Morgunblaðið - 09.04.1940, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 9. apríl 1940.
M0RGUNBLAÐIÐ
iiiimiiiiiiiiiiKmiiiuii
Tundurdufla-
svæðin
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær,
FYRSTA tundurduflasvæðið er við Statland, þar sem
Noregsströnd beygir til norð-austurs. Svæðið þar er
um 40 fermilur.
Næsta svæðið er nokkuð norðar, hjá Bud, skairt fyrir sunn-
an Kristianssund. Tundurduflunum er lagt þar á »35 fermílna
svæði.
Þriðja svæðið er nyrst, í f jarðarmynninu á Vestf jorden. Við
botn þessa f jarðar er Narvik.
Hjer hefir tundurduflunum verið lagt á 20 fermílna löngu
svæði.
Til þess að sigla framhjá öllum þrem tundurduflasvæðun-
um verða skipin að fara alllangt út fyrir norska landhelgi.
En þar taka breSk herskip við áf tundurduflunum.
F|árlðgin:
Mentamálaráð
úthlutar lista-
mannastyrknum
FJÁRLÖGIN voru enda,nlega afgreidd á Alþingi
í gær. Atkvæðagreiðslan hófst um kl. 2 og var
lokið laust fyrir kl. 7 með kaffihljei.
Ekki eru tiltök hjer að skýra frá afgreiðslu hverrar breyt-
ingartillögu, sem fram kom við fjárlögin, en þær voru
150 talsins.
íslenskir þjóðarrjett-
ir á heimssýningunni
= r
Allar breytingartillögur fjár.
veitinganefndar voru samþykt-
ar, en þær voru 70—80 talsins.
Hefir þeirra stærstu áður verið
getið hjer í blaðinu.
Sú tillaga nefndarinnar, sem
mestum ágreiningi olli, var um
það, að nöfn rithöfunda, skálda
og listamanna skyldi tekin út
af fjárlögunum, en varið einni
heildarupphæð, 80 þús. kr., sem
mentamálaráð skyldi úthluta.j
Þessi breytingartillaga nefndar-j
innar var samþykt með 25:17-
atkv. Hefir mentamálaráð þann- j
ig unnið á síðan á þinginu í1
vetur, en þá sigraði það með'
aðeins eins atkvæðis meirihluta. j
Nokkrar breytingartillögur
þingmanna voru samþyktar. —
Verður þeirra getið hjer:
1000 kr. til Súgfirðinga til að
hafa lærða hjúkrunarkonu; 10
þús. kr. hækkun til vegarins
yfir Siglufjarðarskarð; 6 þús.
r
Island og
Norðurlönd
Stúdentafjelags-
fundurinn
kr. hækkun til Stykkishólmsveg-
ar; 10 þús. kr. hækkun til Bún-
aðarfjel. ísl.; 2000 kr. hækkun
til búfjárræktar; kvennasam-
band V.-Hún. 300 kr. Nokkrir
smástyrkir voru hækkaðir, sem
nemur þessum upphæðum:
Sigtr. Guðlaugsson 800, Guðm.
Björnsson kennari 100, Samúel
Eggertsson 50, Eiríkur Stein.
grímsson póstur 100 kr. — I-
þróttasjóður hækkaður um 10
þús.; Þjóðræknisf jelag íslend-
inga, til eflingar menningarsam-i
bands við V.-lslendinga 3000
kr.; Örlygur Sigurðsson, til
myndlistarnáms 1200; Magnús
Ásgeirsson byggingarstyrkui*'
1000; Jarðakaupasjóður 50 þús.
kr. hækkun; sjúkrasjóður Mý-
vetninga 250; Sigríður Stein-
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Stúdentafjelag Reykjavíkur
hjelt í gærkvöldi annan um'-
ræðufund sinn um efnið: ísland
og umheimurinn.
Formaður f jelagsins, Luðvig
Guðmundsson setti fundinn. Kvað
hann vert að minnast þess nú, er
hin alvarlegustu tíðindi bærust
frá Norðurlöndum, að þetta væri
í annað sinn í vetur, er váleg tíð-
indi spurðust þaðan, einmitt er
stúdentar hygðu á samkomu
með sjer. Hið fyrra skiftið hefði
verið 1. des., er Rússar rjeðust á
Finna. Stúdentar hefðu þá sýnt
samúð sína m,eð Finnum og eins
vildu þeir nú votta öllum Norður-
löndum fylstu samúð.
Umræðuefni þessa fundar var
Norðurlöndin og samband ís-
lands við þa,u. Frummælandi var
Stefán Jóhann Stefánsson fjelags-
málaráðherra. Flutti hann langa
og' ítarlega ræðu um þessi efni.
Komst liann að þeirri niður-
stöðu, að íslendingum bæri að
efla menningarlegt og fjárhags-
legt samband sitt við frændþjóð-
irnar á Norðurlöndum. Sín per-
sónulega skoðun væri sú, að mest
ar líkur væri fyrir þvr, að árang-
ur yrði af slíkri samvinnu, ef hin-
ar fimm' Norðurlandaþjóðir, Sví-
ar, Norðmenn, Finnar, Islending-
ar og Danir væru allar fullvalda
og óháðar svo se:m frekast gæti
orðið.
Fundurinn var allfjölmennur.
um
Iþióttavöllurinn
tekur stakka-
skiftum
Endurbætur íyrir
20 t)ús. krónur
Miklar utnbætur hafa verið
gerðar á Iþróttavellinum
á Melunum. Munu íþróttamenn
bæjarins fá miklu betri skilyrði
til útiæfinga á komandi sumri
en þeir hafa haft áður.
Aðalumbæturnar eru fólgnar
í þurkun vallarins, endurbótúm
á búningsklefum, bættum áhorf-
endapöllum og sjerstöku svæði
fyrir æfingar í frjálsum íþrótt-
um.
Til þess að þurka völlinn og
fyrirbyggja að hann verði eins
og stöðuvatn í rigningartíð, var
grafinn djúpur skurður eftir
vellinum endilöngum og marg-
ir smáskurðir meðfram vellin^
um. Var síðan ,,púkkað“ með
grjóti í skurðina og loks borið
ofan í möl og sandur. Þykir nú
trygt, að alt vatn, sem kemur
á völlinn renni jafnóðum burt
og sparar það íþróttamönnum
að þurka völlinn upp með poka-
druslum eða vaða bleytu og
aur í ökla.
Við þetta verk unnu atvinnu-
lausir unglingar undir stjórn
Einars E. Sæmundsen.
Búningsklefar verða stækk-
aðir að mun og geymslan, sem
var í suðurenda skúrsins tekin
fyrir búningsklefa. Geymslan
verður flutt undir stúkuna.
Á suðurhluta vallarins, milli
tennisvallanna og knattspyrnu-
vallanna verður útbúinn æfinga-
völlur fyrir frjálsar íþróttir.
Þar verða hlaupabrautir, gryfj-
ur og gras utan með vellinum,
þar sem íþróttamenn geta sest
niður til að hvíla sig.
Áhorfendapöllum verður
breytt og pallar settir austan
vallarins.
íþróttavallarnefnd hefir til
umráða 20 þúsund krónur á
þessu ári til endurbóta á íþrótta
vellinum. Þar af eru 15 þúsund
af því fje, sem veitt er til í-
þróttasvæðisins í Skerjafirði og
5 þúsund króna árlegur styrkur
frá bæjarsjóði til vallarins.
Loftárás á
Scapa Flow
Þýskar flugvjelar gerðu
árás á Scapa Flow í kvöld.
Bretar segja að ekkert tjón
hafi orðið.
í New-York
Veitingaskáli við
hlið íslandsskálans
Málverkasýning og ef til vill
kvikmyndasýning
SÚ NÝJUNG verður á fslandssýningunni í New-
York, þegar hún hefst nú að nýju, að rekinn
verður veitingaskáli í sambandi við sýninguna
og verða þar á boðstólum allskonar þjóðlegir rjettir. Sýn-
ingin verður opnuð 11. maí næstkomandi.
Þessar upplýsingar fekk Morgunblaðið hjá Thor Thors
alþm. í gær, er blaðið átti tal við hann um sýninguna.
Thor sagði: Við höfum fengið umráð yfir skála þeina,
sem er við hlið íslandsskálans og verður þetta veitingaskáli
meðan á sýningunni stendur. í veitingaskálanum verður fram-
reidd allskonar íslensk matvæli. Forstöðu skálans hefir 'einn
þektasti veitingamaður í New-York, Larsen að nafni. Verður
þessi veitingaskáli rekinn okkur að kostnaðarlausu.
Ennfremur er ákveðið að hafa fjölbreytta málverkasýningu
í sambandi við sýningu okkar, og ef til vill einnig kvikmynda-
sýningu.
Haraldur Árnason kaupmaður fer vestur með næstu ferð
Goðafoss, til þess að ganga frá sýningarskála okkar, með Vil-
hjálmi Þór, sem enn dvelst vestra.
Danir hafa nú ákveðið að fara að fordæmi okkar íslend-
inga og sýna áfram. Þeir höfðu sem kunnugt er áður ákveðið
að verða ekki þáttakendur í sýningunni á þessu ári.
Bridge-kepni
á Akureyri
AAkureyri hefir undanfarið
staðið yfir bridgekepni í
spilaklúbb Akureyrar og tóku
þátt í kepninni sex sveitir.
Kepninni var hagað þannig, að
fyrst var kept, ein um'ferð og
gengn, þá tvær sveitir úr, sem
'höt'ðu lægsta vinningatölu, og svo
koll af kolli, uns eftir voru aðeins
tvær sveitir, er keptu til úrslita.
í fyrradag fór fram úrslita-
kepni milli sveitar Hinriks Thor-
arensen, Þorsteins Þorsteinssonar
frá Lóni, Vernharðs Sveinssonar,
Þórðar Sveinssonar (synir Sveins
Þórðarsonar getsgjafa) og sveitar
dr. Kristins Guðmundsssonar
mentaskólakennara, Brynjólfs
Sveinssonar mentaskólakennara,
Þorsteins Stefánssonar bæjar-
gjaldkera og Gunnars Jónssonar
spítalaráðsmanns.
Úrslit urðu þau, að sveit Hin-
riks vann með 14730 stigum gegn
11410.
Svigkepni innanfjelags fyrir
fullorðna var háð hjá Armenning-
um í Jósefsdal s.l. sunnudag. —
Fyrstur varð Eyjólfur Einarsson
á 83.6 sek. báðar ferðir, annar
Hörður Þorgilsson 90.3 sek. og
þriðji Þórarinn Björnsson á 97.4
Enskir togarar eyði-
leggja veiðarfæri
Frjettaritari Morgunblaðsins
í Vestmannaeyjum símar
í gærkvöldi, að talsverð brögð
hafi orðið að því að enskir tog-
arar hafi eyðilagt veiðarfæri
fyrir Eyjabátum, sem voru að
veiðum á Selvogsbanka.
Tjónið hefir enn ekki verið
metið. Togarar þessir eru allir
vopnum búnir. Talsvert er af er-
lendum togurum við Eyjar, þar
á meðal allmikið af belgískum
togurum.
Fiskveiðar við
Grænland
Pjetur Ottesen flytur breyt-
ingartillögu við þingsálykt-
unartillögu Árna Jónssonar og
Jóhanns Jósefssonar um fisk-
veiðar við Grænland.
Vill P. O. að tillögugreinin
verði orðuð þannig:
„Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjórnina að beita sjer fyrir
því, að gerður verði út hjeðan
fiskveiðaleiðangur til Græn-
lands, til hagnýtingar á fornum
og nýjum rjettindum íslendinga
þar“.