Morgunblaðið - 26.05.1940, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 26.05.1940, Blaðsíða 7
Sunnudagur 26. maí 1940. MORGUNBLAÐIÐ Hðfnaðartilkynn- ing Þjóðverja f gær Itilkynningn þýsku herstjómar- innar í gær segir, að hinat’ bresku og frönsku hersveitir í Flandem og hlutar af 1., 7. og 10. her Frakka sjeu algerlega inni- króaðir. Þjóðverjai' segjast hafa tekið borgirnar Gfent og Courtrai við austurferii hringsins og farið yfir fljótið Lys. Milli Roubaix og Yaleneiennes á iandamærum Frakklands halda þýskar hersveitir uppi árásum. Hæðadrögin. frá Lille yfir Yimy til St. Omer eru í höndum Þjóð- verja. Eftir harða bardaga við land- og sjóher hafa Þjóðverjar náð hinni þýðingarmiklu frönsku hafn arborg Boulogne, og hafnarborg- in Caláis er innikróuð. Tölu hefir ekki verið komið á herfanga og hergögn, sem fallið hafa Þjóðverj um í hendur á þessum slóðum. Þýskir flugmenn hafa gert harð ar árásir á borgir í Norður- Frakklandi, á bryggjur og hafnar mannvirki, stórskotaliðsstöðvar o. s. frv. Sökt hefir verið tundurspilli og sjö flutningaskipum, samtals 20 þús. smálestir, hafa ýmist eyði- lagst af flugvjelasprengjum eða skemst mjög. Áður hefir verið til- kynt, að frÖnskum tundurspilli hafi verið sökt í Ermarsundi með skotum. úr loftvarnabyssum frá ströndinni. Á suðurliluta vígstöðvanna hafa Þjóðverjar hrundið harðvítugum árásum andstæðinganna. TJndan- farna daga hafa þýskar hersveitir tekið hæðadrög sunnan við Sedan og haldið þeim, þrátt fyrir harðar gagnárásir. Á þessum vígstöðvum hafa flugvjelar einnig gert árang- mrslausar árásir á járnbrautarkefi, hesveitir á göngu o. s. frv. í Narvik hafa þýskar flugvjel- .ar gert harðar árásir, bæði á landi og á sjó. Þann 23. maí voru tvö beitiskip skemd svo mjög, að bú- ast má við, að þau sjeu alveg eyði- lögð. Eitt orustuskip varð einnig fyr- ir sprengjum og eitt beitiskip eða tundurspillir. í gær liæfði sprengja þetta sama orustuskip 4 afturþilfar, og eftir það komst skipið ekki af stað. Flugvjelamóðurskip hefir verið ^kotið í bál og er líklega eyðilagt. ,Enn einu beitiskipi hefir verið sökt og nokkur verslunarskip enn oyðilögð eða skemd. Þjóðverjum hefir tekist að koma fallhlífarher- sveitum til Narvik. 84 flugvjelar segjast Þjóðverjar í gær hafa eyði Jagt fyrir Bandamönnum, en sakna aðeins sjö sjálfir. Fyrir þá, sem ætla sjer að sjá skopleikinu „Stundum og stundum ekki“, en hafa ýmist ekki komist 'að, eða annarg. liluta vegna ekki get'að komið því við ennþá, hefir Leikfjelagið ákveðið að hafa 2 til 3 sýningar enn, þó komið sje nú frant yfir þann tíma sem fjelagið hættir vetrarstarfseminni. Næsta sýning verður í kvöld kl. 8V&- Dagbók I. O. O.F. 3 = 1225278 = E. T. 1. Breska sendisveitin hjer í bæ hefir flutt í Þórshamar við Templarasund og þeir sem eiga erindi við sendisveitina, eru beðn- ir að snúa sjer þangað frá og með deginum á morgun. Næturlæknir er í nótt Pjetur Jakobsson, Leifsgötu 9. — Sími 2735. Næturvörður er í Reykjavíkur Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn. Helgidagslæknir er í dag Ólaf- ur Þ. Þorsteinsson, Mánagötu 4. Sími.2255. Næturakstur í nótt hefir Bæj- arbílstöðin, sími 1395. Messað í fríkirkjunni í dag ld. 5, ekki kl. 2, eins og misritast. hafði í gær. Hjónaefni. S.l. föstudag opin- beruðu trúlofun sína ungfrú Soffía Jóhannsdóttir frá Búðar- dal og Þórhallur Pálsson stud. jur. frá Blönduósi. Hjúskapur. í gær voru gefin saman í hjónaband af síra Bjarna Jónssyni ungfrú Hidda Guðmunds- dóttir, Kárastíg 3 og Bjarni Þórð- arson sjómaður, Nýlendugötu 19. ■Hjúskapur. Gefin voru saman í hjónaband 19. þ. m. Guðríður Brynjólfsdóttir og Sighvatur Brynjólfsson tollvörður, Óðinsg. 4. Hjúskapur. í gær voru gefin saman í hjónaband Ljósunn Jón- asdóttir og Yaldimar Hafliðason verkamaður. Heimili þeirra er á Vesturvallagötu 3. Hjúskapur. Gefin voru saman í gær hjá lögmanni Kristjana Haf- liðadóttir og Jón Z. Sigríksson sjómaður Heimili þeirra er á Ljós- vallagötu 14. Hjónahand. í gær voru gefin saman í hjónaband af sr. Ásmundi Guðmundssyni prófessor ungfrú Svafa J. Gúðjónsdóttir frá Kýr- unnarstöðum og Karvel Hjartar- son frá Hjarðarholti í Dalasýslu. IJngu hjónin dvelja á Tjarnar- götu 48. Stjóm íþróttavallarns býður kl. 2 í dag bæjarráði, blaðamönnum, stjórn í. S. í., formönnum íþrótta- fjelaganna o. fl. til þess að skoða endurbæturnar á Iþróttavellinum. Á eft.ir verður boðið til kaffi- drykkju í Oddfello'whúsinui Gjafir til „Sumargjafar“. 25 kr. frá Sæunni Bjarnadóttur, "Winni- peg, 50 kr. frá Siggu, Einari og Ingu. Bestu þakkir. í. J. CTtvarpið í dag: 11.00 Messa í Dómkirkjunni (síra Friðrik Hallgrímsson). 12.15—13.00 Hádegisútvarp. 15.30—16.30 Miðdegistónleikar (plötur); Ýms tónverk. 20.00 Frjettir. 20.30 „Mæðradagurinn“: a) Er- indi: Móðirin (frú Aðalbjörg Sigurðardóttir). b) Tónleikar (plötur): 1) Draumljóð (Schu- mann — Casals leikur). 2) Sofðu, sofðu, góði (Sigv. Kalda- lóns — María Markan syngur). 3) Móðurást. (Þorkell Þorkels- son — Hréinn Pálsson syngur). 4) Vögguvísa (Sehubert — Karlakór Reykjavíkur syngur). 5) Kvöldljóð (Schubert — Cas- als leikur). 21.10 Kantötukór Akureyrar syng- ur (frá Akureyri). 21.45 Frjettir. 21.55 Danslög. Útvarpið á morgun: 12.00—13.00 Hádegisútvarp. 19.30 Hljómplötur: Frönsk lög. 20.00 Frjeítif. 20.30 Sumarþættir (V. Þ. G.). 20.50 Einsöngur (Ólafur Friðriks- son) : a) Árni Thorst..- Rósin. b) Sigf. Ein.: Draumalandið. c) Sigv. Kaldalóns; Heimir. d) Björgv. Guðm.: Vögguvísa. e) Sveinbj. Sveinbj.: Sþrettur. f) Sigv. Kaldalóns: Jeg lít í anda. g) Sjöberg: Tonerna. 2-.10 Kvæði kvöldsins. 21.15 Útvarpshljómsveitin: Til- birgði um ýms þjóðlög. 21.45 Frjettir. Þeir eru auðþektir! Hinn kunn breski rithöfund- ur Harold Nicolson, sem nú er aðstoðarmaður í upplýs- ingamálaráðuneytinu í London, flutti í gær útvarpsræðu, þar sem hann varaði við slúður- sagnahöfundum, sem gerðu sjer mat úr því, að frjettir væru af skornum skamti nú, er alla úyrsti í frjettir. Nicolson sagði að slúðursagna höfundarnir væru auðþektir á úrem einkennum: 1 fyrsta lagi, að þeir hefðu sögur sínar aldrei frá fyrstu hendi („maður sagði mjer..“) 1 öðru lagi á því, að þeir fljettuðu inn í sögurnar alls- konar smáatriðum til að gera þær trúlegri. Og þriðja lagi á því, að þeir brygðust reiðir við ef dregið væri í efa, að sögur þeirra væru sannleikanum samkvæmar. Slúðursagnahöfundarnir eru alstaðar eins, líka hjer á ís- landi. 5 mínútna krossgáta Lárjett. 1. Launa. 6. Þvertrje. 8. Tónn. 10. Persónuforn. 11. Farartæki. 12. í röðinni. 13. Tónn. 14. Vesæl. 16. Sáðlönd. Lóðrjett. 2. Mynni. 3. Kennimaður. 4. Komast. 5. Iðn. 7. Gyllir. 9. Málm- ur. 10. Veggur. 14. Keyr. 15. Fjórmenningar. Þeir, sem þurfa að ná til blaðlesenda í sveitum landsins og smærri kauptúnum, auglýsa í ísafold og Verði. 7 Bardagarnir í Flandern FRAMH. AF ANNARI SÍÐU. alla leið til Lille. Þeir segjast hafa náð hinum mikilvægu Vimy-t íæðum hjá Lille á sitt val. Litla Maginotlínan & svæðinu frá Lille til Maubeuge er fleygur inn í víglínu Þjóðverja, þar sem þeir eru að norðanverðu comnir alla leið til Courtrai og að sunnanverðu til Arras. Havasfrjettastofan skýrði frá því í gær, að orustur stæðu enn yfir hjá Arras og Cambrai. Er þetta fjórði dagurinn, sem skýrt frá orustum á þessum slóðum. MIKIÐ HERLIÐ. Herlið það, sem Þjóðverjar hafa flutt um skarðið milli Arr- as og Amiens, er meira, en talið hafði verið, að því er segir í fregn frá London. Halda Þjóðverjar áfram að flytja lið um skarðið, aðallega skriðdreka og brynvagnalið. í London er á það bent, að liðsflutningur þessi sýni hve mikið kapp Þjóðverjar leggja á að vinna skjótan sigur í Fland*. ern. Til brúðargjafa 1. flokks handslípaður kristall og ekta kúnst-keramik. K. Einarsson & Björnsson Skrifstofur vorar verða lokaðar á morgun mánudag, 27. mai frá kl. 3 e. hád. Ásgarðnr b.f. í gær andaðist í Laúdakotssj úkrahúsi Frú SIGRÍÐUR HALLDÓRSDÓTTIR, ekkja síra Janusar Jónssonar. Fyrir hönd aðstandenda Kristinn Daníelsson Það tilkynnist vinum og vandamönnum, að LOVÍSA GUÐLAUGSDÓTTIR, er andaðist aðfaranótt 17. þ. m., verður jaxðsungin frá Aðvent- kirkjuimi mánudaginn 27. þ. m. og hefst með húskveðju áð heimili mínu Lindargötu 41 kl. IV2 e. h. Steingrímur Jónsson, Jónína Steingríms dóttir og aðrir aðstandendur. Jarðarför BERGSTEINS JÓHANNESSONAR múrarameistara fer fram frá dómkirkjunni þriðjudag 28. maí og hefst með húskveðju á heimili hans Tjamargötu 5 B kl. 1. Böm og tengdaböm. Ölliun þeim, el sýndu okkur samúð yið fráfall 0g jarðar- för konu minnar, móður 0g fósturmóður SOFFÍU MAGNÚSDÓTTUR frá Holti, vottum við hjer með okkar hjartans þakklæti. Hafnarfirði 27. maí 1940. Ingimundur Jónsson, sonur og fósturböm.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.