Morgunblaðið - 24.12.1939, Síða 8

Morgunblaðið - 24.12.1939, Síða 8
8 Sunnudagur 24. des. 1939.. LLILI PISLARVOTTURINN Armand fann flösku í skápnum og helti í glas handa Ileron. Chauvelin fór aftur að ganga um gólf, œstur í skapi. „Reyndu að átta þig maður“, sagði hann skömmu seinna hast- arlega, „og segðu mjer hvað fyr- ir hefir komið“. Heron hafði sest í stól. Nokkr- um sipnum þurkaði hann sjer um ennið með skjálfandi hendi. „Capet er horfinn“, muldraði hann. „Hann hlýtur að hafa verið numinn á hrott á meðan Simons- hjónin fluttu. Það hefir verið leikið illa á þenna bansetta Coc- hefer“. Heron talaði með tónlausum málrómi, sem varla. heyrðist, eins og háls hans og munnur væri al- veg þur. En koníakið styrkti hann. LJ vernigf', spurði Chauvelin, stuttur í spuna. „Jeg var um það bil að fara úr turninum, þegar hann kom. Jeg hafði fullvissað ,mig um að alt var í lagi með Capet og skipaði konu Simons að sjá til þess, að Cochefer sæi liann líka. Síðan átti hún að loka hann inni í insta herberginu og Cochefer átti að halda vörð á ganginum. Jeg sagði nokkur orð við Cochefer, konu Simons og Dupont — sem jeg l>ekki vel — hafði mikið að gera við flutninginn. Jeg þori að sverja að það gat enginn h'afa leynst þarna inni. Er Cochefer hafði kvatt mig, fór hann rakleitt inn í stofu; kona Simons var þá að snúa lyklinum í heruergishurðinni. „Jeg er búin að loka Capet þarna inni“, sagði hún og rjetti Coche- fer lykilinn. „Hann er vel geymd- ur þar þangað til í kvöld, að hinir fulltrúarnir koma“. Framhaldssaga 35 ■iiiiiiuiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiM „Fór Cochefer ekki inn í her- bergið til þess að fullvissa sig um, að barnið væri þar? „Jú, það gerði hann. Hann Ij.et konuna opna dyrnar og leit yfir höfuð hennar inn í herbergið. Hann sver að hann hafi sjeð barn- ið sofandi í öllum fötum á teppi inst í herberginu. í>að voru vitan- lega engin húsgögn í herberginu og það var aðeins lýst upp með ljósi frá kertisstubb, en barnið svaf á teppinu. Cochefer sver, að hann hafi sjeð hann, og nú — er jeg kom upp —“ „Allir fulltrúarnir voru komnir — Cochefer og Lasniére, Lorinet og Legrand. Yið fórum inn í insta herbergið. Jeg hjelt á lampa í hendinni. Við sáum barnið liggja á teppinu alveg eins ‘ og Cochefer hafði sjeð það. Fyrst í stað gaf enginn þessu nánari gaum. Þang- að til einn — jeg held það hafi verið Lorinet — gekk nær til að skoða barnið. Alt í einu hljóðaði hann, og við hlupum allir til hans. Hið sofandi barn var ekkert ann- að en fataböggull og hárlubbi. — Hvernig lýst yður á?“ að var dauðaþögn drykklanga stund í litla herberginu. Armand hafði hlustað á frásögn- int með athygli. Hann sá í hug- anum hvernig þetta hafði alt gengið fyrir sig og hann sá meira heldur en hinir tveir byltinga- sinnar. í ii uganurn var hann aftur heima í íbúðinni bak við St. 'Germain l’Auxerrais; bæði Sir Andrew Ffoulkes, Tony lávarður og Hast- ings voru þar, fram og aftur um herbergið gekk maður. Þessi mað- ur horfði skörpum augum út um gluggann og sagði alt í einu á- kveðið. „Nú er það Dauphin, sem um er að ræða!“ „Grunið þjer einhvern ?“, sagði Chauvelin, sem stóð fyrir framan Heron og lagði aðra hendina á öxl honum:. „Gruna jeg nokkurn!“ hrópaði formaður velferðarnefndarinnar og bölvaði. „Grun! Vissu, meinið þjer? Það ex-u ekki meira en tveir dagar síðan maðurinn sat hjer á þessum stól og gortaði af því, sem hann hafði í huga. Jeg sagði hon- um þá, að ef hann gerði tilraun til að skifta sjer af Capet myndi jeg með eigin höndum snxxa lxann úr hálsliðnum“. Og hinir löngu fingur hans, sem líktust klóm, kreptust saman, eins og á rándýi iem hefir náð í eft- irsótta bráð. „Um hvern eruð þjer að tala?“, spurði Chauvelin stuttaralega. „Um hvern? Hvern annan held- ur en þenna bölvaðan de Batz? Hann hefir fulla vasa af austur- rísku fje, sem hann vafalaust hefir notað til þess að múta Simons, Cochefer og varðmönnunum“.. „Og Lorinet og Lasniere og your sjálfum“, skaut Chauvelin inn í. „Nei, nei!“ æpti Heron, sem strax fór að verjd sig. Æfur af reiði stökk hann upp af stólnum tilbúinn til að verja líf sitt. r það ekki rjett?“, spurði Chauvelin rólega. „Verið þá ekki það fífl, að ákæra menn út í bláinn. Þetta mál er svo um- fangsmikið að þjer komist ekki neitt áfram í því með getsökum. Er nokkur staddur í turninum núna?“, sagði hann svo alt í einu fullkomlega rólegur. „Já, Cochefer og hinir eru þar ennþá. Þeir eru að leggja á ráðin um' hvernig þeir eigi að bjarga sjer frá svikum sínum. Cochefer og Lasniere eru sjer meðvitandi um þá hættu, sem þeir eru í og hinir vita, að þeir komu nokkr- um klukkustundum of sein í turn- inn. Þeir hafa allir gert skyssur og vita af því. Hvað viðvíkur de Batz“, sagði hann með rödd, sem var orðin liás af æsingi. „Jeg sór þess eið um dagixin, að lxann skyldi ekki sleppa ef hann skifti sjer af Capet., Jeg er þegar kominn á hælana á honum. Jeg skal ná í hann áður en klukkan er 12, og' jeg skal pína hann — já, jeg skal kvelja hann. Dómstólarnir murnr gefa mjer leyfi til þ'ess. Við höf~ um dimman kjallara niðri og mín— ir aðe4oðarmenn þekkja kvala- tæki, sem eru verri en pyndinga- bekkurinn. — Þeir kunna að halda líftórunni í mönnum þar til lífið verður þeim'sem kvelja á óbæri- legt. Jeg skal kveljá hann. Jeg. skal kvelja haxxn!“ En Chauvelin sagði honum að þegja, stuttur í spuna og fór út xxr herberginu án frekari orða. Armand fylgdi honunx í hugan- um. Alt í einu greip hann ó- stjórnleg löngun til þess að flýja. Heron var svo niðursokkinn í sín- ar eigin hugsanxr, að hann myudi ekki taka eftir neinu. Fótatak Chauvelins var löngu þagnað í fjarska; það var langt efst upp í turn og það myndi fara langur- tími í að yfirheyra fulltrúaua. Nú; var tækifærið komið fyrir Ar- mand. Þegar öllu var á botniun hvolft var ef til vill auðveldara fyrir hann að frelsa Jeanne ef" hann var sjálfur frjáls maðxxr. Núi vissi hann líka, hvar hann ætti að; hitta foringja sinn. A horninu á götunni við skurðinn, þar sem Sir Andrew Ffoulkes beið með kola- vagninn og svo var það skógar- runninn við veginn til St. Ger— main. Armand vonaðist til, ef hepnin væri með honunx, að þá gæti liann náð fjelögum sínumr sagt: þeim frá handtöku Jeanne- og grátbeðið þá að hjálpa sjer við að frelsa hana. Hann gleymdi því, að hann var nú vegabrjefslaus, og að vafalaust myndi hann verða stöðvaður við borgarhliðið, ef hann gerði tilraum til þess að komast úr borginni á þessum tíma nætur, Framh. H1IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII[|||||I!IIIIIIIIIIIIIIIII11IHIIIIII!IIIIII.IS: Gleðileg jól! Ljos' og Kiti. W muiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiuiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuuuifc ^iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiuuiiiiiiiiiiiiiuuiuiiuiiiiiiiiiiiuimiiiig: | Gleðileg jól! 1 Guðlaugur Magnússon, s; gullsmiður. Laugaveg 11. ||" ÍilllUIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIII.. - Gleðileg jól! Útsala GEFJUNAR og IÐUNNAR, í Reykjavík. Gleðileg jól! H.f. Raftækjaverksmiðjan. Hafnarfirði Gleðileg jól! óskar viðskiftavinum sínum G. Bjarnason og Fjeldsted e. m. Gleðileg jól! Alþýðubrauðgerðin. Við óskum öllam okkcir mörgu viðskiftamönnum bæði til lands og sjdvar, glcðilcgra jóla og góðs og farsæls nýdrs. Veiðafœrauerslunin G E Y SI R Gleðilegra jóla óskar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.