Morgunblaðið - 23.05.1940, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 23. maí 1940,
*
<aso»oooooooooooooooo
ÚR DAGLEGA
,<■ LlFINU
<xx>ooo< KXXXXXX
„Tóbaksskrín tómt er í vösum, eyk-
ur pín, ekkert í nösum“, segir í hinu
gamla kvæði um skipakomu eða vand-
ræðin áður en skipið kom og gleðina,
þegal- það kom með allan glaðninginn.
Fyrirhyggjusamir neftóbaksmenn
munu ekki hafa látið sól síga til við-
ar þ. 9. apríl síðastliðinn, án þess að
láta sjer detta 1 hug vandræðin, sem
af hlytist, er slitið var samgöngum við
Danmörku og tóbaksfirmað Brauns-
bræður, er selt hefir hingað alt nef-
tókbak í háa herrans tíð. Verslun
þessa firma með neftóbak hefir náð
jafn langt og bygð íslendinga, jafnt
austanhafs sem vestan. Einhverjir
framtakssamir Winnipeg íslendingar
hafa reynt að láta Ameríkumanninn
búa sjer til annað eins góðgæti í nef-
ið og Braun hinn danski, en ekki
tekist. Svo útlitið hefir ekki verið
glæsilegt fyrir neftóbaksmennina. I
Gullfossfarminum sem kyrsettist í
Höfn þ. 9. april voru að sögn 3000
kg. af rjóli.
Hefðu margir Islendingar hjer fyr
á öldum látið sjer detta í hug að leita
til kraftaskálda og fá þau til þess
að yrkja Gullfoss heim úr hafnbanni
og ófriðarhættu, úr því hann var með
annan eins farm. Máske enn sjeu til
slík kraftaskáld á landi voru.
Hernaðaraðstaðan í Belgiu
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
Frjettastofan segir, að hjeðan af sje engin von til að hersveitir
Bandamanna í Norður-Frakklandi og Belgíu geti brotist í gegn og
náð saman við hersveitirnar hjá Somme. Hersveitirnar, sem þannig
eru króaðar inni, franskar, breskar og belgiskar, segir D. N. B. vera
skipaðar alt að miljón manna.
Bngar áreiðanlegar fregnir eru um, hvar hersveitir þessar hafa
tekið sjer varnarstöðu, en talið er að það sje á vestari hakka Schelde-
fljótsins skamt fyrir austan Ghent í Belgíu og á vestari bakka
Scarpe-fljóts í Norður-Frakklandi.
Hersveitir þessar hörfuðu undan frá Dylevígstöðvunum í síðustu
viku. Bn að þær hafa ekki verið sigraðar ennþá, um það bera um-
mæli von Reichenaus, hershöfðingja 6. hersveitar Þjóðverja, sem sæk-
ir fram nyrst í Belgíu, vitni. Hann talaði við blaðamenn í aðalbæki
stöð sinni fyrir vestan Briissel í gær og sagði við þá, að meginorust-
an hefði ekki verið háð ennþá milli hersveitar sinnar og hersveita
Bandamanna, sem verðust vestan við Schelde og Scarpe.
Þegar franski
hershöfðinginn
var tekinn
höndum
j jóðverjar skýra frá því, að
franski hershöfðinginn Gir-
aud hafi verið tekinn höndum á
þann hátt, að könnunarbryn-
vagn, sem hann var í hafi verið
^ kröaður inni af framsveit þýskra
Talað er um að fá neftók frá Eng- brynvagna.
landi. Menn hafa ótrú á því. En alt er^ Gjraud þefði nýlega tekið VÍð
iyfirstjórn 9. herdeildarinnar og
var á leið til vígvallarins, þeg-
ar hann var tekinn höndum.
hey í harðindum. Annars benti dr.
Helgi Tómasson mjer á það hjer um
daginn, að hinn mæti maður sr. Björn
Halldórsson í Sauðlauksdal segi í
„Grasnytjum"' sínum, að „svenskir“
noti blöð af kartöflugrasi til að drýgja
með tóbak, blöðin tekin á haustin,
þegar þau eru sölnuð og þau söxuð
til helmings saman við tóbakið og
gefist vel. Sennilega koma þessi tó-
baksdr^gindi þó ekki til gi'eina nema
í reyktóbak. En kartaflan 'er skyld
tóbaksjurtinni, sem kunnugt er — og j
ínargt er líkt með skyldum.
★
í gær mætti jeg Sigurði Jónassyni
Tóbakseinkasölu forstjóra. Hann var
‘mjög prunkinn á svipinn. Hann tók
u>p neftóbaksglas úr vasa sínum sem
í var tóbak, er Efnarannsóknastofa
ríki^jns, hcfir. útbúið, sem stæling á
sjálfu Braunsbræðra tóbaki. Neftó-
þaksmönnum fanst stælingin ekki
, slæm. Og reynist hún ígildi þess ekta
Kaupmannahafnartóbaks, þá verður
. Efnaránnsóknastofa ríkisins eftirlæti,
margra neftóbaksmanna, svo mikið er
Víst.
JlO&t&iiizK &
J Það koma stundum fyrir smáskrítn-
,,ir árekstar í umstangi breska herliðs-
ins hjer, eins og t. d. er bveskir her-
menn á Akranesi urðu varif við grun-
samlega útlítandi ferðatösku Pjeturs
jjgHoffmanns fisksala. Hafði Pjetur, að
tfþví er hann segir, keypt töskuna
fcog ekki sint hví að fyrri eigandi hafði
gist.nokkrar þýskar borgir og stóðu
nafnmiðar borganna á töskunni.
Bretinn gerði boð fyrir ;-é%fenda
f.hinnar grunsamlegu tösku, en þegar
’Pjetur kom ekki, tók ekki betra við,
því honum er ógreitt um að tala*ensku
en Bretinn fekk að vita að maðurinn
hjeti Hoffmann, svo nú- var það bæði
tankan og skírnarnafnið sem benti
^Bretanum til þess, að hjer væri Þjoð-
verji á ferðinni. Sýndist Pjetri, eftir
4, því,- sem hann sjálfur segir, brúnin
.. fara að síga á þeim breska. En þá
.. gat Pjptur komið honum í skilning
um að hann væri íslendingur í húð
og hár, þrátt fyrir nafnið. — Þá bað
Bretinn afsökunar á ónæði því, er
8 hann hefði gert, og Pjetur fór sína
leið. En hann mun hafa tekið þýsku
r.öfnin af ferðatöskunni sinni.
Ný varnarlína
Bandamanna
í Noregi
Yfirmaður norska hersins í Há-
logalandi í Noregi skýrði
Norsk Telegrambyrá frá því i gær,
að herir Bandamanna, sem urðu
að hörfa undan frá Mo, hafi nú
komið sjer fyrir í nýjum öflugum
varnarstöðvum un 250 km. suður
af Narvik. 1
Sendiherra Norðmanna í, New
York skýrði frá því í gær, að
norska stjórnin he-fði-faHð sjer að
kalla alla NorðmeMi í Bandaríkj-
unum á aldrinum 21--4Ó «áfa til
herþjónust.u. Þeir verða sendir til
vígstöðvanna í Noregi.
Þýifear flug«
vjelar enn yfir
Svíþióð
—— , p
Tv æ r þýskar sjóflugvjelar
flugu yfir Nórður-Svíþjóð
náíægt norsku landamærunum
í gær. Loftvarnaliðíð hóf skot-
hríð á þær og hurfu þær þá ' á
brott. _ ;
Frá Stokkhólmi er símað, áð
ssénská * sijórnin muni leggja
fram mótmæli í Berlín.
Þýska stjórnin hefir svarað
mótmælum Svía út af árásinni,
sem þýska sjóflugvjelin gerði á
járnbrautarstöðina í Abisko í
fyrradag. Lofar þýska stjórnin
að láta fara fram rannsókn í
málinu.
Forðum í Flosaporti var sýnt
í gærkvöldi fyrir troðfullu húsi.
Næsta sýning er annað kvöld kl.
s y2.
Hæstarjettardómurinn
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
kröfur aðallega, að reikningur
Verslunar Sf. Sv. verðí „dæmdur
ómerkur“ og til vara, að greidd
yrði leiga eftir mati rjettarins.
Iljeraðsdómarinn, bæjarfógetinn
í Neskaupstað, dæmdi Síldarverk-
smiðjuna til að greiða kr. 2736.96
í geymslukostnað.
Þessum dómi áfrýjaði Síldar-
verksmiðjan. Hæstirjettur ómerkti
alla málsmeðferðina í hjeraði.
I forsendum dóms Hæstarjettar
segir:
„Kröfur áfrýjanda, þær er hann
hafði uppi í hjeraði, að reikningur
stefnda verði ómerktur eða til vara,
að honum sjálfum verði dæmt að
greiða stefnda leigu eftir mati dóms
ins, eru ekki dómhæfar. Þó er sá galli
á málatilbúnaði, að kröfur þessar hafa
ekki verið lagðar til sáttanefndar,
enda þótt eigi hafi verið skilyrði til
þess að ganga fram hjá sáttanefnd
samkvæmt 5. gr. laga nr. 85, 1936.
Auk þess hefir dómarinn eigi leitað
sátta um þá kröfðu stefnda, er hann
hafðj uppi í málflutningi, að honum
yrði dæmd öll sú krafa, er reikningur
hans greinir. Af þessum ástæðum,
hvorri fyrir sig og báðum saman,
þykir óhjákvætnilégt að ómerkja dóm
og málsmeðferð í hjeraði og vísa mál-
inu frá hjeraðsdómi.
Eftir atvikum þykir rjett; að máls-
kostnaðúr fyrir hæstarjetti falli niður.
Hjeraðsdómariiin hefir vánrækt leið,-
beiningarskyldu sína bæði um mála
tilbúnað samkvæmt framanskráðu og
um skýringu málsatriða, með því að
umboðsmenn aðilja eru ólöglærðir,
svo óafsakanlega, að ekki þykir verða
hjá því komist að sekta hann ex offi-
cio samkvæmt 3. málsgr. 34. gr. 1. nr.
85, 1936 um 50 krónur til ríkissjóðs,
ag komi 4 daga einfalt fangelsi í stað
sektarinnar, verði hún ekki greidd inn-
an 4 vikna frá birtingu dóms þessa.“
Einar B. Guðmundsson hrm.
fl'utti málið fyrir Síldarverksmiðj -
una, en Garðar Þorsteinsson hrm.
fyrir Yerslun Sigf. Sveinssonar.
leikið annað kvöld kl. 8!/2.
Aðgöngumiðar seldir kl. 4—7
í dag. --------- Sími 3191.
Viðbúnaður Brefa
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU
sínu og lofaði fylgi sínu. Hann sagði, að nú væri ekki tími til
kappræðna, heldur til framkvæmda.
Hin nýju lög ganga undir nafninu „Emergency Power
Defence Act“ í Englandi.
„NÚ ER STUNDIN “
Ým önnur merki þess má sjá í Englandi, að Bretar skilja
hættuna, sem vofir yfir þeim. íj hvatningarræðu sem Duff-Coo-
per flutti í útvarp til bresku þjóðarinnar í gær, sagði hann, að
nú væri stundin komin til að leggja fram sitt ítrasta til að
verja landið.
I ræðu sem Mr. Morrison flutti, sagði hann að nú væri ekki
tími til að Ijúka spilinu og sigra einnig óvininn (Drake, breska
sjóhetjan var að leik, þegar hann frjetti til flotans ósigrandi,
sem Spánverjar sendu gegn Bretum á 16. öld, og sagði þá, að
hann myndi ljúka leiknum og sigra flotann að því búnu).
Morrison sagði, að meiri hætta steðjaði að Bretaveldi, en
nokkru sinni frá því, að flotinn ósigrandi var sendur gegn þeim.
Hvatti hann þjóðina til að vera hugdjarfa og minti hana á um-
mæli Napoleons, að í styrjöld væri hugrekkið tífalt meira virði
en mannfjöldinn.
Tilkvnning
frá hú§aleigunefnd
til leigusala og leigutaka I Reykjavfk.
Samkvæmt lögum um húsaleigu frá 14. maí
1940 er óheimilt að hækka leigu eftir húsnæði
frá því, sem goldið og umsamið var, þegar lög-
in tóku gildi. Þó er heimilt undir sjerstökum
kringumstæðum að hækka leigu eftir mati
húsaleigunefndar.
Leigusala er óheimilt að segja upp leigusamn-
ingum um húsnæði, nema hann þ,uífi á því að
halda fyrir sjálfan sig eða vandamenn sína.
Skylt er að leggja fyrir húsaleigunefnd til sam=
þyktar alla leigumála, sem gerðir eru eftir gild-
istöku húsaleigulaganna, svo og leigumála, sem
gerðir hafa verið.síðan 4. apríl 1939. Þá er skylt
að láta nefndina meta leigu eftir ný hús og
húsnæði, sem ekki hefir verið leigt áður.
Heimilt er leigutaka, telji hann húsnæði leigt
óhæfilega hátt vegna ásigkomulags þess, að
beiðast mats húsaleigunefndar á húsaleigunni.
« ji
Brot á ákvæðum laganna varða sektum frá
5—2000 krónum.
Húsaleigunefnd sje látið í tje samrit eða eftir-
rit af leigusamningum, sem komið er með til
nefndarinnar til samÞykkis, og ber að greiða
2 krónur í stimpilgjald af hverjum leigu-
samningi.
Nefndin er til viðtals í bæjarþingstofimni á
hverjum mánudegi og miðvikudegi kl. 5—7
síðdegis. /
Reykjavík, 22. maí 1940.
Húsaleigunelnd.
LANDSMÁLAFJELAGIÐ VÖRÐUR.
Aðalf undur
Varðarfjelagsins verður í kvöld kl. 8.30 í Varðarhúsinu,
Fyrir fundinum liggja:
Venjuleg aðalfundarstörf o. fl.
STJÓRNIN,