Morgunblaðið - 05.12.1939, Page 8
8
Þriðjudagur 5. des. 1939.
LITLI PISLARVOTTURINN
Armand fyrirvarð sig. Það hafði
ekki verið vottur af ásökun
S orðum foringja hans og svipur
Jhans hafði verið jafn blíður eins og
ekkert hefði ískorist.
Armand varð það nú skyndilega
ljóst, hve miklum vandræðum
han n stefndi að íjelagsskapnum
tneð framferði, sínu. Alt sem hann
Jhafði aðhafst þessa tvó seinustu
daga, sem hann var í París, hafði
stefnt fyrirætlunum þeirra Og lífi
í voða. Yinfengi hans og de Batz,
samband hans við ungfrú Lange,
heimsókn hans til hennar í gær og
Uftur í morgun. Það hefði svo sem
verið auðvelt fyrir einhvern njósn-
ara, sem sat um; þá, að grípa hann,
eða jafnvel elta hann heim til
Blakeneys, og það hefði verið
verst af öllu.
„Percy“, mælti hann lágt.
„Geturðu nokkurn tíma fyrirgef-
ið mjer?“
„Svona, svona, vinur minn“,
svaraði Blakeney hlátt áfram,
„það er ekkert að fyrirgefa, en
það er margt, sem þú mátt ekki
iáta þjer gleymast framvegis, svo
sem hvaða skyldur þú hefir við
fjelaga þína. Og ekki máttu held-
Ur gleyma hlýðni nje heiðri þín-
um“.
„Jeg var frávita, Percy. En jeg
vildi að þú gætir gert þjer í hug-
arlund hvað hún er mjer“.
Blakeney rak upp þenna stutta
kuldahlátur, sem hann notaði oft
til þess að dylja hugsanir sínar
fyrir óviðkomandi mönnum og
jafnvel fyrir vinutn sínum.
„Okkur kóm saiman um það í
gær“, sagði hann, „að í ástamál-
um væri jeg hreinn og beinn glóp-
ur. En þú verður þó að viður-
kenna, að jeg stend við það, sem
jeg lofa. Og hjet jeg þjer því ekki
í gærkvöldi, að jeg skyldi sjá um
að ungfrú Lange yrði komið fyr-
ir þar sem henni er óhætt. Jeg sá
það fyrir, að hún mundi verða
handtekin, þegar jeg heyrði frá-
sögn þína. En jeg vonaði, að mjer
mundi takast að ná í hana áður
en Heron kæmi heim. Því miður
Varð hann hálfri stundu á undan
mjer. Ungfrú Lange hefir verið
tekin föst, en hvers vegna viltu
sam;t sem áður ekki treysta mjer,
Arrnand? Höfum við ekki áður
komið okkar fram, þótt við ram-
ari væri reip að draga? Ungfrú
Jeanne Lange verður ekkert mein
gert“, — hann lagði áherslu á orð-
in — „jeg gef þjer drengskapar-
orð mitt fyrir því. Þeir hafa aðeins
tekið hana fasta til þess að nota
hana sem agn. Því að þeir vilja
ná í þig. Þeir hugsa sem svo, að
úr því að þeir hafa hana í varð-
haldi, munir þú ganga í gildruna,
og þegar þeir hafi náð þjer, muni
iimiimiiiiiiiinuii
Framhaldssaga 26
Miiiiiiiaiiiuiiiiiiiiiiiniiimiiiitiiiiiitiniiiiimiiiiiiini
þeir einnig ná mjer. En jeg full-
vissa þig um, að henni er óhætt.
Reyndu að bera traust til mín,
Armand. Jeg veit ósköp vel, að
jeg krefst mikils af þjer, því að
þú verður að trúa im;jer fyrir því,
sem þjer er dýrmætast af öllu, og
að þú verður að hlýða mjer í
blindni. En annars get jeg ekki
staðið við orð mín“.
„Hvað viltu þá að jeg gerif ‘
„Fyrst og fremst verður þú að
fara frá París áður en klukku-
stund er Ijðin. Það er stórhættu-
legt að þú sjert hjer — ónei, ekki
hættulegt fyrir sjálfan þig, heldur
fyrir aðra, og fyrir áætlanir okk-
ar á morgun“.
„Hverng á jeg að geta farið til
St. Quentin, Percy, þega jeg veit
að hún--------------■“.
„Þú veist að hún er undir minni
vernd“, mælti Percy rólega. „Og
þössvegna, ætti þjer ekki að falla
þetta svo illa. Komdu nú“, mælti
hann enn fremur og lagði hönd-
ina á öxl vínar síns. „Mjer þykir
ekkert gaman að því, að þú skul-
ir halda að jeg sje einhver fant-
ur, en jeg vona að þú vitir, að
jeg þarf að hugsa um hina líka
og barnið, sem jeg hefi lofað að
bjarga og lagt þar við drengskap
mánn. En jeg ætla nú ekki að
senda þig eins langt og til St.
Quentin. Farðu hjerna niður í
stofruia og fáðu þjer einhvern bún
ing, svo að þú þekkist ekki, því
að jeg geri ráð fyrir, að þú hafir
týnt böggli þínum á tröppum
hússins í Carrefour du Roule. Hjá
fötunum er pjáturkassi og í hon-
um nokkur vegabrjef. Taktu eitt-
hvert þeirra, sem hæfir þjer best,
og flýttu þjer svo til Villette.
Skilurðu mig?“
T á, já“, sagði Armand ákafur.
W” „Þú vilt að jeg vinni með
Ffoulkes og Tony“.
„Já, jeg býst við að þú rekist á
þá þar sem þeir eru að vinna í
kolavinnu við skurðinn. Reyndu að
ná tali af þeim í einrúmi eins
fljótt og auðið er. Þú skalt skila
frá mjer til Tony að jeg biðji
hann að fara eins fljótt og hann
getur til St. Germain til móts við
Hastings, en þú tekur svo hans
stöðu með Ffoulkes“.
„Já, þetta skil jeg vel, en hvern-
ig á Tony að komast til St. Ger-
main?“
„Svona, vinurinn sæli“, sagði
Blakeúey glaðlega, „þú skalt ekki
hafa neinar áhyggjur af Tony.
Hann fer eftir því, sem. jeg segi
honum. Gerð þú nú bara eins og
,jeg hefi fyrir þig lagt, og láttu
hann eiga sig sjálfan. Og nú“,
bætti hann við alvarlegur í bragði,
„því fyr sem þú ferð frá Parísar-
borg því betra fyrir okkur. Eins
og þú sjerð sendí jeg þig ekki
hema til La Villette,; því það er
ekki lengrá í burtu en það, að jeg
get ávalt fylgst með þjer. Vertu
nálægt hliðinu þar til klukku-
stund eftir að myrkrið fellur á.
Aður en hliðinu verður lokað skal
jeg sjá til þess að þú hafir fengið
frjettir af ungfrú Lange“.
Armand sagði ekki neitt meira.
Haiin varð skömmustulegri við
hvert orð, sem, Blakeney sagði.
Hann sá hve ótrúr hann hafði ver-
ið og skildi hve lítið hann átti
skilið þá vináttu, sem Percy hafði
sýnt hohum þrátt fyrir alt. Hann
tók eftir að Blakeney horfði á
hann gletnislega.
Armand reyndi því að bera sig
mannalega, en honum tókst ekki
að leyna vin, sinn óttanum, sem
hafði gripið hann heljartökum.
Framh.
nmuJ nmj^j^u/rJzc^pynjiÁ,
Lloyds vátryggingarfjelagið er
sagt vátryggja alt, jafnvel
gegn þríburafæðingum og rign-
ingu, en samkvæmt því sem enskt
blað segir, þá er Lloyds farinn
að taka upp veðmálastarfsemi og
hefir hún gefist fjelaginu vel. Hið
enska blað segir svo frá:
— Nýlega var maður einn að
aka bíl sínum úti á þjóðvegi. Hann
rakst á zígaunastúlku á leið sinni,
sem bað um að fá að sitja í bíln-
tim og leyfði imaðurinn henni það.
1 þakklætisskyni bauðst stúlkan
til þess að spá fyrir manninn og
þáði hann það.
Zígaunastúlkan sagði honum, að
áður en dagurinn væri liðinn
myndi hann lenda í umferðar-
slysi og sjá m.ann deyja. Ennfrem
ur sagði hún, að Hitler myndi
missa vöklin í Þýskalandi.
Þegar tveir fyrnefndu spádóm-
arnir komu fram fór maðurinn á
skrifstofu Lloyds í London, náði
tali af forstjóranum, og bauðst til
að veðja við Lloyds 10 þúsund
sterlingspundum um, að Hitler
myndi tapa völdum í Þýskalandi
innan mánaðar. Forstjórinn gekk
iun á veðmálið og mánuðurinn er
löngu liðinn.
•k
Olsen og Petersen koma of seint
að jarðarför vinar síns. Prestur-
inn er að halda ræðu og segir frá
því hve heiðarlegur, góðgjarn og
yfirleitfc merkilegur maður sá látni
hafi verið.
— Heyrðu, Petersen, segir 01-
sen. Jeg heldi að það sje best að
við komum okkur hurtu. Við höf-
um, lent í skakkri jarðarför.
★
Gjaldkerinn; Peningarnir þeir
arna eru dálítið óhreinir, en þjer
eruð vonandi ekki hræddir við
bakteríur ?
Launþeginn: Ó, sei, sei, nei, það
geta engar bakteríur lifað á þeim
sultarlaunum, sem jeg hefi.
★
— Hjer sjáið þjer mynd af föð-
ur mínum.
— Það getur ekki verið. Þessi
maður er miklu, yngri en þjer.
— Hjerna eru 10 krónur, sem
jeg sltulda þper.
— Þú skuldar mjer ekki neitt.
— Jú, ef þú lánar mjer 20 krón-
ur, skulda jeg þjer 10.
k
Læknirinn: Þjer verðið að vera
undirbúinn undir það versta, ungi
maður. Frændi yðar mun, án efa
hafa það af.
★
— Jeg er ekki fullkomlega á-
nægður með þessi meðmæli yðar.
— Það er jeg heldur ekki, herra
forstjóri, en því miður hefi jeg
engin betri.
sfvœdt
EINHLEYPUR
reglumaður óskar eftir húsnæði.
Uppl. í Herkastalanum, her-
bergi 26, kl. 4—7.
HATTAVIÐGERÐIR
handunnar, Hafnarstræti 18.
Karlmannahattabúðin.
UNGUR MAÐUR,
sem undanfarin missiri hefir
verið við nám erlendis, þarf að
fá atvinnu við skrifstofustörf
eða aðra vinnu. Tilboð sendist
blaðinu merkt „Ungur maður“.
stOlka vön afgreiðslu
óskar eftir afgreiðslustörfum
við bakarí eða búð. Meðmæli ef
óskað er. Sími 1460 frá 10—2.
HREINGERNINGAR
önnumst allar hreingerning-
ar. Einnig ryksugun. Pantið í
tíma. — Guðni og Þráinn. Sími
2131.
VANTI YÐUR MÁLARA.
þá hringið í síma 2450.
KJÓLASAUMASTOFU
hefi jeg opnað á Njálsgötu 84.
Sauma allskonar dömukjóla,
barnakjóla, kápur og dragtir.
Sníð einnig og máta. Vönduð
vinna. Sanngjarnt verð. Júlía
Magnúsdóttir, Njálsgötu 84 —
sími 4391.
UNGUR TRJESMIÐUR
óskar eftir atvinnu við ein-
hverskonar iðnað. Tilboð merkt
„Föst atvinna“, sendist Morgun-
blaðinu.
SNlÐ OG MÁTA
Dömukápur, dragtir, dag-
kjóla, samkvæmiskjóla og alls
konar barnaföt. Saumastofan
Laugaveg 12, uppi (inng, frá
Bergstaðastræti). Símar 2264
og 5464.
OTTO B. ARNAR,
löggíltur útvarpsvirki, Hafnar-
stræti 19. Sími 2799. Uppsetn-
ing og viðgerðir á útvarpstækj-
um og loftnetum.
EINHJLEYPAN MANN
vantar lítið herbergi um hálfs-
mánaðar tíma. A. v. á.
VENUS SKÓGLJÁI
mýkir leðrið og gljáir skóna al
burða vel.
VENUS-GÓLFGLJÁI
afburðagóður og fljótvirkur.
Ávalt í næstu búð.
FRIGGBÓNIÐ FlNA,
er bæjarins besta bón.
HJÁLPIÐ BLINDUM
Kaupið minningarkort Bóka-
sjóðs blindra, fást hjá frú Mar-
en Pjetursdóttur, Laugaveg 66,
Körfugerðinni og Blindraskól-
anum.
Jáuyis&uftur
HAFIÐ ÞJER ATHUGAÐ
úrvalið af dömu og herrahönsk-
unum í „Glófanum“, Kirkju-
stræti 4.
Rlóm & Kransar h.f.
Hverfisgötu 37. Sími 5284. —
Bæjarins lægsta verð.
SPARTA- DRENGJAFÖT
Laugaveg 10 — við allra hæfi
EFTIRMIÐDAGSKJÓLAR
og blúsur í úrvali. Saumastofan-
Uppsölum, Aðalstræti 18. —
Sími 2744.
1 FLOKKS SALTSÍLD
er til sölu. Fisksalan, Nýlendu-
götu 14. Sími 4443.
DÖMUFRAKKAR
ávalt fyrirliggjandi. Guðm.
Guðmundsson, klæðskeri. —
Kirkjuhvoli.
ÞORSKALÝSI
Laugavegs Apóteks viðurkenda.
meðalálýsi, fyrir böm og full-
orðna, kostar að eins 90 aura-
heilflaskan. Lýsið er svo gott,.
að það inniheldur meira af A-
og Ð-fjörefnum en lyfjaskráia
ákveður. Aðeis notaðar ster-
ilar (dauðhreinsaðar) flöskur,.
Hringið í síma 1616. Við send«
um um allan bæinn.
REYKJAVlKUR
APÓTEK
kaupir daglega meðalaglös,
smyrslkrukkur (með loki), hálf'
flöskur og heilflöskur.
SALTVlKUR GULRÓFUR
góðar og óskemdar af flugu og
maðki. Seldar í 1/1 og % pok-
im. Séndar heim. Hringið í
síma 1619.
KÁPUR OG FRAKKAR
fyrirliggjandi. Einnig saumað
með stuttum fyrirvara. Gott
snið! Kápubúðin, Laugaveg 35.
KARTÖFLUR OG GULRÓFUR’
í pokum og lausri vigt. Góðar
og ódýrar. Þorsteinsbúð, Grundí
arstíg 12, sími 3247. Hringbraut
61, sími 2803.
ISLENSKT BÖGLASMJÖR
Hnoðaður mör. Harðfiskur,,
vel barinn. Þorsteinsbúð, Hring-
braut 61, sími 2803, Grundar-
stíg 12, sími 3247.
MEÐALAGLÖS, FLÖSKUR
Fersólglös, Soyuglös og Tómat-
flöskur keypt daglega. Spari8
milliliðina og komið beint til
okkar ef þið viljið fá hæsta
verð fyrir glösin. Við sækjum
heim. Hringið í síma 1616. —
Laugavegs Apótek.
KALDHREINSAÐ
þorskalýsi sent um allan bæ. —
Björn Jónsson, Vesturgötu 28.
3imi 3594.
FORNSALAN, Hverfisgötu 49
selur húsgögn o. fl. með tæki-
færisverði. Kaupir lítið notaða
muni og fatnað. Sími 3309'.
HARÐFISKSALAN,
Þvergötu, selur saltfisk nr. 1,
2 og 3. Verð frá 0,40 au. pr,
kg. Sími 3448.
Kaupum allskonar
FLÖSKUR
hæsta verði. Sækjum að kostn-
aðarlausu. Flöskubúðin, Hafnar-.
stræti 21, sími 5333.
KAUPUM FLÖSKUR
stórar og smáar, whiskypela,
glös og bóndósir. Flöskubúðin,
Bergstaðastræti 10. Sími 5396.
Sækjum. Opið allan daginn.
ðkijxað-fujtcliÉ
GULLHRINGUR
með safír tapaðist á Stúdenta-
dansleiknum. A. v. á.