Morgunblaðið - 30.12.1939, Blaðsíða 7
Laugardagur 30. des. 1939.
MORGUNBLAÐIÐ
7
Jarðræktarlðgim
FRAMH. AF ÞRHJJU SÍÖU.
gangi þess, bæði á Alþingi og í
blöðunum, auk þess sem þeir hafa
frá byrjun verið fylgjandi hinum
illræmdu breytingum á Jarðrækt-
arlögunum.
Jeg hefi aldrei getað skilið
hvernig menn, semi höfðu gefið
kost á sjep til þess að verða fulb
trúar landbúnaðarins, gátu ljeð
sig í að fylgja því, að ef bændur
gerðu eitt og annað á býlum sín-
um til góðs fyrir nútíð og fram-
tíð, þá yrði sá litli styrkur (1/9
til 1/10 af kostnaði), sem áður
var talinn verðlaun, látinn mynda
nýja, helst óinnleysanlega skuld á
jörðina — eða jarðirnar. Menn
þessir vissu þá, að nóg var fyrir
af skuldum á flestum jörðum í
landinu.
Það allra versta við alt þetta
breytingarbrölt finst mjer vera
það, að hver einn og einasti bóndi
landsins skyldi ekki segja, eins og
sagt var forðum: „Yjer mótmæl-
n.mi allir“. Jeg á við það, að slík
mótmæli skyldu eigi koma þegar
umræddar breytingar Jarðræktar-
laganna voru bornar undir öll
búnaðarfjelög í landinu, þ. e. sama
sem alla bændur þess. Það sýndi
svo ótrúléga mikið þroskaleysi
bændanna hvað márgir af þéim
tirðu til þess að gerast þau flokks-
þý, að játast undír margumrædda
17. gr., sem sýnilega var ekki
annað en löðrungur í andlit sjálfra
þeirra.
Ennþá er svo að sjá, sem for-
iustumenn Búnaðarfjelags íslands
búist við að fólkið, semi enn hang-
ir við jarðirnar í landinu, geti
trúað þeim til að bæta úr ávirð-
íngum sínum, eftir alt sem á und-
'5 an er gengið!
llinu geri jeg fastlega ráð fyr-
ir, að á það verði ekki hætt; held-
úr að Alþingi það, er nú situr,
taki til sinna ráða, og samþykki
umrætt frumvarp. Jeg treysti alls
ekki loðnum loforðumi um að málið
verði leyst á viðunandi hátt, án
íhlutunar Alþingis. Alþingi er áð-
ur búið að kasta í burtu miklu af
hreytingum þeim, sem smeygja átti
inn í Jarðræktarlögin um leið og
illu heilli tókst að koma 17. gr.
inn í þau. Nú er það einnig Al-
þingis, að skilja ekki við hálfunn-
ið verk. Allur dráttur á málinu
er til ills eins, og Alþingi ekki
samboðinn.
Kirkjubæ á Síðu, 8. des. 1939.
Láxus Helgason.
Qagbófc
Grand Hotel
Kobenhavn
rjett hjá aðal járnbrautar-
ítöðinni gegnt Frelsis-
styttunni.
öll herbergi með síma
og baði.
Sanngjarnt ve*-8.
Margar íslenskar fjölskyldur
dveljast þar.
Veðurútlit í Rvík í dag: A-gola.
Úrkomulaust.
Næturlæknir er í nótt Berg-
sveinn Ólafsson, Ilringbraut 183.
Sími 4985.
Næturvörður er í R-eykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Áramótamessur í Dómkirkjunni.
Gamlárskvöld kl. 6, síra Bjai’ni
Jónsson. Gamlárskvöld kl. 11,
cand. theol. Sigurbjörn Á. Gísla-
son. Nýársdag kl. 11, Sigurgeir
Sigurðsson biskup. Nýársdag kl. 5,
síra Bjarni Jónsson. Nýársdag kl.
2 er barnaguðsþjónusta (með jóla-
trje) á Elliheimilinu.
Áramótamessur í Fríkirkjunni.
Gamlárskvöld kl. 6, síra Árni Sig-
urðsson. Nýársdag kl. 2, síra Árni
Sigurðsson.
Áramótamessur í Laugarnes-
skóla. Á nýársdag kl. 2, síra Garð-
ar Svavarsson. Barnaguðsþjónusta
á nýársdag kl. 10 f. h.
Áramótamessur í Kaþólsku
kirkjunni. Gamlársdag: Lágmessur
kl. 6% °g 8 árd. Hámessa kl. 10
árd. Þakkarguðsþjónusta og prje-
dikun kl. 6 síðd. Nýársdag: Lág-
messur kl. 6V2 og 8 árdegis. Há-
messa kl. 10 árd. Bænahald og
prjedikun kl. 6 síðd.
Áramótamessur í Mosfellspresta-
kallii. Viðeyjarkirkja á gamlárs-
dag kl. 1.30, síra Hálfdan Helga-
sen. Brautarholtskirkja á nýárs
dag kl. 1, síra Hálfdan Hélgasön.
Hjónaband. Gefin hafa verið
saman í hjónaband ungfrú Svala
Einarsdóttir skrifstofumær, Skál-
holtsstíg 2, og Sveinbjörn Þor-
steinsson frá Hurðarbaki. Síra
Friðrik Hallgrímsson gaf þau
saman.
Hjúskapur. í dag verða gefin
saman í hjónaband ungfrú Svava
Trýggvadóttir frá Skoravík
Fellsströnd 0g Valtýr Friðriksson
frá Hól. Heimili un^u hjónanna
verðuí að ’Belgétöðum’ við Kapla-
skjólsveg.
Hjónaband. Þann 27. þ. m. voru
gefin, saman í hjónaband í Kaup-
mannahöfn ungfrú Pálína Þórunn
Jónsdóttir og Sigvaldi Þórðarson
arkitekt, frá Ljósalandi. Heimili
þeirrá verður Olfert Fischersgáde
52 IIII, Köbenhavn.
Trúlofun sína opinberuðu á að-
fangadagskvöld ungfrú Helga Þor-
steinsdóttir, Bergþórugötu 29, og
Árni Björnsson píanóleikari, Hverf
isgötu. 30.
Búðir lokaðar. Á mánudaginn
kemur verða allar sölubúðir í bæn-
um lokaðar vegna vöruupptalning-
ar. Meðfram mun valda hin mikla
vinnuaukning, sem stafar af skömt
unarseðlunum. Vegna þessa verður
fólk að birgja sig upp til þriggja
daga í dag.
Mjólkurbúðirnar verða ekki
opnar nema til kl. 1 á morgun
(gamlársdag) og kl. 9—11 á ný-
ársdag.
Sundhöllin verður opin til kl.
10 í kvöld. Á morgun verður hún
opin kl. 8—4. Miðasala hættir 45
mínútum fyrir lokunartíma.
Jólatrjesskemtun heldur Knatt-
spyrnufjelagið „Fram“ í Oddfell-
owhúsinu 4. jan. n.k.
Sjómannastofan, Tryggvagötu 2.
Jólafagnaður fyrir aðkomusjó-
menn og, heimilislausa verður í
kvöld kl. 8.30. Ókeypis aðgangur.
K. R.-ingar fara í skíðaferð kl.
8 í kvöld og kl. 9' í fyrramálið.
Farið verður frá K. R.-húsinu Far-
miðar við bílana. Mikill snjór.
Gott skíðafæri.
Ánnenningar fara í skíðaferð í
Jósefsdal í kvöld kl. 8, og á ný-
ársdagsmorgun kl. 9.
Árshátíð Verslunarskólans verð-
ur haldin 2. janúar að Hótel Borg.
Skíðafjelag Reykjavíkur fer
skíðaför upp á Hellisheiði á morg-
un (gamlársdag) ef veður og færi
leyfir. Farið frá Austurvelli kl. 9
árdegis. Farmiðar seldir hjá hr.
kaupm. L. H. Múller til kl. 6 í
kvöld. Fjelagið ráðgerir ekki að
fara skíðaför á nýársdag, en bend-
ir á að hægt er að komast upp-
eftir með áætlunarferðinni kl. 10%
árdegis.
í. R.ingar fara skíðaferðir á
sunnudag og mánudag kl. 9 f. h.
Farið verður frá Vörubílastöðinni
Þróttur. Farseðlar seldir í Gler-
augnabúðinni, Lækjargötu 6. Snjór
er nægur við Kolviðarhól.
íþróttafjelag kvenna fer í skíða-
för að skála sínum í kvöld og í
fyrramálið, Þátttaka tilkynnist í
síma 4087 fyrir kl. 6 í kvöld.
Karlakór Reykjavíkur heldur
ársfagnað sinn í Oddfellowhúsinu
laugardaginn 6. janúar n.k. (Þrett-
ándanum). Nánari upplýsingar á
skrifstofu. verksmiðjunnar ,Fram‘,
Austurstræti 10. Sími 3057. Styrkt-
arfjelagar beðnir að tilkynna þátt-
töku sem fyrst.
Til Strandarkirkju. Rósa 2 kr.
S. Ó. 10 kr. Tvö áheit Hulda Björk
(afh. af sr. Bj. Jónssyni) 3 kr.
títvarpið í dag:
20.15 Upplestur: Úr „Maríu An-
toinette“ (Magnús, Magnússon
ritstj:).
20.40 Útvarpstríóið: Einleikur og
tríó.
21.00 Hljómplötur: a) Kórlög. b)
21.25 Gamlir dansar.
21.50 Frjettir.
22.00 Danslög.
Skemtifjelagið „Gömlu dansarnir“.
Daosleikur
1 Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu í kvöld. Áskriftarlisti og
Aðgöngumiðar frá kl. 2, sími 4900.
Harinonikiililjóiiisveit, 4 menn
Einungii gotnlu dansarnir.
Allur ágóði rennur til Vetrarhjálparinnar.
Aramótadansleikur
verður haldinn í Varðarhúsinu á gamlárskvöld klukkan II.
GÓÐ HUÓMSVEIT.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 1 á gamlársdag á staðnum.
Allftr i Varðarhúsið.
YFIRLÝSING
DALADIERS
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
ustu vantrú á hugfræðilegum
kenningum. í
Hann fór miklum v.ið-
urkenningarorðum um þátt-
töku Breta í stríðinu, og gat
þess m. a., að Bretar hefðu inn-
ieitt herskyldu áður en stríðið
hófst og mintist á kanadiska
herinn, sem nýlega er kominn til
Englands og ástralska flugher-
inn.
Daladier skýrði frá því í ræðu
sinni að frá því að stríðið hófst
hefðu Frakkar sökt 9 þýskúm
kafbátum.
Frönsk herskip hefðu fylgt
900 skipum milli hafna og af
þeim hefði aðeins tveimur verið
sökt. Frakkar hefðu hertekið
360 þús. smálestir af vörum,
sem ætlaðar voru fyrir Þýska-
land.
Hann gat þess að lokum, að
Frakkar ætluðu að láta smíða
3 orustuskip sem hvert um sig
væri 35 þús. smálestir.
Er Daladier hafði lokið ræðu
sinni, samþykti öldungadieldin
með 301 samhljóða atkvæðum
útgjaldaáætlun franska ríkisins
til hernaðarþarfa; nema þau
9.3 miljörðum króna.
Brjef til fslenskra stúlkna.
Maður á besta aldri, sem hefir nokkur efni, og sjálfstæSan
atvinnurckstur, sem bóndi í nánd við Reykjavík, óskar eftir að
kynnast ungri og góðri stúlku, í þeim tilgangi, að til hjúskapar
kynni að draga. Stúlkan þarf að vera vel að sjer, og af góðu
fólki komin. Helst úr sveit.
Þær íslenskar konur, sem vilja svara brjefi þessu, geri svo
vel og sendi nafn sitt og heimilisfang, ásamt aldri, og mynd af
sjer (helst brjóstmynd og almynd), í lokuSu umslagi á skrif-
stofu Morgpnblaðsius í Reykjavík, fyrir 20. febr. næstkomandi.
Umslagið ber að merkja „Dulinn“. Fullkomnum trúnaði heitiS.
sem eiga að birtast í bla^inu
morgun, þurfa að vera
a
komnar fyrir kl. 2 í áag!
Ljús, rauð og græn,
Kínverjar. Útiblys. Kerti. — Spil frá 1 kr.
K. Einarsson & Björnsson.
Bankastræti 11.
ORUSTUR I
FINNLANDI
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU
1 orustunum fyrir norðan Lad-
ogavatn, segir að Rússar hafi mist
a. m. k. 300 manns.
Þrátt fyrir þetta halda Rússar
áfram að segja í hernaðartilkynn-
ingum sínum að ekkert markvert
gerist á vígstöðvunum í Finnlandi.
Maðurínn minn og faðir okkar,
BALDVIN BJARNASON,
andaðist 29. þ. m.
Ragmheiður Þorsteinsdóttir og dætur.
Hjer með tilkynnist vinum og vandamönnum að jarðarför
mannsins míns og föður okkar,
HELGA GUÐMUNDSSONAR,
fer fram 3. janúar næstkomandi og hefst með húskveðju kl. 1
e. h. á heimili hans, Kirkjuveg 11, Hafnarfirði.
Súsanna Jóhannsdóttir og böm.