Morgunblaðið - 21.11.1939, Side 5

Morgunblaðið - 21.11.1939, Side 5
jÞriðjudagur 21. nóv. 1939. 1 Verklýðshrevfingin hefir verið bvgð upp á röngum grundvelli Ctgeí.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. Ritstjórar: Jðn Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgCarm.). Auglýsingar: Árni Óla. Ritstjðrn, auglýsingar og afgreitSsla: Austurstræti 8. — Slmi 1600. Áskriftargjald: kr. 3,00 á mánuíSi. í lausasölu: 15 aura eintakitS, Hvað meina þeir? Eftir að frumvarp Bjarna Snæ- björnssonar, sem tryggir verkamönnum jafnrjetti innan werklýðsf jelaganna, kom fram á Alþingi, hafa forsprakkar Alþýðu- flokk-sins skrifað hverja greinina af annari til árása á Sjálfstæðis- menn. Er það einkum Finnur Jóns ®on, se:m haft hefir sig mjög írammi í þessum skrifum. Þegar þetta frumvarp kom til fyrsiu umræðu í efri deild, mátti skilja ummæli fjelagsmálaráðherra þannig, en hann er sem kunnugt «er forseti Alþýðusambands íslands, að hann væri fylgjandi þeirri höf íiðstefnu, sem mörkuð væri í frum- Varpinu, en taldi hinsvegar að um Jþetta ætti ekki að setja lög, held- tir ættu umbætui’nar að gerast innan verklýðsfjelaganna sjálfra. Að fenginni þessari játningu :fjelagsmálaráðherra, lýsti atvinnu- málaráðherra, Olafur Thors yfir Jþví, að Sjálfstæðisflokkurinn væri á hvaða augnabliki sem er reiðu- fcúinn til samninga um þessi mál við Alþýðuflokkinn. Yrði niður- ®taðan sú, að samningar tækjust, væri SjálfstæSisflokkurinn fús til að draga til baka frumvarp 33jarna Snæbjörnssonar. En Sjálf- stæðisflokkurinn ljeti sjer hinsveg ar ekki nægja fögur orð ein frá forkólfum Alþýðuflokksins. Hans Skrafa væri framkvæmd(ir, og það án undandráttar. Ætla mætti, að fjelagsmálaráð- lierra Ijeti ekki si'tja við orðin tóm, heldur reyndi hann að leysa fiessi mál með fullu samkomulagi þessara tveggja flokka. Ráðherr- Ætnn hefir hinsvegar ekkert að- liafst í þessu efni ennþá. í þess stað lætur hann Finn Jónsson og aðra vindbelgi innan Alþýðuflokks ins skrifa hinn fáránlegasta þvætt íng um þessi mál og afstöðu Sjálf stæðisflokksins til þeirra. Við vitum ekki hver meiningin «r með þessu háttalagi. Eðlileg- asta svar Sjálfstæðisflokksins við l)ulli Finns væri, að knýja frum- varp Bjarna Snæbjörnssonar á- fram í þinginu og sýna þeim kratabroddum alvöruna. Morgunblaðið er hinsvegar þeirr -mr skoðunar, að heppilegast væri, allra hluta vegna, að um þessi mál gæti orðið samkomulag milli Sjálf stæðisflokksins og Alþýðuflokks- ins. Því væri rjett að fá nú þegar úr því skorið hjá forseta Alþýðu- ■sambandsins, hvort Alþýðuflokk- urinn vill leysa málin með sam- líomulagi. Vilji flokkurinn reyna -samkomulagsleiðina, mætti strax ’hefjast handa í því efni. Það er áréiðanlega ósk megin- þorra allra verkamanna í land- inu, að þessi deilumál verði leyst aneð samkomulagi þessara tveggja flokka. Takist það ekki, þá er sökin hjá forkólfum Álþýðuflokks- ins. Sú upplausn sem er innan verkalýðssamtakanna hjer á landi er að mörgu leyti sjerstæð, og samstæða hennar finst ekki innan neinna hinna skyldu sam- taka. Svo sem kennarasamtakanna, læknasamtakanna, verslunarmanna samtakanna, atvinnurekendasam- takanna eða bændasamtakanna o. s. frv. Þessa upplausn innan verkalýðs- samtakanna má beint rekja til af- skifta hinna pólitísku flokka, Al- þýðuflokksins og kommúnista af samtökunum. Undirokun samtakanna. Þessir tveir flokkar hafa nauðg- að verkalýðssamtökunum til að vera háð sjer að meira eða minna leyti — og á seinni árum hafa þessir tveir flokkar gert hverja tilraunina á fætur annari til að undiroka verkalýðssamtökin undir hina pólitísku hagsmuni sína. Og ætíð þegar hinir sjerstæðu hagsmunir þessara flokka rákust á innan samtakanna þá svifust þeir ekki að kljúfa hvert verka- lýðsfjelagið á fætur öðru, eins og 1930, og sama sagan er að endur- taka sig nú árin 1938 og 1939. Og er þá ekki von að menn spyrji; Hvernig stendur á því að verka- lýðssamtökin eru undirorpin á- hrifavaldi þessara manna og flokka — semi svífast ekki að sundra samtökunum til sinna eigin hagsmuna, og nota áhrifavald sitt til að leiða verkalýðsbaráttuna inn á flokkspólitískan grundvöll, andstæðan hagsmunum og eðli verkalýðssamtakanna? Jú. En til þess að fá svar við þeirri spurningu þá þurfum við að vita um eðli og hlutverk samtakanna, sem og sögu samtakanna frá byrj- un. Eðli samtakanna. -— I eðli sínu eru verkalýðssam- fökin óflokkspólitísk hagsmuna- samtök verkamanna, eða baráttu- form þeirra til sóknar og varnar. Til varnar gegn þeim öflum, sem misvirða rjett og lífsskilyrði þeirra manna sem harðast verða úti í lífs- baráttunni. Til sóknar með þeim öflum sem vilja bæta afkomumöguleika og atvinnuskilyrði verkamanna. Þess vegna eru verkalýðsfjelögin í eðli sínu ekki baráttutæki gegn at- .hafnamönnunum heldur með þeim. Þessu insta eðli verkalýðslireyf- ingarinnar 'hefir oft verið snúið við hjer á landi, af ráðandi mönn- um samtakanna. Sólin samtakanna snúið í andóf gegn þeim sem vilja hyggja upp atvinnuvegina, en vörn samtakanna snúið í sókn þeirra er vilja rífa niður. Mikill hluti verkamanna var frá fyrstu tíð andvígur þessari nei- kvæðu baráttu verkalýðssamtak- anna. En þeir voru skipulagslega ekki nógu sterkir til að færa verka lýðssamtökin á rjetta braut. Þannig hafa verkalýðssamtökin vaxið upp að miklu leyti utan við sitt eigið eðli, án þess að standa á eigin grundvelli og án þess að stefna að rjettu marki. Það reyndist svo, að ráðandi menn í verkalýðssamtökunum lít- ilsvirtu ekki aðeins ríkisvaldið, heldur einnig meðlimi sína — þá er ekki gátu felt sig við þessa til- högun á verkalýðshreyfingunni eða þetta form hennar. — Og að endingu, eins og kunnugt er, var mikill þorri verkamanna sviftur rjettindum innan landssamtak- anna, en þó krafist að þeir full- nægðu öllum þeim skyldum sem samtökin lögðu þeim á herðar. Ekki hið rjetta form. Verkamenn eru sú stjett þjóð- fjelagsins sem oftast verður harð- .ast úti í lífsbaráttunni. — Þetta vita verkamenn sjálfir betur en nokkur annar. En þrátt fyrir það hefir verkamannastjettin ekki fundið þá leið, eða það form lífs- baráttunnar, sem væri þess um- komið að skapa henni örugga lífs- afkomu. Alment eru verkamenn ekki komnir lengra á rjetta leið, til að skapa þetta form lífsbaráttunn- ar, en það að þeir vita að fje- lagsleiðin muni vera sú áhrifarík- asta. En sú vitneskja er þeim ekki nóg, vegna þess að ennþá hafa verkamenn ekki haft mátt til að skapa' sjer það fjelagsform og þá stefnu í atvinnumálunum sems yrði þeim sigursæl. Þó eru fjelög verkamanna búin að starfa hjer frá því um alda- mót og samband verkalýðsfjelaga frá því 1916. En hvernig stendur á því, að fjelagssamtök verkamanna eru bú- in að starfa svo lengi í landinu, án þess að fá það form sem þeim er eðlilegt og þá stefnu í atvinnu- málum; sem þeim er farsæl ? Svar við þessari spurningu fæst um leið og uppbygging fjelaganna frá byrjun er athuguð. Ekki sem verk- lýðsf jelög —. Vel að gáð. Fjelögin voru ekki stofnuð af verkamönnum, í upp- hafi, vegna þess að þeir hefðu fundið hina fjelagslegu þörf. Því síður að þeir vissu hvað og hvern- ig fjelögin áttu að starfa. Fjelögin voru stofnuð af ung- um sósíalistiskum mentamönnum. Ekki sem verkalýðsfjelög neiua að hálfu leyti, en að hinni helft- inni sem sósíalistiskur flokkur með lýðræðissinnaða sefnuskrá en kommúnistiska í framkvæmd: — Verkföll — ofbeldi — misþyrm- ingar. — I stað þess að vinna með verkamönnum og atvinnuveitend- um að uppbyggingu atvinnuveg- anna og bættri lífsafkomu verka- manna, snerust þau að nokkru leyti gegn hvorutveggjum. Þeir fáu verkamenn, sem hinir ungu sósíalistisku mentamenn höfðu getað hnoðað utan um sig, drukku í sig þá trú, að hag verka- manna yrði best borgið með því að rífa niður verandi skipulag at- vinnuveganna ,og byggja á nýjum grundvelli með alræði ríkisins yfir öllum atvinnurekstri, útrýma öll- um stjettum og skapa eintómt „fínt fólk“ — einskonar „burgeisa í öðru veldi“. 8á meginhluti verkamanna, sem ekki trúði á þessa framtíðarpara- dís, en vildi halda áfram að byggja upp atvinnuvegina, snerist á móti þessum grundvelli fjelagssamtak- anna, en varð smám saman að láta undan frekju og ofbeldi hinna sósíalistisku mentamanna. Atvinnuveitendur, sem fanst spjótinu kastað til sín, þar sem megináherslan var lögð á það í útbreiðslustarfsemi fjelaganna, að ríkið ætti að hafa atvinnurekstur- inn meo höndum, snerust einnig á móti fjelagssamtökunum og áttu oft í harðvítugum deilum við þau. Þannig þróast verkalýðshreyf- ingin, í fjandskap við mikinn þorra verkamanna og hatrömum átökum við vinnuveitendur. Eftir að verkalýðsfjelögin höfðu starfað þannig í nokkur ár, með neikvæðum. árangri verkalýðsbar- áttunnar og litlum sósíalistiskum árangri, sáu hinir sósíalistisku mentamenn, að; við svo búið mátti ekki lengur standa. Til frambiiðar gat það ekki gengið að verkalýðs- fjelögin hefðu sósíalistiska stefnu- skrá í fjandskap við meginþorra verkamanna. Næsta sporiið — Alþýðusamband íslands. Þá var tekið það ráð að mynda samband verkalýðsfjelaganna — Alþýðusamband ísland. Síðan A1- þýðuflokkinn innan sambandsins en utan um verkalýðsfjelögin — þannig að hver meðlimur verka- lýðsfjelaganna, innan sambandsins, var talinn Alþýðuflokksmaður og látinn greiða flokksgjöld sam- kvæmt því gegn um Alþýðusam- bandið. En hinsvegar var meðlim- um verkalýðsfjelaganna talin trú uih að nú væru verkalýðsfjelögin ópólitísk og þar gætu nú allir verið meðlimir hversu andstæðir sem þeir væru sósíalismanum. — Þeir sem sáu í gegn um þennan vef og lýstu sig andvíga — voru stimplaðir sem fjandmenn verka- lýðssamtakanna. Með þessu tekst liinum sósíal- istisku mentamönnum að hafa öll áhrif í f jelögunum og Alþýðusam- bandsþingið sem flokksþing Al- þýðuflokksins. En til frekari trygg ingar öllutn, yfirráðum flokltsins yfir samtökunum, ef verkamönn- um hugkvæmdist að hrinda okinu af sjer, þá voru stofnuð hin svo- kölluðu jafnaðarmannafjelög, og voru meðlimir þeirra flestir taldír sem tveir menn innan Alþýðusam- bandsins og flokksins. Veikleikinn innan frá. Þessi bygging lánaðist furðan- lega um nokkur ár hvað snertir yfirráð sósíalista yfir samtökun- um, en er ávalt neikvæð í verka- lýðsbaráttunni. Yeikleiki byggingarinnar kemur innan frá. Það skapast sterk óánægja inn- an Alþýðuflokksins, yfir því hversu seint gangi að vinna verka- menn til fylgis við sósíalistmann. Hópur manna innan flokksins þolir ekki biðina, en vill nota þær fáu sálir sem eru til staðar til að gera öreigabyltingu sósíalistiskra mentamanna. Hinir, sem höfðu meiri tök í flokknum og bjuggust við að geta orðið „burgeisar í öðru veldi“ hjá Framsóknarflokknum, harðneituðu að egra byltingu að svo stöddu og kváðust vera sósíal-demokratar. Endirinn varð sá, að vinstri arm- ur flokksins myndaði Kommúnista- flokk Islands með samvinnu við Sovjet-Rússland. Átök um yfirráðin. Þessi skifting flokksins hafði í för með sjer átökl um yfirráð yfir verkalýðsfjelögunum. Hvert fje- lagið af öðru er klofið. Alþýðu- flokkurinn tekur sjer einræði yfír Alþýðusambandinu en kommúnist- ar stofna Verkalýðssamband Norð- urlands. Þeir verkamenn, sem höfðu gert sjer skýrasta grein fyrir tilgangi og gildi verkalýðssamtakanna og vildu þau óháð hinum pólitísku flokkum, eru óskipulagðir, þeir taka þann kost að þola enn of- ríkið, í þeirri trú að ofstopamenn- irnir sjái að sjer áður en langt um líði, og þá verði hægt að byggja upp óháða, sjálfstæða verkalýðshreyfingu. Þegar kommúnistar hafa starf- að einir í 4 ár, án þess að treyst- ast til að gera byltingu, fá þeir skipun frá Sovjet-Rússlandi nm að taka upp samfylkingarpólitík við Alþýðuflokkinn, vegna Þjóða- bandalagspólitikur Sovjet-Rúss- lands. Um þetta leyti er að gerast sú breyting í verkalýðsmálunum, að Sjálfstæðisflokkurinn er að taka að sjer forystu þeirra verkamanna sem vilja pólitískt óháð, sjálfstæð verkalýðssamtök. Síðari grein á morgun. Skemtilegar myndir. Undanfarna daga liefir verið ljósmyndasýning í skemmuglugga Haraldar; Fugla- líf í Vestmannaeyjum. Myndirnar hefir ungur Vestmannaeyingur, Gísli Johnsen, tekið, og eru þær mjög skemtilegar. Sundfjelagið Ægir heldur skemti fund í Oddfellow uppi í kvöld kl. 9. Sig Þórs sýnir. Síðan verður dansað. Fjelagar fjölmennið. Eftir Ólaf J. Ólafsson iimmmmiimmmmimmiimmmmmmi,mmmmm,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,r

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.