Morgunblaðið - 09.01.1940, Page 7
Þriðjudagur 9. janúar 1940.
MORGUNBLÁÐIÐ
Fundir í Sjálfstæðis-
fjelöQunum á Eyrar-
bakka og Stokkseyri
Erindreki S j álf stæðisflokksins,
Jóhann Hafstein lögfræðing-
ur, kom heim í gærkvöldi úr ferða-
lagi austur yfir fjall. Sat hann
tvo fundi Sjálfstæðismanna, á Eyr-
arbakka á sunnudag, og á Stokks-
eyri í gær.
Báðir þessir fundir voru aðal-
fundir Sjálfstæðisf jelaganna þar.
Talaði Jóhann á íundununi um
st j órnmálaviðhorf ið.
Bæði þessi fjelög voru stofnuð
í fyrra og virðist vera mikið líf
í þeim og áhugi fyrir flokksmál-
nnura.
Eyrarbakkafundurinn var vel
sóttur. A fundinum var kosin
stjórn fyrir næsta starfsár og
skipa hana: Jóhann Ólafsson for-
maður; meðstjórnendur Kristinn
J’ónasson, og Þorgrímur Gíslason;
varastjórn : Kristinn Gíslason vara-
form., Þorkell Ólafsson og Gnð-
laugur Pálsson. Endurskoðendur
Guðmundur Jónsson og Friðrik
Sigurðsson.
Stokkseyrarfundurinn var fjöl-
mennur. Á þeim fundi urðu all-
miklar umræður. Yar venjulegum
aðalfundarstörfum í fjelaginu
frestað til næsta fundar.
Ungur
listmálari
Björgunarskipið „Sæbjörg“.
Slysavarnafjelag íslands leitar nú
aðstoðar almennings til reksturs
björgunarskútunnar Sæbjörg. Þarf
ekki að efa, að almenningur muni
bregðast vel við nú, sem endranær
Gjöfum í þessu skyni geta menn
komið til MörgunblaðsinS. i.í.- iv
r '■ 's'r
wi-——ir=ii---ini=ini-,--ir=ii---
13
fl
□
Kápuefnin
nýkomin í úrvali. Einnig
frakkar til sölu með tæki-
færisverði í nokkra daga.
Kápubúðftn
Laugaveg 35.
□
Ð
■OE
3SC=IQC
3Q
Steinsteypjvilla
við Vesturgötu, með stórri mn-
girtri eignarlóð, er til sölu með
hagkvæmum greiðsluskilmálum. —
Verð kr. 45.000.00.
í-vessa dagana sýnir Hákon Sum-
arliðason nokkur málverk og
teikningar í glugga Jóns Björns-
sonar & Co. við Bankastræti.
Hákon vakti sjerstaka athygli
þegar í barnaskóla fyrir teikning-
ar sínar, og hvöttu kennarar hans
hann eindregið til frekara náms.
Undanfarna tvo vetur hafa þeir
Eggert Guðmundsson og Sveinn
Þórarinsson veitt honum nokkra
tilsögn, og undir leiðsögn þeirra
hefir hann tekið hröðum framför-
um, þó að hann sje verslunarmað-
ur, sem verður að sinna versl-
unarstörfum meðan dagur er, en
vinna svo að hugðarefnum sínum,
þegar nóttin kemur og „enginn
getur unnið“.
Hafa þeir Eggert og Sveinn
hvatt hann mjög til utanfarar og
framhaldsnáms erlendis. Þó hefir
hann ekki enn sem komið er haft
aðstöðu til þess að fara að ráðum
þeirra, sökum fjárskorts.
Þær fáu teikniwgar', sem' ITákon
Svnir áð þéssu siniii, vitna um
skarpa ímyndunar* og athyglis-
gáfu.
Af málverkunum kannast marg-
ir við Hofsjökul og hið hnarreistá
Hrútafell, hvorttveggja sjeð úr
Hvítárnesi. Og s.jerstaka athygli
vekja tvö lítil málverk, sem hann
nefnir „Þvottakonur" og „Hína
veiku von“.
Yera má, að mínu leikmanns-
auga sjáist yfir það í þessum mál-
verkum, sem hið lærða auga kahn-
ske nefndi formgalla o. s. frv. En
hitt má benda á, að hjer er á
ferðinni maður með fágæta hæfi-
leika. Og ef hin veika von þessa
unga manns rættist, og hann ætti
kost á að fara utan til frekara
náms, hvað gæti hann þá er tímar
líða lofað okkur að sjá? krp.
Dagbók
I. O. O. F. Rb.st. 1 Bþ. 8891840i/2
I. E. X.
Veðurútlit í Rvík í dag: S- eða
SV-kaldi. Skúrir.
Veðrið (mánudagskvöld kl. 5):
Fyrir suðvestan og vestan land er
víðáttumikil lægð, en hæð yfir
Norðurlöndum. Vindur er S-lægur
um alt land með 3—7 st. hita og
dálítilli rigningu sunnanlands. Síð-
degis hefir hvest nokkuð af SA
við S-ströndina.
Næturlæknir er í nótt Halldór
Stefánsson, Ránargötu 12. Sími
2234.
Næturyörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Guðbjörg Guðmundsdóttir, Sauða
gerði A, átti 75 ára afmæli s.l.
sunnudag.
Hjónaband. Þann 23. desember
voru gefiin saman í hjónaband í
Seattle, 'Washington, Mr. Harry
Walters óg Miss Tove Jacobsen
(dóttir Egils Jacobsen sál. kaup-
manns og Sigríðar fædd Zoega).
Heimili ungu hjónanna er: 1708 —
Minor Ave., Seattle, Washington.
Hjónaefni. S.l. sunnudag opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú Guð-
ríður Hreinsdóttir og Frímann
Jónsson, bæði til heimilis að
Reykjum í Mosfellssveit.
Hjúskapur. S.l. sunnudag voru
gefin saman í hjónaband af síra
Garðari Svavarssyni ungfrú Ást-
rún S. Jónsdóttir og Egill Þor-
fihnsson skipasmiður. Heimili
þeirra verður á Túngötu 19, ísa-
firði.
Jarðarför Einars Sigurðssonar
frá Móakoti, föður Sigurðar do-
cents, fer fram frá Hafnarfjarðar-
kirkju í dag.
Peningagjafir til Vetrarhjálpar-
innar: Spilaklúbbur 20 ltr. S. H.
5 kr.; Skemtifjel. „Gömlu dansarn-
ir“ í Alþýðuhúsinu 30. des. 300
kr. Starfsfólk hjá Laugavegs Apó-
teki 108 kr. Spilamenn, Hellusundi
3, 5 kr. Starfsmenn hjá Gasst.öð-
inni, kr. 17.50. Starfsmenn hjá
Áfengisverslun ríkisins í Nýborg
kr. 25.50. K. S. 50 kr. Starfsfólk
hjá Slysatryggingu ríkisins 12 kr.
tarfsfólk hjá Litir og Lökk li.f.
18 kr. Starfsfólk hjá Bifreiðastöð
Steindórs kr. 42.69. Starfsfólk á
Skattstofunni 32 kr. Safnað af
Morgiinblaðinu kr. 1671.50. Kærar
þakkir. F. h. Vetrarhjálparinnar.
Húseignir.
Þrátt fyrir vaxandi dýrtíð hefi jeg enn nokkur hús
til sölu á verði sem sett var á þau fyrir stríð.
Þeir, sem ætla að kaupa eða selja fasteignir, ættu
að tala við mig sem fyrst.
Lárus Jóhannesson.
hæsar j ettarmálaf lutningsmaður,
Suðurgötu 4. . Símar 4314 og 3294.
MORGUNBLAÐIÐ MEÐ MORGUNKAFFINU.
Vegna jarðarfarar
verður brauðbúð mín lokuð
í dag frá kl. 12 á bádegi til
kl. 4 síðdegis.
Sveinn M. Kftfartarson,
Bræðraborgar§fíg 1.
Upplýsingar gefur
Lárus Jóhannesson,
hæstar j ettarmálaflutningsmaður,
Suðurgötu 4. Símar 3294 og 4314.
m
H ■ PAUTC
CRD
3
Súðln
fer hjeðan í kvöld beina leið til
ísafjarðar. Kemur á suðurleið við
á Bolungarvík, Súgandafirði og
Bíldudal.
Gjafir til Slysavarnafjelags Is-
lands á árinu 1939. Frá Ólafi Árna
syni, Karlagötu 24, 4 kr. Ásvaldur
Eydal, Hávallagötu 46 5 kr. Kven-
fjelag Gnúpverjahrepps 60 kr. Sig.
Ólafsson, Hverfisgötu 71, 4 kr.
Kvenfjelagið Bergþóra, V. Land-
ejgrrm, 40 kr. N. N. 1 kr. Skip-
verjar á e.s. „Katla“ 167 kr. E. P.,
Reykjavík, 10 kr. — Bestu þakk-
ir. —- J. E. B.
Áheit á Slysavarnafjelag íslands
á árinu 1939. Frá G. B. 5 kr. H. V.
20 kr. Eiríkur Einarsson, Þykkva-
bæ, Landakoti, kr. 7.50. Frá Ástu
1 kr. J. P. 5 kr. N. N., Sandi, 5
kr. Emma 2 kr. D 5 kr. V. 5 kr.
A. J. 5 kr. Gamalt áheit 1 kr. Ó-
nefnd kona 2 kr. Ónefndur 5 kr.
Karl hinn ungi 5 kr. Ónefnd
ekkja 2 kr. K. B. 10 kr. — Bestu
þakkir. — J. E. B.
Stefán A. Pálsson. Gengið í gær:
Sterlingspund 25.66
100 Dollarar 651.65
—• Ríkismörk 260.76
— Franskir frankar 14.78
— Belg. 109.93
—- Sænskar kr. 155.28
—- Norskar kr. 148.29
— Danskar krónur 125.78
—- Sv. frankar 146.47
— Finsk mörk 13.27
— Gyllini 348.03
Utvarpið í dag:
20.15 Vegna stríðsins; Erindi.
20.30 Fræðsluflokkur: Ilráefni
heimsyfirráð, V: Baráttan um
hráefniii; Kol og olía (Gylfi Þ.
Gíslason hagfr.).
20.55 Tónleikar Tónlistarskólans:
Píanókvintett í Es-dúr, Op. 44,
eftir Schumann.
21.30 Hljómplötur; „Galdranorn-
in“ (Das Hexenlied), tónverk
eftir Max von Schillings.
EGGGRT CLAESSEN
h«star jettarm áiafl utningsmBSur
Skrifstofa: OdAMlowhúsið,
Vonarstrœti 10
í imig&ngur um auatnrdyr).
t
Tengdamóðir mín og amma okkar,
frú GUÐRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
ekkja síra Ólafs Ólafssonar fríkirkjuprests, andaðist 7. þ. m.
Jarðarförin ákveðin síðar.
Sigríður Grínssdóttir og synir.
Hjer með tilkynnist vinum og vandamönnum, að móðir
okkar, ’
ÉLINBORG ELÍSABET JÓHANNESDÓTTIR,
andaðist þ. 7. þ. m. að EUiheimilinu í Hafnarfirði. Jaxðarföim
ákveðin síðar.
Anna Kr. Jóhannesdóttir. Bjöm Jóhanneáson.
" ,v - ‘ ; . * .ui
TT
Dóttir okkar og systir,
HREFNA G. B. SIGURJÓNSDÓTTIR,
andaðist að heimili okkar, Bergstaðastræti 50 A, þanh 7. þ. mán.
Ólafía Guðmundsdóttir.
Sigurjón Sigurðsson.
Guðjón Sigurjónsson,
Það tilkynnist hjer með vinum og vandamönnum, að
GUÐMUNDUR JÓNSSON,
vjelaverkfræðingur frá Stokkseyri, andaðist aðfaranótt 7. þ, m.
Kveðjuathöfn fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík mið-
vikudaginn 10. jánúar kl. 11 fyrir hádegi.
Jarðað verður frá Stokkseyrarkirkju sunnudaginn 14. þ. m.
kl. 1 eftir hádegi.
Fyrir hönd mína og annara vandamanna.
:
Sturlaugur Jónsson.
—
V'J
........... .----------------
Jarðarför föður míns,
EINARS SIGURÐSSONAR,
fyrrum bónda í Móakoti, fer fram í dag og hefst með kveðjuat-
höfn að Hafnarfjarðarspítala kl. 1 e. hád. — Athöfninni í
kirkjunni verður útvarpað.
Fyrir hönd aðstandendá.
Sigurður Einarsson.
Innilegt þakklæti fyrir sýnda hluttekningu og samúð við
andlát og jarðarför
GÍSLA JÓNSSONAR frá Álafossi.
Jón Jónsson og dætur.