Morgunblaðið - 16.01.1940, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 16.01.1940, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 16. janúar 1940. Fregnir hafa borist nm belgina um ankua bættu á þvi að Holland og Belgia dragist inn I striðið ----- og um alwarlega ógnun Rússa við Norðurlönd. Spurningin sem nú er á allra vörum er: Er stríðið nú að hefjast? Holland og Belgia gera varuðarráðstafanir eftir aðvörun frá Daladier Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. Víðtækar hernaðarráðstafanir, sem gerðar voru yfir helgina í Hollandi og Belgíu, eru taldar eiga rót sína að rekja til aðvörunar frá Dala- ídier, forsætisráðherra Frakka, um að Þjóðverjar væru um það bil að hefja árás á þessi ríki, til þess að komast þá leiðina inn 1 Frakkland. Ýms skjöl, sem fundust á þýskum flugliðsforingja, sem varð að nauðlenda í Belgíu fyrir skömmu, virtust styrkja þenna grun. VARÚÐARRÁÐSTAFANIRNAR. í Belgíu voru öll leyfi herskyldra manna numin úr gildi, aukið varalið kallað til vopna og eigendum hesta, Vagna og annara farartækja boðið að afhenda þau á nán- ar tilgreindum stöðum. í Hollandi voru öll leyfi í hernum numin úr gildi og landvarnirnar á landamærum Þýskalands styrktar. Vegna hins ískyggilega útlits ákvað breska stjórnin á sunnu- Sdaginn að afnema öll leyfi í breska hernum í Frakklandi. Og í jdag voru öll leyfi í breska flughernum afnumin. MILJÓN MANNA LIÐ. I Lundúnablöðunum er því haldið fram, að varúðar- ráðstafanir Belga og Hollendinga hafi ekki komið á óvart, þar sem Þjóðverjar hafi síðustu dagana dregið óhemju mikið lið saman við hollensku og belgísku landamærin. Amerísk frjettastofa heldur því fram að aðeins meðfram hollensku austurlandamærunum, sem eru 130 km. löng, hafi verið dregin saman miljón manna þýskur her, sem búinn sje bátum, prömmum og alúminíum-smábátum, sem nota ætti á svæðunum, sem Hollendingar láta flæða yfir á ófriðartímum. ' t annari fregn frá Haag er aftur á móti giskað á, að Þjóð- yerjar hafi 18 herfylki (divisions, hver division um 15—20 þús. þietin) við hollensku landamærin og 41 herfylki við belgísku laadamærin. Lundúnablaðið „Daily Telegraph" segist í dag hafa það eft- |r áreiðanlegum heimildum, að herstjórn Þjóðverja telji þýska Jlerinn hafa yfirburði yfir her Bandamanna á opnu svæði og vilji þyí heldur leggja til atlögu við Breta og Frakka í Belgíu eða Holjandi, heldur en ráðast á Maginotlínuna. AFSTAÐA ÞJÓÐVERJA. í Þýskalandi eru fregnirnar um varúðarráðstafanir Hollendinga og Belga skýrðar á þann hátt, að þjóðir þessar telji sjer hættu búna, ekki frá Þjóðverjum, heldur frá Bretum og Frökkum, sem nú sjeu orðnir vonlausir um að geta sigrast á Þjóðverjum með hafnbannsráðstof- unum einum. En þýska fjettastofan segir í dag, að Þjóðverjar muni fylgj- >st af athygli með því, hve langt Vestur-Evrópuþjóðirnar geti teymt Holland og Belgíu frá hlutleysisstefnu sinni. Meðal almennings í Hollandi og Belgíu vöktu fregnirnar um hinar auknu hernaðarráðstafanir ugg og kvíða. inMiiiniiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiinniii^ I MarkmiQ I ( Rússa ( .MllltllllllMlltlllliir IIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIMl Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. "C'rjettaritari vor í Khöfn sírr,ar skv. skeyti frá Ber- lín, að stjórnmálamenn í Eystrasaltslöndunum líti svo á, að markmið Rússa sje að fá yfirráðin yfir Atlantshafs- höfnum Norðurlandanna. Þýska blaðið „Nachtaus- gabe“ segir í dag, að það sje ekki nema eðlilegt, að Rússar sækist eftir að fá hafnir við Atlantshaf. Erlendir blaðamenn eru þó pammála um að dásama ró þá og festu, sem smáþjóðir þessar sýna á örlagastundu. 1 dag hafa bæði hollenskir og belg- ískir stjórnmálamenn birt yfir- lýsingar á þá leið, að þeir telji þjóðum sínum enga yfirvofandi hættu búna, og er andrúms- lóftið því nokkuð ljettara. Ekkert verður þó slakað á öryggisráðstöfununum að svo stöddu. Eitt hollenskt blað segir í dag „Hollendingar og Belgir munu verja sjálfstæði sitt af ekki minni festu en Finnar.“ Coljin, fyrverandi forsæcis- ráðherra Hollendinga, kom i FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. Finna vantar ðrásarflugvjelar Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. T7' ulltrúi finsku sendisveitar- •*- innar í London undirstrikaði í dag nauðsyn Finna að fá er- lenda hjálp, ef þeir eiga að geta varist Rússum. Hann sagði að sigrar Finna á landi mætti ekki glepja sýn. Finnum væri sjálfum ljóst, að þetta væru aðeins sigrar á ein- stökum vígstöðvum, sem á eng- an hátt bentu til þess að þeir væru að vinna stríðið. Á einum vígstöðvum hefðu Rússar alveg yfirhöndina. Þeir rjeðu yfir loftinu. Fulltrúinn undirstrikaði nauð- syn Finna að fá erlendar árás- arflugvjelar svo að þeir gæti varist flugher Rússa. Aðstaða Finna í loftinu væri hálfu verri fyrir það, að Rússar gætu notað eistnesku eyjarnar í Eystrasalti, sem flugvjelabækistöðvar og gert þaðan árásir á vesturströnd ina, sem annars hefði ekki legið við loftárásum Rússa. Finnar væru því á milli tveggja elda, þar sem Rússar gætu gert loft- árásir á austurhjeruð landsins frá bækistöðvum meðfram öll- um landamærurium. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. Rússar mótmæla stuðningi Svía og Norðmanna við Finna Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. RÚSSAR birtu í gær, án nokkurs samkomulags og þvert ofan í allar diplomatiskar venjur orð- sendingar, sem farið hafa á milli stjórnarinn- ar í Kreml og stjórna Svíþjóðar og Noregs. Það verður Ijóst af þessum orðsendingum, að Rússar hafa lagt fram mótmæli í Osló og Stokkhólmi gegn því, sem þeir kalla óhlutlausa afstöðu Svía og Norðmanna. Svíar og Norðmenn hafa svarað þessari ásökun og vísað henni algerlega á bug. Þeir segjast hafa gætt strang- asta hlutleysis og haldið sjer við gildandi alþjóðasamn- inga og muni gera það áfram. SVÍAR OG NORÐMENN MÓTMÆLA! í dag hefir verið snúið við blaðinu og Svíar og Norðmenn lagt fram mótmæli í Moskva. Svíar mótmæla því, að rússneskar flugvjelar vörpuðu í gær niður sprengjum á sænsku eyjuna Kalix, fyrir framan borgina Luleá í Norður-Svíþjóð. Ekkert tjón varð af þessari loftárás. Norðmenn hafa lagt fram mótmæli út af því, að rússneskar flugvjelar flugu yfir Norður-Noreg, bæði á föstudaginn og í gær og gerðust með því brotlegar við hlutleysi Noregs. Ein rúss- nesk ‘flugvjel settist jafnvel um stundarsakir í Noregi. En mótmæli Rússa út af því, sem þeir kalla hlut- leysisbrot Norðmanna og Svía, er þó ekki úr sögunni og í fregn sem hin hálfopinbera rússneska Tassfrjettastofa birtir í kvöld, segir að rússneska stjórnin telji svör þeirra ófullnægjandi. HEIFTÚÐUG ÁRÁS Á SVÍA. I Tass-fregninni kveður v,ið sama tón, og í mótmælum Rússa, að það geti orðið örlagaríkt fyrir Norðmenn og Svía, ef þeir láta hafa sig að ginningarfífli í tilraunum ákveðinna stór- velda til þess að láta stríðið breiðast út. í morgun birti aðalmálgagn Stalins heiftúðuga árás á Norð- menn og Svía, og rjeðist e.inkum á sósíalistana í Svíþjóð. Blaðið segir, að sænsku sósíalistarnir sjeu viðbjóðslegustu og auvirði- legustu óvinir Sovjet-ríkjanna. Þeir æsi sænsku þjóðina til styrj- aldar við Rússa. Svo virðist, sem svar Svía við mótmælum Rússa hafi vakið gremju í Rússlandi. Loftvarnaæf- ingar Svía I norðanverðri Svíþjóð eiga nú að hefjast stórkostlegar æf- ingar í því að kómast af án ljósa þegar dimma tekur, og tekur þetta ekki einungis til borga og þorpa, heldur einnig til sveitabæja. FÚ. Sumarblíða á vesturvígstoQvunum C' umarhlíða er nú á vesturvíg- stöðvunum, hlýtt veður og heiðskír himinn. En í hrenaðartilkynningum ó- friðaraðilanna er aðeins talað um aðgerðir njósnasveita. SVAR SVÍA í svari sínu sögðu Svíar afdrátt arlaust, að það væri ósk sænsku þjóðarinnar, að Finnland mætti áfram vera sjálfstætt og fullvalda ríki. Sænska stjórnin vekur athygli rússnesku stjórnarinnar á því, að stjórnarfar Svíþjóðar er þannig, að almenningi er alveg frjálst að hafa samúð með Finnum, og ber stjórnin ekki neina ábyrgð á hjálp arstarfsemi einstakra manna eða fjelaga og telur sig engan siðferði- legan rjett hafa til þess að hindra slíkt. En sænska stjórnin vekur at- liygli á því, að hún hafi öllum at- riðum gætt strangasta hjutleysis í stríðinu. Mótmæli Rússa sjeu bygð á misskildum forsendum, og

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.