Morgunblaðið - 24.04.1940, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.04.1940, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 24. apríl 1940. Stórorusta fyrir norðan Hiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiii: __. Þrandheim Istríðið kostar m Milli Stenkjær og Levanger FYRSTA STÓRORUSTAN milli Þjóðverja og hersveita Bandamanna í Noregi var háð í gær fyrir norðan Þrándheim. í hernaðartilkynn- ingu Þjóðverja segir, að orustan hafi staðið yfir í tvær klukkustundir og að óvinaherinn hafi verið neyddur til að hörfa undan norður á bóginn. í tilkynningu frá breska hermálaráðuneytinu segir að eins að slegið hafi í bardaga fyrir norðan Þrándheim, þar sem Þjóðverjar hafi gert gagnárás á hersveitir Banda- manna. En það er tekið fram, að á þessu stigi sje ekki hægt að gera nánari grein fyrir orustunum. Hvorug hernaðartilkynningin getur um hvar orustan hafi verið háð. En í fregnum frá Svíþjóð segir, að hún háfi staðið fyrir norðan Levanger, um 50 km. fyrir norðan Þrándheim. Samkvæmt því virðast bresku hersveitirnar, sem settar voru á land í Namsos, þegar hafa sótt fram um 150 km. ÖNNUR SÆKIR AÐ SUNNAN. Levanger er næstum miðja vegu milli Stenlíjær og Þránd- heims. Þjóðverjar gerðu loftárás á Stenkjær 1 fyrradag, og þótti ,það benda til þess, að hersveitir Bandamanna- v'deru þá \omnar til þesaarar'börgar frá Namsos. ' « Það er nú einnig staðfest í London að hersveitir Bandamanna sæki að Þrándheimi að sunnanverðu og að þær sjeu ekki nema um 40 km. frá borginni. Hersveitir þessar koma frá Andalsnesi og hafa verið fluttar þaðan til Dombás, og síðan norður með Dombás-Þrándheims- jámbrautinni. •yhðscrtaðslfí Hersveitin, sem s|^» aU aunhartverðu, segir í skeýti frá London, á að hindra þ^rað þýska varnarliðinu í Þrændalögum geti borist nokkur hjálp frá Suður-Noregi. 1 ORUSTUR í SUÐUR-NOREGÍ. Þýsku hersveitirnar, sem sækja að sunnan virðast mæta áköfu viðnámi hjá Lillehammer í Guðbrandsdalnum og skamt fyrir sunnan Rena í Austurdalnum. 1 tilkynningu þýsku her- stjtórnarinnar er viðurkent að Þjóðverjar hafi hvað eftir a'nnað mætt harðri mótspyrnu í Austurdalnum. Það er ekki að fullu Ijóst hýefnig ástandið er í Guðbrands- dalnum. Þjóðverjar sdgjast verá í L'illéhammef, en í sænskum fregnum segir, að þeir' hafi verið hfaktir þaðan suður að Moelv, sem er miðja vegu milli Lillehí nitners og Hamars. Tilkynning breska hermálafáðrtneytisins gefur engar upp- lýsingar um þetta, en segir aðeiris '‘að hersveitir Bandamanna| standi ásamt hersveitum Norðmariria gegn þrýsting Þjóðverjaj í Surður-Noregi. Tilkynriing norsku herstjórnarinnar í gær-^ kvöldi bætti því við, að Þjóðverjar noti fallbyssrtr, skriðdreka og flugvjel^r í sókn sinni. ^ Norska herstjórnin viðurke|mir að Þjóðverjar sæki fram í Valdres (sem er nokkuð vestar en Guðbrandsdalurinn), eftir þjóðveginum frá Gjövik;, óg að 100 norskir hermenn hafi verið. teknir til fanga. STÖÐUGIR HERFLUTNINGAR. Bandamenn virðast stöðugt vera að flytja aukið herlið til Andalsnes, sem sjeð verður á því, að Þjóðverjar tilkynna, að þeir hafi gert loftárás þar í'gær og hæft tvö herflutningaskip og einn tundurspilli. En Bretar mótmæla því þó enn, að nokkru her- flutningaskipi þeirra hafi verið sökt, frá því að herflutningarnir til Noregs hófust. Það er nú talið fullvíst, að Bretar og Norðmenn hafa Raumsdalsjárnbrautina alveg á valdi sinu alla leið frá Andals- nesi, suður að Lillehammer. Er sterkur hervörður um járnbraut- ina. En Þjóðverjar gera þó hverja tilraunina af annari tiL að eyðileggja hana með loftárásum, og segjast meðal annars hafa gert loftárás á Dombás í gær. Einnig hafa þeir gert loftárás á Grong. Þýskt herlið, sem sækir frá Bergen og frá Stavangri, virðist mæta nokkurri mótspyrnu, því að í tilkynningu þýsku herstjórn- arinnar er talað um um dreifðar hersveitir Norðmanna hafi verið brotnar á bak aftur á þessum slóðum. Kortið sýnir álla belstu staðina, þar sem barist er í. Noregi. Augu fiðnsku herstjMnnar ð Svfþjóð T skeyti frá London segir, að *• athygli herstjórnarinnar í Prakklandi beinist nú mjög að Svíþjóð. í breska þinginu Var í gær sett fram fyrirspurn um hvort utan- ríkismálaráðherrann gæti gefið upplýsingar um, hvort trygt væri að Þjóðverjar fengju engan járn- unálm frá Svíþjóð og ef þetta væri ekki. trygt, hvort ekki væri hægt að gera ráðstafanir til að hindra járnmálmsflutninga þeirra þaðan. Butler, aðstoðarutanríkismála- ráðherra, kvaðst ekki geta farið inn á þetta mál að svo stöddu. Atþygli hans var þá leidd að hlutleysisbrotum þýskra flugvjela í Svíþjóð, og sagði liann þá, að bresku stjórninni væri að fullu kunnugt um þessi hlutleysisbrot, enda hefði sænska stjómin mót- mælt þeim í Berlín. f þýskum blöðum og útvarpi gætir síðustu dagana mjög harð- orðrar gagnrýni á sænskum blöð- um fyrir skrif þeirra um Þýska- land, og eru þau söktið um að hafa vakið upp hroðasögur um þýska herinn, sem misbjóði heiðri bans. Fulttrúar Þjóðverja í Roregi og Danmðrku Rente-Pink, sendiherra Þjóð- verja í Danmörku, hefir verið skipaður æðsti fulltrúi þýsku stjórnarinnar þar í landi. Æðsti fulltrúi Þjóðverja í Noregi hefir verið skipaður einn af yngstu fylkisstjórum nazista í Þýskalartdi. Breta 7 milj. kr. á klukkustund „D iiHuwumHMiuHUHiiimiiimiuiiiiunHmiuuuit ÝRASTA STRÍÐIÐ, sem nokkru sinni hefir ver- ið háð“, eins og Sir John Simon orðaði það í fjárlagaræðu sinni í gær, er áætlað að kosti Breta 2000 miljón sterlingspund (56 þús. miljón krónur) næstu 12 mánuði. Öll útgjöld breska ríkisins á fjárhagsár- inu 1940—1941 er áætlað að muni nema 2667 miljónum sterlingspunda. Þetta samsvarar að eytt sje 7 Vá miljón sterlingspundum á sólarhring (eða 172 miljón krónum). Á hverri klukkustund eyðir ríkið 304 þús. sterlingspundum. Frjettaþulur breska út- varpsins skýrði frá því, til marks um hve útgjöldin væru gífur- leg, að á meðan hann v ar að lesa frjettirnar í tæpa hálfa klukkustund í gærkvöldi, hefði ríkið eytt 150 þúsund sterlings- pundum — 3.5 miljón krónum. SKATTARNIR HÆKKABIR. Helmingsins af þessu fje verður aflað með sköttum og toll- um, en hinn helmingurinn verður tekinn að láni, sagði Sir John Simon. Hann gerir ráð fyrir að tekjur ríkisins verði 1264 miljón sterlingspund. En til þess að afla þessara gífurlegu tekna hefir orðið að grípa til þess ráðs að hækka skattana, og eru það aðallega óbeinu skattarnir, sem hafa ver ið auknir. Sir John tilkynti að settur hefði verið nýr skattur, svo- kallaður söluskattur, sem lagð- ur er að ákveðnum hundraðs- hluta á heildsöluverðið , er heildsali selur til smásala. Það verður þingsins að á- kveða hve há hundraðstalan verður. Undanþegnar eru mat- vörur, vörur sem þegar hafa verið hátt skattlagðar, og auk þess eldsneyti, rafmagn og vatn. Aðrir skattar, sem hækkaðir hafa verið eru: bjórskatturimn um 1 pence á hálfpott (pint), whiskyskatturinn um 1 sh. og 9 d. á flösku, hver unsa tóbaks hækkar um 3 pence, eldspýtur hækka í verði úr 1 penny í lVá pence. Burðargjald brjefa hækkar úi’ iy2 pence í 2Vá pence og póst- korta úr 1 í 2 pence. (Þetta er eina hækkunin, sem, sætti gagn- rýni stjórnarandstæðxnga x þing- inu í gær). Talsímagjöld hækka um 15% og skeytagjöld um 3 pence. Loks er ákveðið að yfirskattur (surtax) skxili vera greiddur af 1500 stpd. tekjum og þar yfir (var áður af 2000 stpd. íekjum og þar yfir). Spara, spara! Sir John flutti útvarpsræðu í gærkvöldi og hvatti þjóðina til að gæta ítrustu sparsemi. Hún yi’ði að spara í stað þess að eyða til að lijálpa til að standa straum af stríðskostnaðinum. Hann sagði 12 klst. skothrfð I Skaaerrak Aílan daginn í gœr heyrð- ist skothríð utan af hafi í bæjunum á vestur- strönd Svíþjóðar. í fregn frá Falkenberg segir, að skothríðin hafi verið sjer- staklega áköf milli kl. 7 og 8 í gærkvöldi. Sáust þá nokkur stór skip úti við sjóndeildar- hringinn. En annars sást ekkert til skipaferða ámeð. an skothríðin stóð yfir, fyr í gær, og ekkert hefir spurst um skipatjón. »Quislingarnir< gerðir útlægir | ögreglustjórinn í Belgrad, I . sem á sínum tíma var inn- anríkismálaráðherra í ráðuneyti dr. Stoyadenowitsch, hefir ver- ið handtekinn. Hann verður á sama hátt og dr. Stoyadenowitsch gerður út- lægur til smáþorps eins 1 Serbíu. Er talið að handtaka hans standi í sambandi við upplýs- ingar, sem komu fram við hús- rannsóknina hjá dr. Stoyadeno- witsch fyrir nokkrum dögum. j FRAMH. Á SJÖTTXJ SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.