Morgunblaðið - 27.01.1940, Blaðsíða 3
Laugardagur 27. jan. 1940.
M.ORGUN BLAÐ I Ð
ÚTFAHAItTHÖFHIN I DOMKIRKJUtlNI I GÆR
„Sjá, jeg sendi yður spámenn
og spekinga“
I dag verður Einar
Benediktsson jarð-
settur á Þingvöllum
ÞÓ nú sje liðinn rúmur mánuður frá vetrar-
sólhvörfum var dagurinn í gær einn sá dimm-
asti og drungalegasti sem hjer hefir komið
á þessum vetri.
Svo þungbúinn var sá skammdegisdagur er þjóðin
kvaddi Einar Benediktsson á líkbörunum. Svo dimt var
uppyfir, er hin fyrsta athöfn fór fram, er þjóðin efndi
til, honum til handa.
Kl: 2 skyldi athöfnin'hefjast í dómkirkjunni. Þar var margt
virðingarmanna, en kirkjan eins full og framaát mátti.
Kista þjóðskáldsins fyrir kórdyrum var sveipuð blahvítum
krossfána úr silki. Blómskraut bar hún ekki.
En. nokkrir blómsveigar voru við fótstall hennar Kirkjan
var ekki mikið skreytt, en með hvítu, það sem var. .Við kistuna
stóðu stúdentar heiðursvörð, en öðrumegin í kórdyrum var ís-i
lenski fáninn á burðarstöng og stúdentafáninn, hinn blái stjörnu-
feldur hinum megin.
BoðSgestum voru opnar skrúð
húsdyrnar. Meðal þeirra voru
háskólakennarar allir, en með
þeim frú Hlín Jöhnson og son-
ur hennar, Þingvallanefnd, fje-
Jagar í útgáfufjelaginu Bragi,
er úndirbýr útgáfu á skáldverk-
um Einars, skrifstofustjórar úr
Stjórnarráðinu, þj óðmin j avörð-
ur, formaður ræðismanna, Ar-
ent Claessen, ýmsir embættis-;
menn og nokkrir skólabræður
Einars. Allir voru þessir gestir
sunnanverðu við kirkjugólf. En
að norðanverðu höfðu sæti ætt-
ingjar Einars og tengdafólk, frú
Valgerður Benediktsson, Már
sonur þeirra Einars og hennar,
og fjölskylda Helga Zoega,
Haukur Ólafsson, bróðursonur
Einars og fjölskylda hans o. m.
fl. Ráðherrar og sendiherra
Dana voru í ráðherrastúkunni.
Stundarfjórðungi fyrir kl. 2
hóf Lúðrasveit Reykjavíkur
hljóðfæraslátt utan við kirkjuna
og ljek sorgargöngulag eftir
Múller.
Stundvíslega kl. 2 gengu þeir
í kór síra Ólafur Magnússon í
Arnarbæli og Sigurgeir Sigurðs-
son biskup, en dómkirkjuorgan-
istinn, Páll Ísólfsson ljek sorg-
argöngulag eftir Beethoven.
Því næst vóru sungin 6 erindj
úr útfararsálminum ,,Alt eins
og blótnstrið eina“. Var það
dómkirkjukórinn er söng, með
sínum ágætu kvennaröddum, er
gaf þessum ódauðlega sálmi
óVenjulega fagran blæ.
RÆÐA SJERA ÓLAFS
MAGNÚSSONAR.
Þá hóf síra Ólafur í Arnar-
bæli mál sitt. Hann hefir í 8 ár
verið sóknarprestur Einars. En
þeir voru fornkunningjar, skóla-
bræður, útskrifaðir sama árið
1884.
Síra Ólafi mæltist vel. Ræða
hans var látlaus, íburðarlaus
frásögn. Aðalefni henpar yar m.
iBSó ‘ t ' í ■' .
a. á þessa leið:
Að lokinni upphafsbæn, gerði
hann grein fyrir 23. kapítula í
Mattheusar guðspjalli, sem er
óslitin, harðorð ádeila á æðstu
menn þjóðarinnar, og gerðir
þeirra. En í 34. versi segir svo:
,,Þess vegna, sjá, jeg sendi yður
spámenn og spekinga og fræði-
menn“.
Þjóðirnar eiga jafnan ein-
hverja spámenn, mennina, sem
eru á undan sínum tíma, eiga
hugsjónir, og ná svo háum tón-
um, að raust þeirra nær til ahr-
ar þjóðarinnai'. En þjóðúnar
eru ekki altaf við því búnar, að
hlusta á spámenn sína og for-
ystumenr. Engin þjóð má vera
án spámanna sinna. Hún þarf
Heiðursvörður við kistu Einars Benediktssonar í Dómkirkjunni.
Skifting
Iðgreglunnar
I bænum
»Dagsbrún«
segir sig úr
landsambandi
kommúnista
Braskt herskip
stöövar Esju:
Farþegarnir
komust ekki
I land I Eyjum
Breskt herskip stöðvaði Esju í
fyrrinótt í Meðallandsbukt-
inni og tafði skipið í klukkustund.
Veður var ákaflega slæmt. um
8 viádstig og haugasjór. Fóru
ekki bótar á milli hins enska her-
skips og Esju, en foringi lier-
skipsins spnrði hvaðan skipið
að koma, hvert J>að væri að fafa.
og hver væri eigandi þess. Her-
.skipið sveimaði síðan kringum
„Esju“ og lýsti hana upp ; með
ljóskastara.
Að lokurn þakkaði Bretinn fyrir
upplýsingarnar og Esja hjelt leið-
ar sinnar til Vestmannaeyja.
Þegar til Vestmannaeyja kom
hafði veður enn versnað, komin
10 vindstig. G-átu Vestmanuaey-
ingar ekki sent bát út í Esjú og
ekkert útlit var fyrir að veðnr
myndi batna. Hjelt akipið því frá
Eyjum um lö-leytið og kom hing-
að klukkan 6.
I Vestmannaeyjum misti Esja
ánnað akkeri sitt.
Með Esju voru m. a. um 50 far-
þegar frá Austfjörðum, sem 'aéÚ-'
uðu til Vestimannaeyjá. \'röru 'það
aðallega vermenn. Faijiegjiirnir
komust ekki í land í Eyjum og
urðu að koma hingað.
Dvöldu flestir um borð í Esju í
nótt ,en ferðir munu falla til Eyja
í dag, þannig að verfóllcið verður
ekki fyrir miklum töfum.
ögreglunni í Reykjavík hefir
T
‘ rúnaðarráð Verkatrannafje-
a lagsins Dagsbrún — 100
nú verið skift milli hinna manna ráðið — hjelt fyrsta fund
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
B.v. Þorfinnur
seldur
NÝ T T togarahlutaf jelag
,,Askur h.f.“, sem stofnað
hefir verið hjer í bænum, hefir
keypt togarann Þorfinn af Út-
vegsbankanum.
Að fjelaginu standa Þórður
Ólafsson útgerðafmaður o. fl.
B.v. Þorfinnur hefir verið í
eign Útvegsbankans og er skipið
nú í fiskflutningum. Hafði bank
inn leigt það til flutninga.
Hinir nýju eigendur ,,Þor.
finns hafa þegar tekið við skip
inu.
tveggja embættismanna, lögreglu-
stjóra og sakadómara.
Megnið af lögregluliðinu, eða
hin almenna lögregla (götulög-
reglan), fylgir lögreglustjóra og'
lýtur stjórn lians. I því lögreglu-
liði eru um 50 lögregluþjónar.
Þeir annast hin daglegu lögreglu-
störf á götnnni, daga og nætur.
Telur lögreglustjóri þetta lið of
fáment.
Svo er rannsóknarlögrealan, sem
sújn í, gærkvöldi. í ráðinu eiga
sæti 50 Sjálfstæðisverkamenn og
50 Alþýðuflokksmenn.
Trúnaðarmannaráðið ljet það
verða sitt. fyrsta yerk, að sam-
þykkja, að segja Dagsbrún úr hinu
svonefnda. Landsambandi íslenskra
stjettarfjelaga, sem kommúnistar
stofnuðn í haust og eru einráðir
í. Var þetta samþykt með sam-
hljóða atkvæðum.
Þá samþykti trúnaðarráðið að
fylgir embætti sakadómara og lýt- j ónýta brottrekstur 6 Aiþýðuflokks
ur hans stjórn. Þar er liðið miklu
færra. Hin eiginlega rannsókna-
lögregla eru einir 4 lögreglunienn,
þ. e. þeir, sem vinna að rannsókn
opinberra mála. Rn svo eru aðrir
fjórir, sem annast ýms önnur
störf. Einn t. d. boðar menn til
>að mæta í rjettarhöldum, auk ým-
islegs fleira. Annar hefir ýmis-
konar slaúfstofustörf, heldur t. d;
iiegningaskrá... og margt fleira.
Þriðji er vottur við rjettarhöld,
gætir fundna fjármuna o. fl. Loks
hefir einn eftirlit með útlending-
um, heldur skrá yfir þá o. s. frv.
Engin ákvörðun hefir enn verið
tekin um varalögreglu hjer í bæn-
um. — Vafalaust verður kom-
ið hjer upp váralögreglu, en þeg-
ar það hefir verið gert, má flytja
■hana og alt hið fasta lögreglulið
bæjarins hvert sem er á landinu.
manna úr Dagsbrún, sem komm-
únistar höfðu rekið úr fjelaginu
á meðan þeir fóru þar méð völd.
Var brottrekstur þessara manna
ólöglegur á sínum tíma og eitt af
mörgum ofbeldisverkum kommún-
ista, sem þeir frömdu af pólitísk-
tíiii' ástæðum.
Á fundi t rún að artn anna ráðs
DagsbriSiár ! í gærkvöldi voru éin-
göngu fædd verklýðsmál"og fram-
tíðarináiefni Dágshriiná'r;
FRUMStNING Á
ÓPERETTU
Frumsýning á óperettu Franz
Lehars „Brosandi land“
(Das Land des Lachelms) verð-
ur í Iðnó þriðjudaginn 6. febrú-
ar næstkomandi.
SKulúaskll Steindórs
Gunnarssonar og Fje-
lagsprentsmiðjunnar
Hæsiirteitur
ómerkii
málið
H
æstir jettur kvað í gær upp
dóm í málinu: Steindór
Gunnarsson gegn s.f. Fjelags-
prentsmiðjan. oV
Mál þetta er risið út af fyijpi
viðskiftum Steindórs Gunnars-
sonar og Fjelagsprentsmiðjunn-
ar, en Steindór var meðeigandi
prentsmiðjunnar og f^úúi-
kvæmdastjóri. Steindójcjjfak all-
mikla útgáfustarfsemi;; (vasa-
bækur, almanök o. fl.), er hajjn
var prentsmiðjustjóri í Fjelags-
prentsmiðjunni, en seldi með-
eigendum sínum alt forlagið og
reis flókinn málarekstur út af
þeirri sölu, fyrst fyrir gerða-
dómi og síðar fyrir bæjarþingi
Reykjavíkur, en það mál kom
nú fyrir Hæstarjett.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍBU.