Morgunblaðið - 16.01.1940, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 16.01.1940, Qupperneq 7
7 , • ' O M Þriðjudagur 16. janúar 1340. MO R GUN B L AÐI Ð . _i_:_.• : •______í_i_,____ . ■_i____________________________________• Hjeraðsdómari sektaður FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. í 100 kr. sekt. og heimfærði hrot- ið undir 5. gr. 1. 70, 31. og 21 gr. L 33 ’35, en hjeráðsdómarinn hafði - ekki dæmt eftir hinum síðarnefndu lögum. Ákvæði hjeraðsdóms um sviftingu ökuleyfis var staðfest. Hæstirjettur hafði margt að at- huga við rannsókn málsins í hjer- -• aði og segir þar umi í forsendum rjettarins. „Meðferð hjeraðsdómarans, ,Jóns Steingrímssonar, fyrverandi sýslu- manns í Snæfellsnes- og Hnappa- dalssýslu, á máli þessu hefir verið að ýmsu leyti aðfinsluverð og her einkum að geta eftirtalinna at- riða: 1. Málið var upphaflega kært iiil dómarans 4. ágúst 1936, en hann hóf ekki rannsókn í því fyrr ■en 4. september s. á. 2. Rannsóknin er mjög losara- leg og ónákvæm. Ekki hafa verið yfirheyrðir a. m. k. 10 manns, sem ástæða Var til að æskja vitnis- hurðar þeirra um sakargiftirnar á hendur kærða. Einkum hefði átt að krefja sagna Lárus Jónatans- son, sem ók bifreiðinni ásamt kærða aðfaranótt 3. ágúst 1936 og virðist þá einnig hafa neytt á- fengis eftir framburði kærða að > d,æma. Einnig hefði átt að yfir- heyra vegagerðarmann þann, sem kærði kveður hafa veitt þeim Lár- usi áfengi í tjeð skifti. Ennfrem- ur'hefði dómarinn átt að láta alla á,fengisvarnarnefndarmenn Kol- beinsstaðahrepps gera grein fyrir því, hvort kærði hafi játað fyrir þeim áfengisneyslu þanín 23. júlí 1936, en um þetta hefir formaður nefndarinnar, sem þó mætti fyrir rjetti ,ekki einu sinni verið spurð- ur. — 3. Loks gleymdi hjeraðsdómar- inn að senda dómsmálaráðuneyt- ínu dómsgerðir málsins eftir upp- kvaðningu hjeraðsdómsins. Fjekk ráðuneytið ekki dómsgerðirnar fyr en sýslumaður sá, sem nú skip ar dómarasess í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu, fann þær á síð- asta ári í sambandi við rekstur annars opinbers máls á hendur kærða. Vegna greindrar yfirsjón- ar hjeraðsdómarans, Jóns Stein- grímssonar, verður samkvæmt 35. gr. tilsk. 3. júní 1796 að dæma hann til að greiða í fátækrasjóð Stykkishólmshrepps 50 króna sekt, sem. afplánast með 5 daga einföldu fangelsi, ef hún verður ekki greidd innan 4 vikna frá birtingu dóms þessa“. Sækjandi málsins var Pjetur Magnússon hrm. og verjandi Egg- «ert Claessen hrm. S J ÁLFBOÐ ALIÐI í FINNLANDI. Einn af þektustu flugmönnum Dana, Klausen Kaas flugfor- ingi, er farinn til Finnlands til að starfa þar sem sjálfboðaliði. IJann barðist einnig með hvíta hernum í þorgarastyr j öldinni í Finnlandi 1918. (FÚ) Sænska skáldkonan Selma Lag- erlöf hefir gefið allar gullmedalíur sínar og heiðuðrspeninga til Finn- iandssöfnunarinuar. (FÚ). Qagbók (xj Helgafell 59401167 - IV./V. 2. □ Edda 594023. — Systrakvöld ef næg þátttaka fæst. Listi í □ og hjá S.\ M.\ til hádegis 19. jan. I.O.O.F. = O.b. l.P.== 12111681/* — E. I.* Veðurútlit I Reykjayík í dag: NA-gola. Ljettskýjað. Næturlæknir er í nótt Halldór Stefánsson, Ránargötu 12. Sími 2234. Næturvörður er í Ingólfs Apó- teki og Laugavegs Apóteki. Bifreiðastöðin Geysir, sími 1633, annast næturakstur næstu nótt. Slökkviliðið var gabbað út í gær klukkan um 4.30. Hafði verið brot inn brunaboði á húsinu á horni Brattagötu og Mjóstrætis. Heiðurssamsæti verður síra Árna Þórarinssyni præp. hon. haldið n.k. laugardag í tilefni af áttræð- isafmæli hans. Eru það vinir hans og sóknarbörn, sem fyrir samsæt- inu gangast. Listi liggur frammi í Bókaverslun Sigfúsar Eymunds- sonar til fimtudagskvölds. Innbrot var framið í Vinnufata- gerð íslands við Þverveg núna um helgina. Var farið inn með þeim hætti, að brotin var rúða í hurð og skriðið þar inn. Einhverju var stolið þarna af vinnfötum, en peningar voru ekki geymdir þar. Sigríður Jóhannesdóttir, Hafn- arfirði hefir lokið námi og tekið próf í ljósmyndaiðn, og hlotið I. einkunn. Hún hefir stundað nám há fröken Önnu Jónsdóttur ljós- myndasmið í Hafnarfirði. Varðarfundur verður haldinn annað kvöld í Varðarliúsinu. Verð ur rætt um þingið og stjórnar- samvinnuna. Thor Thors alþingis- maður hefur umræður. Fundurinn hefst kl. 8i/2. Elli- og hjúkrunarheimilið Grund hefir sent út skýrslu um starfsemi heimilisins s.l. ár. Um áramótin dvöldu þar 135 vistmenn, þar af 88 konur og 47 karlar. Á skýrsl- unni sjest, að bæjarsjóður Reykja- víkur greiðir fyrir 94 og hreppa og bæjarfjelög úti á landi fyrir 7. 15 greiða sjálfir fyrir sig, en aðstandendur fyrir 19. í happdrætti U. M. F. Þróttur á Vatnsleysuströnd komu upp þessi númer: 1867 Reiðhjól, 770 Vasaiir, 651 Vasaúr, 2074 Kol, 373 Dívan, 689 Barnakerra. Þessi númer hlutu 10 kr.: 2008, 975, 708, 751, 120, 1856, 2176, 1813, 1705, 1786. Finnlandssöfnunin afh. Mbl.: S. G. (áheit) 1 kr. Sveitastelpa 5 kr. Á. Þ. 3,kr. Día 10 kr. Hólm- fríður Magnúsdóttir, Elliheimilinu í Hafnarfirið 10 kr. Til Slysavarnafjel. v/ Sæbjörg: Óleyfileg vínsala. 20 daga fangelsi --100 kr. sekt Hæstirjettur kvað í gær upp dóm í málinu: Valdstjórn- in gegn Berent Karli Berentssyni, atvinnulausnm, Tjarnargötu 3 hjer í bænum, sem kærður vnr fyrir óleyfilega áfengissölu. Hann var í undirrjetti dæmdur í 20 daga fangelsi og 1000 kr. sekt. Bygðist dómurinn á fortíð kærða (hafði a. m. k. 36 sinnum gerst brotlegur), grunsamlegu framferði hans og framburði vitna. Hæstirjettur staðfesti dóminn að öllu leyti. Sækjandi málsins var Jón Ás- björnsson hrm. og verjandi Lárus Jóhannesson hrm. ifsgleði í Gamla Bíó að er fjörug kvikmynd og skemti- leg, sem Gl. Bíó sýnir í fyrsta skifti í kvöld; enda heitir myndin „Lífs- gleöi“. AS.alleikendur eru hin lífsglöðu Irene Dunn og Douglas Fairbanks yngri. Irene Dunn leikur fræga söng- konu, sem, þó hún sje fræg, og vinsæl og hafi konunglegar tekjur, á í hinum mestu vandræðum vegna venslafólks hennar, er reitir hana inn að skínninu svo að lokum vofir yfir henni gjald- þrot. Douglas Fairhanks leikur unga manninn, sem bjargar henni úr öllum þessum vandræðum og gerir hana ham- ingjusama. Gömul saga, sem þó ávalt er ný, og færð í skemtilegan búning. Skip íleður í Kaupmannahöfn að öllu forfallalausu 25.—27. . anúar til Reykjavíkur, iVest- ur- og Norðurlandsins. Skipaafgr. Jes Zimsen Tryggvagötu. — Sími 3025. Til viðskiftamanna Kron. Kaupum tómar flöskur og glös hæsta verði. Látið sendlana taka það þegar þeir koma -wr«' með vörur til yðar eða hringið í búðimar og látið sækja það. Móðir mín HELGA EIRÍKSDÓTTIR andaðist í gær. Reykja,vík 15. jan. 1940 Elín Thomsen. Hjer með tilkynnist, að ástvinur minn EINAR BENEDIKTSSON skáld andaðist 12. þ. mán. að heimili okkar, Herdísarvík. Hlín Johnson. -------------------------------------------------- Hjer með tilkynnist, að hjartkær eiginkona mín og móð- ir okkar BORGHILDUR SIGURÐARDÓTTIR andaðist að heimili sínu, Laugaveg 136, mánudaginn 15. þ. m. Jón Sigurðsson og sjmir. Móðir og tengdamóðir okkar GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR frá Hellúkoti, Stokksejrri, Ijest að heimáJi okkar, Valhöll, Suðurg. 39, sunnudaginn 14. þ. mi Guðrún Einarsdóttir. Ingvar Ágúst Bjarnason. GUÐMUNDUR EBENEZERSSON skipstjóri, sonnr minn, andaðist á sjúkrahúsi í Grimsby í Englandi hinn 13. þ. mán. Þetta tilkynnist hjer með vinum hins látna fyrir mína hönd og bama minna. Valgerður Guðmundsdóttir, Grettisgötu 8. Hjartkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma S. B. 30 kr. Gengið í gær: Sterlingspund 25.81 100 Dollarar 651.65 — Ríkismörk 260.76 — Finsk mörk 14.84 — Belg. 110.06 — Sv. frankar 146.47 — Finsk mörk 13.27 — iGyllini 349.17 — Sænskar krónur 155.34 — Norskar krónur 148.29 — Danskar krónur 125.78 Útvarpið í dag: 20.30 Fræðslufloklrar :Hráefni og heimsyfirráð, V.: Málmur (Gylfi Þ. Gíslason hagfr.). 20.55 Tónleikar Tónlistarskólans: Tríó í B-dúr, Op. 99, eftir Sehu- bert. 21.30 Hljómplötur: a) Fiðlukon- sert í g-moll, eftir Vivaldi. h) Symfónaí nr. 3 í G-dúr, eftir Haydn. AUGAÐ hvílist TUICI [ með gleraugum frá • lllfciLi Verðlækkun. Dömutöskur, leður . . @ 10,00 Barnatöskur .......•— 1,00 Handsápa, Emol .... — 0,50 — Violetta.......— 0,50 — Palmemol .... — 0,50 Kartöfluföt m. loki . . — 2,75 Desertdiska .........— 0,35 Ávaxtadiska ........ — 0,35 Áleggsföt ...........— 0,50 Shirl. Temple Broshýr — 1,50 Smábarnasögur......— 0,40 Sjálfblekungar ....— 1,50 K. Einarsson k Björnsson Bankastræti 11. ELINBORG MAGNÚSDÓTTIR andaðist að heimili sínu, Egilsgötu 16, laugardaginn 13. þ. m. Eggert Eggertsson, böm, tengadbörn og bamabörn. Innilegar þakkir færum yið öllum þeimi, nær og fjær, er sýndu okkur hluttekning og hjálpsemi við útför GUÐNÝAR EINARSDÓTTUR frá Nýlendu. Fyrir hönd okkar og annara vandamanna Guðrún Hákonardóttir. Magnús Þórarinsson. Þökkum innilega auðsýnda hluttekningu við andlát og jarðarför GUÐMUNDAR JÓNSSONAR frá Stokkseyri. Vilborg Hannesdóttir og systkini.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.