Morgunblaðið - 03.02.1940, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 3. febrúar 1940
Það er auðskilið, að á
stríðstímum reynir á
samheldni og einingarhug
hverrar þjóðar meira en
nokkru sinni ella. Einhverj-
ir hljóta altaf að efast um
hvort hinar ægilegu fórnir
sjeu rjettmætar til stuðn-
ings þess málstaðar, sem
barist er fyrir, hvort ekki
mundi betur heima setið
heldur en að ofurselja mik-
inn hluta af bestu mönnum
landsins til ógna og dauða
fyrir málstað, sem því mið-
ur er stundum ekki altaf
Ijós.
T Canada hefir það að þessu
A sinni, eins og í síðasta stríði,
aðallega verið frá hinumfrönsku
naælandi íbúum Quebec-fylkis,
að raddir hafa komið fram, sem
<Iregið hafa í efa eða mótmælt
rjettlæu þessa stríðs fyrr Can-
ada. Áður en stríðið skall á
höfðu „einangrunarmenn" þar
haft fundi með sjer og lýst and-
stöðu sinni gegn þátttöku Can-
ada og krafist hlutleysis.
I Quebec búa, sem kunnugt
er um tvær og hálf miljón
frönsku mælandi manna. Þeir
eru flestir katólskir og hafa að
jafnaði haft ýmsa stjórnmála-
menn, sem hefir fundist að rjett-
indi fylkisins væru óhæfilega
ifyrir borð borin í ríkisstjórninni.
Þessir menn halda því fram, að
■Canada sje stjórnað af einskær-
um heimsveldissinnum (Imperi-
alists), sem beri hag Englands
fyrir brjósti meira heldur en vel.
ferð Canada sjálfs. Síðustu árin
hefir verið þar við völd hinn svo
kallaði Union Nationale flokkur
<og hefir forsætisráðherra fylk-
isins, Mr. Duplessis, átt í nokkr-
um deilum við ríkisstjórnina í
Ottawa. Eftir að stríðið braust
út, kvaddi hann til kosninga til
þess að tryggja vald sitt til bar-
áttu fyrir sjálfsákvörðunarrjetti
og hjeraðsrjettindum Quebec,
sem hann sagði að væri í hættu.
Sagði hann m. a., að á úrslitum
kosninganna riði hvort útboð
hermanna (conscription) yrði
Síðari grein
CANADA FER I STRIÐ
lögleitt í Canada eða ekki, enda
þótt ríkisstjórnin hafi marglýst
því yfir, að svo verði ekki. Yfir-
leitt voru rök hans í kosninga-
baráttunni heldur óglögg og
ruglingsleg, enda sögðu ýmsir,
að aðalástæðan til kosninganna
hefði verið sú, að fjármál fylk-
isins hefðu verið í slíkri óreiðu,
að stjórnin hefði sjeð illfært að
halda á þcim.
Mr. Duplessis er annars einna
frægastur fyrir hin illræmdu
„lásalög" (Padlock Law), sem
hann innleiddi í Quebec fyrir
nokkru síðan, og nam með því
að nokkru á brott það athafna-
og ritfrelsi, sem sagt er að m. a.
sje barist fyrir í þessu stríði.
Úrslit kosninganna urðu þau,
að flokkur Mr. Duplessis, sem
áður hafði yfirgnæfandi meiri
hluta, fekk aðeins 16 sæti af 86
í fylkisþinginu, en Liberalflokk-
urinn, sem áður hafði aðeins 14,
bætti við sig 54 þingmönnum. —
Auðvitað var þetta tekið sem
stórsigur fyrir ríkisstjórn Can-
ada (Liberal) og einingu Breta-
veldis yfirleitt, enda hafði Mr.
Kink forsætisráðh. lýst yfir því,
að kosningabaráttan í Quebec
væri hin mikilvægasta, sem
nokkru sinni hefði fram farið í
Canada, þar sem úrslitin myndu
sýna hvort sá hluti þjóðarinnar,
sem fjærst stæði Englendingum
væri samþykkur ríkisstjórninni
í stríðsráðstöfunum hennar. Ýms
önnur atriði, sem of langt yrði
að rekja hjer, komu þó til
greina, og því fer fjarri, að allir,
sem greiddu atkvæði á móti Mr.
Duplessis sjeu einhuga á bak
við ríkisstjórnina eða haldi því
fram, að þátttaka Canada í
stríðinu sje með öllu rjettmæt.
Samt sem áður verður að viður-
kenna, að sigur stjórnarinnar
var mikill og mun án efa gera
Dilkakföt,
stórhöggið, saltað í 112 kg. tunnur, til sölu í
Heildversl. Garllars Gislasonar
hana djarfari til þess að taka
stór skref í stríðsráðstöfunum
sínum en ella mundi.
Almenningi er sífelt gefin sú
skýring á þessu stríði, að það
sje háð fyrir lýðræði, mannrjett-
indum og einstaklingsfrelsi. Það
er því sorglegt til þess að vita,
að þær þjóðir, sem berjast fyrir
slíkum háfleygum hugtökum,
gerðu fyrir nokkrum árum síð.
an. — Tilgangurinn hjer er þó
nokkuð öðru vísi. Engin tilraun
er gerð til þess að gylla stríð í
sjálfu sjer, eins og nasistarnir
hafa gert. Því er sannarlega
ekki haldið fram, að stríð sje
nauðsynlegt hverri þjóð til þess
að viðhalda manndómi sínum
cg kjarki. Ógnir þess og skelf-
skuli, einmitt meðan á barátt- ingar eru þvert á móti málaðar
aifHiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Eftir Jakob Sigurðsson
wmiiiimnmmmmmmmmummmmiiiiifltiffiiuiuimiiiiimiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimm
unni stendur, sjálfar gera ráð- sterkum litum. Þar er kenningin
stafanir til þess að skerða not-
kun þeirra rjettinda, sem sigur-
inn á að tryggja. En þegar mál
og ritfrelsi er takmarkað í stór.
um stíl um leið og átökin hefj-
ast, er ekki að furða þó að hinir
,,skeptisku“ stingi upp á því, að
yfirvöldin meini ekki eins vel
og þau segja, en sjeu heldur
fegin að fá afsökun, til þess að
bæla niður rjettmætar aðfinslur
þjóðarinnar. Gagnrýni á störf-
um stjórnarinnar og ákvörðun-
um hennar viðvíkjandi stríðinu,
hefir engan veginn verið stöðv-
uð hjer, en hinsvegar eru allar
raddir, sem mótmæla rjettlæti
stríðsins sjálfs algerlega bann-
aðar að viðlögðum þungum refs-
ingum. Hefir þessu banni verið
framfylgt svo rækilega hjer, að
maður hefir stundum undrast
yfir smámunasemi valdhafanna
í því efni. Sem dæmi má nefna,
að fyrir stuttu var ungur, at-
vinnulaus maður settur í fang.
elsi fyrir að segja aðeins, að
Chamberlain væri ekki þess
verður að berjast fyrir. Aðrir
hafa fengið sömu refsingu fyrir
„að móðga stórlega hermann í
einkennisbúningi", og einn fekk
þrjá mánuði fyrir að segja:
„Chamberlain er engu betri en
Hitler“, svo mætti lengi telja.
Eftirlit með útvarpi og blöð-
um fær maður betur skilið, og
verður þó að segja, að hvort-
tveggja sómi sjer illa við hlið
stöðugra yfirlýsinga og upp-
hrópana um skoðanafrelsi og
málfrelsi hvers sem er. Á stríðs-
tímum mun þó víst verða að við-
urkenna nýjar nauðsynjar, þeg-
ar slagorðið er „sigur, hvað sem
hann kostar“.
Sum blöð franskra „einangr-
unarmanna“, hafa komið út
með auðum síðum vegna rit.
skoðunarinnar, önnur — sum
kommúnistablöð — algerlega
bönnuð. í Ontario-fylki lítur út
fyrir, að bæjarstjórnarkosning-,
ar verði afnumdar þangað til
eftir stríð, sem „sparnaðarráð-
stöfun“, segir Mr. Hepburn for-'
sætisráðherra fylkisins, og er þó
erfitt að rjettlæta slíkar athafn-
ir.
1 Winnipeg var fyrir nokkru
stöðvuð „endurnýjunar“ sýning
á myndinni, Tíðindalaust á vest-
urvígstöðvunum, og er leiðinlegt
að viðurkenna, að þetta er ná-
kvæmlega það, sem nasistarnir
vanmáttug til þess að hefja frek-
ari óeirðir. — Uppástunga, sem að
vonum lætur þýsku þjóðinni finn-
ast, að hún hafi eitthvað til þess
að berjast íyrir, enda m.un hún
óspart túlkuð í Þýskalandi sem
ætlun bandamanna.
Við höfum heyrt um stofnun
„Bandaríkja Evrópu“, en við ör-
væntum, þegar við hugsum til
„Bandalagsins“ frá síðasta ófriði,
sem látið var deyja svo ósæmi-
legum dauða. Það er ennþá full
ástæða til þess að óttast, að ann-
ar refsingarfriður verði settur, að
sama stefnan, sem rjeði í Versöl-
um, verði aftur yfirsterkari, svo
að hinir sigruðu bíði aðeins eftir
að lækna sár sín og verji kröftum
sínum, til þess eins að hervæðast
og búast til nýrra skelfinga. Byrj-
un stríðsins ætti þó að vera sá
tíminn, þegar helst mætti búast
við rjettlátum og viturlegum frið-
arráðstöfunum, en líkurnar verða
æ minni, þegar ófriðurinn heldnr
áfram, og stöðugt er blásið að
haturseldiniun ineð nýjum tjónum
og látlausri grimd.
Það er engan veginn ótímabært
að tala um, frið. Hvernig er hægt
að búast við því af hugsandi mönn
um, að þeir leggi líf sitt í sölu-
urnar aðeins í þeirri von, að það
hafi einhverja þýðingu, án svo
mikils sem ákveðinna loforða ? Þótfc
undarlegt megi virðast, þá er þessa
krafist og með góðum árangri.
Þeir eru leiddir af þeirri yon, að
hvað sem gert verður í ófriðar-
lok, þá hljóti það að verða óend-
anlega miklu betra en skelfingar
þær, sem leiddar yrðu yfir heim-
inn — og í .allri hreinskilni, breska
heimsveldið sjerstaklega — ef naz-
istarnir fengju yfirhöndina. En
þetta er ekki nóg. Það er ekki
heldur nóg, eins og II. G. Wells
sagði nýlega, að tala við herinn
um „reglulega good "o'ld Tommiea
(gælunafn fyrir enska hermenn),
láta skemta þeim með þriðja
flokks skopleikurum og senda
þeim sígarettur og súkkulaði-
kassa í jólakveðjur frá hreint allra
besta fólkinu“. Þeir og allir aðrir
ættu að vita hvað við á að taka
á eftir.
Er von um, eitthvert slíkt skipu-
lag á málum Evrópu, sem, líkur
eru til að leiði til varanlegs frið-
eða verður það aðeins annað
þessi. í stuttu máli, því meiri
ógæfa, sem það er fyrir hverja
þjóð, að lenda í stríði, því frek-
ar ber okkur að fara í stríð,
því að auðvitað á þetta stríð,
eins og hið síðasta, að vera stríð
fyrir eilífum friði, eða „stríð til
að enda stríð“.
Þetta leiðir annars til athugun-
ar á aðalgallanum á öllum þeim
yfirlýsingum, sem Kanadamenn
hafa gefið út um þenna ófrið, þ.
e. vöntun á því, að málstaðurinn
sje settur fram skýrt og greini-
lega. Hvað tekur við þegar sig-
urinn er unninn og hverskonar
friður verður gerður. Það er eins
og allir hafi nokkurnveginn hug-
mynd um, hverju er barist á móti,
kúgun smávelda, ofsóknum gegn
vissum þjóðflokkum o. s. frv. I
raun og veru hefir það þó jafn-
vel valdið umræðum, hvort það sje
Hitler eða þýska þjóðin, sem bar-
ist er við. Chamberlain segir, að
það sje Hitler, og að hann hafi
ekkert á móti alþýðu manna í
Þýskalandi. Duff Cooper mun
ekki vilja fallast á þessa aðgrein-
ingu, og er það eðlilegt, þegar lit-
ið er á, Hvernig Hitler komst til
valda; en þar að auki mun hers-
höfðingjanum ekki finnast það
sjerlega ráðlegt að segja hermönn-
unum, að andstæðingarnir sjeu
saklausir eins og lömb, sem leidd
eru til slátrunar. Þeim þykir
hyggilegra að sleppa slíkum, vin-
semdarhugsunum tll þess að halda
uppi vígamóð hermannanna.
En fyrir hverja er barist?
Fyrir lýðræði, frelsi, afnámi
kúgunar og ofsókna, friði og vel-
gengni fyrir oss og afkomendur
vora. Slík óljós hugtök og þoku-
kendar yfirlýsingar eru taldar
nægilegar sem svar við þessari
höfuðspurningu. Falleg orð, sem
fyrir löngu hafa tapað hinni rjettu
þýðingu af stöðugri misnotkun.
Þau segja manni ekkert um það,
sem koma skal.
En það er eins og það , þyki
hreint ekki fínt að minnast á raun
verulegar stjórnmála og fjárhags-
legar ákvarðanir, þegar til friðar
kemur. Enn sem komið er hefir
ekkert verið sagt til þess að full-
vissa mann um, að sótst sje eftir
neinu öðru en status quo, þ. e. að
alt verði eins og það var 1933. En
við sjáum til hvers það hefir leitt.
Blöð og tímarit hafa stöku sinn-
um minst á skiftingu Þýskalands
i fjölda smankja, sem öll verði of 1 -.*:**:• ^ 4
ar,
stundarhlje, þangað til skammsýn-
ir stjórnendur gera að engu ávöxt
fórna okkar og þjáninga?
28. des. 1939.
Jakob Sigurðsson.
v
T
T
T
T
T
T
*
DAGLEGA NÝTT:
Kindabfúga
PYLSUR — EGG
lækkað verð.
Áhersla lögð á vöru-
gæði. Fljót afgreiðsla.
Eyjabúð
Bergstaðastræti 33.
Sími 2148.