, nr. 6 Gunnar Ólafsson 2, nr. 7 Ingi Ey- \inds 1 og nr. 8 Ottó Guðjónsson 0. ÞING FISKIFJELAGS- DEILDA NORÐLEND- INGA. Akureyri, mánudag. Hjer stendur nú ýfir þing Fiskif jelagsdeilda í Norð- endingafjórðungi. Mættir eru 11 'ulltrúar frá 6 vdeildum. Forset.i íingsins er Guðmundur Pjeturs- 011, útgerðarmaður. Góður þórskafli er hjer á Poll- Breytingar á framfær§ln- i- ;• jf lögunum Nýt( frnmvar á Alþingi ALLSHERJARNEFND efri deildar flytur f. h. fjelagsmálaráðherra frumvarp um breytingar á framfærslulögunum, en frumvarpið er sam- ið af nefnd, sem ráðherra skipaði 28. sept., „til þess að at- huga breytingar á framfærslulögunum og framkvæmd og skipun framfærslumála, og þá með sjerstakri hliðsjón af því, að dregið verði úr þunga framfærslunnar fyrir bæjar- og sveitarf jelögin“. í nefnd þessa voru skipaðir Bjarni Benediktsson pró- fessor, Sverrir Gíslason oddviti og Jón Brynjólfsson skrif- stofustjóri. Enufremur unnu að þessum málum með nefndinni þeir Jónas Guð- mundsson eftirlitsmaður sveitarstjórnarmálefna, Friðjón Skarphjeð- insson bæjarstjóri og Ólafur Sveinbjörnsson fulltrúi framfærslumála í Reykjavík. Háðglósur þýska útvarpsins um Bessa- staðadvöl breska flugmannsins ýska útvarpið skýrði frá því í gærkvöldi að Barnes, breska flugmanninum hafi verið fenginn dvalarstaður á Bessa- stöðum. ÍJtvarpið fór háðulegum orð- um um það hve notaleg dvöl flugmannsins hier verður og gat þess t. d. að hann hefði konu ,sína með sjer og hefði verið feng inn dalarstaður í nýtísku íbúð- arhúsi (villu). Hlutaveltumunum stol ið frá kommúnistum Sósíalistaf jelagið — komm- únistar — hjeldu hlutaveltu í Ishúsinu við Tjarnargötu í fyrradag. Þegar hlutaveltunni lauk voru eftir um 500 „drætt- ir“ og var þeim stolið í fyrri- nótt. Það voru margt af bestu munum hlutaveltunnar, sem eft- ir voru, svo sem alfatnaður, málverk (hestar að kljást), all- mikið af þvottaefni o. fl. Munir þessir voru allir settir í kassa og geymdir í ílshúsinu. og þar var þeim stolið í fyrrinótt Um þessi mál alment keinst nefndin þannig að orði í greinar- gerð frumvarpsins: Höfuð-meinsemdin. „011 nefndin er sammála um það, að höfuðgalli núverandi á- stands sje sá, að vegna þess að fólkið sækir um of á einstaka staði, svo að þar skapast atvinnu- leysi, þá verði sveitarþyngsli þess- ara staða svo mikil, að þeir geti ekki undir risið. Hjer við bætist, • að þeir, se;m þegar eru orðhir þurfalingar, auka enn vandræðin með því að sækja í margmennið til þess að liverfa þar, ef svo má segja. Loks hefir vald sveitar- stjórna verið skert svo mjög, að hæpið er, að þær hafi vald til nauðsynlegra aðgerða á þeim erfið- leikatímum, er nú steðja að. Þegar skygnst er um eftir úr- ræðum til bóta á því ástandi, sem nú er, verður einna fyrst fyrir að athuga, hvort ekki sje rjeþt að gera landið alt að einu framfærslu hjeraði. Afnám sveitfestitímans, sem ákveðið var með framfærslu- lögunum 1935, sýnist mjög stuðla að því, að þessi skipun væri upp tekin. Má raunar segja, að fyrir henni votti í ákvæðuni laga 1935 um jöfnunarsjóð, sem ætlaður er til þess að jafna kostnað milli framfærslnhjeraða. Um það er að vísu deilt, hvort sú jöfnnn sje fyllilega rjettlát, og er því einkum haldið fram af Reykjavíkur hálfu, að svo sje ekki. En hætt er við, að sú skipun, sem allir telji rjett- láta, finnist seint í þessum efnum. Og ef sveitarstjórnir eiga að halda áfram meðferð þessara mála, svo sem hjer á landi hefir ætíð verið, FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU mum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.