Morgunblaðið - 10.12.1939, Side 4
4
MORGUNBLA ÐIÐ
Sunnudagur 10. des. 1939,
LITLI
hægt að fá að sjá nema milli kl.
6 og 7 á kvöldin. Það var ekkert
annað að gera en að bíða. Hann
labbaði meðfram höfninni með
hattinn í hendinni, svo vindblær-
inn gæti kælt hið brennheita enni
hans.
C einna mundi hann ekki hvemig
þessi langi og þreytandi dag-
ur hafði liðið. Er leið á daginn
fann hann til sultar og ósjálfrátt
fór hann inn á matsöluhús og
reyndi að borða og drekka. En
meginhluta dags gekk hann fram
og aftur um göturnar í eirðar-
leysi og án þess að finna til kulda
eða þreytu. Klukkustund fyrir
klukkan 6 var hann kominn á Quai
de Horloge og beið hjá Palais de
Justices eftir að klukkan yrði 6.
Honum gekk greiðlega að rata
til La Tournelle. Fyrir framan
hann var lítil lúga, sem loks var
búið að opna og á hillu fyrir fram-
an hana voru tvær stórar bækur
bundnar í leðurband.
Þó Armand væri kominn næst-
um klukkustund áður en opna
átti var samt orðið krökt af fólki
fyrr framan klefa eftirlitsmanns-
ins. Tveir hermenn voru á verði
og neyddu fólkið til að standa í
biðröðum, svo að einn og einn
kæmist að í einu til að skoða í
bækurnar.
Það var mislitur hópur, sem
þarna stóð og beið eftir að kom-
ast að, eins og verið væri að bíða
við aðgöngumiðasölu að ódýrum
sætum á leikhúsi. Menn í fötum
úr klæði; aðrir í rifnum úlpum
og bættum buxum, þarna voru og
nokkrar konur með sjöl um herð-
ar sjer og klút um höfuðið.
Allir voru hljóðir og djúpt
hugsandi og tóku hinu hrottalega
framferði hermannanna með ró-
semi; fólkið var auðmjúkt við
mann þann er hafði eftirlit með
fangalistunum, er hann skömmu
seinna kom til þess að taka fram
bækurnar, sem geymdu nöfn ást-
vina þeirra vesalinga er biðu —
faðir, móðir, bróðir eða eiginkona
biðu þarna í sálarangist til að leita
að nafni ættingja eða ástvinar.
Úr klefa sínum reyndi eftirlits-
maðurinn að mótmæla því að þessi
eða hinn hefði nokkurn rjett til
þess að gá í bækurnar. Hann
gerði alt sem hann gat til að gera
þessu vesalings fólki erfiðara fyr-
ir. Af sumum heimtaði hann vega-
brjef, eða skriflega yfirlýsingu um
hollustu við lýðveldið. Hann var
eins hrottalegur og hann frekast
gat, og Armand sá frá þeim stað
erhann stóð, að stöðugt streymdu
til eftirlitsmannsins koparskild-
ingar.
Það var alveg dimt í ganginum
og stöðugt bættust fleiri og fleiri
Kertisstubbur var hjá bókunum til
afnota fyrir þá, sem; voru að leita
að nöfnum í þeim.
Loks kom röðin að Armand.
Hann hafði svo mikinn hjart-
slátt að hann mátti ekki mæla eitt
orð. Hann fór í vasa sinn náði í
silfurpening og stakk 1 lófa eftir-
litsmannsins og hrifsaði síðan með
áfergju bókina, sem merkt var
„Konur“.
Með kæruleysislegum tilburðum
stakk náunginn silfurmyntinni í
vasa sinn. Hann horfði á Armand
gegnum stór hornspangargleraugu,
og leit út eins og ránfugl sem
komið hefir auga á bráð, en er of
saddur til þess að nenna að hrifsa
hana. Hann hafði augsýnilega gam
an af að horfa á hve Armand var
taugaóstyrkur og hve klaufalega
PlSLARVOTTURINN
hann bar sig að er hann var að
leita í bókinni.
„Hvaða dagf', spurði hann
stuttur í spuna og með skrækum
málróm.
„Hvaða dag?“ endurtók Armand
hikandi.
.............................
Framhaldssaga 30
■niiiiiiimmiiiiimiiimiiiiiiimiiiiiiiiiiimmiiiiiue
„Hvaða dag og klukkan hvað
var hún handtekinf' spurði mað-
urinn og stakk arnarnefi sínu al-
veg upp að andliti Armands. Silf-
urpeningurinn hafði gert, sitt gagn
og það var ætlun náungans að
vera hjálplegur þessum sveita-
slána.
„A föstudagskvöldið eð var“,
muldraði Armand.
Hendur eftirlitsmannsins voru í
samræmi við útlit hans; mjóar og
kræklóttar og neglurnar voru eins
og klær á ránfugli. Armand horfði
höggdofa á hendur mannsins með-
an hann blaðaði kunnuglega í bók-
inni. Loks benti maðurinn með
óhreinum fingri á dálk einn í bók-
inni.
„Ef hún er hjer“, sagði hann,
„hlýtur nafn hennar að vera ein-
hversstaðar þarna“.
X. O. G. T.
BARNASTÚKAN ÆSKAN
Fundur í dag kl. 3^. Sagðar
og lesnar sögur. Þjóðdansarnir
æfðir. Mætið stundvíslega. —
Gæslumenn.
ST. FRAMTÍÐIN NR. 173.
Auk venjulegra fundarstarfa
s. s. inntaka nýrra fjelaga o. fl.
verður á fundinum í kvöld: 1.
Upplestur Guðm. Gunnfaugsson.
2. Pianosóló, C. Billich. 3. List-
dans, Guðrún Halldórsdóttir. 4.
Dans.
GETSAUMAÐ
nokkra kjóla fyrir jól. Dagrún
Frjðfinns, Lokastíg 16.
MORGUNSTÚLKU
vantar á barnlaust heimili. Uppl.
á Skálholtsstíg 2 A uppi.
HREINGERNINGAR
Önnumst allar hreingerning-
ar. Einnig ryksugun. Pantið í
tíma. — Guðni og Þráinn. Sími
2131.
GERI VIÐ
saumavjelar, skrár og allskonar
heimilisvjelar. H. Sandholt,
Klapparstíg 11. Sími 2635.
VANTI YÐUR MÁLARA.
þá hringið í síma 2450.
SAUMASTOFA.
Sauma dömu- og barnafatnað.
Júlíana V. Mýrdal, Þórsgötu 8.
REYKHÚS
Harðfisksölunnar við Þvergötu,
tekur kjöt, fisk og aðrar vörur
til reykingar. Fyrsta flokks
vinna. Sírni 2978-
OTTO B. AkNAR,
löggíltur útvarpsvirki, Hafnar-
stræti 19. Sími 2799. Uppsetn-
ing og viðgerðir á útvarpstækj-
um og loftnetum.
Armand sá nöfnin í þoku og
það var eins og þau hreyfð-
ust í bókinni. Svitinn rann af and-
liti hans og hann dró andann með
erfiðismunum.
Honum var síðar ekki ljóst hvort
hann í raun og veru hafði sjeð
nafn Jeanne í bókinni eða hvort
ímyndunaraflið hafði hlaupið með
hann í gönur. En sannleikurinn
er sá, að meðal nafnanna í bók-
inni sá hann alt í einu hennar
nafn og honum fanst nafnið vera
ritað með blóði.
582. Belhom-me, Louise, 65 ára.
Látin laus.
583. Lange, Jeanne, 20 ára, leik-
kona, Carrefour du Roule nr. 5.
Grunuð um að hafa hýst svikara.
Flutt til Temple. Klefi nr. 29.
Hann sá ekkert meira, því alt í
einu fanst honum eins og einhver
setti eldrauðan klút fyrir augu
&ZC&ifnnÍ7ujac
VENUS SKÓGLJÁI
mýkir leðrið og gljáir skóna af-
burða vel.
VENUS-GÖLFGLJÁI
afburðagóður og fljótvirkur. —
Avalt í næstu búð.
TILKYNNING
Járnsmíðavinnustofa Ingimars
Kr. Þorsteinssonar er flutt á Ný-
lendugötu 14, sími 2330. Fram-
kvæmir viðgerðir á alls konar
vjelum og skipum o. fl.
RITZ KAFFIBÆTISDUFT
og Blöndahl kaffi fæst ávalt í
Þorsteinsbúð, Grundarstíg 12,
og Hringbraut 61. Munið blönd-
unina: 1 skeið RITZ og 3 skeið-
ar kaffi.
K. F. U. K. í Hafnarfirði,
U. D.-fundur í dag kl. 4. —
Cand. theol,' Magnús Runólfs-
son talar. Allar stúlkur 14 ára
og eldri velkomnar.
BETANÍA
Almenn samkoma í kvöld kl.
81/%. Ræðumaður Steinn Sigurðs-
son. Allir hjartanlega velkomn-
ir. Barnasamkoma kl. 3.
SJÓMANNASTOFAN,
Tryggvagötu 2. Kristileg sam-
koma í dag kl. 4 e. h. Allir vel-
komnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN
Samkomur í dag: Kl. 11 og
8!/2- Kapt. Andresen og Solhaug
o. fl. Lúðrafl. og strengjasveit.
Allir velkomnir!
ZION,
Bergstaðastræti 12 B. Samkom-
ur í dag: Barnasamkoma kl. 2.
Almenn samkoma kl. 8. —
Hafnarfirði, Linnetsstíg 2. Vakn
ingavika hefst í dag kl. 4. Marg-
ir ræðumenn. Allir velkomnir!
FILADELFÍA
Hverfisgötu 44. Samkoma í dag
kl. 4 og 81/2. Eric Ericson og
Jónas Jakobsson, ásamt fleirum.
Allir velkomnir.
SL Y S A V ARN A J ELAGIÐ,
skrifstofa Hafnarhúsinu vi?
Geirsgötu. Seld minningarkort
tekið móti gjöfum, áheitum, árs
tillögum o. fl.
FRIGGBÓNIÐ FÍNA,
er bæjarins besta bón.
hans, á meðan hjarta hans var
tætt í sundnr af rándýrsklóm.
„Flyttu þig, röðin er komin að
mjer. Ætlar þú að standa þarna
í alla nótt?“
Honum fanst hann heyra þessi
orð sögð með hrottalegum róm,
grófgerðar hendur hrintu honum
til hliðar og einhver þreif kerta-
ljósið úr höndum hans. Hann
hnaut um stein, en þá var eins og
einhver gripi í hann og hjeldi hon-
um uppi 0g styddi hann dálítinn
spöl, þar til hann fann kaldan
vind leika um andlit sjer.
Þá rankaði hann við sjer.
Jeanne sat fangelsuð í' Temple;
þá át.ti hann einnig að vera í
fangelsi. Það gat ekki verið nein-
um erfiðleikum bundið að lenda í
þeirri snöru, sem í þá daga var
hert að hálsi svo margra. Nokkur
hróp: „Lifi konungurinn“ eða
„niður með lýðveldið!“ Og hann
myndi vera velkominn gestur í
hvaða fangelsi sem væri.
Framh.
1—2 ÍBÚÐARHERBERGI,
sem næst miðbænum, vantar
mig eftir áramótin. Guðm. Guð-
mundsson, klæðskeri.
JXfoufts&aftur
Barna-, kvenna- og karlmanna-
NÁTTFÖT
fallegt úrval.Sokkabúðin, Lauga
vegi 42.
Barna-, kvenna- og karlmanna-
HANSKAR OG LÚFFUR
Sokkabúðin, Laugavegi 42.
Kvenna og unglinga
REGNKÁPUR, margir litir.
Sokkabúðin, Laugavegi 42.
Barna-, kvenna- og karlmanna-
SOKKAR
í feikna úrvali.
Sokkabúðin, Laugavegi 42.
KVEN-
Morgunsloppar, silki, flauel. —
Margir litir.
Sokkabúðin, Laugavegi 42.
AXLAB AND ASETT
í smekklegum kössum.
Sokkabúðin, Laugavegi 42.
ALLSKONAR SNYRTIVÖRUR
og gjafakassar.
Sokkabúðin, Laugavegi 42.
Barna-, kvenn aog karlmanna-
NÆRFATNAÐUR SILKI
Sokkabúðin, Laugaveg 42.
ÞUSUNDIR VITA
að gæfa fylgir trúlofunarhring-
um frá Sigurþór, Hafnarstræti 4,
KAUPI ALLSKONAR GULL
hæsta verði. Sigurþór. Hafnar-
stræti 4.
KAUPIÐ
ryk- og vatnsþjettu sportúrin,
dömu og herra, aðeins hjá Sig
urþór, Hafnarstræti 4.
BLÁBER
(þurkuð). Rabarbar á heilum og
hálfum flöskum. Sítrónur. Þor-
steinsbúð, Hringbraut 61, sími
2803, Grundarstíg 12, sími 3247
AF SJERSTÖKUM
ástæðum verða seld nokkur sett
af undirfötum, hálsklútum,
vasaklútamöppum, ©innig leik-
föng, sjerstaklega ódýrt. Sápu-
húsið, Austurstræti 17.
Mikið úrval af
GJAFAKÖSSUM
bæði fyrir dömur og herra og-
margar tegundir af ilmvötnum
og hárvötnum. Sápuhúsið, Aust-
urstræti 17.
SILKISOKKARNIR
eru komnir, sjö nýtísku litir. —-
Kven-nærfatnaður, Slæður, Silki
vasaklútar, Skinnhanskar ódýr-
ir, Silkibönd, Kragar, Belti, Hár
kambar, Hárnet, Krullupinnar,
Hringar, Púðurdósir, Snyrtivör-
ur allskonar. Glasgowbúðin*
Freyjugötu 26.
KARLMANNSSOKKAR
fallegir, Manchetskyrtur, Trefl-
ar, Hálsbindi, Þverbindi, Binda
og klútakassar, Vasaklútar,
Barnasokkar, Barnabolir, Kerta
stjakar, Jólatrjesskraut, Barna-
leikföng.
gppwtljj
Freyjugötu 26.
ALLSKONAR
Jólakerti, jólakort, löberar, ser-
viettur fást í Sápuhúsinu, Aust-
urstræti, 17.
LEIKFÖNG
Lítið á jólabasarinn í Flösku-
búðinni Bergstaðastræti 10. —-
Mikið úrval. Sanngjarnt verð.
Blóm & Kransar h.f.
Hverfisgötu 37. Sími 5284. —
Bæjarins lægsta verð.
ÞORSKALÝSI
Laugavegs Apóteks viðurkenda
meðalalýsi, fyrir börn og full-
orðna. Lýsið er svo gott, að það>
inniheldur meira af A- og D-
fjörefnum en lyfjaskráin ákveð-
ur. Aðeins notaðar sterilar
(dauðhre.insaðar) flöskur. —-
Hringið í síma 1616. Við send-
um um allan bæinn.
SALTVlKUR GULRÓFUR
góðar og óskemdar af flugu og
raaðki. Seldar í 1/1 og % pok»
im. Sendar heim. Hringið I
síma 1619.
KÁPUR OG FRAKKAR
fyrirliggjandi. Einnig saumað
með stuttum fyrirvara. Gotfe
snið! Kápubúðin, Laugaveg 35=
MEÐALAGLÖS, FLÖSKUR
Fersólglös, Soyuglös og Tómat-
flöskur keypt daglega. Sparið
milliliðina og komið beint til
okkar ef þið viljið fá hæsta
verð fyrir glösin. Við sækjum
heim. Hringið í síma 1616. —
Laugavegs Apótek.
DÖMUFRAKKAR
ávalt fyrirliggjandi. Guðm
Guðmundsson, klæðskeri. —-
Kirkjuhvoli.
KALDHREINSAÐ
þorskalýsi sent um allan bæ. —
Björn Jónsson, Vesturgötu 28
Simi 8594.