Morgunblaðið - 16.01.1940, Side 5

Morgunblaðið - 16.01.1940, Side 5
I*riðjudagur 16. janúar 1940, Útget.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. Rltstjðrar: Jðn KJartansson, ■ Valtýr Stetánsson (ábyrsBarss.). Auglýsingar: Árni Óla. Ritstjðrn, auglýsingar ogr afgrelBsla: Austurstræti 8. — Sissl 1600. Áskrittargjald: kr. S,00 á m&nuBl. f lausasölu: 15 aura elntakiB, 25 aura meii Lesbök. mi Nokkrar athugasemdir um r erindrekstur Islendinga Heimssýningin DAÐ verður tekin ákvörðun um það einhvern næsta dag- Snn, hvort við íslendingar eig- nm að halda áfram sýningu sokkar í New-York á þessu ári, eða pakka saman og hverfa iheim með sýningarmunina. Að vorum dómi er þetta mál svo augljóst, að ágreiningur aetti þar ekki að komast að. Við liöfum þegar lagt í mikinn kostnað við sýninguna, senni- lega meiri kostnað en flestar cða allar þjóðir aðrar, ef mið- að er við fólksfjölda og efna- hag þjóðanna. Allir eru sammála um, út- lendingar ekki síður en íslend- ingar, að sýning okkar hafi ickist prýðilega og að hún hafi aukið kynni okkar vestan hafs. I»essi kynning hefir meiri þýð- sngu fyrir okkur, en flesta grun- ar, og okkur væri það ákaflega anikils virði, að viðhalda þessari kynníngu og auka hana. Ef við leggj um nú árar í bát, |»á er útilokað að við getum haft meira gagn en orðið er af sýningunni. — En með tiltölu- lega litlu fjárframlagi getum við haldið þessari auglýsinga- og kyningastarfsemi áfram, og vafalaust með margföldum árangri en s.l. ár. Hví þá ekki að nota þetta tækifæri? Er yfir- lejtt nokkurt vit í, að hætta nú, eftír að hafa lagt út mestan hluta kostnaðarins, en eiga eft- ir að fá endurgoldið mikinn hluta þess, sem sýningin getur greitt okkur í aðra hönd? Nú eru viðskifti okkar sem ■ óðast að heinst til Ameríku. J»au myndu auka stórlega áhrif og gildi okkar sýningar næsta sumar og gera okkur alt hæg- .ara um vik, að búa sýninguna enn betur úr garði en s.l. ár. Við megum ekki, í þessu máli, fara eftir því, sem Danir og Norðmenn gera. Þar er við- horfið alt annað. Þessar þjóðir hafa um margra ára skeið rek- jð öfluga kynningarstarfsemi vestra, og hafa þar föst og rót- gróin viðskifti. Við erum hins- vegar alveg óþektir á Ameríku- markaðinum, en hver einasti sigur, sem við getum unnið þar, getur markað tímamót í okkar atvinnulífi. En það kostar þrautsegju og mikla vinnu, að afla markaðs fyrir lítt eða óþekta vöru í ó- kunnu landi. Ef .gefist er upp við fyrstu tilraunina, er vonlaust nokkurntíma að sigra. Við íslendingar eigum að leg&ja kapp á, að afla markaðs íyrir okkar afurðir í Ameríku Þetta er okkur nauðsyn á frið-> artímum. En nú, á ófriðartím- am, er okkur þetta lífsnauðsyn. Danir fara, eins og kunn- ugt er, með utanríkis- mál okkar. Útlenclingar, sem aldrei hafa stigið fæti hjer á land, skilja ekki íslensku, þekkja hvorki framleiðslu okkar nje menningu, eiga að gæta hagsmuna okkar er- lendis. Menn geta nú getið sjer nærri hversu mikið gagn er að þess- um erindrekstri. Iivernig eiga menn, sem aldrei hafa hingað komið og þekkja hvorki tungu okkar nje sögu, hvernig eiga þeir að vekja athygli á menn- ingu okkar hjá erlendum þjóð- um? Og hvernig eiga þessir sömu menn, sem ekkert þekkja til okkar framleiðslu, að vinna að útbreiðslu hennar? Ástandið í þessum efnum er líka á þann veg, að ef almenn- ingur hjer á landi gerði sjer fulla grein fyrir því, myndi hann krefjast þess, að þing og stjórn bætti hjer úr eins og frekast er unt. í útvarpserindi, sem jeg flutti s.l. vetur, gat jeg um það, að útlendingar ímyndi sjer yfir- leitt, að á Islandi búi menning- arlausir skrælingjar, og ísland sje dönsk nýlenda. Hið opin- bera hefir ekki gert meira en svo til þess að hnekkja þessu áliti, að t. d. aðallögreglustöðin í París hefir ekki einu sinni fengið tilkynningu um sjálf- stæði Islands, svo að íslending- er dvelja í Frakklandi eru erlendis ^tir Eirlk Sigurbergsson mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmimiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii ar þar taldir danskir þegnar. — I blaðagrein, er jeg skrifaði í Morgbl. s.l. vor, mintist jeg meðal annars á loddaraflokk einn, er hjeldist það uppi ár eftir ár að reka „ísjenskt leik- hps“, er þeir nefndu svo, í Bret- landi, sýna sig þar sem íslenska eskimóa og segja langar sögur frá Islandi, þar sem öllu er lýst eins og hjá skrælingjum. Drep jeg aðeins á þetta enn einu sinni vegna þess, að ís- lendingar, sem ekki hafa komið til útlanda, eða dvalið þar að eins skamma stund, eins og á sjer stað um mikinn hluta þjóð- arinnar, ímynda sjer jafnvel, að ísland sje ekki óþektara í út- löndum en t. d. Finnland eða Færeyjar hjer á landi. ★ Til þess að sýna fram á, að jeg fari ekki með neitt fleipur vildi jeg leyfa mjer, máli mínu t.il stuðnings, að vitna í um- mæli þriggja þektra manna, er fjalla um þetta efni. Prófessor Magnús Jónsson segir svo í ferðapistlum sínum til Palestínu, er hann ritar í Morgbl. í sumar; „.... Hjer (þ. e. á leið til Norður-Afríku) eru nú t. d. hjón frá Ameríku, sem ekki vissu annað, en að Eskimóar byggju á íslandi. . . . En Arab- arnir og Egyptarnir eru það kurteisir, að þeir hafa enga hug mynd um að Islandi yfirleitt er til. . . . “ (Morgbl. 6. ág. s.l.). Þá segir Knútur Arngrímsson í blaðagrein í haust: I 6 löndum, þar sem jeg leit víð- ast hvar eitthvað í glugga ferða skrifstofanna, sá jeg hvergi neitt, sem minti á Island, nema í glugga Cook’s í Liverpool og Hull og það lítinn pjesa, sem er um öll 5 Norðurlöndin, og Cook’s hefir gefið út. . . .“. Þá hefir formaður utanríkis- málanefndar, Jónas Jónsson, lýst því yfir, að á ferðalagi sínu í N.-Ameríku í fyrrasumar hafi hann heimsótt marga danska konsúla, og þar hafi hann ekki rekist á neitt, er minti á ísland annað en, ef jeg man rjett, Adressubók Finsens, hjá einum þeirra og aðra bók til álíka. Að sama skapi var þekking þessara manna á íslandi. Svona er þá ástandið í þessum efnum. Og það er þýðingarlaust fyrir okkur að slá allri sökinni á Dani, sökin er ekki síður okkar eigin. Hversvegna höfum við verið jafn sinnulausir um þessi mál og raun ber vitni um síðan 1918? Hversvegna höfum við ekkert aðhafst? Okkur hefði þó verið í lófa lagið að ganga ríkar á eftir ýmsu þessu varðandi. Hví hefir það ekki verið gert? Við höfum heimild til samkvæmt 7. gr. Sambandslaganna að slcipa íslenska ráðunauta (attachés) við sendisveitir Dana. Af hverj.u höfum við ekki notfært okkur þetta ákvæði betur en við höf- um gert? Og að lokum, hvers- vegna hefik landkynnir t. d. ekki verið látinn setja sig í sam- band við alla danska konsúla og vice-konsúla, bæði 1 Norður- og Suður-Ameríku og Evrópu? — Hversvegna hefir hann ekki verið látinn senda þeim stuttar en glöggar upplýsingar um ísl. framleiðslu, ásamt myndum og smá auglýsingaspjöldum? Slík- ar myndir og auglýsingaspjöld eru meira og minna í öllum konsúlsskrifstofum, dönskum líka, þótt engar sjeu frá íslandi. Mjög margir kaupsýslumenn leita allskonar upplýsinga hjá skrifstofum konsúlanna og koma þangað margir. Hjá því gæti ekki farið, að eitthvað af áðurnefndum auglýsingum vekti athygli þeirra og væri þá tak- markinu.náð. — Auk þess eru margir konsúlar kaupsýslumenn sjálfir. Og hví hefir landkynnir ekki verið látinn senda neina bækl- inga til erlendra ferðaskrif- stofa? Er þá ekkert verið að gera? Jú, nú er verið að stíga spor, varp, er gerir ráð fyrir — ekki síst munu þeir sjá eftir því fje að hefjast loks handa til þess að bæta út þessu eymdaástandi, eins og þó hefði mátt búast við, þar sem viðkomandi menn virð- ast þekkja þetta ástand; nei, það á ekki að bæta úr þessu með því t. d. að auka kynning- arstarfsemina eða skipa ráðu- nauta við dönsku sendisveitirn- ar — heldur á að leggja þetta svokallaða landkynnisstarf nið- ur, eins og þess sje nú ekki lengur þörf! Þetta eru ráðstaf-* anirnar, sem sumir vilja gera I þessum málum, vitandi vits hvernig ástandið er! Og þessar ráðstafanir eru ekki gerðar í sparnaðarskyni, sei, sei, nei. — Fjeð á að fara í annað. Það á að verja því til þess að útrýma sóðaskap á gistihúsum og greiðasölustöðum hjer innan- lands. Eins og það ætti ekki að vera sjálfsögð skylda þess- ara stofnana að framfylgja al- mennum hreinlætisreglum um leið og þær fá veitingaleyfi. I „praksis“ má búast við að þessu fje yrði varið beinlínis í pólitískum tilgangi. ★ Landkynnisstarfið á að vera viðskiftalegs eðlis, hrein aug- lýsingastarfsemi, er beina skal til erlendra ríkja, til þess að bæta úr röngum hugmyndum útlendinga á Islendingum, og er þess ekki þörf? Það eitt er víst, ef þingmenn samþykkja þessa grein áðurnefnds frum- varps, þá fá þeir þunga dóma síðar meir. Því að einhverntíma rekur að því, að almenningur skilur mikilvægi þessa máls. Og hvernig á þjóðin að vera örugg um það, að forráðamönn- um hennar farist vel að leysa af hendi utanríkismálin, þá er þar að kemur, ef algert sinnu- leysi og aðgerðaleysi á að ríkja í þessum málum á undirbúnings- stigi þeirra? Verður ekki þetta sleifarlag til þess, að þjóðin noti sjer ekki það tækifæri, sem henni býðst innan skams til þess að ráða sínum niálum að öllu leyti sjálf? ★ Á þeirri ógnaröld, er nú gengur yfir heiminn, afsaka sum stórveldin sig með því, er þau leggja undir sig Jítil ríki og kannske iítið þekt, að þessi ríki hafi ekki verið fær um að stjórná sjer sjálf, þau hafi staðið á svo Jágu menningar- stigi. Þessu hefir jafnvel verið reynt að halda fram um Finn- land, en vitanlega árangurs- laust, til þess er finsk menn- ing of vel þekt. Og ef Finnar verða sigursælir í frelsisstríði nú. Eða hver hefði samúðia orðið með Finnum, ef sú skoðun hefði ríkt yfirleitt í heiminum, að Finnland væri Jítt byggileg snjóbreiða, þar sem nokkrir ómentaðir skrælingjar hefðu að- setur sitt? Það er vissulega ekki neitt hjegómamál, hverjum augum erlendar þjóðir, einkum stór- þjóðirnar, líta á menningu og tilverurjett smáþjóða. Og það er alvarlegt tímanna tákn, ef smáþjóð eða ráðandi menn hennar láta sig þessar skoðanir stórþjóðanna litlu skifta. Norman M. Beirie látinn en það spor er bara stigið aftur ‘ sínu, er það sennilega ekki hvað á bak. Fyrir síðasta Alþingi lá frum- síst því að þakka, hve vel þeir hafa kynt sig úti um heim. Það hefir kostað þá mikið fje, en C—7 inn 14. þ. m. ljest að heim- ili sínu í Edinborg í Skot- landi Norman M. Berrie, stór- kaupmaður, á sjötugs aldri. Berrie kom fyrst hingað til landsins 1895 og stofnað.i þá Verslunina Edinborg ásamt Ge- orge Copeland og Ásgeir Sig- urðssyni aðalræðismanni. Varð Edinborg brátt eitt stærsta verslunarfyrirtæki landsins, •— hafði geysimikla þilskipaútgerð, rak verslun um eitt skeið í sex kaupstöðum víðsvegar um land- ið. Strax og verslunin var stofn- uð tók hún þá upp þá nýbreytni að greiða alt kaup í reiðu fje, en þá var það venja að vinnu- laun væru aðeins greidd í vör- um. Þá var hann og ásamt fje- lögum sínum brautryðjandi að því, að senda fiskfarma beint til Spánar og Ítalíu, of fór Berrie margar ferðir þangað og vann jafnan að því að auka utanríkis- verslun okkar. Stjórnaði hann þessu fyrirtæki með hinni mestu kostgæfni og framsýni, þar til nokkru eftir stríðsbyrjun 1914 að hann seldi meðstjórnanda sínum Ásgeir Sigurðssyni versl- unina, en sjálfur rak hann til dauðadags heildsölufyrirtæki í Skotlandi, sem sonur hans, Morris Berrie, hefir nú tekið við. Berrie var einlægur íslands- vinur. Dvaldi hann hjer sumar- langt árum saman, talaði ís- Iensku mæta vel. Öllum störfum hans fylgdi öryggi og festa. 1 verslun var hann sanngjarna, ábyggilegur og mikilvirkur. Sem eins af forgöngumönnum nútíma verslunar á Islandi, mun íslénsk verslunarstjett um ó- komna tíma minnast þessa var- kárna, sanngjarna og ótrauða kaupsýslumanns, Norman M. Berrie.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.